Þjóðviljinn - 25.09.1973, Page 12

Þjóðviljinn - 25.09.1973, Page 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. september 1973 Styrktarfélag vangef- inna á Austurlandi heldur fræðslu- og kynningarmót fyrir for- eldra vangefinna og seinþroska barna, svo og aðra þá, er áhuga kynnu að hafa, að Staðarborg i Breiðdal dagana 28.-30. sept- ember. Þeir, sem hug hafa á að sækja þetta mót, hafi samband við trúnaðarmann félagsins i sinum hreppi eða snúi sér til Ásdisar Gisladóttur, Djúpavogi, eða Kristjáns Gissurarsonar, Eiðum, sem veita allar nánari upplýsingar. STJÓRNIN Tilkynning frá Stofnlánadeild landbúnaðarins Ákveðið hefir verið að veita i ár úr Stofn- lánadeild landbúnaðarins lán til bústofns- kaupa, sem háð verða eftirgreindum skil- yrðum: a) Lánað verði aðeins til kaupa á sauðfé og nautgripum. b) Viðmiðunarverð er allt að skattmati' hverju sinni. Lánstimi verður 6 ár og vextir almennir útlánsvextir deildarinnar. c) Lánað verður gegn fasteignaveði eða veði i hinum keypta búpeningi og hrepps- ábyrgð. Lánið fellur allt i gjalddaga, ef bústofnsaukinn er seldur. Stjórn Stofnlánadeildar áskilur sér rétt til að setja nánari reglur um lán þessi, svo sem um forganga umsókna, miðað við þarfir, og hámark lána, ef umsóknir reyn- ast meiri en fé er til ráðstöfunar. Umsóknir um lán á þessu ári skulu berast Stofnlánadeild landbúnaðarins, Búnaðar- banka íslands, eigi siðar en 15. okt. n.k. Reykjavik, 19. september 1973. Búnaðarbanki íslands SOTFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Hafnfirðingar Litið inn og skoðið gólfteppin hjá okkur. SEGLAGERÐ HALLDÓRS, Reykjavikurvegi 48, simi 53154. Náttúrulækningafélag Reykjavíkur heldur félagsfund fimmtudaginn 27. september kl. 20,30 i guðspekifélags- húsinu Ingólfsstræti 22. Fundarefni: Kosnir fulltrúar á 14. þing N.L.F.Í. Erindi Sóphonias Pétursson. Stjórnin Kaupum hreinar léreftstuskur Blaðaprent Síðumúla 14 Landhelgisleiðari í Lögberg-Heimskringlu „GETUR NOKKUR LÁÐ ÞEIM” Vestur-íslenska blaðið Lögberg-Heimskringla flytur sjaldan ritstjómar- greinar um pólitísk málefni/ enda til þess ætlast að blaðið sé hafið yfir flokkadeilur. Út af þessu var þó brugðið einu sinni í sumar, en það var í tilefni af umræðum á Kanadaþingi um tillögu um útfærslu kanadísku landhelginnar. Auðheyrt er á ritstjóra blaðsins, Karó- linu Gunnarsson, en hún ritar greinina, að hún fagnar mjöghinni almennu samstöðu á Kanadaþingi um þetta mál. — Og það stafar ekki aðeins af þeim kanadisku hagsmunum sem þama eru i veði, heldur einnig af því að hún gerir sér Ijóst að þarna skapast stuðningur við islendinga handan hafsins. Og þeirra fordæmi hafi haft þarna mikil áhrif. Þjóðviljinn birtir hér á eftir orbrétt ritsjórnargrein úr Lög- bergi-Heimskringlu frá 21. júni i sumar. Blaöið er sem sagt 3ja mánaða gamalt, en það er til marks um póstsamgöngurnar að það barst okkur ekki fyrr en til- tölulega nýlega. „Kanadastjórn samhuga um 200 mílna fiskveiðitak- mörk Þegar tillaga var rædd i sam- bandsþinginu um útfærslu kanad- iskra fiskveiðitakmarka i 200 milur, snemma I júni, var ekki ágreiningur um annað, en hvor aðalstjórnmálaflokkanna tveggja hefði átt upptökin að þvi að koma tillögunni á framfæri. Þegar þeir tókust á um málið, Jack Davis, fiskimálaráðherra stjórnarinnar, og Robert Stanfield, formaður Conservative flokksins, sakaði ráðherrann Mr. Stanfield um smásálarskap i þvi að hafa farið fram á útfærslu i aðeins 50 sjómilur. Hinn hvaö þetta rangt farið með, sagði að siðastliðinn september hefði hans flokkur haldið þvi fram að Kanada ætti rétt til umráða yfir öllu land- grunninu við strendur þess. Að undanteknum þessum eðli- lega árekstri aðalflokkanna tveggja, hlaut tillagan um 200 milna kanadiska landhelgi óskiptan stuðning allra þing- manna. Hún tekur fram að öllum strandrikjum beri að vernda náttúruauðæfin við eigin strendur, að erlendar þjóðir eigi ekki að fá aðgang að þeim án leyfis. Mr. Davis fer fram á að Kanada hafi yfirráö fiskiveiða á 200 milna svæöi frá ströndum landsins, eða lengra ef land- grunnið nær útyfir þau takmörk. Þessi krafa Kanadastjórnar verður borin upp á fundi Sam- einuðu þjóðanna, sem fjallar um lög hafsins i Chile 1974. Á þeirri ráðstefnu mun Kanada vinna að þvi að sannfæra Bandarikin, Sovétrikin og aðrar erlendar þjóðir um að þeim beri að leggja niður hina látlausu uppskeru kanadiskra sjávarafurða er þær nú iöka. Tillagan fer fram á stranga lög- gæslu við strendur landsins þegar kemur að útfærslu landhelginnar, og bendir á að náið eftirlit þurfi að hafa, svo að mögulegt verði að hafa snarar aðgerðir ef gengið er á rétt þjóðarinnar á fiski- miðunum. Sumir þingmenn,sem eiga kjör- dæmi á austurströnd landsins, tóku til dæmis aðgerðir Islands i landhelgisdeilunni við Breta, sögðu að Islendingar notuðu varðskip sin til að hrella land- helgisbrjótana. „Getur nokkur maður láð þeim þessar aðgerðir”, sagði Jack Marshall, einn af þing- mönnum Nýfundnalands. Hann sagði að sjómenn Nýfundna- lands væru álika staddir og Islendingar. Barátta fyrir út- færslu fiskveiöimarkanna væri barátta fyrir lifinu. Annar þingmaður frá St. John kjördæminu i Nýfundnal., þar sem fiskiðnaðurinn er undirstaða efnahagsins, stakk upp á þvi að gömul herskip, sem nú væru ekki i notkun.vrðu tekin i þjónustu strandgæslunnar, til stuðnings þeim varnarflota sem nú er i notkun. Ráðherrann, Jack Davis, svaraði þvi til að þess gerðist ekki enn þörf, en vel gæti komið til slikra aðgerða þegar fiskveiðilög- sagan yrði færð út að jaðri land- grunnsins. Nú væri aðal viðfangs- efnið að spyrna eftir megni við óprúttnum uppskeruaðferðum erlendra fiskiskipa við strendur landsins, Kanadiskir sjómenn hafa árum saman horft uppá fiskiflota erlendra útgerðarmanna moka upp aflanum við strendur lands- ins og gera að veiðinni jafnóðum án þess að nokkurt hlé yrði á þvi að komast yfir uppskeruna. Og þeir hafa ekkert getað aðgert. Ég minnist þess er ég var á ferð i Nova Scotia þegar fyrra „þorskastriðið” stóð milli Islend- inga og Breta. Nafnið sagði til um þjóðernisuppruna minn, og það kom brátt i ljós að ætlast var til að ég væri fróö um landhelgis- deiluna. En þar stóð ég þeim sjálfum ekki svo mjög framar. Þeir voru furðu vel lesnir um deiluna og höfðu fylgst með málinu. Oft var mér bent á erlend skip að veiðum og þá sagt um leið: „Þetta svæði er verndað fyr- irokkur sjálfum. Hér megum við ekki fiska, en útlendingum er það heimilt”. — C.G.” MYNDABOK DÝRANNA í litum Bókaútgáfan Fjölvi hefur nýlega sent frá sér sérlega vandaða bók um dýrafræði. Hún heitir Myndabók dýranna I litum og er það óvenjulegt við frágang hennar að hún er öll litprentuð, hver einasta blaðsiða i henni. Asamt skýringum og textumer þar að finna 200 litprentaðar myndir af ólikum tegundum æðri landdýra. Víðkunnur japanskur iistmál- ari, Takeo Ishida, hefur verið fenginn til aö mála myndirnar. Höfundur bókarinnar er David Stephen, en hinn góðkunni náttúr- fræðingur Ingimar Oskarsson hefur þýtt og endursagt bókina. Ingimar er ma.a kunnur af út- varpsþáttum sínum Úr mynda- bók náttúrunnar. A undanförnum árum hefur Bókaútgáfan Fjölvi gefið út merkilegar bækur um náttúru- fræðileg efni, svo sem Stóru fuglabókina og Stóru blóma- bókina.mikil verk upp á 600 bls. og er nú að undirbúa I sama bóka- flokki Stóru skordýrabókina og Stóru Fjölvabók um þróun mannsins. Myndabók dýranna, sem nú kemur út, er ekki i þeim flokki, enda alveg sérstök i sinni röö vegna hinnar miklu litmynda- prentunar. Hún er að einu leytinu skrautleg listaverkabók, en á hinn bóginn hefur lika verið haft i huga, að hún gæti verið nem- endum til hjálpar og áhugavaka i námi. Kennslubækur i dýrafræði hér á landi eru með þeim annmörkum, að mjög fáar dýrategundir eru greindar i þeim. Þar sem slakað er svo á þekkingaratriðum, hafa menn orðið þess varir, þegar þeir horfa á nátturulifskvikmyndir i sjónvarpi og kvikmyndahúsum, að þeir þekkja fæstar tegundir, sem þar eru sýndar. Með þessari nýju Myndabók dýranna er ætlað að bæta úr þessu og geta menn hér fundið myndir og frásagnir um dýrategundir, sem varla hafa verið nöfn til yfir á íslensku. Er það þá mikilvægt, að jafn fær náttúrurfræðingur og Ingimar óskarsson fer höndum um nafn- giftir. Hér eru t.d. útskýrðar i fyrsta skipti I islensku riti hinar mörgu óliku tegundir bjarnardýra, hjartardýra, antilópa, villinauta, hlébarða, tigrisdýra, villisauðfjár og margvislegra nagdýra og marðartegunda. En með fögrum frágangi er leitast við að leiöa lesandann ungan eöa gamlan til áhugavakningar um efnið og forðast þann leiða, sem þurrar og litlausar námsbækur verða oft til að valda. Myndabók dýranna ilitum er 96 bls. I mjög stóru broti. Hún er gefin út I samstarfi við Caster- man-útgáfuna i Belgiu og prentuð þar, en textar eru unnir hjá Prentsmiðju Guðmundar Bene- diktssonar og ljósmyndanir fyrir offseÞprentun gerðar hér á landi. (Fréttatilkynning) í sláturtíðinni Húsmæður athugið, höfum til sölu vax- bornar pappaöskjur undir hvers konar matvæli. öskjurnar eru mjög hetnugar til geymslu á sláturafurðum og öðrum þeim matvæl- um sem geymast eiga i frosti. Komið i afgreiðsluna, gengið inn i portið að norðanverðu. Kassagerð Reykjavikur h.f. Kleppsvegi 33

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.