Þjóðviljinn - 30.06.1973, Side 6

Þjóðviljinn - 30.06.1973, Side 6
6 SÍÐA — ÞJOÐViLJINN Laugardagur 30. júni 1973. DWÐVIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Ingáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiftur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiðsia, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 línur). Askriftarverft kr. 300.00 á mánufti. Lausasöiuverð kr. Í8.00. Prentun: Blaftaprent h.f. Á AÐ EYÐA GRÓÐRI OG SPILLA GAMLA MIÐBÆNUM? Borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir ís- leifur Gunnarsson, sá nýlega ástæðu til að fara með blaðamenn i kynnisferð um höfuðborgina. Fyrir hinum nýkjörna yfir- manni vakti að vekja athygli fjölmiðla á umhyggjusemi borgaryfirvalda um rækt- un grænna svæða og verndun náttúrufeg- urðar. Tiundaði hann m.a. að borgin verði 50 miljónum króna til útivistarsvæða. Allt átti þetta að sannfæra borgarbúa um, að kjörorð það sem borgarstjórinn valdi sér „gróðurinn eltir malbikið” væri enn i góðu gildi. Aðeins fáeinum mánuðum eftir valdatöku þessa unga borgarstjóra urðu menn hinsvegar þess áskynja, að erfið- lega gengi að uppfylla kröfurnar sem einkunnarorðunum fylgdu. Þannig varð borgarstjórinn að játa i sjónvarpi að lok- inni kynnisferðinni, að leggjá yrði malbik- aða hraðbraut um endilangan Fossvogs- dal, fórna gróðurlendinu þar, en vernda Elliðaársvæðið. Ef fullnægja ætti kjörorð- inu, þá hefði borgarstjórinn átt að leggja áherzlu á verndun beggja svæðanna, en umhyggjusemi borgarstjórans nær ekki svo langt. Aðalskipulag Reykjavikurborgar frá árinu 1962 þarfnast að likindum endur- skoðunar, þar sem taka þarf tillit til sjónarmiða náttúruverndar. Það skipulag gerir m.a. ráð fyrir staðsetningu ráðhúss i norðurenda Tjarnarinnar og staðsetningu fleiri opinberra bygginga i gamla mið- bænum. Slikt gerir kröfur til góðra hrað- brauta er tengist gamla miðbænum og þannig er t.d. hraðbraut um Fossvogsdal, er tengist við Sóleyjargötu, hugsuð. Þá býður staðsetning opinberra bygginga i gamla miðbænum uppá kröfur til enn stærri bifreiðastæða þar, væntanlega á kostnað grænu svæðanna. En er ekki orðið timabært að láta sjónarmið nýrrar kyn- slóðar endurskoða slikt skipulag og skrín- leggja endanlega hugmyndirnar um það að safna opinberum skrifstofum i gamla miðbæinn og eyða þannig gömlum bygg- ingum og gróðri? Væri ekki timabært fyrir borgarstjór- ann með fögru kjörorðin að beita sér fyrir slikri endurskoðun á úreltu aðalskipulagi? Nú skömmu eftir að hann hefur tekið við völdum, kemur upp andstaða meðal al- mennings við framkvæmdir, sem einmitt byggja á hinu úrelta skipulagi. Er þar átt við mótmæli áhugamanna um griðland i Fossvogsdal við lagningu hraðbrautar um dalinn og andstaða almennings við fyrir- hugaðri byggingu Seðlabankahúss við norðurenda Arnarhóls, sem ætlað er að risa sem Mammonsmúr og skyggja á út- sýni yfir sundin. Þá mega borgaryfirvöld eiga von á harðri andstöðu við byggingu stjórnarráðshúss á þvi svæði sem Bern- höftstorfan stendur á, og mest mun reiðin verða, þegar farið verður að eyðileggja Tjörnina vegna ráðhússframkvæmda. Ef hinn nýi borgarstjóri og raunar borgarstjórn i heild vill á annað borð hlýða kalli nýs tima, þá er orðið timabært fyrir þá að hefja fyrrnefnda endurskoðun hið bráðasta. Og þess er að vænta að and- staða almennings við fáránlegum skipu- lagshugmyndum muni nú fremur ná eyr- um valdamanna en ella, þvi borgarstjórn- arfulltrúar vita að aðeins eru 11 mánuðir til borgarstjórnarkosninga. En sá borgar- stjóri, sem velur sér fallegt slagorð i upp- hafi valdaferils sins ætti að gæta þess, að gera það ekki innantómt og merkingar- laust, þegar fyrir kosningar. bréf til blaösins íslenzkar stúlkur erlendis prettaðar Nokkur brögð hafa verið að þvi undanfarin ár, að islenzkar fjöl- skyldur búsettar erlendis (þ.á m. fjölskyldur tengdar sendiráðun- um) ráði til sin islenzkar stúlkur á ,,au pair” kjörum, en láti þær siöan starfa sem vinnukonur, þegar þær koma utan, án þess að greiða þeim laun sem þvi svarar. Grundvallarmunur er á þessum störfum. ,,Au pair” samningar voru fundnir upp til þess að gera stúlkum á skólaaldri kleift að dveljast erlendis og stunda þar málanám og annað, og stúlkum, sem ráða sig þannig, hefur aldrei verið ætlað að starfa sem vinnu- konur. Um slika samninga gilda þvi strangar reglur, sem alþjóð- legar samþykktir hafa verið gerðar um, siðast á vegum Evr- ópuráðsins 1971. Samkvæmt þeim á au pair stúlka að vinna létt heimilisstörf fyrir fjölskylduna, t.d. gæta barna og þvo upp, i mesta lagi fimm stundir á dag. Fristundum hennar á jafnan að vera háttað þannig, að hún eigi þess kost að sækja skóla og stunda nám sitt að öðru leyti. Stúlkan á að fá einn fridag i viku, og sá fridagur verður að vera sunnudagur a.m.k. einu sinni i mánuði. Fyrir þessi störf á stúlk- an að fá bæði fæði ög húsnæði (sérherbergi ef auðið er) og þar að auki vasapeninga, sem eru nokkuð mismunandi eftir lönd- um, en eru oft i kringum 7000—8000 kr. islenzkar á mánuði. 1 sumum löndum ber fjölskyld- unni, sem ræður au pair stúlku, einnig skylda til þess að innrita hana i sjúkrasamlag og tryggja hana fyrir vinnuslysum, og bera allan kostnað af þvi. Vanræksla á þessu sviði getur haft alvarlegar afleiðingar. t öllum löndum, þar sem þessir samningar tiðkast, eru sérstakar skrifstofur, sem annast ráðningu au pair stúlkna. Þær gera skrif- legan samning milli stúlkunnar og fjölskyldunnar, eins og vinnu- lög þessara landa gera ráð fyrir, og stúlkan getur siðan leitað þangað, ef henni finnst samning- urinn vera brotinn. Ymsar islenzkar fjölskyldur er- lendis hafa hins vegar þann sið, að ráða stúlkur beint á tslandi án milligöngu nokkurra slikra stofn- ana. Oft er illa gengið frá samn- ingum, þeir eru munnlegir og ó- nákvæmir, og stúlkan þekkir þessi vinnukjör litið sem ekkert. Svo þegar utan er komið fá stúlk- urnar húsnæði, fæði og vasapen- inga eins og ,,au pair” samningar gera ráð fyrir, en þær eru látnar vinna miklu meira en þeir segja fyrir um, stundum meira en nokkru hófi gegnir. t mörgum til- vikum verða stúlkurnar að sæta þessu, vegna þess að þær eru mállausar og bjargarlausar i landinu, eiga þess vegna erfitt með að skipta um vinnu og þeim finnst minnkun i þvi að vera send- ar heim. Þannig notfæra fjöl- skyldurnar sér fáfræði og bjarg- arleysi stúlknanna á ömurlegasta hátt. Þekkt er dæmi um stúlku, sem var látin vinna næstum 12 stundir á dag og gera öll heimilisstörfin, m.a. sjá um öll innkaup, búa til og framreiða mat, ryksuga og þvo gólf, búa um rúm og þvo og strauja allan þvott fyrir utan þau störf sem ,,au pair” stúlkum eru venjulega falin eins og uppþvott og barnagæzlu. Stundum voru fri- dagar hennar ekki virtir og vasa- peningarnir, (sem voru eins miklir og au pair samningar landsins mæla um) voru greiddir óreglulega. Stúlkan gat þvi naumast farið út, og hún neyddist til að hætta námi sinu mjög fljót- lega. Það þarf naumast að taka það fram að þessi meðferð, sem er þvi miður ekkert einsdæmi, er þver- brot á vinnulögum viðkomandi lands. Stúlka, sem innir af hendi svo mikla vinnu, er alls ekki ,,au pair” stúlka og tæplega vinnu- kona heldur, og ætti að fá a.m.k. þrisvar sinnum hærra kaup. En óliklegt er að islenzkar stúlkur hafi áhuga á því að fara til út- landa til þess að starfa þar á þennan hátt sem vinnudýr — jafnvel þótt kaupið væri hærra — þvi að markmið þeirra flestra er að stunda nám eða kynnast land- inu þar sem þær eru staddar. Þess vegna er rétt að brýna það fyrir islenzkumstúlkum sem vilja ráða sig á ,,au pair” kjörum, að fá vandlegar upplýsingar um þau kjör i viðkomandi landi og ganga vel frá samningum áður en þær fara utan. Sumarnámskeið Kvenfélagasambands Kvenfélagssamband Islands efnir til sumarnámskeiðs dagana 20. — 24. ágúst n.k. i húsmæðraskólanum að Hall- ormsstað og er námskeiðið jafnt opið konum og körlum. Helgi Hallgrimsson grasa- fræðingur mun leiðbeina nám- skeiðsgestum við tinslu ætisveppa i Hallormsstaða- skógi, og siðan verður sýni- kennsla i matreiðslu svepp- anna. Einnig verður sýnikennsla i matreiðslu á hreindýrakjöti. Guðbjörg Kolka skólastjóri annast sýnikennsluna. Sigurður Blöndal skógar- vörður sýnir skógræktastöðina. Farið verður i kynnisferðir um nágrennið eftir þvi sem veður leyfir. Þátttökugjald verður um kr. 7 þús. og er þá allur dvalarkost- naður innifalinn i þvi frá hádegi á mánudag til föstudagskvölds. Tilkynning um þátttöku þarf aðberastskrifstofu K.I. fyrir 10. ágúst, ásamt innritunargjaldi, kr. 1 þús. á mann, sem er óendurkræft, en skrifstofa sam- bandsins og Leiðbeiningastöð húsmæðra verða lokaðar frá 9. júli til 6. ágúst vegna sumar- leyfa. Til lafðinnar Þeir svelta bæði og svíkja menn sem þeir gerðu forðum. Lifa Bretar lengi enn á lygi bæði og morðum. Selt fólk — selt land Selja þeir enn, þeir seldu þá, þeir seldu í gær — en á morgun? AAæðra fold og menja gná meiri og meiri borgun. Þegar vinaþjóðir bregðast — ályktun bæjarstjórnar Húsavíkur um landhelgismál Bæjarstjórn Húsavíkur lýsir yf- ir fullum stuðningi við aðgerðir islenzkra stjórnvalda i iand- I byrjun júli kemur til lands- ins ungur sænskur læknir, Karl- Otto Aly að nafni, sem gestur Náttúrulækningafélags Islands. Læknirinn mun dvelja i Heilsuhæli NLFl i Hveragerði um hálfs mánaðar tima til skrafs og ráöagerða i sambandi viö starfsemi félags- ins og væntanlegar hælisbygg- ingar og flytur þar erindi fyrir hælisgesti. Ennfremur flytur hann opinbera fyrirlestra i Reykjavik og á Akureyri, en hann er kunnur og vinsæll fyrir- lesari i heimalandi sinu. Að- gangur að fyrirlestrunum verð- ur ókeypis og öllum heimill, og verður mál hans túlkað jafnóð- helgismálinu. Einnig lýsir bæjar- stjórn yfir fullu trausti á störfum landhelgisgæzlunnar og dáist að hygprýði og ró varðskipsmanna i baráttu við ofureflið. Bæjarstjórn lýsir furðu sinni á skammsýni brezkra stjórnvalda i þessu máli, sem sýnir að gamla nýlendustefnan er ekki liðin undir lok. Þá minnir bæjarstjórn á, að löndunarbann Breta árið 1952 knúði Islendinga til markaðsleitar i Austur-Evrópu. Verður ekki bet- ur séð.'en að aðgerðir Breta nú, ásamt aðgerðarleysi NATO, hljóti að beina islenzku þjóðinni enn frekar á vit austrænna þjóða i von um liðsinni, þegar ýmsar ná- lægar vinaþjóðir bregðast. Að lokum lýsir bæjarstjorn Húsavikur fyrirlitningu sinni á fréttaflutningi brezkra blaða og annarra fjölmiðla um landhelgis- málið, sem vekur alvarlega til umhugsunar um hvort og þá hve- nær sé óhætt að taka mark á fréttum fréttastofa um heims- málin almennt. Telur bæjarstjórnin brýna nauðsyn bera til að neyta allra bragða og spara i engu til að koma réttum lýsingum á atburð- um á Islandsmiðum i heims- pressuna ef takast mætti að sporna við kerfisbundinni rang- túlkun brezkra stjórnvalda og fréttastofa.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.