Þjóðviljinn - 22.09.1973, Page 3
Laugardagur 22. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
BERSERKR
— glæsileg islensk smiði
t fyrradag var fréttamönnum
boöiö um borö í lystisnekkjuna
Berserk, sem smiðuö var hjá
Þorgeir og Ellert á Akranesi.
Þetta er glæsilegt fley aö utan
sem innan, og sagöi banda-
riskur umboösmaöur fyrirtækis
ins Hitatæki hf., sem lét smiöa
snekkjuna, aö þetta skip bæri aö
öllu leyti af svipuöum snekkjum
sem væru á markaöinum i dag.
Hann sagöi aö snekkjan væri
mun traustbyggðari og fallegar
innréttuö en sambæriiegar
snekkjur og ætti, hvaö verö
snertir, aö vera vel sam-
keppnisfær.
Kanadiskur auðkýfingur
hefur þegar skoðað snekkjuna
og látiö mjög vel af. Hefur hann
i hyggju að kaupa skip af Hita-
tæki og þarf að gera örlitlar
breytingar frá þessari gerð
fyrir hann.
Forráðamenn Hitatækis, þeir
Gunnar Geirsson og Asgeir
Höskuldsson, sögðust hafa hug-
leitt lengi að smiða slikt skip.
Þeir fengu þekktan bandariskan
skipahönnuð, Philip C. Bolger,
til að gera teikningar, og ber
öllum saman um að hann hafi
unnið mjög gott verk. Teikn-
ingar af bátnum birtust i
Boating Magazine og vöktu þá
mikla athygli.
Smiði bátsins hófst fyrir um
18 mánuðum og lánaði Iðn-
þróunarsjóður til smiðinnar 17,5
miljónir. Báturinn er 47 fet, með
Caterpillarvél og er ganghraöi
16-18 sjómilur, en hámarkshraði
er 24 milur.
Það er von forráðamanna
Hitatæki að geta smiðað að
minnsta tvo til þrjá báta á næsta
ári. Þá hafa þeir i hyggju að láta
gera teikningar af minni gerð af
bát.sem gæti i senn verið fiski-
og skemmtisiglingabátur er
hentaði fyrir innlendan markað.
öll þægindi er. um borð, s.s.
eldunarvél.isskápur, sturtur og
1000 litra vatnsgeymir. Innrétt-
ingar eru mjög smekklegar,
palisanderviöur á veggjum,
hægindastólar og rúm fyrir
fjóra, en 8 manns ættu hæglega
að geta sofið og dvalið i bátnum.
Innréttingar eru að mestu frá
Jóni Péturssyni og húsgögn frá
Jóni Loftssyni. Athyglisverðast
við þennan bát er sú staðreynd,
að það er 30-40% meira pláss i
honum en i sambærilegum
bátum erlendis. Næstu daga
veröur smávegis dyttað að
bátnum, en siöan er hugmyndin
að flytja hann með einhverjum
Fossinum til Bandarikjanna og
sigla honum meö austurströnd-
inni i kynningarskyni. Verð
bátsins er um 225 þúsund doll-
arar og ætti að geta lækkaö
nokkuð ef um raðsmiði yrði að
ræða i framtiðinni. .
Sjónvarpið i vetur
Nýtt fólk í Yöku og
nýrri grein bætt við
Fjallað um byggingarlist og skipulagsmál
Vaka, sjónvarpsþátturinn vin-
sæli um listir og menningarmál,
heldur áfram i vetur, en fleiri
munu nú starfa viö hann en áöur
og fjallað verður um nýja grein til
viöbótar þeim sem fyrir voru,
byggingalist og skipulagsmál.
Ölafur Haukur Simonarson
verður aðalumsjonarmaður þátt-
arins í vetur og i stað þess að einn
maður fjalli um hverja grein eins
og I fyrra, hefur hann fengið til
samstarfs við sig tvo á hverju
sviði.
1 viðtali við Þjóðviljann sagði
Ólafur Haukur, að þátturinn yrði
á laugardögum og er fyrsti út-
sendingardagur 20. október.
Það eru arkitektarnir Einar
Þorsteinn Asgeirsson og Guðrún
Jónsdóttir, sem fjalla munu um
byggingalist og skipulagsmál, en
þau mál eru jú mjög á döfinni
meðal almennings nú, ekki sist
Reykvikinga, sem daglega horfa
uppá breytingar á gamalkunnu
umhverfi og öran vöxt úthverf-
anna.
Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur sér áfram um myndlistina,
en auk hans koma þar til starfa
tveir ungir myndlistarmenn,
Ólafur Kvaran og Jón Reykdal.
Þorleifur Hauksson cand. mag.
og Böðvar Guðmundsson skáld og
Islenskufræðingur taka að sér
bókmenntirnar og um tónlistina
fjalla tónskáldin Atli Heimir
Sveinsson og Jón Asgeirsson.
Leiklistarumfjöllun verður enn i
höndum Stefáns Baldurssonar
leiklistarfræðings og mun hann fá
annan i lið með sér, en sá er enn
óráðinn.
—vh
Berserkir i Reykjavikurhöfn.
Gengiö er imi i skipiö aö aftan og er þá koniiö inn í þessa glæsilegu
stofu.
Þannig litur stýrisútbúnaöurinn út
Fló á skinni
sýnt að nýju
Nú um helgina hefjast á ný sýn-
ingar á Fló á skinni hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Leikurinn var
sýndur 95 sinnum I Iönó á siöasta
leikári og jafnan fyrir troöfullu
húsi. Auk þess var fariö meö hann
I leikför til Akureyrar I sumar,
þar sem hann var sýndur 17 sinn-
um við sömu vinsældir. Sú breyt-
ing verður á hlutverkaskipan I
haust, aö Pétur Einarsson fer
meö hlutvcrk sjarmörsins
Tomain Tournel, sem Borgar
Garðarsson lék áður, en hann
dvelur erlendis i vetur. — Þaö er
ekki verið aö skera gamaniö viö
nögl i „Flónni”, þar sem hver
spaugilegi atburöurinn rekur
annan. Hér eru þau Hrafnhildur
Guömundsdóttir, Gisli Halidórs-
son og Þorsteinn Gunnarsson i
hlutverkum sínum.
Iðja Reykjavík:
Skatta láglaunafólks
verður að stórlækka
Einsog við skýrðum frá í
gær hefur Félag járn-
iðnaðarmanna sagt upp
gildandi kjarasamningum,
en einnig hafa félögin Sókn
og Iðja í Reykjavík sagt
upp sínum samningum.
Nú um helgina verða
fundir í allmörgum verka-
lýðsfélögum þar sem á-
kvörðun um uppsögn
samninga verður tekin. Má
þar nefna Trésmiðafélag
Reykjavíkur, Dagsbrún og
Verkalýðs- og sjómannafé-
lögin i Grindavík og Kefla-
vík.
Við höfðum samband við Björn
Bjarnason i Iðju, og spurðum
hann frétta af fundi Iöju sem
haldinn var þann 20. þessa mán-
aðar, og hvað félagsmönnum
hefði þótt vera brýnust mál fyrir
væntanlega samningagerð i
haust.
Björn sagði aö mikill einhugur
hefði rikt á fundinum um að lág-
launin þyrftu verulega að hækka,
og ennfremur þvi að gera þyrfti
lagfæringar á sköttum láglauna-
fólks, en það voru fyrst og fremst
þessi atriði sem rædd voru á
fundinum.
Fundurinn geröi eftirfarandi á-
lyktun:
„Fundur i Iðju, félagi verk-
smiðjufólks i Reykjavik haldinn
20.9. 1973, telur það höfuðnauðsyn
að i þeim kjarasamningum sem
framundan eru verði aðaláhersl-
an lögð á aö hækka dagvinnulaun
svo þau ein nægi meðalfjölskyldu
til sómasamlegs framfæris.
Þá telur fundurinn að skatta
láglaunafólks verði að lækka alP
verulega.
—úþ
Landsliðið valið
til Noregsfarar
LEIKMENN ER LANDSLIÐS-
NEFND HEFUR VALID TIL
NOREGSFAIIAR 30. scpt.—4.
otk. ’73.
Markmenn:
Sigurgeir Sigurðsson Vikingur
Gunnar Einarsson Haukar
Guðjón Erlendsson Fram
Jón H. Magnússon Vikingur
ViggóSigurðsson Vikingur.
Fararstjórn:
Jón Asgeirsson, ritari H.S.I. aðal-
fararstjóri Jón Erlendsson, for-
maður landsliðsnefndar H.S.l.
Karl Benediktsson, þjálfari
landsliðsins, Páll G. Jónsson,
landsliðsnefndarmaður.
Aðrir leikmenn:
Gunnst.Skúlason fyrirliði Valur
Ólafur H. Jónsson Valur,
Jón Karlsson Valur,
Bergur Guðnason Valur,
Viðar Simonarson F.H.,
Auðunn Óskarsson F .H.,
Gunnar Einarsson F,H.,
Björgvin Björgvinsson Fram,
Axel Axelsson Fram,
Hörður Sigmarsson Haukar,
Einar Magnússon Vikingur,
Viðskipta
fulltrúi
Ivari Guðmundssyni hefur ver-
ið falið að gegna störfum sem við-
skiptafulltrúi við sendiráð Islands
I Washington með aðsetri i New
York. Jafnframt verður hann
áfram ræðismaður i New York.