Þjóðviljinn - 25.09.1973, Síða 8

Þjóðviljinn - 25.09.1973, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. september 1973 ÓVEÐURSFRÉTTIR i Kcflavikurhöfn slcit upp hátipn Snorra KK, en svo giftusamlega tókst til aö mönnum tókst aö ná lioniim upp i fjöru litið skemmdum. Fremst á myndinni sést Snorri þar sem hann stendur i fjörunni. Þetta er 18 lesta hátur. (Ljósmyndastofa Suöurnesja) Sandgerði Hús færðust úr stað - mikið tjón á bátum Gífurlegt tjón varö í Sandgerði af völdum óveðursins í fyrrinótt, og lætur nærri að þar hafi veðurguðirnir gert mestan usla af öllum þeim stöðum, sem þeir sóttu heim þessa nótt. Aðeins 18 bátar voru i höfninni og er það óvenjufátt. Yfirleitt eru i höfninni allt að þvi 50 bátar, en margir höfðþ verið fluttir burt. Allir þessir Í8 bátar skemmdust að einhverju leyti, sumir mikið, en aðrir litillega. Einn bátur sökk. Ahöfn þess báts hélt með siðustu áætlunarferð frá Reykja- vik til Sandgeröis og hugðist dveljast i bátnum yfir nóttina. Er að var komið reyndist það þó illmögulegt, þvi aðeins mastrið stóð upp úr sjónum. Töluvert var um, að áhafnir bátanna héldu fyrir um borð yfir nóttina, og hefur vafalitiö komið i veg fyrir frekara tjón. Eins og annars staðar fauk bárujárn af nokkrum húsum, auk þess sem margar plötur fuku af fiskverkurnarhúsunum. Með- limir i björgunarsveit staðarins unnu látlaust alla nóttina við að elta plöturnar uppi og var þvi ekki hætt fyrr en klukkan 11 i gærmorgun. Um 20 manns tóku þátt i þvi starfi. Margir litlir vinnuskúrar og áhaldaskúrar fuku um koll og einn bilskúr tók sig til og fluttist yfir á næstu lóð, án þess að breyta nokkuð um lögun eða gerð. Stóð grunnurinn einn eftir. Einn bill skemmdist vegna járnplötufoksins en engin slys urðu á mönnum utan skrámur, sem björgunarmenn hlutu, er þeir tóku á beittu bárujárninu. Rafmagnslaust var i Sandgerði alla nóttina, en aö sögn lögreglu- manna þar var kertaljós i nær hverjum glugga, og mun litið hafa verið um svefn i Sandgerði þessa „stormasömu” nótt. -gsp Suðurlandsundirlendiö Aöeins minniháttar skemmdir víöast hvar Keflavík Hús fuku og bát sleit upp Allmikið tjón varð á húsum i Keflavik^_i óveðrinu að sögn lögreglunnar á staðnum. Hluti af þökum allmargra húsa fauk og þak af þriggja hæða ibúðarhúsi fauk af þvi sem næst i heilu lagi. Skemmubygging i útjaðri bæjarins fauk af grunni og gjör- eyðiiagðist. Þá hrundi bilskiir sem nýbúið var að hlaða. Vinnu- skúrarfukutilogbrotnuðu. Hluti af þaki byggingar hafnarskrif- stofanna fauk. 18 lesta bát, Snorra KE 131, sleit upp i höfn- inni, en snarráðum mönnum tókst að ná honum upp i fjöru litið skemmdum. Veðurhæð var gifur- leg i Keflavik svo og á Kefla- vikurflugvelli. Þorlákshöfn Þakiöfaukaf í heilu lagi Frá fréttaritara Þjóðviljans i Þorlákshöfn, Þorsteini Sigvalda- syni: Mikið tjón varð i Þorlákshöfn i fyrrinótt þegar óveðrið gekk yfir. Eitt mesta tjónið varð á kaupfé- lagshúsinu er þakið fauk af í heilu lagi og siðan eina 70 tii 80 metra. Samt var það lán I óláni að það olli ekki neinum skemmdum á þessari flugferð sinni. Að lokum brotnaði það I kringum litla sölu- búð sem hér er, en þar brotnaði ekki svo mikið sem rúða, þrátt fyrir fijúgandi spýtnabrak. Þá urðu miklar skemmdir á bátunum sem voru i höfninni. Hefði sennilega verr farið ef fleiri bátar hefðu verið þar en þeir voru aðeins 8. Þó skemmdust tveir bátar. Það voru Snætindur AR 88 og Brynjólfur AR 4. Þeir sneru skutum saman við bryggjuna og skullu saman þannig að báðir eru mikið skemmdireftir. Annars má segja að enginn bátur hafi sloppið alveg við skemmdir, enda hefur vart i manna minnum gengið annað eins á i höfninni og þessa óveðursnótt. Strax i fyrrakvöld fóru skip- verjar um borö i bátana til að bjarga þvi sem bjargað varð, annars hefði farið enn verr. Þá urðu nokkrar skemmdir á einingum úr viðlagasjóðshúsum sem verið er að setja upp og fuku þær til og frá um þorpið. En þau hús sem búið var að ganga frá stóðust álagið. Eitthvað var einn- ig um þakplötufok, en þó var það ekki stórvægilegt, svona plata og plata fauk. Mikill sjór gekk á land á háf- lóðinu um nóttina og bar með sér stórgrýti þannig að segja má að um grjóturð sé að ræða hjá Suð- urvararbryggju og vigtarskúrn- um og alveg uppá planið hjá Meitli. Þetta olli þó engum skemmdum að þvi er séð verður. —S.dór. Eyrarbakki Lítið tjón — en skörðí garðinum Tjón varð hér ekki teijandi og miklu minna en búast mátti við, sagöi Þór Hagalin sveitarstjóri á Eyrarbakka Það fuku aö vísu þak- plötur af þremur húsum og slitu eitthvað af rafmagnsiinum og eitthvaö brotnaði af rúðum. í höfninni voru fjórir bátar, en skipverjar voru i þeim i nótt til að gæta þeirra og lika i dag þvi aö flóðhæö er mikil og ókyrrt i sjó. Mesti skaöinn, sem hér varð, var að skörð brotnuðu i grjótgaröinn sem hlaöinn er i kringum hafnar- kvina hjá okkur. A flóðinu flæddi alveg yfir hann. Við klæddum garðinn með stórgrýti að veru- legu leyti i vor, en það kom i ljós að hann er enn ekki nógu hár. Slikir garðar þurfa aö standa a.m.k. einn metra upp úr sjó i öllum flóðum. Suðureyri Vindáttin hagstæð Hvolsvöllur A Hvolsvelli urðu ekki miklar skemmdir þrátt fyrir mikinn veð- urofsa. Menn segjast muna annað eins rok en aldrei i svo langan tima sem að þessu sinni, enda stóð veðurofsinn i einar 5 klst. Helstu skemmdir á Hvolsvelli voru þakplötufok og rúðubrot en engar meiriháttar skemmdir urðu I þorpinu. í Fljótshliö urðu nokkuð miklar skemmdir á flestum bæjum. Plöt- ur fuku bæði af útihúsum og ibúð- arhúsum og eitthvað var lika um að bændur misstu hey sem ekki var búiö að hiröa. Hella Frá Hellu er svipaða sögu að segja, engar meiriháttar skemmdir urðu. Þó fuku þakplöt- ur og eitthvað mun hafa brotnað af rúðum. Selfoss A Selfossi var veðurofsinn ekki eins mikill og við ströndina, enda urðu skemmdir þar frekar litlar. Eitthvað mun hafa fokið af þak- plötum og örfáar rúður munu hafa brotnað. Einna mest mun tjóniö á Selfossi hafa verið hjá manni sem var búinn að slá upp fyrir bilskúr, en sá mótauppslátt- ur hrundi til grunna. Að því er lögreglan á Selfossi sagði varö aldrei neitt ógnar- ástand þar eins og viða annars staöar. Hveragerði Alveg sama er að segja um Hveragerði, þar urðu ekki miklar skemmdir enda veðrið ekki eins vont þar og viða annars staðar. Eitthvað mun hafa fokið af þak- plötum og eins var eitthvað um rúðubrot i gróðurhúsum en ekki stórvægilegt. Þó varð nokkur skaði á einu gróðurhúsanna er þakplötur lentu á þvi og brutu nokkrar rúður. —S.dór. Að sögn Gísla Guömundssonar, fréttaritara Þjóðviljans á Suður- eyri viö Súgandafjörð, var vind- áttin hagstæð og þvi litið um skemmdir, — raunar svo til engar. Vindurinn var af suöaustan og stóð þvi út fjörðinn. Umtals- verður sjógangur var þvl ekki i höfninni og skemmdir á bátum engar. Einn maður var þó niður við höfnina i nótt, og batt hann þá báta, sem voru illa festir. Versta vindáttin, sem komið getur á Suðureyri, er vestanáttin, suövestan-eða norövestanáttin. Sagði Gisli, að enginn vafi væri á, að hefði vindurinn staðið þannig, heföu skemmdir oröið miklar, sjór hefði þá orðiö mikill i höfninni, en sökum þess, að óviðriö stóð að austan, varð siór rétt kvikóttur. Atvinnulif og annar hversdags- leiki hefur þvi ekki raskast á Suðureyri. Gisli sagðist aðeins vita um eitt tjón. Nokkrar báru- járnsplötur fuku af nýbyggingu, en ollu engum skemmdum. gsp

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.