Þjóðviljinn - 18.10.1973, Qupperneq 11
Fimmtudagur 18. október 1973. ÞJóÐVILJINN — SIÐA J1
England — Pólland 1:1
England var slegiö út
Pólverjum dugði jafntefli til að komast áfram í lokakeppni HM
í fyrsta sinn síðan 1938 — Þjóðarsorg í Englandi
t»að má segja að þjóðarsorg riki i landi knatt-
spyrnunnar, Englandi, eftir að enska landsliðinu
tókst aðeins að ná jafntefli gegn Pólverjum á
heimavellinum Wembley i gærkveldi. Þar með eru
vonir Englendinga um að komast i lokakeppni HM
1974 i V-Þýskalandi úr sögunni og er það i fyrsta
sinn siðan 1950 að Englendingar komast ekki i loka-
keppnina, en aftur á móti hafa Pólverjar, sem með
þessu jafntefli tryggðu sér sæti i lokakeppninni ekki
komist svona langt i HM siðan 1938. Wembley-leik-
vangurinn var troðfullur af áhorfendum, 100 þús.
manns og stemningin var óskapleg, segir i frétta-
skeyti NTB. Það voru Pólverjar sem skoruðu á und-
an en Alan Clark jafnaði fyrir England á 64. minútu
úr vitaspyrnu. Pólland er 8. landið sem tryggir sér-
sæti i lokakeppninni, hin eru Brasilia, V-Þýskaland,
Skotland, Búlgaria, Argentina, Uruguay og Mexikó.
Leikurinn var eins og gefur að
skilja æsispennandi. I leikhléi
hafði hvorugu liðanna tekist að
skora, þrátt fyrir tækifæri.
En svo var það á 57. minútu að
Norman Hunter varð undir í ein-
vígi við pólska útherjann Lato og
hann komst inn að endamörkum,
gaf vel fyrir markið og þar var
Jan Domarskis fyrir og skoraði af
15 m. færi, hundrað þúsund áhorf-
endum til mikillar skelfingar.
Þaö liðu svo ekki nema 7 minút-
ur þar til brotið var gróflega á
fyrirliða enska liðsins Martin
Peters inni vitateig og dómarinn
dæmdi umsvifalaust vitaspyrnu.
Úr henni jafnaði Alan Clark fyrir
England.
Frh. á bls. 15
Sir Alf Ramsey, einvaldur enska
landsliðsins. Verður hann rekinn
eða segir hann af sér?
A
KRoglR
í úrslit
eins og
vant er?
Allar Hkur eru nú á þvi að það
verði ÍR og KR sem enn einu sinni
berjast til sigurs i Reykjavíkur-
mótinu i körfuknattleik, en þessi
lið hafa barist um alla þá titla
sem keppt hefur verið um i körf-
unni hér á landi um áratuga
skeið.
KR sigraði ÍS 69:63 sl. mánu-
dagskvöld og sama kvöldið sigr-
aði ÍR Armann 76:58. ÍR-ingar
eiga að visu eftir að leika gegn
Vai og eru alls ekki öruggir um
sigur. En færi svo að Valur sigr-
aði IR en 1R aftur á móti KR þá
yrðu 3 lið efst og jöifn að stigum,
KR, ÍR og Valur. Mótið er þvi enn
mjög svo spennandi.
W
V
^Sameinast utanbæj-
ar félögin um nýjan
y formann fyrir KSÍ?
Nú er ekki nema rétt rúmur
hálfur mánuður þar til knatt-
spyrnumenn á Islandi þinga,
og þótt það sé auðvitað ekki
annað en árlegur viðburður,
búast margir við skemmtilegu
þinghaldi að þessu sinni,
einkum vegna átaka um
væntanlegan formann KSl.
Albert Guömundsson nú-
verandi formaöur sambands-
ins hefur látið uppskátt — einu
sinni enn raunar — aö hann
gefi ekki kost á sér sem for-
maöur áfram. Og það sem
meira er, flestir telja, að hann
hætti ekki við að hætta nú eins
og stundum áður, og þvi þarf
nú að finna nýjan formann.
Eru að vanda margir kallaöir
en fáir útvaldir.
Nú þegar eru nokkrir póli-
tiskir pótintátar farnir að
berjast fyrir formannssætinu.
Það þykir nefniilega nokkuð
gott að hafa slika rós I
hnappagatinu, sem formanns-
sæti KSI er , fyrir þá, sem eru
valtir I sessi á einhverjum
framboðslistanum I pólitlska
darraðardansinum.
En þeir eru margir sem lita
á formannssæti KSt alvarlegri
augum en sem rós I hnappa-
gati misheppnaðra pólitikusa.
Þvi hefur það nú gerst að
utanbæjarfélögin munu ætla
að sameinast um formanns-
efni fyrir KSl á þinginu I
byrjun nóvember. Enn mun
ekki endanlega afráðið hver
það verður, en nokkrir hafa
veriö nefndir.
Einn af þeim er Hafsteinn
Guðmundsson formaöur IBK
og að öilum óiöstuðum er hann
áreiðanlega sá maðurinn sem
flestir bera traust til og
hæfastur er til þess að takast á
við þau verkefni sem biða
næsta formanns KSt, en
þeirra stærst er aö gera eina
tilraun enn til að reLa is-
ienska knattspyrnu úr rústum.
Hafsteinn hefur sýnt hvers
hann er megnugur með liö sitt
ÍBK, sem hefur verið eins-
konar „Leeds-Iiö” tslands,
alltaf við eöa á toppnum
undanfarin 5 ár.
Hitt er svo annað mái hvort
Hafsteinn er tiibúinn tii að
gefa kost á sér sem formaöur
KSt en hann er öruggiega sá
sem utanbæjarfélögin hafa
mestan áhuga á um þessar
mundir. Það er einnig aiveg
ljóst, að þau munu ráða
feröinni á þinginu, sameinist
þau um einn mann. Það gerðu
þau þegar Reykjavikur-
féiögin, með Helga V. Jónsson
i broddi fylkingar, reyndu að
fella Albert hér um áriö. Þá
sameinuðust utanbæjarfélögin
og björguðu Albert.
Fyrir utan pólitikusana,
sem reyna nú að hreppa sætið,
eru tveir menn taldir áhuga-
samir um að veröa formenn
Frh. á bls. 15
Að settu heimsmeti
Þessi mynd er tekin af hinni frá-
bæru frjálsiþróttakonu Burglindu
Pollak frá A-Þýskalandi eftir að
hún hafði sett nýtt heimsmet i
fimmtarþraul kvcnna á dögun-
um.
íslandsmótið í blaki
hefst 15. nóvember
tslandsmeistaramót karla I
blaki veturinn 1973-1974 fer fram
á timabilinu 15. nóv. — 15. april.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast Blaksambandinu, pósthólf
864 Reykjavik, fyrir 1. nóvember
næstkomandi. Einu liði frá hér-
aðssambandi eða félagi innan
héraðssambands er heimil þátt-
taka.
Blakþing verður haldið laugar-
daginn 13. október og verður þá
samþykkt ný reglugerð fyrir Is-
landsmeistaramótið. Þar er m.a.
gert ráð fyrir þvi að eftir undan-
keppni leiki sex lið einfalda um-
ferð til úrslita. Er þetta fyrir-
komulag visir að 1. deild, en búast
má við aö deildarskipting i blaki
verði tekin upp innan fárra ára.
Islenska u-landsliðið tapaði fyrir írum
Enn er þó von að
liðið komist áfram
Islenska u-landsliðið tapaði 3:4
fyrir trum i fyrrakvöld I leik lið-
anna i undankeppni HM. Leikur-
inn fór fram i Dublin. Þrátt fyrir
þetta tap er smávon fyrir islenska
liðiö aö komast áfram, þar eð
mörk á útivelli telja tvöfaJt.
Þannig að islenska liöið kem st
áfram, ef þaö vinnur 1:0, 2:l eða
3:2 hér heima 25. október nk.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson