Þjóðviljinn - 12.09.1973, Page 15
Miðvikudagur 12. september 1973 ÞJQDVILJINN — StÐA 15
Thor
Framhald af bls. 9.
kardimommulyktin berist ekki i
viöhafnarsali þeirra sem stjórna
allsnægtaborðinu á efstu hæðinni
með þeim hugsanlegu afleiðing-
um að nafnið Kardimommubær-
inn festist á þessa miklu höll.
Þegar byggingarpallar huldu
að mestu hina umdeildu Hall-
grimskirkju skrifaði Kjarval
grein og lagði til að stirlasarnir
yrðu rifnir svo að hægt væri að
ákveða hvort ætti heldur aö rifa
kirkjuna eða flytja hana burt.
Enda þótt okkur sem nú lifum
tækist ekki að koma i veg fyrir að
hin óþarfa bygging risi hér, kann
að vera að viðhorf okkar sigri
siðar. A likani hallarinnar eru
sýndar lóðréttar ræmur, sem
byggingameistarinn hefur upp-
lýst að eigi að vera gluggar, og
reyndar einskonar rennilásar
meö hans eigin orðum. Mætti nú
ekki hafa þennan rennilás lárétt-
an allt í kring um sökkulinn svo
hægt væri að lyfta öllu bákninu
með hæfilegri fyrirhöfn og flytja
þaö.
Dulhelgir menn hafa upplýst að
hvergi séu meiri andlegar . afl-
stöðvar i heiminum en undir
Jökli. Þvi ekki að skjóta þessum
mexikanska pýramiða þangað og
setja hann niður öfugan eða rétt-
an eftir álitum i heimahögum
Axlar-Björns; eða fela þessar
launhelgar i Hólahólum sem
mundu skýla þvi allsnægtaborði á
alla vegu fyrir forvitinni alþýðu
og ágangi. Og þar geta banka-
stjórarnir setið i lótusstellingum
og ihugað fallvaltleik krónunnar i
fullkomnu næði. Það er hvort sem
er ekki ætlazt til þess að i þessum
banka verði nein örtröð alþýðu
manna enda þótt boðaö sé, að
þar skuli geyma myntsafn á sömu
hæð og bankastjórarnir sitja. Það
er áreiðanlega ekki alþýðan sem
á að horfa á þá peninga né aðra i
þvi húsi. En þangað til rennilás-
inn verður opnaður og húsinu
skotið burt, takist ekki að fyrir-
byggja það, mætti láta ýmsar
stofnanir njóta gistivináttu sem
ekki fá að vera annarsstaðar
einsog páfagaukaklinikina og
kjölturakkaspitalann sem hinn
góði enski maður vildi gefa en
enginn þiggja; og þarna mætti
lika hafa geirfuglinn, og lækna-
nemar hafa hvergi hús til að
kryfja lik.
Englandsbanki hefur verið þrjú
hundruð ár i sama húsinu, og þeir
hafa aldrei gert kröfu þar til þess
að gnæfa hátt né sjást af hafi —
enda ber bankinn sá gælunafnið
The Old Lady of Threadneedle
Street, gamla konan i Saum-
nálarstræti.
Stundum hefur verið sagt um
fólk sem eignast skyndilega fé og
missir fótanna og verður hégóma
og prjáli að bráð: að margur
verður af aurum api. Hvað verður
ekki sagt um stjórnendur Seðla-
bankans sem eiga að hafa vit fyr-
ir okkur i peningamálum takist
okkur ekki að hafa vit fyrir þeim
og hindra að þeir nái að láta á sér
sannast málsháttinn svo ekki
verði véfengt. Þvi stöndum við
hér. Og við skulum vona að þeir
láti 'ekki lika á sér sannast: aö
heyrandi heyra þeir ekki, og sjá-
andi sjá þeir ekki.
Múrinn
Framhald af bls. 9.
jarðar hljómar hjákátlega, sem
allsherjarlausn.
Þau sömu bilstæöi má fá á
sama stað með grasi grónu þaki -
án banka.
2. Frá sjónarmiði bankans.
Að æskja að hreykja sér á helg-
asta stað Reykjavikur aö hætti
lénsherra miðalda - þjónustu-
stofnun almennings i lýöfrjálsu
landi. Hvi ekki i nýja miðbænum.
3. Frá sjónarmiði menningar i
skipulagi.
Að veita þjónustustofnun slik
lóðarréttindi þrátt fyrir þau
helgispjöll á mannlegu umhverfi,
sem staðsetning hefur i för með
sér.
Allt hjal um að byggingin skerði
ekki Arnarhól né útsýni þaðan er
álika gáfulegt og að 4ra 5 hæða
bygging á lóðamörkum hafi engin
áhrif á hlutföll né útsýni nágrenn-
is. Ingólfur og Arnarhóllinn munu
jafnvel njóta sin enn betur - þang-
að til þeir verða fluttir.
Þaö vill meira að segja svo til,
að i litabókinni um Aðalskipulag
Reykjavikur frá 1962 er þetta
svæði merkt óbyggt torg - eitt
örfárra i gamla miðbænum -, það
svæði, sem nú drynur i af spreng-
ingum og véltannasargi nótt sem
nýtan dag, undir væntanlega
bankabyggingu.
Ef svo er brugðið út frá skipu-
lagsbibliu borgarstjórnar sem
hér er nú, hver verður þá næsti
skikinn úr Arnarhóli - hvert
verður næsta óbyggða svæðið i
hjarta borgarinnar, sem nýtt
verður til byggingar að endur-
mati borgarstjórnar - eða
annarra áhrifameiri aðilja. En
hverjir geta verið áhrifameiri
fólkinu.
Eftir opinberum upplýsingum
að dæma, og þá væntanlega frá
S'eölabankanum, um fjármála-
ástand þjóðarinnar mætti annars
likja b y gg i nga r áf or m u m
bankans við manninn, sem keypti
sér buddu fyrir alla aurana sina, -
til þess að geyma aurana sina i.
Utan hvaö mér skilst, að hér sé
um okkar aura aö ræða, og læt ég
mér fróðari menn um, hvort
þeirra sé brýnni þörf annars stað-
ar. En annars staöaren á Arnar--
hóli, veit ég, að banka skal
býggja, - ef byggja þarf -
Heyrst hefur haldið fram, að
þegar útlagður kostnaður vegna
sprenginga i grunni bankabygg-
ingarinnar geti haft áhrif á stöðv-
un framkvæmdanna. Hér hlýtur
að vera um hégóma að ræða.
Þarna gætu nú fengist hin fyrr-
nefndu bilastæði neðanjarðar. En
hvaðskyldi annars kosta-jafnvel i
uppmælingu- lengdarmeterinn af
fegurð fjallahrings og mann-
eskjulegu umhverfi, til mótvægis.
Reykjavikurborg er nú þegar
vel á veg komin með að steypa 5-6
metra háan vegg i formi saman-
hangandi vörugeymslna með-
fram strandlengjunni við Klepps-
veg, eins og kunnugt er, og ætti
brátt þessi veggur að geta náð frá
Elliðárvogi að Laugarnesi, og
með góðum vilja jafnvel lengra,
að fyrirhugaðri Seðlabankabygg-
ingu sem yrði eðlilegur horn-
steinn múrsins mikla, milli nátt-
úrunnar og höfuðborgarinnar við
sundin blá. - Þykja mér áhöld um,
hvort sé stórkostlegra, snilld
skipulagssérfræðinga borgar-
innar, sem byrgt hafa útsýnið til
Viðeyjar og sundanna, - eða lang-
lundargeð Reykvikinga og kæru-
leysi. Hvað kemur næst?
Hvort mun það æskileg þróun, að
steypa vegg fyrir fjallasýn
borgarbúa og skreyta hann siðan
eftirmyndum þeirrar náttúru,
sem við erum svipt, með slikri
skipulagsstefnu sem hér rikir i
dag. Er ekki nóg komið? - Hér á
Arnarhóli má ekki byggja.
Komandi kynslóöir munu okkur
ekki þakklátar fyrrgreindum
skipulagsafglöpum - slikum
menningarskorti og skammsýni -
sliku virðingarleysi gagnvart
helgustu reitum borgar okkar og
yndi umhverfis. Minnumst þess,
að borgin er áþreifanlegasti
vitnisburðurinn um menningu
kynslóðar okkar - sem óbornir
erfa. -Hvaö stoðar okkur nokkrir
jurtabaiar i Austurstræti hafi
gamli miöbærinn glatað sálu
sinni ?
Það má aldrei ske. Sú er von min
heitust, ráðamönnum Reykja-
vikurborgar, Seðlabanka og
rikisvaldi til handa, að Guð al-
máttugur gefi þeim eyra, svo þeir
megi heyra, og þá ekki siður, aö
Guð gefi þeim auga, svo þeir
megi loks sjá.
Stórsigur
Framhald af bls 5.
og stórauðvalds, en sigur fyrir
sósialisma, náttúruvernd og
byggðastefnu. Mun óhætt að full-
yrða að eftir siðari heimsstyrjöld
hafi ekki orðið meiri breytingar á
styrkleikahlutföllum flokka i
Noregi.
Harmagrátur
borgarablaða
Þótt undarlegt kunni að virðast
verður það liklega Verkamanna-
flokkurinn, sem burtséð frá
Vinstri og Nýja þjóðarflokknum
fór verst út úr kosningunum, sem
myndar næstu rikisstjórn Noregs.
Talið er að Trygve Bratteli, leið-
togi flokksins,myndi minnihluta-
stjórn, sem reyni að bjarga sér
frá degi til dags með stuðningi frá
Sósialiska kosningabandalaginu
og borgaraflokkunum til skiptis.
Borgarablöðin norsku bera sig yf-
irleitt heldur illa eftir ksonign-
arnar og er svo að sjá að ráða-
menn þeirra séu haldnir válegum
hugboðum með tilliti til vaxandi
áhrifa sósialista og kommúnista i
stjórn landsins. Stavanger Aften-
blad likir Verkamannaflokknum
þannig við dráttarklár, en Sósial-
iska kosningabandalaginu við ek-
il, sem hafi á honum taumhaldið
og sé óliklegur til þess að spara
svipuna. Blaöið upplýsir einnig,
og varpar þá öndinni léttara, að
Lars Korvald hafi þegar boðið
Verkamannaflokknum samstarf,
jafnvel að mynda meö honum
stjórn, enda séu sjónarmið
beggja flokka nokkuð svipuö i ut-
anrikis- og öryggismálum. I
þessu blaði og viðar kemur fram
að norska borgarastéttin hefur
þungar áhyggjur út af þvi aö
kosningaúrslitin kunni að hafa i
för með sér breytingar á utanrik-
isstefnu landsins, og eitt blaðið
kemst svo að oröi að kosningarn-
ar hafi verið „óhamingja” fyrir
alla nema menn eins og Gustav-
sen og Lange. Fredrikstad Blad,
sem styður Hægri flokkinn, likir
komandi rikisstjórn við eyki, sem
Bratteli muni að visu hafa taum-
haldið á, ,,en Finn Gustavsen hef-
ur hugsað sér að stýra Bratteli,ef
við skiljum hann rétt,” , lýkur
blaðið máli sinu og gnistir tönn-
um. Borgarablöðin láta yfirleitt i
ljós mikla hræðslu við að nú veröi
undinn bráður bugur aö þvi að
breyta norska þjóðfélaginu i
sósialiska átt, og eitt þeirra telur
liklegt að Verkamannaflokkurinn
taki nú upp sem róttækasta stefnu
i von um að ná aftur einhverju af
þvi fylgi, er hann tapaði til Sósial-
iska kosningabandalagsins.
Kröfur sósíalista — :
Réttlátara skattakerfi
og minnkandi herútgjöld
Dagbladet i Osló, sem kallast
óháð, segir að heiminum muni
bregða meira en litið i brún þegar
Verkamannaflokkurinn, helsti
hrakfallabálkur kosninganna,
myndi stjórna með stuðningi
helsta sigurvegara þeirra, Sósial-
iska kosningabandalagsins, eins
og liklega verði niðurstaðan. Þótt
ekki sé vist að hinir róttæku
sósialistar verði svo áhrifamiklir
um stjórn landsins og „sjálfstæð-
is”- og „framsóknar” menn Nor-
egs hræðast, þá er ljóst að þeir
setja viss skilyrði fyrir stuðningi
sinum. Gustavsen hefur þegar
lýst þvi yfir að hann krefjist þess
að dregiö verði úr útgjöldum til
hermáia og einnig að skattakerfið
verði leiðrétt tekjuminna fólki til
góða.
Alls greiddu 2.128.071 manns at-
kvæði i kosningunum, eða um 78
af hundraði fólks á kjörskrá.
dþ.
Læknar
Framhald af bls. 6.
þvi um 640, en ef miðað er við 1200
fóstureyðingar verða legudag-
arnir 4800-5000, og miðað við dag-
gjald á spitala i dag verður kostn-
aðurinn 20-30 milljónir á ári.
Hvað er konunni
fyrir bestu?
Þá bentu læknar á, að enda þótt
konan ætti fyrstog fremst að hafa
ákvörðunarvaldiö,, þá
er ekki eins vist að hún
viti i öllum filfellum hvað
henni er fyrir bestu i sliku máli,
en sumt fólk er þannig gert, að
það veit ekki hvað þvi er fyrir
bestu. Frá sjónarmiði læknisins
er grundvallaratriði að meta
annars vegarhvað vinnst með að-
gerðinni og hins vegar hættuna
sem er samfara henni. Læknarnir
álita að i þessu nefndaráliti sé
ekki gerð viðhlitandi skil afleið-
ingunum, sem eru samfara þess-
um aögerðum, og ekki hvaða fé-
lagslegar ástæður þurfi að vera
fyrir hendi til að heimila fóstur-
eyðingu. Nefndin, sem nú þarf að
taka ákvörðun um heimild fóstur-
eyðinga, hefur oft talið ástæðu til
fóstureyðinga, þó að hún hafi ekki
getað samþykkt hana vegna þess
að i gömlu lögunum segir, að leyf-
ið þurfi að byggjast á alvarleg-
um, langvarandi sjúkdómi,
likamlegum eða andlegum,til að
þetta sé heimilað, en oft á tiðum
hefur nefndarmönnum fundist að
félagslegar ástæður einar saman
hefðu jafngilt alvarlegum sjúk-
dómum, en lögfræðingurinn i
nefndinni á að tryggja að farið sé
eftir lögunum, þannig að nefndin
hefur i raun verið miklu frjáls-
lyndari en lögin, sem eðlilegt er,
þar sem þjóðfélagsbreytingarnar
hafa orðið svo miklar á þessum
tima.
Fræðslumálum
verður að koma i
viðunandi horf.
Ef vikið er að fræðsluhlið þess-
ara mála, þá kann einhverjum að
þykja merkilegt, að i þessum
gömlu lögum er gert ráð fyrir að
landlæknir gefi út og láti læknum
i té leiðbeiningar fyrir konur um
varnir gegn þvi að verða barns-
hafandi. En þessu hefur aldrei
verið framfylgt, og á þvi sést, að
það er engin trygging fyrir þvi
að lögum sé framfylgt, og þess
vegna ætti að búa svo um hnútana
nú, að skipaður verði ákveðinn
aðili til að sjá um framkvæmd
þessa þáttar fræöslumála áður en
lögin taka gildi.
Læknar eru að sjálfsögðu ekki
ánægðir með að fóstureyðingar
séu notaðar sem eins konar getn-
aðarvarnir og þvi leggja þeir
mikla áherzlu á að fræðslumálum
á þessu sviði verði komið i viö-
unandi horf.
Það skal tekið fram, til að fyrir-
byggja misskilning, að Lt hefur
ekki verið beðið um umsögn um
frumvarpið, en félagið mun senda
alþingi greinargerð um málið.
óljós linu-
takmörk
Að lokum sögðu læknarnir, að
hugmyndir nefndarinnar um
timatakmörk fóstureyðinga væru
ailt of óljósar og læknar vildu
setja þá breytingu inn i löggjöfina
„að fóstureyðing skuli. aldrei
framkvæmd eftir 16. viku nema
l'yrir hendi séu ótviræðar læknis-
fræðilegar eða félagslegar ástæð-
ur, og þá, og þvi aðeins, að til
komi skrifleg heimild frá land-
lækni eða þeim aðila sem faliö
verður að sjá um framkvæmd
þessara laga.”
Bent var á að ef fóstureyðing er
gerð mjög seint með litlum keis-
araskurði, er sá möguleiki fyrir
hendi að fóstrið lifi af aðgerðina
og geta allir imyndað sér afleið-
ingarnar.
Fleira var rætt á fundinum og
verður skýrt nánar frá þeim um-
ræðum siðar. sj
Albert
Framhald af bls. 11.
laust. Var það gert vegna þess aö
Hreggviður hafði gefið blm.
Morgunblaðsins upp bókun úr
fundargerðarbók stjórnarinnar.
Samkvæmt margendurteknum
yfirlýsingum Alberts er öllum
heimill aðgangur að fundar-
gerðarbókunum, en þó var þetta
brottrekstrarsök i þessu tilfelli.
Mál þetta er nú oröið meira en
litið furðulegt og skyndileg lokun
á blaðamenn er til að kóróna vit-
leysuna. Hlutskipti Alberts er
ekki lengur öfundsvert, mistök
hans hlaðast upp og fær hann
hvergi rönd við reist.
Stjörnuleikur
Framhald af bls. 11.
Jón Ólafur Jónsson. Hann hafði
þá betur i kapphlaupi viö Martein
Geirsson og sendi boltann fram-
hjá Þorbergi markverði.
Úrslitm geta alls ekki talist
sanngjörn. Framarar voru mun
betri allan leikinn, sivinnandi og
fljótir. Sóknarmönnunum brást
hins vegar bogalistin, klaufa-
skapur þeirra var með eindæm-
um. Ekki er vafi á að Fram heföi
unnið þennan leik ef Elmar
Geirsson hefði veriö með, en hann
sat á bekknum allan leikinn og
horfði á.
Ahorfendur urðu fyrir miklum
vonbrigðum er þeir komu á völl-
inn, alla bestu menn liðanna
vantaði og leikurinn var afar
bragðdaufur. Mjög er misráðið af
forráðamönnum liðanna að gera
hlut sem þennan, áhangendur
liðanna eiga rétt á meiri tillits-
semi.
Spáin
Framhald af bls. 11.
nokkuð erfiðir leikir og verður
erfitt að spá, þar eð úrslit hafa
orðið mjög óvænt undanfarið.
Arsenal tapaöi t.d. um siðustu
helgi og var það nokkuð sem ekki
var búist við.
Aðeins 4 voru með 11 rétta og
komu 78 þúsund krónur i hlut
hvers. Potturinn var 446 þúsund,
sem er nokkuð minna en vikuna á
undan.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jaröarför
Grims Ásgrimssonar
Bryndis Jónsdóttir
synir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR
Fyrrverandi skólahjúkrunarkona á Laugar-
vatni, til heimilis að Meltröð 8 Kópavogi, sem lést
fimmtudaginn 6. september, verður jarðsungin frá Foss-
vogskapellu föstudaginn 14. september ki. 1.30 e.h.
Hjördis Braga, Gunnvör Braga, Sigurður örn.
Föðurbróðir okkar
JÓN SIGURÐSSON
Hallveigarstíg 4,
andaðist aö Landakotsspitaia, sunnudaginn 9. sept.
Kristin Karlsdóttir, Hrafnhildur Karlsdóttir,
Jón S. Karlsson.
Dóttir okkar og unnusta min
JÓHANNA M TÓMASDÓTTIR,
Bústaðavegi67
lést i Borgarspitalanum 10.9. 1973.
Tómas Gislason Gerður Magnúsdóttir
Sigurður V. Guðjónsson.