Þjóðviljinn - 12.09.1973, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. scptember 1973
Matréiðslusýningar
og húsmœðraorlof
T imburaf greiðsla
Okkur vantar menn
í timburafgreiðslu.
Upplýsingar gefur
Starfsmannahald
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Tilbúið í frystikistuna I
I
Nautakjöt i heilum og hálfum skrokkum.
Kjötvinnslan Hólmgarði 34
Sími 32550
Islandias
73£9/5
31.VIII-9.IX 1
Útdregin
vinningsnúmer í happdrætti
sýningarinnar
Aðalvinningur 4 flugferð fyrir tvo á al-
þjóðafrimerkjasýninguna STOCK-
HOLMIA74 i Sviþjóð, kom á miða nr: 2352
Aukavinningur, tiu arkasett af hátiðarfri-
merkjum með áritun Póst-og simamála-
stjórnar, kom á eftirtalin númer:
8377 — 6514 — 2758 — 5001 — 7002 — 3698 _
5351 — 3302 — 6281 — 5615.
Vinninga ber að vitja til Póst-og sima-
málastjórnar.
Póst-og símamálastjórnin
Hreindýr akj öt
og sveppir
DAGANA 20.-24. ágúst dvöldu á
vegum Kvenfélagasambands ís-
lands 15 manns i húsmæöra-
skólanum aö Hallormsstað. Ekki
var þó eingöngu um sumardvöl að
ræöa, þvi aö þátttakendum var
veitt allnýstárleg fræösla i
matargerð o.fl. Kynnt var mat-
reiösia á hreindýrakjöti, enda
hefur nú verið veitt leyfi á þessu
ári að skjóta rösklega eitt þúsund
hreindýr.
Hreindýrakjöt þykir kostafæða,
sem ástæða er til að menn læri að
meta að verðleikum. Unnt er að
matreiða það á ýmsa vegu, en
ekki er sama hvernig með kjötið
er farið. Til þess að ná góðum
árangri, þarf kjötið fyrst að
hanga i 5-10 daga á köldum stað,
áður en það er matreitt eða fryst,
svo að það verði meyrt.
Skólastjóri húsmæðraskólans
að Hallormsstað, frú Guðbjörg
Kolka, sýndi matreiðslu á hrein-
dýrakjöti og gaf þátttakendum
kost á að bragða á mörgum góm-
sætum réttum úr þvi.
I tilefni af námskeiði þessu gaf
Kvenfélagasamband Islands út
bækling um matreiðslu á hrein-
dýrakjöti, en menntamálaráðu-
neytið veitti styrk til útgáfunnar.
Er það þýðing úr riti, sem Statens
veiledningskontor i heimstell i
Noregi hefur gefið út og eru þar
uppskriftir að mörgum góðum
kjötréttum. Bæklingurinn er til
sölu á skrifstofu Kvenfélagasam-
bands tslands að Hallveigarstöð-
um og kostar hann aðeins 50 kr.
Þátttakendur tindu sveppi und-
ir handleiðslu Helga Hallgrims-
sonar grasafræðings. Yfirleitt
hafa Islendingar fram að þessu
ekki haft mikinn áhuga á sveppa-
tinslu, en erlendis þykir það mjög
skemmtilegt fristundagaman.
Sveppirnir voru siðan mat-
reiddir á ýmsa vegu og tóku
dvalargestir sjálfir þátt i mat-
reiðslu þeirra.
Sigurður Blöndal skógarvörður
kynnti skógræktina á staðnum.
Farið var i ferðalag inn i Fljóts-
dal, um Fellin og út að Eiðum.
Samband austfirskra kvenna
bauð dvalargestum i siðdegis-
kaffi að Egilsstöðum og veitti af
mikilli rausn.
Ennfremur voru flutt fræðslu-
erindi um hreindýr, um nýjungar
úr néytendablöðum og sýndar
voru skuggamyndir um frystingu
matvæla. Varaformaður Sam-
bands austfirskra kvenna, Guð-
laug Þórhallsdóttir, flutti héraðs-
lýsingu.
Bæði konur og karlar tóku þátt i
námskeiði þessu. Dvölin i hús-
mæðraskólanum var hin ánægju-
legasta og ekki sá ský á lofti þá
daga, sem á Hallormsstað var
dvalið.
Athugasemd vegna
umntæla Jóhannesar
Bjarnasonar, verkfr.
Þjóðviljanum hefur borist eftir-
farandi athugasemd vegna ásak-
ana Jóhannesar Bjarnasonar,
verkfræðings á Sementsverk-
smiðju rikisins:
„Vegna viðtals yðar 6. sept. s.l.
við Jóhannes Bjarnason, verk-
fræðing um ásakanir hans á
Sementsverksmiðju rikisins vil
ég koma á framfæri athugasemd
við ummæli hans varðandi til-
vitnanir i skýrslur, sem ég hef
samið, en þær virðast vera
grundvöllur undir ásökunum
hans.
Þarsem þetta mál er nú i hönd-
um opinberra aðila sé ég ekki
ástæðu til þess að fjölyrða um efni
skýrslanna, sem að hluta er fag-
legs eðlis. Ég vil þó leggja
áherslu á, að þær ályktanir, sem
Jóhannes dregur af ummælum i
skýrslum minum eru ekki i sam-
ræmi við þann skilning sem ég
lagði i skýrslurnar við samningu
þeirra. Hafa t.d. hlutar skýrsl-
anna verið teknir úrsamhengi eða
efni þeirra misskilið. Hér getur
verið um að kenna vanþekkingu
Jóhannesar á sementsframleiðsl-
unni eins og hann getur um i við-
talinu við Morgunblaðið 7. sept.
s.l.
Þykir mér það mjög miður, að
Jóhannes skyldi birta i dagblöð-
um kafla úr skýrslum eftir mig,
án þess að hafa við mig um það
samráð eða fá viðhlitandi útskýr-
ingar á efni þeirra.
Dr. Guðmundur Guðmundsson
tæknilegur framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðju rikisins”.
Srengjuárásir á
Kompong Cham
PHNOM PENH 10/9 — Sprengju-
flugvélar stjórnar Lon Nols lögðu
i dag hluta háskólahverfisins i
Kompong Cham i eyði, sam-
kvæmt upplýsingum frá tals-
manni stjórnar þessarar.
GRIMIyíS
ÆVINTYRI
TVÆR NÝJAR BÆKUR FRA FJOLVA
Allar litprentaðar, fallegar, vandaðar
MYNDABÓK DÝRANNA
í LITUM
l þýöingu Ingimars Oskars-
sonar náttúrfræðings opnast
undraheimur náttúrunnar.
Þessi bók er öll prentuð i lit-
um. Lýsir dýrariki heimsins,
mikil uppspretta fróðleiks,
getur einnig komiðaðgagni
við nám, þvi hún heillar, en
rekur burt leiða.
GRIMMS-ÆVINTÝRI
Hin hugljúfu ævintýri birtast
hér i nýrri þýðingu Þorsteins
Thorarensens, þar sem reynt
er samtímis að varðveita
sagnahefð, en einnig að
leiða frásögnina til nútíma
hugtaka cg skilnings.
Skreytt fegurstu listaverk
um í fullum litum. Stór og
fögur bók, sem gleður
hjartað.
wvNlnnncv'iiNíi*, jiK ivnka
Hið þróttmikla
starf dauflegra
samtaka
Við heiðrum i dag bræður
okkar elskulega i Heimdalli,
Sambandi ungra Sjálfstæðis-
manna með litlu ivitnana-
safni.
Hið mikla starf
Stjórnin hefur verið at-
hafnasöm og munu sjaldan
hafa verið haldnir fleiri fundir
eða meira um aðgerðir en nú
að undanförnu... Af einstökum
verkefnum mætti minna á
mikla fundarstarfsemi um allt
land, þar sem fjallað hefur
verið stjórnmálaástandið
Ellert Schram, fráfarandi
formaður SUS i viðtali við
Moggann á sunnudag
Hin mikla deyfð
Þegar litið er á störf þeirra
félaga,... sem mynda Sam-
band ungra Sjálfstæðismanna
verður þvi miður ekki fyrir
augum gróskumikið starf eða
blómstrandi félagslif. Þvert á
móti virðist — með nokkrum
heiðarlegum undantekningum
þó — hvarvetna vera rikjandi
deyfð og áhugaleysi
Anders Hansen, umsjónar-
maður SUS slðu i Mogganum á
laugardag.
Ósérhlifni
Það sem mestu ræður er
vinna og aftur vinna. Starfið
hjá okkur er borið uppi af
áhuga og ósérhlifni af stórum
hópi ungra manna, og það hef-
ur verið mér til ánægju og
þroska að starfa I þessum hópi
Ellert Schram
Við veisluborð
Haldnir voru örfáir fundir
og einna helst I formi svokall-
aðra kvöldverðarfunda. Það
dálæti sem forvígismenn
Sjálfstæðismanna á öllum
aldri hafa á þvi fundarformi
er mér óskiljanlegt með öllu.
Ef Sjálfstæðismenn geta ekki
komið saman til umræðna án
þess að belgja sig út af mat á
sama augnabliki, þá hlýtur sú
spurning að vakna, hvort þeir
væru ekki jafn vel geymdir
heima hjá sér?
Anders Hansen.
Vegur og vandi
Þá hefur verið staðið fyrir
félagsmálanámskeiðum og
erindrekstri I rikum mæli, og
þann þátt starfsins höfum við
aukið verulega. Sambandið
(SUS) hafði frumkvæði að og
veg og vanda af rekstri stjórn-
málaskólans á sl. vetri, en sú
tilraun gafst mjög vel.
Ellert Schram.
Brotnir pottar —
og þó
Það skal fúslega viðurkennt
að það er vlðar pottur brotinn.
Á það ekki aðeins við um
Sjálfstæðisflokkinn, heldur
eiga allir islenskir stjórnm-
álaflokkar við sama vanda að
etja. Undantekning frá
þessu er þó liklega Samtök
herstöðvarandstæðinga, en
þar er að þvi er virðist unnið
öflugt og markvisst starf.. Er
það hryggileg staðreynd að
Sjálfstæðismenn gætu margt
lært af slíkum samtökum hvað
starfsaðferðir snertir.
Anders Hansen.
Lítillæti
Sá mikli áhugi og þróttur
sem kemur fram I starfi sam-
takanna er mér mikið ánægju-
efni þegar ég nú læt af störf-
um. Ellert Schram.
Eða karlagrobb?
Það sem einna mest fælir
ungt fólk frá þvi að ganga I
raðir ungra sjálfstæðismanna
er það, hve leiðtogar þeirra
eru raunverulega orðnir
gamlir og litt i takt við það
unga fólk sem nú er að vaxa úr
grasi. Anders Hansen.