Þjóðviljinn - 12.09.1973, Qupperneq 7
Miðvikudagur 12. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Þannig voru tillögur afgreiddar í ríkisstjórninni
StJ órnniálasaniskiptuni
við Breta slitið
— komi til ásiglinga. Njósnaflugið stöðvað. — Afstaðan
til NATO enn á dagskrá stjórnarinnar
Rikisstjórnin samþykkti á fundi sinum i gær-
morgun — einum rómi — að stjórnmálasamskiptum
við Breta verði hætt ef þeir reyna ásiglingu aftur á
varðskip okkar eða fiskiskip. Þá var og samþykkt
að leggja svo fyrir islensku flugumferðarstjórnina
að hætta hér eftir að veita bresku njósnaflugvélun-
um þjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Þessar samþykktir rikisstjórn-
arinnar eru gerðar i framhaldi af
tillöguflutningi Lúðviks Jóseps-
sonar sjávarútvegsráðherra i rik-
isstjórninni 3. sept. sl. og Olafs
Jóhannessonar forsætisráðherra i
rikisstjórninn i i gær.
Tillögur Lúðviks
t tillögum Lúðviks Jósepssonar
var gert ráö fyrir eftirfarandi að-
gerðum vegna nýrra viðhorfa i
landhelgisdeilunni við Breta:
1. 011 þjónusta við njósnaflug-
vélarnar verði stöðvuð.
2. Þvi verði lýst yfir að lofthelgi
okkar nái út að 12 milum.
3. Bresku rikisstjórninni verði
tilkynnt að þess sé óskað að hún
kalli sendiherra sinn heim og
starfsfólk sendiráðsins.
4.Sendiherra Islands hjá NATO
verði kallaður heim og öllum
störfum hætt á snærum þess
bandalags.
5. Að Islendingar lýsi þvi yfir að
þeir telji aðstoðarskip landhelgis-
brjótanna jafnsek landhelgis-
brjótunum sjálfum.
6. Landhelgisbrjótum verði
ekki veittar neinar undanþágur
til að leita vars i slæmum veðr-
um.
7. Þegar i stað verði fengin 2-3
skip i viðbót við landhelgisflota
okkar.
Ákvarðanir
rikisstjórnarinnar
Þannig voru tillögur Lúðviks i
efnisatriðum. Siðan lagði forsæt-
isráðherra fram á fundi Fram-
sóknarflokksins tillögur um tvö
atriði, þ.e. að stjórnmálasam-
bandi verði slitið ef Bretar haldi
áfram ásiglingum sinum og að
þess yrði krafist að NATO for-
dæmi framferði Bretanna og að-
ild okkar að NATO yrði tekin til
endurskoðunar ef NATO yrði ekki
við þeirri kröfu okkar. Voru þess-
ar tillögur forsætisráðherra sam-
þykktar einróma i framkvæmda-
stjórn og i þingflokki Framsókn-
arflokksins.
Og i gær var siðan haldinn
fundur i rikisstjorninni þar sem
fjallað var um þessar tillögur all-
ar.
Verður hér rakið hvernig þessi
mál standa i dag:
1. t gærmorgun var ákveðið að
stöðva alla þjónustu við Nim-
rod-njósnavélar Breta á islenska
flugstjórnarsvæðinu. Um það var
gefin út svofelld yfirlýsing i gær:
„Lagt verði fyrir flugumferð-
arstjórn að stöðva samband við
bresku Nimrod-þoturnar.”
2. Yfirlýsing um stækkun loft-
helgi okkar út að 12 milum er i at-
hugun.
3. t gær gaf rikisstjórnin út orð-
sendingu um að stjórnmálasam-
skiptum (diplómatisku sam-
bandi) við Breta verði slitið. t
fréttatilkynningu um þetta atriði
frá rikisstjórninni i gær segir svo:
1. Bresku rikisstjórninni verði
tilkynnt að ef herskip hennar og
dráttarbátar haldi áfram ásigl-
ingum á islensk skip sjái islenska
rikisstjðrnin sig tilneydda að
krefjast slita stjórnmálasam-
skipta milli landanna þannig, að
sendiráði Bretlands i Reykjavik
verði lokað og starfslið þess kvatt
heim.
4. Rikisstjórnin hefur á ný
frestað þvi að taka ákvörðun um
lokun sendiráðs okkar hjá NATO,
en það mál er enn á dagskrá
stjórnarinnar. Má i þvi sambandi
minna á tillögu Lúðviks Jóseps-
sonar, sem vitnað er til hér að
framan, og i tillögu þá, sem sam-
þykkt var á fundi þingflokks og
framkvæmdastjórnar Framsókn-
arflokksins á Hallormsstað.
5. Dómsmálaráðuneytið hef-
ur þegar gefið út reglugerð á þá
lund að sjúka menn beri að flytja
til lands á þeim skipum, se n þeir
eru skráðir á. Hefur þe ,si til-
kynning verið birt i blöðunum
þegar.
Um þessar mundir er verið að
hefja byggingu nýrrar hótelálmu
við Valhöll og á smiðinni að veröa
lokið fyrir næsta sumar. Gert
haföi verið ráð fyrir aö hafa hótel
Valhöll opiö i vetur, en þar sem
framkvæmdir hafa dregist á
langinn hefur verið hætt við það,
en ákveðið að hafa hótelið opið
næsta vetur.
Jón Ragnarsson, veitingamað-
Með þvi að þrtsetja það húsnæði
skólans sem nú er fullbúið getum
við komið barnaskólabörnunum
fyrir. Þrisetningin er að visu
ekkert einsdæmi I skólurn borgar-
innar en þetta eru auðvitað mikil
þrengsli, sagði Finnbogi Jó-
hannesson skólastjóri Fellaskóla
i Breiðholti III i samtali við Þjóð-
viljann I gær.
Finnbogi sagði að búið væri að
innrita um 1200 nemendur 1
skólann og i raun og veru væri
ekkert vit i að bæta við fleirum
eins og húsnæðismálum skólans
væri háttað. Búið væri að byggja
barnaskólaálmu skólahússins,
hún væri fullfrágengin og gott
húsnæði. Hinn 1. október eiga 8
kennslustofur i kjallara skólans
að vera tilbúnar þannig að hægt
verði að hefja kennslu i unglinga-
deildum skólans, þ.e. 7. og 8. bekk
fyrir 13 og 14 ára börn. Svo hefur
okkur verið heitið tveimur
lausum kennslustofum sem við
vildum gjarnan fara að sjá, sagði
Finnbogi.
Mikill fjöldi barna og unglinga
er meðal ibúanna sem flust hafa i
þetta borgarhverfi. Sagði Finn-
bogi að i næstu viku hæfist
6. Forsætisráðherra hefur lýst
þvi yfir að engar heimildir verði
veittar til landhelgisbrjóta til að
leita vars innan fiskveiðilögsög-
unnar.
7. Akveðið hefur verið að taka
tvöhvalskip á leigu til landhelgis-
gæslu i vetur.
Þannig hafa ýmist verið af-
greiddar eða eru i afgreiðslu þær
ráðstafanir vegna framferðirs
Breta, sem tillögur hafa verið
gerðar um innan rikisstjórnar-
innar.
Leggja ber áherslu á — vegna
villandi blaðaskrifa — að allar
þessar aðgerðir sem hér hefur
verið getið um hafa verið sam-
þykktar samhljóða innan rikis-
stjórnarinnar.
ur, sagði fréttamanni, aö i við-
byggingunni yrðu 25 nýtiskuleg
hótelherbergi og yrði þá gistirými
fyrir 100 manns næsta sumar.
Hótelgestir fá aðgang að nýrri
útisundlaug, gufuböðum og fleiri
þægindum.
Talsverð umferö var á Þing-
völlum um helgina, en i gær voru
fáir á ferli. Hótelið lokar um
næstu helgi. sj
kennsla 6 ára barna i skólanum
og það væri fjölmennasti ár-
gangurinn — 170 börn hafa veriö
skráö i skólann úr þeim aldurs-
flokki.
I næsta nágrenni við Fella-
skólannn er nú verið að reisa
hverfi Viðlagasjóðshúsa. Sagði
Finnbogi að þar risi nýtt hús á
degi hverjum, og brátt hlyti fólk
að flytjast i þau. Börnin fara i
Fellaskólann. Þá er margt fólk
flutt i svonefnt Hólahverfi i Breið-
holti og börnin sækja öll til náms i
Fellaskólann þar sem enginn
skóli er kominn i Hólahverfi.
Finnbogi sagði að allar sér-
greinar nema leikfimi yrðu
kenndar við skólann i vetur, og er
þeim ætlaður staður i kjallara-
húsnæðinu sem á að verða til
reiðu 1. október.
Hjá Ragnari Georgssyni á
Fræðsluskrifstofu Reykjavikur
fékk Þjóðviljinn þær upplýsingar
aö ætlunin væri að hefja smiöi
barna- og unglingaskóla i Hóla-
hverfi á næsta ári. Augljóst væri
að fjöldi fólks myndi flytja i
hverfiö þegar i haust og fyrri
hluta vetrar.
Hvað nú með Nimrod?
Fljúga þœr á
eigin ábyrgð
og skapa þar með mikla hœttu fyrir
allt flug við landið?
I samþykkt rikisstjórnarinnar
frá fundi hennar i gær er ma.
skipaö svo fyrir að allri aðstoö við
Nimrod-þoturnar bresku skuli
hætt. Við höfðum tal af Guðmundi
Matthiassyni á skrifstofu flug-
málastjóra og inntum hann eftir
þvi hvernig aðstaða þotanna
myndi breytast.
Guðmundur sagði að þeir hefðu
nú ekki fengið fyrirskipanir um
að hætta aðstoðinni enn, þeir
höfðu bara heyrt um þær 1 út-
varpinu.
Hann sagði að aðstoðin við
bresku njósnaflugvélarnar væri
einungis fólgin 1 þvi umsjónar-
starfi sem flugmálastjórn hefur á
hendi á islenska flugumsjónar-
svæðinu. Þeas. að hafa umsjón
með þvi að löglegtbil sé milli véla
og gefa þeim leyfi til að lækka
flugið niður fyrir 5500 fet en það
eru neðri takmörk islenska flug-
umsjónarsvæðisins.
Aður en þoturnar koma hingað
til lands er lögð fram flugáætlun
sem kynnt er islensku
flugumferðarstjórninni. Vélarnar
fá siðan sömu aðstoð og aðrar
vélar þar til þær fara niöur fyrir
svæðið en þá eru þær algerlega á
eigin ábyrgð þar til þær sækja um
að fá að koma inn i svæðið á ný.
Guðmundur sagði að flugmála-
stjórn annaðist þetta eftirlit á
vegum Alþjóða flugmálastofn-
unarinnar og að um 90% af kostn-
aði við það væri greitt af henni.
Flugmálastjórn starfar sam-
kvæmt alþjóðalögum sem þá eru
jafnframt islensk lög þar sem
tsland er aðili aö þeim. En i þeim
lögum er ákvæði sem kveöur á
um aö hervélar þurfi ekki að falla
inn i umsjónarkerfið. Td. eru
sovésku hervélarnar sem hingað
hafa komið utan við kerfið og
fljúga þvi algerlega á eigin
ábyrgð og að eigin geöþótta.
Hugsanlegt er að þessu ákvæöi
verði beitt en Guðmundur kvaðst
ekki vilja segja neitt ákveðið
meðan fyrirmælin væru ókomin.
En noti Nimrod-þoturnar sér
þetta ákvæði geta þær haldiö
áfram að fljúga á eigin ábyrgð en
fyrir bragöið verður allt flug á
svæðinu mun óöruggara, jafnt
fyrir Nimrod-vélarnar sem aörar
vélar sem leið eiga um svæðiö.
Blaðamaður spurði Guðmund
að lokum hvort hugsanlegt væri
að aðrir aöilar gætu veitt Nimrod-
vélunum sömu þjónustu og nefndi
Keflavikurvöll sem dæmi. Það
sagði hann að væri útilokaö þar
sem enginn aðili annar en flug-
málastjórnin annaðist þessa
þjónustu á umræddu svæði. Það
eina sem Nimrod-vélarnar geta
gert ef öll aðstoð við þær veröur
lögð niður er að taka áhættuna á
aö fljúga upp á eigin spýtur og
stofna þar með sjálfum sér og
öðrum vélum i hættu. -ÞH
Hótel Valhöll lokar
F ellaskóli
þrísetinn
SOLSKINSEYJA MIÐJARÐARHAFSINS
Fyrsta hópferð íslenskrar ferða-
skrifstofu til Möltu, sólskinseyju
Miðjarðarhafsins, I2daga ferð.—
Brottför 3. október.
2 dagar i London i bakaleið. Má
framlengja.
Það er sumar á Möltu í október
því meðalhitastigið er22gráður
C.
Tryggið far i tíma, þar sem far-
þegafjöldi er takmarkaður. örfá
sæti laus.
Aðalstræti 9, simar 11255 og 12940.
FERÐAMIÐSTÖÐIN HF.