Þjóðviljinn - 31.08.1973, Qupperneq 12
OIÚDVIUINN
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Nætur,- kvöld,- og helgidagaþjón-
usta lyfjabúðanna i Reykjavik
vikuna 24. ágúst til 30. ágúst verð-
ur i Vesturbæjarapóteki og Háa-
leitisapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Frið-
væn-
legri
horfur
í Chile
Dauðadómar
í Marokkó
RABAT 30/8 — Herdóm-
stóll hefur dæmt til dauða
sextán menn, sem sakaðir
eru um , að hafa staðið að
tilraunum til að steypa
Hassan konungi af stóli.
Fimmtán menn voru
dæmdir til ævilangrar
fangelsisvistar fyrir sömu
sök. Alls hlutu fimmtíu og
sex manns dóm við þetta
tækifæri, en um sjötíu
manns, sem einnig höfðu
verið ákærðir, voru sýkn-
aðir.
Meðal þeirra dæmdu
voru margir lögfræðingar
og meðlimir stjórn-
málaflokka þeirra, er
stjórn konungs telur sér
andstæða.
Alþýðubandalagið á ísafirði
Alþýðubandalagið á Isafirði heldur fund i Vinnuveri sunnudaginn 2.
september kl. 2 eftir hádegi.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
2. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund Alþýðubandalagsins.
3. önnur mál.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
SANTIAGO 29/8. — Likur eru
taldar á þvi að breytingar
þær, sem Salvador Allende
forseti Chile hefur gert á
stjórn sinni geti leitt til
batnandi samkomulags milli
stjórnar og stjórnarandstöðu.
Einkum er vonast til að skipun
hlutlauss manns i embætti
innanrikisráðherra muni
lægja öldurnar, svo og það að
fjóriræðstu menn hers og lög-
reglu eiga sæti i stjórninni.
Skipað var i stjórnina á
þriðjudagskvöld, og sagði
Allende við það tækifæri að
hann væri staðráðinn i að
slaka hvergi á sósialiskri
stefnu stjórnarinnar. Hann
sagði að stjórnin ynni undir
merkjum byltingarsinnaðrar
þróunar og hún léti ekki
hryðjuverk og hótanir fasista
hræða sig frá þeirri braut.
Hinn nýi innanrikisráðherra
heitir Carlos Briones, er pró-
fessor i lögum og hefur ekki
haft afskipti af flokkastjórn-
málum.
Nixon
þverskallast
WASHINGTON 30/9.
— Nixon Bandarikja-
forseti hefur neitað að
hlýta þeim úrskurði
Johns Sirica, dómara
i Watergate-málinu,
að afhenda hljóð-
ritanir sem snerta
málið.
Einn hcrmanna I.on Nols meft
alvæpni hjá fornri guftamynd.
Liðsmenn
Sihanouks
í sókn til
Pnom Penh
FNOM PENH 29/8. — A blafta-
mannafundi á miðvikudaginn
fullyrti Lon Nol forseti Pnom
Penh-stjórnarinnar aft lifts-
menn hans myndu sigra I
borgarasty rjöldinni I Kam-
bodíu. En samtimis bárust
þær fréttir aft Rauðu Kmer-
arnir (Kmer Rouge) væru I
sókn tilborgarinnar úr þremur
áttum. Er þvl heldur lítift lagt
upp úr hreystiyrftum Lon
Nois.
Ilersvcitir stjórnar hans
reyna nú aft opna aftalvegi
fjögur og fimm út frá borg-
inni, en árangurslaust. Lon
Nol notafti blaftamanna-
fundinn annars einkum til að
hella sér yfir andstæðing sinn,
Norodom Sihanouk, sem hann
valdi hin verstu orft.
Lin Piaó fordæmdur i Peking
PEKING 30/8 — Á tíunda
flokksþingi kínverska
kommúnistaflokksins, sem
nú er nýlokið, var lýst yfir
fordæmingu á Lin Píaó,
fyrrum varnarmálaráð-
herra og fyrirhuguðum eft-
irmanni Maós. Var Lín á
þinginu kallaður borgara-
legur framagosi og form-
lega rekinn úr flokknum.
En Lín fórst sem kunnugt
er í flugslysi á flótta til
Sovétríkjanna, að því að
talið er.
Hinn kunni ástralski blaðamað-
ur Wilfred Burchett, sem er mik-
ill sérfræðingur I Austur-Asiu-
málum, hefur látið hafa eftir sér
nýjar upplýsingar af samsæri
Lins gegn Maó og segist hafa þau
tiðindi eftir háttsettum fulltrúum
á flokksþinginu. Samkvæmt þeim
upplýsingum reyndi Lin Piaó
fyrst að sprengja i loft upp járn-
brautarvagn, sem Maó ferðaðist i
frá Nanking til Peking. Þegar það
mistókst, gerði Lin út mann til
heimilis formannsins i þeim til-
gangi að myröa hann. Þegar þaö
fór einnig út um þúfur, reyndi Lin
að flýja land.
Samkvæmt myndum frá
flokksþinginu er Maó formaður
enn við beztu heilsu og völd hans i
flokki og riki viröast i engu hafa
dvinað, nema siöur væri. Mylíd
var birt af honum i dag i aðalblaði
flokksins ásamt Sjú En-lai for-
sætisráðherra og Vang Húng-ven,
sem á þinginu var kjörinn einn af
fimm varaformönnum i stjórn
miðnefndar flokksins. Þykir þetta
benda til þess að Vang gangi þeim
Maó og Sjú næst að völdum. Vang
er þrjátiu og sex ára að aldri og
þykir vaxandi vegur hans og fleiri
yngri manna I sambandi við
flokksþingið benda til þess, að nú
sé lögð áherzla á aö yngja upp
flokksforustuna, þótt eldri menn-
irnir séu áfram fastir i sessi.
Erlendir sérfræðingar um kin-
versk stjórnmál, sem fylgdust
með flokksþinginu, segja að mið-
nefnd og framkvæmdastjórn
flokksins hafi gætt þess þar vand-
lega að fara bil beggja, róttækari
arms flokksins og þeirra sem
hægar vilja fara i sakirnar. Enn-
fremur sé ljóst, að herinn komi á-
fram til með að hafa mikil áhrif á
stjórnmálin.
Enn einn gámurinn fór villur vega niðri við höfn i gær. Svo slysalega
vildi til aðhann féll niður á fagramfólksbil, sem sennilega réttir ekki úr
kryppunni eftir þetta. A myndinni sést hvernig gámurinn liggur á
bilnum, sem lika mun hafa veriö óheppilega staðsettur á athafnasvæð-
inu við höfnina. (ljósm. A.K.)
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Sakaður um tvö
morðtilræði við
Maó formann