Þjóðviljinn - 12.09.1973, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. september 1973
Skrúfur — boltar
Höfum opnað heildsöluafgreiðslu á eftirtöidum vörum að
Ægisgötu 10.
Stál og jórnboltar
Borðaboltar
Franskar skrúfur
Tréskrúfur^allar gerðir
Koparskrúfur, allar gerðir
Krómaðar koparskrúfur
Boddýskrúfur
Boltaskrúfur
INNKAUP HFͧ)
Simi: 22000 (eftir kl. 1700: 22003
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins óskar
að ráða aðstoðarmann. Stúdentsmenntun
æskileg.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Skúlagötu 4. Sími 20240.
I Tæknistörf
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða
tæknimenn til starfa við byggingaeftirlit,
mælingar og eftirlit með útiframkvæmd-
um.
Til greina koma menn með ýmiss konar
tæknimenntun og/eða haldgóða reynslu
við þess háttar störf.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrif-
stofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, og
tekið verður við umsóknum á sama stað.
Bæjarverkfræðingur.
RAFLAGNIR
SAMVIRKI
annast allar almennar raflagnir. Ný-
lagnir, viðgerðir, dyrasima og kall-
kerfauppsetningar.
Teikniþjónusta.
Skiptið við samtök sveinanna.
Verkstæði Barmahlið 4
SÍMI 15460 milli 5 og 7.
MÁLASKÓLINN MÍMIR
BR AUTARHOLTI4 - SÍMI10004
ENSKAN
Talæfingar fyrir fullorðna. Byrjendaflokkar.
Framhaldsflokkar. Samtalsflokkar hjá
Englendingum. Smásögur. Ferðalög.
Daglegt mál. Bygging málsins.
Lestur leikrita. Verzlunarenska.
Síðdegistímar og kvöldtímar.
Dragið ekki að innrita yður.
„Yinirnir” í NATÓ
Ég tek heilshugar undir
kröfuna um að senda breska
sendiherrann heim. Hann getur
muldrað sitt diplómatiska
„sorry”, eða hvernig svo sem
hann vill orða það, heima hjá sér,
næst þegar þeir fella einhvern af
sjóhetjum okkar.
Geir Hallgrimsson sagði i út-
varpiö i gærkvöld, aö Bretar
hefðu nú óbeiniinis valdið hér
manntjóni.
Já, þaðer nú svo. Mig langar aö
spyrja:
Var þaö óbeinlinis.að freigátan
geröi itrekaðar tilraunir til að
sigla á Ægi og tókst það að
lokum?
Var það óbeinlinis, að freigátan
kallaði á dráttarbátinn til aðstoð-
ar?
Var þaö óbeinlinis, að dráttar-
báturinn, sem örugglega vissi að
Ægir var laskaður, gerði sig lik-
legan til ásiglingar?
Var það óbeinlinis, að dráttar-
báturinn elti Ægi inn fyrir 12
milna rr$örkin og gerði sig enn lik-
legan til ásiglingar?
Það væri óneitanlega fróðlegt
að heyra, hvernig sá prúöi maður
Geir ætlast til að „elsku vinirnir”
hagi sér hér, svo að talið sé aö
þeir beinlinis valdi hér slysi eða
manntjóni.
Nei, þetta var hreint ekkert
óbeinlinis, og við heimtum marg-
faldar mannbætur af Breta hálfu
fyrir þennan mann, þótt slikt sé
auövitað aldrei hægt að bæta að
fullu.
Og viö eigum að gjöra miklu
meira en að visa sendiherranum
heim, við ættum að visa öllum
Bretum, sem ekki hafa islenskan
borgararétt eða eru i þann veginn
að fá hann, til sins heima.
Við ættum að taka fyrir allar
auglýsingar i útvarpi og sjón-
varpi um breskar vörur og ferða-
lög til Bretlands. Tvær ferða-
skrifstofur voru svo smekklegar
að auglýsa ódýrar feröir til
London, einmitt 1. sept. Ég hygg,
að það fólk,sem álpast i svona
feröir, gjöri það meir af
hugsunarleysi en að það athugi
raunverulega hvað það er að
gjöra. En Bretar gætu vissulega
tekið þaö svo, að fólki hér væri
meira en sama um fólskuverk
þeirra hér.
Við ættum ekki að leika eitt
einasta lag i útvarp með enskum
texta, leikum i þess stað islenska
ættjarðarsöngva eða þjóðlög, og
ef ekki er nóg af þvi, þá hreinlega
að fella niður úr útvarps-
timanum. Lög og tónverk eru
raunar alþjóðleg, en enskur texti
ætti ekki að heyrast.
Við ættum að fella niöur ensku-
kennslu i öllum skólum i vetur.
Ríkisútgáfa
námsbóka:
Góði
hirðirinn
Komin er út hjá Rikisútgáfu
námsbóka bók, sem Sigurður
Pálsson kennari hefur tekið sam-
an. Nefnist hún Góði hiröirinn.
Bókin er ætluð 2. og 3. bekk
barnaskóla til lesturs og umræðu.
Efnið er úr Bibliunni, nokkuð að
jöfnu úr Gamla og Nýja testa-
menti. Reynt var að velja sögurn-
ar sem best við hæfi barna og
segja þær á máli, sem ungir les-
endur skilja vel, og halda þó um
leið hefðbundnum málblæ bibliu-
sagna.
Tilvitnanir og bendingar varð-
andi efni bókarinnar eru á öftustu
siðu.
1 bókinni eru margar myndir
eftir Baltasar, prentaðar i litum.
Bókin er 64 bls. að stærð i stóru
broti. Setningu og prentun annað-
ist Litbrá hf., en bókband var
unnið i Bókfelli hf.
(Fréttatilkynning.)
bréf til
blaósins
Við eigum að sýna þessum
herrum, aö við forögtum innilega
þeirra háttalag á miðunum hér og
viljum engin samskipti við þá
hafa, fyrr en þeir drattast út úr 50
milna landhelginni, og það án
allra skilyrða og samninga.
En hægan nú, góðri hálsar. Ég
er ekki aö predika neitt hatur á
Bretum, né neinum öðrum. OG
umfram allt. Engin læti. Engar
árásir, hvorki á sendiráðið né
annað.
Við eigum aðeins að sýna
Bretum, að hér eru ekki skap-
lausar lyddur, sem láta sér dólgs-
hátt þeirra i léttu rúmi liggja. Við
sýnum þeim rólega en ákveðna
foragt, meðan þeir sýna okkur
yfirgang.
Við eigum að sýna „vinunum” i
Nató það svart á hvitu, að við
erum löngu uppgefin á þvi, að
láta nota land vort sem fóta-
þurrku i þeirra þágu en þeir geta
ekkert hjálpað okkur, þegar við
erum að berjast fyrir lffstilveru
okkar þjóðar.
Viö eigum að sýna „vernd-
urunum” það svo eindregið að
þeir skilji, að fyrst þeir ekki geta
verndað okkur fyrir njósnum
árásaraðila, um okkar hernaðar-
leyndarmál, sem eru ferðir varð-
skipanna okkar, þá geta þeir ekki
frekar verndað okkur fyrir hvers
kyns vá, er að okkur kynni að
steðja, og hafa þvi minna en
ekkert hér að gera.
Að lokum, heill ykkur, harð-
linumenn. Sýnum nú öllum
Bretum, að það er ekki bara
„bölvaður kommúnistinn”
hennar lafði Tweedsmuir,” hr.
Jósefsson”, sem vill sigra i 50
milna málinu. Það er öll islenska
þjóðin. Og hún mun sigra, þótt
þaö taki kannski nokkurn tima
enn.
Um 200 milurnar þarf ekkert að
þrasa, þær viljum við gjarnan öll,
og þær fáum við fljótlega, eftir
sigur i þeim fimmtiu.
Rvik., 2.sept. 1973
Elinborg Kristmundsdóttir
Andagtugir
athafnamenn
Einhver stirðmæltur og skap-
illur Selfyssingur að nafni Eggert
Jóhannesson var til viðtals i út-
varpinu s.l. sunnudagskvöld i til-
efni hins fræga Votmúlamáls.
Ekki er það nú andskotalaust að
góður málstaður skuli eignast
aðra eins málsvara sem nota út-
varpstækifæri sitt til að ausa
rakalausum óhróðri yfir þá sem
afhjúpað hafa hneykslið og gefið
almenningi kost á að kynnast þvi.
Eggert þessi sagði að málflutn-
ingur Timans og Þjóðviljaaans i
málinu væri ómerkilegur. Að
sjálfsögðu gerði hann enga til-
raun til að rökstyðja fullyrðing-
una. Sjálfur hafði hann ekkert
fram að færa i málinu annað en
þaö sem Timinn og Þjóðviljinn
eru búnir að benda á og það miklu
betur en hann.
Hlutur Óla Guðbjartssonar i
þessum sama fréttaspegli var
álika álappalegur, en honum er
nokkur vorkunn þar sem hann á i
vök að verjast. Þá var frétta-
spegill þessi dálitill sálarspegill
fyrir útvarpsmanninn, sem bað
báða viðmælendurna að segja
eitthvað um blöðin, sem fjallað
hafa um málið, lét þá ausa úr sér
rakalausum óhróðri án þess að
láta þá standa fyrir máli sinu.
Hitt er svo merkilegt
rannsóknarefni hversu geysilegt
veldi hins svokallaða sálarrann-
sóknafélags er á Selfossi. Það er
greinilegt að minnihluti hrepps-
nefndar er dauðhræddur við að
styggja andatrúarfólkið. En
hvernig svo sem menn reyna að
hylja sig kápu vandlætingarinnar
mun það staðreynd að formaður
sálarrannsóknafélagsins var ein-
mitt maðurinn sem seldihreppn-
um Votmúla fyrir 30 miljónir og
að útibússt jóri Búnaðarbankans á
Hellu var í söfnuðinum. Pétur
þríhross var mikill framkvæmda-
maður og hann var lika anda-
trúarmaður, og það er langt í frá
að það sé einsdæmi að islenskir
athafnamenn fáist við fjarskipti
af þessu tagi. En orðræður á
andafundum og tilskipanir að
handan er nokkuð sem erfitt er að
sanna og engin furða þó að um
sllkt spinnist sögur sem llka er
erfitt að sanna - og afsanna.
Jónas
Fjölbreytt og
skemmtilegt
tungumálanám
Enska Þýska Franska Spánska ítalska
Danska Norska Sænska islenska fyrir út-
lendinga
Ahersla er lögð á létt og skemmtileg sam-
töl i kennslustundum. Samtölin fara fram
á þvi máli sem nemandinn er að læra, svo
að hann æfist i þvi allt frá upphafi að
TALA tungumálin.
Síðdegistimar — Kvöldtímar
simi 10004 og 11109 (kl. 1—7 e.h.)
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4