Þjóðviljinn - 18.10.1973, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 18. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
POULÖRUM:
r
1 L l. J
BOÐORÐIÐ
14
að væna hann um að hafa veitt
AIgx .
— Veit hún það?
— Hún sagði mér það rétt áðan
á hótelinu.
— Að hún væri hrædd um að
það gæti verið ég.
— Já, vist var hún hrædd, en
ekki hrædd um að það gæti ver-
ið.... Hún vissi mætavel að það
varst þú og enginn annar.
— Hamingjan góða! Hvað á ég
að segja við hana, þegar ég kem
heim?
Mark horfði skelkaður fram
fyrir sig. Ég leyfði honum að
þjást og var nógu illgjarn til að
bæta gráu ofná svart með þvi að
segja kæruleysislega:
— Tja, það gæti reynst erfitt að
gera heimkomu hetjunnar nógu
glæsilega.
— Ha? sagði hann viðutan.
— En það bjargast.
Hann hlustaði ekki á mig. Hann
spurði sjálfan sig árangurslaust:
—Hvernig gat hún vitað það?
Hvernig gat hún...?
Hann hristi höfuðið og siðan tók
ég að mér að svara spurningunni.
— Það get ég sagt þér: Þú ert
nefnilega lélegur leikari, að
minnsta kosti þegar þú stendur
frammifyrir Rósu. Þú hefðir eins
getað afhent henni skriflega játn-
ingu og að sýna henni framani þig
á eftir.
— Þú átt þó ekki við það bók-
staflega, að hún hafi séð það á
mér?
— Jú, einmitt bókstaflega.
Núhef ég aldrei....! sagði hann.
— Þú hefur ekki verið giftur
nema þrjá mánuði heldur. En
þannig er það nú einu sinni og þú
verður að hafa það hugfast fram-
vegis.
— En Johs, hvernig brást hún
við.
— Vel. Þegar ég var búinn að
útskýra ögn fyrir henn hvað undir
bjó, varð hún næstum snortin yfir
þvi að þú skyldir hafa verið svo
hugulsamur að fremja rán min
vegna.
— Hvað sagði hún?
— Hún sagðist skilja þig vel —
eða betur að minnsta kosti. Ég
hlýt að vera i miklu áliti hjá
henni.
— Nei, þetta hlýtur að vera
lýgi! „ ,
—Hvort? spurði ég. — En i
sannleika sagt, Mark, þá er hug-
takið lygi ekki til i sambandi við
Rósu.
— Nei, það er alveg rétt, sagði
hann.
Eftir þetta sátum við þöglir
nokkra stund, hvor um sig niður-
sokkinn i eigin hugsanir. Ég býst
við að Mark hafi verið að hugsa
um Rósu en hugsanir minar sner-
ust fremur um Alex, sem lá i
sjúkrarúmi sinu og var örugglega
að segja við sjálfan sig, að hann
skyldi svo sannarlega ná sér niðri
þegar hann kæmist á fætur aftur.
Ég vissi svo sem að ég átti ekki
von á góðu frá honum. Alex hafði
aldrei getað sætt sig við auðmýk-
ingar og móðganir, og þannig
hafði það verið allt frá barns-
aldri. Honum lá við köfnun og þvi
linnti ekki fyrr en hann hafði
hefnt sin á einhvern hátt, og hið
versta sem gat hent hann var að
láta snúa á sig i fjármálum. Það
voru hans eigin forréttindi að fé-
fletta aðra og það var ekki nema
grin og gaman þegar það tókst.
Þannig leit hann á málið. En að
nokkrum kæmi i hug að snúa við
blaðinu og reyna að beita hann
slikum brögðum.... Hann skyldi
svo sannarlega gefa þeim rauðan
belg fyrir grána, fjandans kvik-
indunum. Ég hafði heyrt hann
taka þannig til orða.
Já, Alex var með eindæmum
viðkvæmur og hörundsár fyrir
öllu sem kom við sjálfan hann. En
gagnvart öðrum var hann alger-
lega tilfinningalaus. Það var eins
og það væri gat, tómarúm i sál-
inni þar sem samúðin átti að
vera. Hann gat aðeins fundið til
með sjálfum sér.
Og þess vegna var aldrei að
vita á hverju var von frá honum.
Hann var algerlega óútreiknan-
legur, vegna þess að enginn gat
sett sig inn i hugarástand hans.
— Hvað um peningana? spurði
Mark. — Þú ætlar þó ekki að
skila honum þeim aftur eða hvað?
— Nei, sagði ég. — Það myndi
ekki bæta neitt úr skák. Alex
myndi bara lita á það sem
hræðslu við hann og álita að hann
gæti þjarmað enn meir að mér.
Og hverju hann gæti þá tekið upp
á.... Auk þess myndi það verða til
þess að sannfæra hann um að ég
stæði á bakvið þessa árás á hann.
Ef hann er þá i nokkrum vafa.
— Og að ég hafi framkvæmt
það? sagði Mark.
— Já einmitt.
— En hann getur ekki sannað
neitt.
— Sannað! sagði ég. — Hvern
fjandann hefur hann að gera við
sannanir. Hélstu kannski að hann
færi til lögreglunnar? Nei, það er
engin hætta á þvi.
— En hvað þá?
Ég yppti öxlum og spurði sjálf-
an mig um hið sama. Ég fékk
ekkert svar. Siðan spurði jég Mark
hvað hann hefði gert við pening-
ana.
— Biddu þangað til Alfreð er
farinn, vinnutimanum er að
ljúka. Þá getum við sótt þá.
— Hvernig náðirðu i her-
bergislykilinn hans á hótelinu?
— Hamingjan sanna! sagði
Mark og stóð upp og sótti töskuna
sina sem hékk i fatahenginu. Það
glamraði i henni og nú fyrst tók
ég eftir þvi að lyklakippan hékk
ekki á vanalega naglanum á
veggnum. Þar eru lyklar að
venjulegum hurðalásum. Við-
skiptavinirnir fá kippuna lánaða
og prófa sig áfram uns þeir finna
þann rétta. Hið sama hafði Mark
gert. Hann sagði:
— Ég setti þá i töskuna i gær-
kvöld til þess að muna eftir þvi
að taka þá með i morgun. Og svo
gleymi ég að hengja þá á, sinn
stað.
— Já, þú hefur sannarlega
meðfædda hæfileika. Ef þeir
hefðu nú komið hingað til að yfir-
heyra þig og hefðu heimtað að fá
að lita i töskuna?
— Minnstu ekki á það!
— Og ertu kannski með pening-
ana i hitabrúsanum?
— Nei, svo vitlaus er ég ekki.
Þeir eru úti i skemmu.
— Já, það var svo sem auðvit-
að, sagði ég, og þegar Alfreð var
búinn að stinga inn kollinum og
kveðja, fórum við fram og sóttum
þá. 1 einum básnum stóðu svo
sem tiu mahognihurðir upp við
vegginn og Mark tók helminginn
fram og sagði:
— Sjáðu þarna — bakvið.
Hann hafði sett peningana i
þlastpoka og dreift þeim, þannig
að næstum ekkert fór fyrir þeim.
Pokinn var limdur fastur á hurð
með limbandi. Ég hrósaði honum
fyrir klókindin.
— Næst rænum við banka og
notum þennan felustað. Ef heppn-
in er með okkur, verða þeir alltaf
einar tiu minútur að finna felu-
staðinn. Nei, Mark, þetta er ekki
vettvangur fyrir þig.
Hann tautaði eitthvað óskiljan-
legt og hefði sennilega roðnað, ef
hann hefði getað það. Þetta var
hálfkaldranalegt af mér. Siðan
fórum við aftur inn i skrifstofu
hans og ég tók peningana upp úr
plastpokanum og fleygði honum i
bréfakörfuna. Þetta voru eintóm-
ir fimm hundruð króna seðlar.
— Hvað ætlarðu að gera við þá
spurði Mark.
— Leggja þá inn á morgun með
þriggja mánaða uppsagnarfresti,
svo að þeir renti sig.
— Þér er ekki alvara!
— Nei, einhverjum kynni að
þykja það undarlegu. Ég legg þá
inn i peningaskápinn. Þetta eru
þó peningarnir okkar.
Hann var hálfeymdarlegur á
svipinn. Ég var næstum leiður
yfir þvi að hafa þurft að slá botn-
inn úr hinum ævintýralegu fyrir-
ætlunum hans á þennan hvers-
dagslega hátt.
— Farðu heim til Rósu, sagði
ég. — Þar verðurðu að reyna að
standa þig og gættu þess nú að
flækja ekki málið að óþörfu.
Þegar hann var farinn af stað á
reiðhjólinu,fór ég inn á mina eigin
skrifstofu i ibúðarhúsinu og lagði
seðlana i peningaskápinn. Ég
taldi þá fyrst og þeir voru ekki
nema fimmtán. Alex hafði fjar-
lægt einn þeirra. Samt hafði hann
tilkynnt lögreglunni, að átta þús-
undum hefði verið rænt frá hon-
um. Auðvitað, hugsaði ég — þótt
ég gæti ekki gert mér grein fyrir
af hverju það var svo sjálfsagt
fyrir Alex, kannski var hann með
þvi að gefa til kynna að ætlunin
hefði verið að næla i þessi átta
þúsund og enginn gæti leyft sér að
haga sér þannig gagnvart honum.
Biddu bara, heyrði ég fyrir mér
að hann sagði, meðan ég lokaði
peningaskápnum.
— Jæja, við sjáum hvað setur,
sagði ég upphátt, og Júmbd,sem
mókti eins og vanalega undir
skrifborðinu, vaknaði og tók und-
ir með samþykktarurri. Ég klór-
aði hoaum bakvið eyrað, tróð i
pipuna mina og byrjaði að biða.
En ekki eftir Alex, hann var
sennilega úr leik i bili. Nema
hann tæki upp á þvi að senda
Sólun
HJÖLBARÐAVIÐGERÐIR
11 snjómunstur veitir góða spyrnu
w í snjó og hólku.
önnumst allar viðgerðir hjólbarða
með fullkomnum tækjum.
Snjóneglum hjólbarða.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík,
Fimmtudagur 18. október
7.00 Morgunútvarp.Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15og 10.10. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00 Morgunbæn kl.
7.45. Morgunstund barnannakl.
8.45: „Börnin, sem óskuðu sér
um of”, ævintýr eftir Hjálmar
Bergman. Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt
lög á milli liða Morgunpopp kl.
10.25: George Harrison syngur.
Fréttir kl. 11.00. Hljómplötu-
safnið (endurt. þáttur G.G.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 A frivaktinni.Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.30 Siðdegissagan: „Við landa-
mærin” eftir Terje Stigen.Þýð-
andinn, Guðmundur Sæmunds-
son, les (6)
15.00 Miðdcgistónleikar. Pró
Musica sinfóniuhljómsveitin i
Vin leikur Sinfóniettu eftir Leos
Janácek, Jascha Horenstein
stj. Filharmóniusveitin i New
York leikur Sinfóniu nr. 4 i G-
dúrop. 88 eftir Antonin Dvorák,
Bruno Walter stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphornið.
17.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir.
18.45 Veðurfregnir.
18.55 Tilkynningar,
19.00 Veðurspá. Bein lina.Spurn-
ingum svarar forustumaður úr
Framsóknarflokknum. Um-
sjónarmenn: Arni Gunnarsson
og Einar Karl Haraldsson.
19.45 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson cand. mag. flytur
þáttinn.
19.50 Gestir i útvarpssal: Manu-
ela Wiesler, Sigurður Snorra-
son og Snorri örn Snorrason
leika.a. Entr’acte eftir Jacques
Ibert. b. Trió fyrir flautu, klari-
nettu og gitar eftir Joseph
Kreutzer. c. Etýða nr. 11 eftir
Heitor Villa-Lobos.
20.15 Landsiag og leiðir.Skjöldur
Eiríksson skólastjóri á
Skjöldólfsstöðum talar um
Jökuldal og nágrenni.
20.40 óperettutónlistSari Barana,
Kurt Wehofschitz, Hansen-kór-
inn og hljómsveit útvarpsins i
Bayern flytja, Carl Michalski
stj.
20.55 Leikrit: „Ósköp er það
hörmulegt” eftir Miodrag
Djurdjevic-Þýðandi: Karl Guð-
mundsson. Leikstjóri: Erlingur
Gislason. Persónur og leik-
endur: Hann: Gisli Halldórs-
son. Astfangna stúlkan: Ingunn
Jensdóttir. Kaldlynda stúlkan:
Edda Þórarinsdóttir. Táning-
urinn: Halla Guðmundsdóttir.
Sú siðasta: Brynja Benedikts-
dóttir. Þjónn: Guðjón Ingi
Sigurðsson. Gestur: Karl Guð-
mundsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Eyjapistill.
22.35 Manstu eftir þessu? Tón-
listarþáttur i umsjá Guðmund-
ar Jónssonar pianóleikara.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
ARISTO
léttir námid
é—JBjMiÉH i íil^ I
'""'"’k'ó....ll»..46' ‘' Vo'' od' bo
líreMiiíWiig^^
'X!.,!a-.a-TTi--"-. ■jif
7w ' «» • 'nV " ' ' á' '' »•'»* »••• i*WiU
Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðféiags er sérhverjum
námsmanni nauðsynlegt að vera búinp full-
komnum hjálpargögnum við -námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fólk með kröfur skólanna f huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóia-
tösku.
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2. Sími 13271.
RAFLAGNIR
SAMYIRKI
annast allar almennar raflagnir. Ný-
lagnir, viðgerðir, dyrasima og kall-
kerfauppsetningar.
Teikniþjónusta.
Skiptið við samtök sveinanna.
Verkstæði Barmahlið 4
SÍMI 15460 milli 5 og 7.