Þjóðviljinn - 31.08.1973, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. ágúst 1973.
Flugrán og
bréfasprengingar
Þátturinn AÐ UTAN,
fréttaskýringaþáttur í
máli og myndum, er í
kvöld. Umsjón hans ann-
ast Jón Hákon Magnús-
son.
Rætt verður um flugrán
í Mið-Austurlöndum og
haft tal af Georg
Habbasj, sem er einn
helzti leiðtogi
palestínskra skæruliða.
( fyrradag sameinuðust
opinberlega í eitt ríki
Líbýa og Egyptaland. —
Hið nýja ríki mun hafa
byltingarsinnaðar megin-
reglur að leiðarljósi og
vinna að því, að ná aftur
landssvæðum þeim sem
hernumin hafa verið af
ísrael.
Þá verður viðtal við
Julie Nixon, dóttur
Þcssi mynd sýnir palestinskan dreng, Muhammed Suliman Ali,
afteins sjö mánaöa gamlan, en þá var hann aöeins 1,9 kg og haföi
þá létzt mikiö frá fæöingu. — Ilcimkynni hans eru flóttamanna-
húðir á Ga/.asvæöinu f Palestinu, sem israelsmenn hernámu.
Kftir fimm mánaöa dvöl i læknamiöstöð var hann oröinn 5,5 kg,
en h vort hann nær sér nokkru sinni til fulls er óvist. —
Svo sem kunnugt er af
fréttum rændu ísraels-
menn líbanskri farþega-
flugvél, sem var á leið
milli Beirútog Bagdad 10.
ágúst s.l. á alþjóðlegri
flugleið. Ránið var harð-
lega fordæmt af ráði al-
þjóðlegu flugmálastofn-
unarinnar (ICAO).
(sraelsmenn höfðu sterk-
an grun um að Habbasj
væri meðal farþega í vél-
inni, en megintilgangur
þeirra var að ná honum á
sitt vald. En flugvélin
reyndist Habbasj-laus
þegar til kom.
Nixons Bandaríkja-
forseta, en hvað hún hef ur
aðsegja um Vatnsgatið er
enn ekki vitað.
Einnig verður að líkind-
um fjallað um bankarán-
ið fræga í Svíþjóð, en
bankaræninginn var
svældur út að lokum, eftir
6 daga umsátur, með tára-
gasi.
Ennfremur verður sagt
frá bréfasprenginga-
faraldrinum sem dunið
hefur yfir Breta og fleiri
nú að undanförnu, oft
með hinum hörmulegustu
afleiðingum. LTH
Svavar Gests er með
bráðskemmtilegan út-
varpsþátt á föstudögum,
MEÐ SíNU LAGI.
Fáeinar spurningar
voru lagðar fyrir Svavar í
sambandi við þennan þátt
og svaraði hann þeim
greiðlega.
— Ferðu eftir einhverri
ákveðinni reglu í laga-
vali?
Ég smíða mér hug-
myndir, vel þá bezfu úr —
að mínu viti — og vinn
síðan eftir henni.
— Likar þér ekki bezf
að syngja „með þínu
lagi"?
í því sambandi er tæp-
lega hægt að tala um lög,
því ég er næstum alveg
laglaus.
— Hvernig er með
brandarana í þessum
þáttum; eru þeir stældir,
stolnir eða frumsamdir?
Þaðersvipað með þá og
krydd: Þeireru úrýmsum
áttum.
— Eru blaðamenn ekki
skemmtilegustu menn
sem þú hefur komizt í
kynni við?
Jú, á meðan þeir opna
ekki munninn!
sjónvarp nœstu viku
SUNNUDAGUR
17.00 Endurtekið efni. Lengi
býr að fyrstu gerð. Banda-
risk fræðslumynd um rann-
sóknir á atferli og eiginleik-
um ungra barna. Þýðandi
og þulur Gylfi Pálsson. Áður
á dagskrá 17. júni siðastl.
18.00 Töfraboltinn. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson. Þul-
ur Guðrún Alfreðsdóttir.
18.10 Maggi nærsýni. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.25 Einu sinni var.... Endur-
tekinn þáttur með gömlum
ævintýrum i leikformi. Þul-
ur Borgar Garðarsson.
18.45 Illé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Emma. Nýr framhalds-
myndaflokkur frá BBC,
byggður á sögu eftir brezku
skáldkonuna Jane Austen
( 1775—1817). Leikstjóri
John Glenister. Aðalhlut-
verk Doran Godwin, John
Carson, Donald Eccles og
Constance Chapman. Þýð-
andi Jón O. Edwald. Aðal-
persóna sögunnar er Emma
Woodhouse, ung og glæsileg
stúlka, vel gefin og glað-
lynd, en haldin ólæknandi á-
ráttu til að „koma fólki
saman” og stofna til trúlof-
ana, þar sem færi gefst.
21.10 Teiknimyndir. Tvær
stuttar, bandariskar mynd-
ir. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
21.20 Illið Kina opnast.
Bandarisk kvikmynd gerð
1972 um Kinaveldi og sögu
þess siðustu fimmtiu árin.
Yfirlit þetta er gert af Kina-
sérfræðingnum John Roder-
ick, og er þar rakin þróun
kinverskrar menningar og
breytingar, sem orðið hafa
á atvinnumálum og stjórn-
arfari á þessu timabili. Þýð-
andi og þulur Ellert Sigur-
björnsson.
22.20 Að kvöldi dags. Sr.
Garðar Þorsteinsson flytur
hugvekju.
22.30 Dagskrárlok.
MANUDAGUR
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Snækapparnir. Gaman-
söm kvikmynd um snjó-
sleðaáhuga i Kanada. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
20.40 Allt er fimmtugum fært.
Sænskt sjónvarpsleikrit eft-
ir Lars Forsberg, Þýðandi
óskar Ingimarsson. Aðal-
persónur leiksins eru fjórir
miðaldra menn, skólabræð-
ur, sem allir starfa við sömu
stofnun og hafa alla tið
reynt i sameiningu að við-
halda anda æskuáranna.
Upp á siðkastið hefur þeim
reynzt erfitt að endurlifga
gamlar minningar til fulls,
þrátt fyrir dýr og vandlega
skipulögð ferðalög til staða,
þar sem þeir skemmtu sér
ungir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
22.00 Vitund og visindi.
Bandarisk kvikmynd um
dulskynjun. Greint er frá
rannsóknum og mælingum
á draumum, hugleiðslu,
fjarskyggni og lækninga-
mætti og fleiri atriðum, sem
til þessa hafa yfirleitt ekki
átt upp á pallborðið hjá vis-
indamönnum. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
22.35 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Riddarinn ráðsnjalli.
Franskur ævintýramynda-
flokkur. 9. og 10. þáttur.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Efni 7. og 8. þáttar:
Riddarinn kemst til hallar
Sospelle greifa með um-
ferðaleikflokki. Þar er Mir-
eille, njósnari Richelieu
kardinála. Hún segir ridd-
aranúm að sækja Force,
hershöfðingja, til Var, en
hann er fulltrúi Frakka á
vopnahléáráðstefnu, sem
halda á i höllinni, og Spán-
verjar vilja vinna Casal, áð-
ur en ráðstefnan er haldin.
Riddarinn kveður nú leikar-
ana, en Isabella Sospelle,
unnusta hans, kemur að, er
leikkona kyssir hann
kveðjukoss. Hún heldur
þegar til fundar við foringja
Spánverja og segir til ridd-
arans.
21.20 Oliuslys. Þáttur um
oliumengun og varnir gegn
henni, og skaða þann, sem
stafað getur og stafað hefur
af vanrækslu og sinnuleysi á
þessu sviði. Magnús Bjarn-
freðsson stýrir þættinum.
21.55 iþróttir. Meðal annars
kvikmynd frá siðari degi
Evrópumótsins i fjölþraut-
um.
Dagskrárlok óákveöin.
MIÐVIKUDAGUR
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Lif og fjör i læknadeild.
Brezkur gamanmynda-
flokkur. Lik i læknishendi.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
20.55 „Keisari nokkur, mætur
mann”. Frönsk heimilda-
kvikmynd um Haile Sel-
assie, Eþiópiukeisara, ævi
hans og störf, en hann er
einn af elztu þjóðhöfðingj-
um heimsins og hefur verið
kunnur um allan heim slðan
I Abessiniustyrjöldinni á 4.
tug aldarinnar. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
21.50 Mannaveiðar. Brezk
framhaldsmynd. 6. þáttur.
Opið hús. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson. Efni 5. þátt-
ar: Þremenningarnir halda
brott frá æskuheimili Vin-
cents og hyggjast komast
yfir um ána Cher til Spánar
og siðan Englands. Þau
komast i kast við tvo þýzka
varðliða og fella þá. Félag-
ar þeirra ná Vincent á sitt
vald, en Jimmy tekst að
frelsa hann. Vincent sann-
færist um, ab Nina sé gagn-
njósnari, og það kemur i
hlut Jimmys að taka hana
af lifi. Hann hættir þó við á
siðustu stundu. Þau komast
yfir ána Cher, en verður það
brátt ljóst, að Þjóðverjar
eru að leggja allt landið
undir sig. Einnig kemur það
i ljós, að þeir hafa haft Ninu
fyrir rangri sök, en undan-
komuleiðin virðist þeim lok-
uð i bili.
22.45 Dagskráriok.
Eþfópfukeisari meö „gæludýrum” sínum við dyr
keisarahallarinnar.
FÖSTUDAGUR
20.00 Fréttir,
20.25 Veður og augiýsingar.
20.30 Fóstbræður. Brezkur
• sakamála- og gaman-
myndaflókkur með Tony
Curtis og Roger Moore.
Mannræningjarnir. Þýð-
andi Öskar Ingimarsson.
21.20 Hestamót sumarsins.
Svipmyndir frá nokkrum
sunnlenzkum hestamótum,
þar á meðal frá móti á
Mánagrund við Keflavik og
siðsumarskappreiðum
Fáks. Umsjón Ómar Ragn-
arsson.
22.00 Að utan. Þáttur með er-
lendum fréttamyndum.
Umsjón Sonja Diego. ■
22.40 Dagskráriok,
LAUGARDAGUR
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Söngelska fjölskyldan.
Bandariskur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir.
20.50 Skroppið i geimferð.
Bandarisk kvikmynd um
ævintýri ellefu ára drengs,
sem imyndar sér, að hann
fari I geimferð til tunglsins.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.35 í beinhörðum peningum.
(Cent Briques et des tuiles)
Frönsk biómynd frá árinu
1963. Leikstjóri Pierre
Grimblat. Aðaihlutverk
Jean Claude Brialy. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
Nokkrir framtakssam ir
menn fara i jólaösinni i stórt
vöruhús og stela þar miklu
fé, en fyrir slysni lenda pen-
ingarnir i annarra höndum.
23.10 Dagskrárlok.
LTH