Þjóðviljinn - 31.08.1973, Síða 4

Þjóðviljinn - 31.08.1973, Síða 4
SíÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagnr 31. ágúst 1973. MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Otgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 18.00 Prentun: Blaöaprent h.f. ÞJÓÐIN HARMI SLEGIN Þjóðin öll er harmi slegin vegna þess at- burðar, er gerðist á miðunum i fyrradag, þegar Ilalldór Hallfreðsson, vélstjóri, lézt við störf sin um borð i Ægi i beinu fram- haldi af ásiglingu freigátunnar Appollós á varðskipið og siðan ásiglingartilraunum Það hefur greinilega verið stefna brezku stjórnarinnar að undanförnu að eyði- leggja varðskipin. Hefur verið siglt á hvert varðskipið á fætur öðru, jafnvel inn- an 12 milna markanna eins og gerðist á Ægi i fyrradag. Þessi framkoma brezku stjórnarinnar er svo alvarleg, að ástæða er til þess að staldra nú við og taka ákvarðanir um mótaðgerðir. Reiðialda fór um allt Island i gær eftir að hinn svivirði- legi verknaður brezka dráttarbátsins kom i ljós, er vélstjórinn lézt um borð i Ægi. Bretar telja, að þeir geti með ofbeldi unnið yfirstandandi deilu við íslendinga. En af viðbrögðum almennings á íslandi i gær er ljóst, að íslendingar láta ekki beygja sig. Þeim mun andstyggilegra sem ofbeldi Breta verður þeim mun augljósari verður samstaða og harka allra íslend- inga, sem nú krefjast þess, að Bretum verði svarað á viðeigandi hátt. Eins og lögð var áherzla á i Þjóðviljan- um i gær, er það dagsverkefni íslendinga dráttarbátsins Statesman. Statesman gerði tilraun til þess að sigla á Ægi innan 12 milna markanna meðan unnið var að viðgerð varðskipsins. Þegar Ægir lagði af stað undan dráttarbátnum kom alda að varðskipinu og féll Halldór heitinn við, að tryggja fullnaðarsigur i landhelgis- baráttunni um 50 milurnar. Eftir að of- beldis- og niðingsframkoma Bretanna verður augljósari verður þetta verkefni brýnna og þjóðin um leið fúsari til að axla byrðar baráttunnar. Landsmenn verða að gera sér Ijóst, að deilan við Breta er deila við brezku stjórnina og þess vegna verður að gripa til mótmælaaðgerða á millirikja- grundvelli. Á þetta má benda sem hugsan- legar aðgerðir. Við getum kallað heim allt starfslið sendiráðs okkar i London og skipað brezka sendiherranum að fara héðan strax, a.m.k. til bráðabirgða. Við getum slitið stjórnmálasambandi við Breta. Við eigum að kalla heim sendiherra ís- lands hjá NATO. Brezku herskipin sem notuð eru til að brjóta alþjóðalög, islenzk lög, og til niðingsverka á íslandsmiðum eru NATO-herskip. Við eigum ekkert fékk raflost af tækjum sem hann var að vinna með og missti þegar meðvitund. Björgunartilraunir báru ekki árangur og i gærdag var gefin út tilkynning frá Land- helgistæzlunni um þennan hörmulega at- burð. Þjóðviljinn vottar eiginkonu Hall- dórs heitins og öllum aðstandendum dýpstu samúð. erindi i hernaðarbandalagi með slikum aðilum. Við eigum að hætta að þjónusta brezku skipin sem hafa tekið að sér að vernda veiðiþjófana. Við getum beitt þvi leynivopni sem myndi duga til þess að Bretar færu út úr landhelginni, en það er að við hótum úr- sögn úr Atlanzhafsbandalaginu. Landsmenn krefjast þess i dag að beitt verði ráðum sem duga og enginn íslend- ingur getur tekið hagsmuni neinna er- lendra aðila fram yfir íslenzka hagsmuni og framtið sinnar eigin þjóðar. Brezka togaraauðvaldið og handbendi hennar, svokölluð rikisstjórn Breta, verða að skilja það svo ekki verði um villzt, að niðingsverk verða ekki liðin. Niðingsverk- um verður mælt með sterkari samstöðu þjóðarinnar sjálfrar.Þannig vinnst sigur í landhelgismálinu. Bretar skulu vita það, að engum íslendingi dettur i hug að hvika um hársbreidd. Við sigrum Breta. Við eig- um ráð til þess og þeim verður að beita. Við munum eigi vikja. VIÐ MUNUM EIGI VÍKJA Kaupstefnan íslenzkur fatnaður Skærari litir vinsælir í ár „íslenzkur fatnaður” licitir hin árlega kaup- stefna, sem fram fer i iþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi. i ár hófst sýningin i gærdag og stendur fram til 2. september. Um tuttugu fyrirtæki sýna þarna framleiðslu sína, skó, fatnað ýmiss konar o.fl. Það einkennir sýning- una að nokkru, að skær- ari litir eru að verða al- gengari, fólk virðist vera farið að meta þá öllu meira en áður. Kaupstel'nan er haldin vor og haust og sækja hana kaupmenn og innkaupastjórar viðsvegar að af landinu. Eingöngu eru sýnd is- lenzk föt og framleiðsla á þessari sýningu, en i henni taka þátt allir í fréttum frá rómansk- amerisku fréttastofunni Prensa Latina er greint frá því að bandariskir auð- hringar gerist stöðugt að- gangsharðari í Gúatemala. Nú eru það einkum nikkelnám- ur landsins, sem vekja ágirnd helztu fatalramleiðendur á ts- landi. Það eru 19 aðilar sem sýna á kaupsteínunni: Alafoss hf., Artemis sf. nærfatagerð, Bergmann hf., Fatagerð J.M.J. hf., Hálsbindagerðin Windsor, L.H. Muller, fatagerð, Lady hf., Lexa — hálsbindagerð, Nærlatagerðin Ceres, Papey — sokkaverksmiðja, Peysan sf ., Prjónastofan Dyngja hf., Prjónastofan Iðunn hf., Anna Þórðardóttir — prjónastofa, Skóverksmiðjan Agila hf., Sjóklæðagerðin hf., Verksmiðjan Max hf., Saumastofa önnu Bergmann, Verksmiðjan Dúkur hf., Vinnufatagerð tslands hf. Kaupstefnan er einungis opin kaupmönnum og innkaupastjór- um: öðrum er ekki heimill að- gangur. Til að gefa almenningi hins vegar nasasjón af þvi sem fram- undan er i vetrarklæðnaði verður tizkusýning i kvöld á Hótel Sögu. kanans. og hafa auðhringarnir á sinum vegum sérstakt fyrirtæki. kallað Exmibal, til þess að nýta þær. Nýlega hefur International Finance Corporation i Washing- ton veitt Exmibal fimmtán miljón dollara lán, og Export-Import Bank, sem rekinn er af Banda- rikjastjórn, hefur lánað sama fyrirtæki þrettán miljónir doll- ara. Það liggur þannig i augum uppi aö bandariska peningavaldið hyggur gott til glóðarinnar i Guatemala. Nikkelnámur Gúatemala eru mjög auðugar. og Exmibal hefur eignast svæðið, þar sem málmur- inn er i jörðu, sér að kostnaöar- litlu. aðeins þurft að borga fimm- tiu dollara fyrir ferkilómetrann. Reiknað hefur verið út að Gúate- mala muni á næstu tiu árum tapa um hundrað miljónum dollara á ári á samningunum, sem lepp- stjórn bandariska peningavalds- ins i landinu hefur gert við auð- hringana um nikkelnámið. Argentína krefst F alklands- eyja BUENOS AIRES — Fulltrúi Venesúelu hjá þeirri nefnd Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um afnám nýlendukerfisins, hef- ur lagt fram tillögu i þá átt að hraðað verði viðræðum Bretlands og Argentlnu um Falklandseyjar, sem Argentinumenn kalla Malvinas. Falklandseyjar eru ellefu þúsund ferkilómetrar að flatar- máli og ibúar um þrjú þúsund talsins, flestir brezkættaðir. Bretar lögðu undir sig eyjarnar 1832, en Argentinumenn telja þær tilheyra sér af landfræðilegum orsökum og hafa aldrei viður- kennt yfirráð Breta þar. Bretar hafa einkum notaö eyj- arnar sem birgðastöð fyrir her- flota sinn og fiskiskip, en vegna framfara i samgöngutækni hefur nú mjög dregið úr mikilvægi eyj- anna fyrir þá. Auk þess er Bretum mikiö i mun að halda góðu sambandi við Argentinu- menn, sem selja þeim firn af kjöti. Samningaviðræður um framtið eyjanna voru fyrir all- löngu teknar upp milli rikjanna, en nú fyrir skömmu slitu Bretar þeim viðræðum. Hefur það vakið mikla gremju i Argentinu og viðar i Suður—Ameriku, en þar taka menn yfirleitt upp þykkjuna fyrir Argentinumenn i máli þessu. Félagsstarf eldri borgara Mánudaginn 3. sept. verður opið hús frá kl. 1.30 e.h. að Hallveigarstöðum. Dagskrá: Spilað, teflt, lesið, kaffiveit- ingar og bókaútlán. Allir 67 ára borgarar og eldri velkomnir. Arðrán kana í Gúatemala

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.