Þjóðviljinn - 12.09.1973, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 12.09.1973, Qupperneq 16
MOÐVIUINN Miövikudagur 12. september 1973 Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- víkur, sími 18888. Nætur-, kvöld- og helgidaga- varsla apótekanna vikuna 7.-13. september verður i Reykjavikur apótekiog Borgar apóteki. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. UPPREISN í CHILE HERINN RlS UPP GEGN FORSETA óljósar fregnir herma að hann hafi sagt af sér Þessi mynd af Geir Jónassyni AR 35 var tekin háifum sólarhring eftir að gosið i Kyjum hófst. Báturinn er hér á heimleið eftir að tilkynnt hafði verið að ekki væri lengur þörf fyrir aðstoð bátanna scm siðastir komu til Eyja i morgunsárið 23. janúar sl. (Ljósm. SJ) Bátur strandar við Stokkseyri Mb. Geir Jónasson frá Stokks- eyri strandaði i fyrradag á ysta skeri sem sést á fjöru við inn- siglinguna til Stokkseyrar. Mann- björg varð. Mb. Geir Jónasson var 47 tonna eikarbátur, árs- gamall, smiðaður i Stykkishómi. Þegar fréttamaður var staddur á Stokkseyri laust fyrir klukkan 5 i gær, hafði báturinn liðast i sundur og var sokkinn. POMPIDOU RÆÐIR VIÐ SJÚ ENLÆ PEKING 11/9. — Georges Pompi- dou Frakklandsforseti kom I dag til Peking i opinbera heimsókn. Sjú Enlæ tók á móti honum á flug- vellinum. Þetta er i fyrsta skipti sem franskur forseti fer til Klna og jafnframt fyrsta heimsókn evrópsks þjóðhöfðingja þangað. Mun hann nú ræða við kinverska ■ráðamcnn um tilraunir landanna beggja til að risa gegn yfirráðum risaveldanna i heimsmálunum. Strax eftir komuna til Peking ók Pompidou til Alþýðuhallar- innar, þar sem hann borðaði hádegisverö með Sjú Enlæ, for- sætisráðherra Kina. 1 ræðum sinum lögðu bæði Pompidou og Sjú áherslu á að Frakkar og Kin- verjar væru staðráðnir i að vernda fullveldi sitt og berjast gegn öllum tilraunum erlendra aðila til aö ná yfirráðum yfir þeim. Þeir töluðu einnig um að nauðsynlegt væri að efla sam- vinnu milli Frakklands og Kina. I ræðu sinni hrósaði Sjú Enlæ vilja Frakka til að vernda full- veldi sitt með markvissri stefnu i efnahagsmálum og varnar- málum. Hann sagði að enn væru til menn i heiminum, sem vildu skerða frelsi annarra. Þeir hefðu kjarnasprengjur i annarri hendi og friðarsamninga i hinni. Aöalefni fundarins var einnig undirstrikað með áletrunum á fánum og spjöldum, sem skrýddu flugvöllinn og aðalgötur Peking. Málgagn flokksins, „Alþýðudag- blaðið" varaði einnig við til- raunum risaveldanna til að fá yfirráð i Evrópu, þvi að þær ykju viðsjár i heiminum. Þegar Pompidou lenti á flug- vellinum i Peking, tók Sjú Enlæ sjálfur á móti honum. Við hlið hans var stjórnmálamaðurinn ungi frá Shanghai, Wang Hong- wen, sem skjótt hefur risið til mikillar virðingar i Kina. Þetta mun vera fyrsta tækifærið sem hann fær til að taka þátt i kin- verskum utanrikismálum. BUENOS AIRES 11/9. — Herinn i Chile geröi i dag uppreisn gegn Salvador Allende forseta landsins. Allt samband við landið er nú rofið/ og flugferðir þangað hafa stöðvast, og eru fréttir þaðan því mjög óljósar og ruglingslegar. Samkvæmt sumum heimildum sem NTB- fréttastofan byggir sínar fréttir á er herinn búinn að steypa Allende af stóli og hefur nú full yfirráð yfir landinu, en aðrar heimildir segja að Allende hafi neitað að segja af sér og hafi búist til varnar. Fljótlega eftir að uppreisnin ver gerð, rofnaði allt talsamband við Chile, og flugsamgöngur milli Buenos Aires og Santiago stöðv- uðust. Ekki bárust þá aðrar fréttir frá landinu en þær sem fréttamenn frá Buenos Aires gátu heyrt i útvarpsstöðvum, en þær voru mjög mismunandi eftir þvi hvort útvarpsstöðin var á valdi uppreisnarmanna eða stuðnings- manna forsetans. Fyrstu fréttir af uppreisninni bárust i yfirlýsingu frá Allende forseta, sem lesin var upp i út- varpsstöð. Þar sagði að hluti sjó- hersins i stærstu flotahöfn landsins, Valparaiso, hefði gert uppreisn. Forsetinn sagði að uppreisnarmenn nytu litils stuönings og hvatti hann verka- menn til að búast til varnar. Skömmu siðar var lesin upp i annarri útvarpsstöð tilkynning sem sögð var undirrituð af yfifr- mönnum landhers, flughers, flota og lögregluhermanna. Þar var þess krafist að Allende segði af sér. Siðan bárust ruglingslegar fréttiraf bardögum i Santiago, og var sagt að fiugvélar úr flug- hernum hefðu varpað sprengjum á forsetahöllina, bústað Allendes og ýmis önnur skotmörk i höfuð- borginni. Þessar fréttir voru lesnar upp i útvarpsstöð, sem var á valdi uppreisnarmanna, og um leið var lesin tilkynning um að herinn væri búinn að steypa Allende úr Bretar að linast í landhelgismálinu Jónas Arnason í útvarpsþœtti í Bretlandi í gœr Breska útvarpið flutti i hádeginu i gær viðtal við Jónas Arnason, alþingismann, og siðan við Patrick Wall, þingmann ihaldsflokksins, um landhelgismáliö. Jónas sagði i þætti þessum að breski flotinn hefði I aðgerðum sinum greinilega fylgt fyrirmælum brezku stjórnarinnar. Jónas benti á að af imm eða sex varðskipum okkar væri það stærsta sem svaraði einum þriðja af stærð bresku freigátanna og það minnsta sem svaraði aðeins einum tiunda af stærð frei- gátanna. Jónas minnti á að Bretar hefðu einu sinni haldið þvi fram að varðskipið Albert hefði reynt að sigla á breskan dráttarbát. Allir hlytu að sjá hversu fráleitt slikt væri — þvi dráttarbáturinn væri 10 sinnum stærri en varðskipið. Jónas gat þess að varðskipin okkar hefðu ekki aðeins það hlutverk að gæta landhelg- innar. Þau væru einnig björg- unar- og hjálparskip. Eyði- legging Bretanna á varðskipi gæti þess vegna kostað mannslif á Islandi. Patrick Wall sagði að það myndi ekki hafa mikil áhrif þó að tslendingar slitu stjórn- málasambandi við Breta. Fréttamaðurinn spurði þá hvort hann teldi ekki að Bretar mundu tapa þessu striði. Almenningsálitið i heiminum væri i sifellu að snúast tslendingum i vil. Wall þingmaður neitaði þessu ekki en kvað Breta samt verða að halda áfram að mótmæla ein- hliða útfærslu landhelgi. stóli. En þrátt fyrir þessa yfir- lýsingu var skömmu siðar lesin upp áskorun til Allendes um að hann segði af sér fyrir ákveðinn tima. Loks tilkynntu uppreisnar- menn, að Allende hefði gefist upp og þeir hefðu nú fullt vald yfir landinu. Östaðfestar fréttir, sem skýrt var frá i Mexikó, hermdu að Allende hefði leitað hælis i sendi- ráði Argentínu i Santiago, en engin staðfesting hefur borist á þvi. Sagt var að allt væri með kyrrum kjörum i Santiago og marxistar hefðu verið hand- teknir. Þessum atburðum er hér lýst eins og norska fréttastofan NTB lýsir þeim. Skorar á breska þingmenn til umrœðna Þegar Ted Willis lávarður einn besti stuðningsmaður okkar i landhelgismálinu i Bretlandi, frétti hversu Bret- um hefði farnast varðandi fund Islandsvina i Grimsby ákvað hann að gripa til sinna ráða. Hefur hann nú skorað á þingmenn Hull til þess að mæta sér á umræðufundi um landhelgismálið og einnig hefur hann skorað á Anthony Crossland. Rússnesk tæki finnast í Kleifarvatni Starfsmönnum Landssímans falið að kanna tœkin og bera saman við skrár um fjarskiptatœki Tveir ungir menn, bræðurnir Guðmundur og Ólafur Benedikts- synir fundu á laugardaginn fjölda fjarskiptatækja á botni Kleifar- vatns og höfðu í framhaldi af þvi samband við lögregluna. Rann- sókn málsins var falin Sveini Björnssyni, rannsóknarlögreglu- þjóni f Hafnarfirði og fór hann að Kleifarvatni I gær til frekari at- hugunar. Sveinn sagði að Landssimi Is- lands hefði fengið tækin til athug- unar. Hann kvaðst hafa farið með köfurunum á staðinn, þar sem þeir fundu tækin á 10 m dýpi við svonefndan Innri Stapa. A botnin- um sást I gær plast, sem senni- lega hefur verið utanum eitthvað af tækjunum, en ekkert tæki fannst i gær til viðbótar. Enginn hefur enn gefið sig fram i máli þessu. Utanrikisráðuneytið óskaði eft- ir þvi að tækin yrðu send i rann- sókn og tók útlendingaeftirlitið að sér að sækja tækin. Sveinn sagði að piltarnir hefðu oft kafað þessum slóðum og voru þarna fyrir tveimur mánuðum. Talið er að tækjunum hafi mjög nýlega verið sökkt á þennan stað, þvi að ekkert ryð var á þeim. Staðurinn verður rannsakaður frekar þegar betur viðrar. Gústaf Arnar, verkfræðingur hjá Landssimanum, sagði að þeir hefðu fengið tækin til athugunar , um f jögur-leytið i gær og þvi hefði ekki enn farið fram á þeim itarleg athugun. Hann sagði, að augsýni- lega væru flest tækin rússnesk, eða framleidd fyrir Rússa, en aðalspursmálið væri i þessu máli hvort sendir fyndist i tækjunum. Stærsta tækið, sem i fljótu bragði virtist sendir, væri sennilega við- tæki. Tækin verða borin saman við skrá Landssimans yfir tæki sem vitað er til að séu i notkun hérlendis. Aðeins 1 tækjanna er breskt, en ekki er hægt að sjá hvaðan segulbandstækineru. Ekki er vitað til að rússnesk tæki af þessum gerðum séu skrá- sett hér, en þau tæki, sem rúss- neskir visindaleiðangrar hafa notað hér, hafa verið skráö hjá Landssimanum. sj Blaðberar óskast nú þegar eða um næstu mánaðamót i eftirtalin hverfi: Teiga Laugarnes Kleppsveg Múlahverfi Seltjarnarnes Hjarðarhaga Hringbraut Mela Nökkvavog Hraunbæ Sogamýri Langagerði Fossvog Hafið samband við afgreiðslu Þjóðviljans i simum 17500 eða 17512.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.