Þjóðviljinn - 18.10.1973, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. október 1973.
Öllum er enn i fersku minni óveðrið sem hér gekk yfir á dögunum, en það
var angi af fellibylnum Elínu (Ellen) sem gekk yfir norðanvert Atlantshaf.
Þessi mynd er tekin úr bandarisku geimstöðinni Skylab og sýnir hvernig
fellibylurinn litur út úr geimsýn.
Hlöðver Sigurðsson, Siglufirði:
Heilögu kýmar og
hagfræöingiiririn
Slöan ég sendi Þjóöviljanum
nokkrar llnur um fréttamennsku
útvarpsins varðandi valdarániö I
Chile, hefur komiö I ljós, aö hlutur
útvarpsstjóra og annarra yfir-
manna útvarpsins var öllu lakari
en ég haföi gert ráö fyrir. Þeir
höfðu sem sé setið fund útvarps-
ráös, þar sem samþykktin var
gerð, og ekkert haft viö hana aö
athuga. Var yfirlýsing þeirra
sprottin af óttablandinni viröingu
fyrir fréttamönnunum? Er þá
ekki skörin farin aö færast upp I
bekkinn? Skörungsskap viröast
þeir aö minnsta kosti ekki hafa
sýnt.
En svo gerðist það 8. þessa
mánaðar, aö þekktur hagfræðing-
ur kom fram I útvarpinu og vildi
nú rétta hlut fréttamannanna.
Ekki reyndi hann þó að halda því
fram að fréttaflutningurinn um
valdaránið I Chile hafi verið
óhlutdrægur, heldur kom hann
með gömlu tugguna um, að málið
væri útvarpsráði alveg óviðkom-
andi. Nú er það einmitt eitt af
hlutverkum útvarpsráðs að vaka
yfir óhlutdrægni útvarpsins, og
það gerði það einmitt I þessu
máli. Ég held lika, að vandfundin
verði betri leiö til að velja út-
varpsráð, sem sinnti þvi hlut-
verki, en að kjósa það eftir hlut-
fallskosningu, þannig að sem
flestar skoðanir eigi þar fulltrúa.
En afturhaldið, sem löngum hef-
ur getað notað útvarpið til áróð-
urs fyrir þær skoöanir, sem það
vill halda á lofti, á erfitt með að
sætta sig við, að nú er útvarpið
opnara fyrir öllum skoðunum en
áður hefur tiðkast.
Hagfræðingurinn vitnaði til
þess, að sú skoðun hefði verið
flutt I útvarpinu óátalin, að við Is-
lendingar værum á vissan hátt
samsekir fasistastjórninni I
Grikklandi, þar sem við værum I
hernaðarbandalagi með henni.
Hér er þó óliku saman að jafna.
Hér er maður aðeins að lýsa sinni
skoðun á þekktum staðreyndum.
Eða erum við kannski ekki i
hernaðarbandalagi með Grikkj-
um? Það er svo hvers og eins að
meta það fyrir sig hversu ljúft
honum það sálufélag er. I þessu
sama erindi hélt hagfræðingur-
inn þvi fram, að það hefði verið
óþarft af okkur að færa landhelg-
ina út i 50 milur, þvi að innan
fárra ára myndu Bretar hætta
öllum úthafsveiðum, þótt þeir
reyndar mundu reyna aö eyða
fiskistofnunum fyrst.
En hvað þá um aðrar þjóöir,
sem veiða á miðum okkar, ef
Bretum tækist ekki að ná þessum
göfuga tilgangi sinum?
Ég geri ekki ráð fyrir, að
útvarpsráð átelji hagfræðinginn
neitt fyrir að flytja þessar
skoðanir sinar i útvarpinu, enda
er hann ekki með þvi að falsa
neinar fréttir. Hitt er svo annað
mál, að flestum islendingum mun
þykja þessi kenning hagfræðings-
ins fremur heimskuleg. Ég efast
meira að segja um, að Morgun-
blaðið treysti sér til að halda
henni mikið á lofti. En vilji menn
verða sér til athlægis i útvarpi,
ætti þeim að vera það frjálst.
Siglufirði 9. okt.
Hlöðver Sigurðsson.
Rannsókn
á lokastigi
Rannsókn vegna andláts
Skarphéðins Eirikssonar á
Sauðárkróki er nú á iokastigi. Er.
einkum beðið eftir krufnings-
skýrslu, en hún er ekki væntanleg
fyrr en um helgina.
Þá er ólokið sannprófun
nokkurra atriða i málinu og
vegna þeirra var einn maður
settur i gæsluvarðhald i gær.
Fulltrúi bæjarfógeta lagði á-
herslu á það við fréttamann að
maðurinn hefði einungis verið
settur I gæsluvarðhald vegna
nauðsynjar á að einangra vitni.
—ÞH
Nýjung hjá stofnlánadeild
landbúnaðarins:
Lána fé til
bústofnsauka
Stofnlánadeild landbúnaðarins
auglýsti i haust eftir umsóknum
um lán til bústofnsauka.einsog það
er kallað, en slikt er nýmæli i
lánamálum landbúnaðarins.
Hjá stofnlánadeildinni fengum
við þær upplýsingar að umsóknir
hefði streymt inn til stofnunar-
innar að undanförnu, en um-
sóknarfrestur rann út 15. október.
Er umsóknirnar fleiri en búist
var við, og fyrirsjáanlegt að
tryggja verður stofnlánadeildinni
mun meira fé til þessara
lána en ætlað var i upphafi, ef
anna á öllum umsóknunum en
það voru 15 miljónir kr.
Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands bænda,
sagði i gær, að það væri mjög
mikill fengur að þessum lánum
fyrirbændur: einkum þá
semværu að byrja búskap.
Gunnar sagði að enn væri ekki
búið að ganga frá reglugerð um
þessar lánveitingar. Til að mynda
væri ekki búið að ákveða hvort
menn fengju lán ef þeir settu á frá
sjálfum sér, eða aðeins ef þeir
keyptu skepnur af öðrum, en i
sjálfu sér sé ég engan eðlismun á
þessu tvennu, sagði Gunnar.
Gunnar sagði að vegna þess að
nú væri verið að lána i fyrsta sinn
væru umsóknir sjálfsagt mun
fleiri en annars og ef það fé sem
Stofnlánadeildin hefur yfir að
ráða til þessara lána væri ekki
nægilegt, yrði sjálfsagt ein-
hverjum lánum frestað fram yfir
áramótin,
Eins er liklegt að einhverjar
umsóknir reynist ekki lánshæfar
þegar yfir þær hefur verið farið.
Til að mynda er óliklegt að þeir
sem hafa stór bú fái lán að þessu
sinni, þeir þurfa siður á þessu láni
að halda en hinir.
- En alla vega koma þessi lán
til að létta undir bændum i fram-
tiðinni, sagði Gunnar, og ég fagna
þeim mjög.
-S.dór
Fimm seldu fyrir
21,7 milljónir kr.
Fimm skip seldu afia sinn i
Þýskalandi I gær og fyrradag.
Meðaiverðið var mjög misjafnt
eða frá 36 kr. upp 146.80 kr.
í fyrradag seldu þessi skip afla
sinn: Gunnar Jónsson i Bremer-
haven 56.7 tonn, þar af 6.5 ónýt,
fyrir 62 þúsund mörk eða 2.1
miljón isl. kr., meðalverðið er
38.15 kr. Vestmannaey I Bremer-
haven 151.5 t. fyrir 194 þúsund
mörk eða 6.7 milljónir isl. kr.,
meðalverð 44.67 kr. og Hrönn i
Cuxhaven 61.9 t. þar af 1 t. ónýtt,
fyrir 83.556 mörk eða 2.8 miljónir,
meðalverð 46.80 kr.
í gær seldu svo Mai i Cuxhaven
138.8 lestir, ar af 4 ónýtar,
fyrir 152.500 mörk eða 5.3
miljónir, meðalverð 40.10 kr. og
Brettingur 133 t. fyrir 140 mörk
eða 4.8 miljónir, meðalverð tæpar
36 krónur.
Samtals seldu skipin 536 tonn
fyrir 21.7 miljónir og meðalverðið
er 40.50 krónur á kflóið.
—ÞH
HORN
í SÍÐU
Sögulegar
formanns-
kosningar
í Heimdalli
Ég leita nú að visu aldrei með
logandi ljósi, né i gegnum
stækkunargler að fréttum i
Mogganum minum. En hvað um
það, ég hef ekki séð neina frétt
af stjórnarkjöri i Heimdalli,
félagi ungra sjálfstæðismanna,
en aðalfundur félagsins var
haldinn sl. laugardag.
Þess vegna sé ég mér ekki
annað fært en skýra frá þeim
fréttum sem þaðan er að fá, og
að þvi er sýnist, sannar og
réttar.
Þegar fyrir lá að formaðurinn
Skúli Sigurðsson sem gegnt
hefur starfinu sl. ár, ætlaði ekki
að gegna þvi öllu lengur, ákvað
mótframbjóðandi hans frá fyrra
ári, Arni B. Eiriksson, sem næg-
an virðist hafa metnaðinn til að
vilja verða formaður, að gefa
kost á sér aftur.
Þá var það að uppstillingar-
nefnd til formannskjörs var
komið á laggirnar, og veitti
henni forstöðu lögfræðingur,
nefndur Jón ZoÖga, fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna i
Reykjavik.
Vann nú uppstillingarnefnd
fram á kjördag, og fór drjúgur
vinnutimi nefndarinnar I að
smala á fundinn, og var aðal-
lega smalað i Orator, félagi
laganema við Háskólann, svo og
eftir gömlum félagaskrám úr
þvi félagi; sum sé mest lög-
fræðingum.
Siöan rann upp laugardagur-
inn og verðandi og sivaxandi
stétt löglærðra innheimtu-
manna og rukkara kom fylktu
liði á aðalfund Heimdallar.
Þarna voru mættir um 60 félag-
ar þessa félagsskapar (stærsta
stjórnmálafélags æskufólks á
íslandi) og þar af 40 löglærðir
eða löglærlingar.
Formaður uppstillingar-
nefndar las upp tillögu nefndar-
innar og þar var ekki að heyra
nafn hins metnaðargjarna Arna
B. Eirikssonar, heldur va- for-
mannsefni nefndarinnar Már
Gunnarsson, skrifstofustjóri
borgarverkfræðings og lögfræð-
ingur.
Þetta þótti fylgjendum Arna
slæm uppástunga og var þvi
nafn hans nefnt utan úr sal, sem
formannsefnis.
Þótti löglærðum slæm þessi
uppástunga og vissu reyndar
ekki hvernig kosning færi og
stungu þvi upp á enn öðrum sem
þriðja kandidat, og var sá úr liði
Arna, nefndur Einar K. Jóns-
son.
Eftir að kyrrð komst á og
uppástungum var lokið, gekk
Árni á fund Más, en fróðir menn
segja, að Arni hafi tekið af Má
loforð um stuðning til for-
mannskjörs, og spurði Arni Má
hvort hann ætlaði virkilega ekki
að styðja sig. Kom nokkuð á Má
er gengið var eftir þessu gamla
loforði, og tók hann þá ákvörðun
að efna það, þó aðeins á yfir-
borðinu, eins og koma mun i
ljós.
Hafði hann samband við vini
sina löglærlinga og gekk siðan I
pontu og lýsti þvi yfir að hann
væri ekki i kjöri til formanns.
Að þessari yfirlýsingu gefinni
stóð einnig upp Einar K.
Jónsson og gaf sams konar yfir-
lýsingu. Virtist þvi formanns-
sætið blasa við hinum frama-
gjarna Arna.
En þá er það sem löglærlingar
gripu til menntunar sinnar og
gáfu út þá tilskipun i krafti
lagaskýringa, að fyrst svona
væri komið, ætti að fara fram
óhlutbundin kosning um mann i
formannsstöðuna.
Var nú gengið til kosninga.
Kosning fór svo, að skrifstofu-
stjórinn Már fékk 40 atkvæði, en
Arni það sem á vantaði að næði
tæpum 60, en það var tala fund-
armanna og þvi Már Gunnars-
son (rétt)kjörinn formaður
Heimdallar næsta ár.
Þess má geta i leiðinni, að
Már þessi er einn þeirra starfs-
manna, sem hvað erfiðast hefur
verið að ná simasambandi við
af þeim, sem hjá borgarverk-
fræðingi vinna, og tæplega ræt-
ist úr með það, eftir þetta nýja
embætti, sem hann hefur tekið
að sér fvrir flokkinn.
Þá mega Reykvikingar eiga
von á að sjá andlit hans á fram-
boðslista við næstu kosningar ef
að vanda lætur, þvi formanns-
staða i Heimdalli hefur löngum
þótt bærilegasti stökkpallur til
metorða innan flokksins. Og
ekki skemmir menntunin fyrir
honum, þvi eins og alþjóð er
kunnugt er það stefna Sjálf-
stæðisflokksins að brúkast sem
best við lögfræðinga, hver sem
ástæðan fyrir þvi er.
Ef Morgunblaðið hefur ekki
enn frétt af fundi þessum er þvi
velkomið að hringja til min eða
nota þessa grein óbreytta,
endurgjaldslaust.
úþ