Þjóðviljinn - 31.08.1973, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 31.08.1973, Qupperneq 3
Föstudagur 31. ágúst 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Eru Skaga menn klaufar í umferð 5 órekstrar i fyrradag Ef þú ætlar til Ítalíu Samkvæmt tilkynningu frá Alþjóðaheilbrigöismálastofn- uninni hefur kólera komið upp a Italiu og hafa 4 látizt úr veikinni. öllum sem hafa i hyggju að ferð- ast til ítaliu á næstunni, er þvi eindregið ráðiö til að láta bólu- setja sig i tæka tið, enda mega þeir búast við, að vottorðs um bólusetningu gegn kóleru verði krafizt við komu hingaö til lands- ins. (Frá landlækni) ölvaður aðkomumaður á Akra- nesi stal þar bifreið i fyrrakvöld, ók henni á aðra af miklum krafti, og stórskemmdi þær báðar. Sérstaklega lék hann sitt ökutæki þó grátt og var það talið gjör- ónýtt. Akurnesingar voru hálf- klaufalegir i umferöinni i fyrra- dag, þótt yfirleitt „geri þeir aldrei nokkurn skapaðan hlut af sér,,” að sögn lögreglunnar. 5 urðu árekstrarnir þennan dag, að visu allir smávægilegir nema sá, sem til varð vegna öl- æðisins. gsp Stjörnuhrapið og Helgi Eftirfarandi visa er ort i til- efni greinar Helga Haralds- sonar I Timanum s.l. miðviku- dag. Fæti drap við eldi og is, ylnaði skap við stallinn. Stjörnuhrapið stööva kýs, stundum tapar karlinn. E.J.E. Þannig er stýrishúsið á Sólfara útleikiö eftir brunann. Eldur kom upp i Sólfara AK 170 út af Skaftárósi aöfararnótt miövikudags. Strandferöaskipiö Esja bjargaöi áhöfninni og dró bátinn tii Reykjavikur, en þangaö var komiö i gærmorgun. Báturinn er mikiö brunninn. 20 þúsund bílaskráningar árlega Styttist í breytingar á númeraskráningu Hugmyndin um að bil- ar landsmanna verði alla bilævi sina með sama skráningarnúmer mun nú vera við það að komast i framkvæmd, og liklegt að lagafrum- varp um það efni verði lagt fyrir næsta þing. Ólafur Volter hjá dómsmála- Norskur tölvufræð' ingur í boði ASI Þcssa dagana er staddur hér á landi i boöi ASI Norðmaöurinn Kristen Nýgard en hann er rann- sóknastjóri hjá Norsk Regnesentral scm er töivu- miöstöö þeirra Norömanna. Astæðan fyrir boði ASI er sú að Nygard hefur unnið braut- ryöjendastarf i að nýta tölvur i þágu norskrar verkalýðs- hreyfingar. Hefur hann skrifað kennslubók um notkun og mis- notkun á tölvum sem hefur undir- titilinn ,,En grunnbok for fag- bevegelsen” og hefur verið notuð talsvertaf verkalýðshreyfingunni i Noregi. Hér á landi mun Nýgard halda nokkra fyrirlestra á vegum ýmissaaðila. A miövikudaginn 5. september mun hann flytja al- mennan fyrirlestur á vegum ASI og Norræna hússins um efnið „Hvernig ber verkamönnum að auka vald sitt yfir eigin vinnu?” A þriöjudag og fimmtudag mun Framhald á 11. siðu. ráðuneytinu sagði blaðinu að málið væri að visu ekki frágengið, en þó nær þvi en verið hefur, en hugmyndin um slika skráningu er orðin 8 eöa 9 ára gömul innan stjórnkerfisins. I tengslum viö athugun á toll- stjóraembættinu fór þetta mál i gang, þvi innheimtan þar var tengd bilaskráningunni. A siðast liðnu ári var all mikil athugun á rekstrinum inn i Bifreiðaeftirliti, afgreiðsluháttum þar og þess háttar. Láta mun nærri að ný- skráningar og umskráningar á bifreiðum séu 20 þúsund ár hvert. Með nýskipan skráningar þannig að bill hefur ávalt sama skráningarnúmer, og þvi aðeins skráður einu sinni hvar sem hann er á landinu i þaö og það sinniö, má ætla að sparist miljónir króna. Núverandi lög byggja á um- dæmaskráningu, — 25 skráningarstaðir — og þvi þarf að breyta lögunum á Alþingi til aö áform þessi nái fram. 9 bátar fóru erindis- leysu við bátsleit 9 bátar frá Siglufirði voru komnir út á fjörð og viðar að leita að manni á gúmmibát, sem farið var aö undrast um. Meðan leitin stóð sem hæst birtist maðurinn, öllum á óvart, skyndilega i eldhúsdyr- unum heima hjá sér og bauð góöan daginn. Hafði hann lagt af stað til Héöinsfjarðar á laugardaginn og var að koma þaðan er hann sást út af Reyðaránni, þ.e.a.s. úti á rúmsjó. Var þá farið að skyggja og slæmt i sjóinn. Virtist báturinn eiga i ein- hverjum erfiðleikum og var strax brugðið við og bátar sendir til hjálpar. Var það seint i fyrrakvöld sem bát- arnir lögðu af stað og fannst gúmbáturinn ekki, þ.rátt fyrir mikla leit. 1 gær var henni haldið áfram en árangurs- laust. Það var enda ekki nema eðlilegt að gúmbáturinn fyndist ekki, maðurinn var kominn heim til sin, við beztu heilsu og haföi ekkert amaö að hjá honum. Hann lagði af stað frá Héðinsfirði i fyrradag og gekk sjóferðin ágætlega, nema hvað slæmt var I sjóinn þar sem til hans sást um kvöldið. —gsp Lögreglu- vörður við brezka sendi- ráðið Lögreglumennirnir styttu sér stundir meö þvi að berja kylfum sinum i vesalings varadekkið, sem er aftur i bilnum. Annaö höföu laganna verðir ekki aö gera i varðstöðu sinni fyrir utan brezka sendi- ráöiö i gær — sem betur fer. Þetta var nú lika allnokkuð, a.m.k. vakti þessi kylfubar- smiö mikla kátinu i bilnum og glumdu hlátrasköllin um við- an völl. Annars var varðstaða og viöbúnaður lögreglunnar mikill við brezka sendiráöiö i gær og nótt. Bjóst lögreglan við einhverjum gestum vegna banaslyssins um borð i Ægi, en þá lézt einn skipverji vegna ásiglingar á Ægi. En borgarbúar virtust taka málinu á annari veg en þann, að rjúka upp i sendiráö og henda þar grjóti eða gera ann- an óskunda. Deilurnar við Breta eru orðnar alvarlegri en svo, að slikt geri lengur gagn. Þegar varðskipsmenn, og aðrir full- trúar Islendinga i landhelgis- málinu, eru komnir i lifshættu. er mönnum annað ofar i huga en árás á einhvern húskofa viö •Laufásveginn. gsp

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.