Þjóðviljinn - 18.10.1973, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18- október 1973.
IGNIS
innur,. >
verkin
Sífellt flein husmæður
hrifast af IGNIS
12
IGNIS þvottavélar með 10-
valkerfum
IGNIS leggur i bleyti
IGNIS þvær forþvott, aðalþvott
margskolar og vindur
IGNIS er hagkvæm i verði
IGNIS þjónusta og varahlutir
KOMIÐ OG KYNNIST IGNIS
RAFTORG HF RAFIÐJAN HF
v/AUSTURVÖLL ■ RVÍK • SÍMI> 26660 VESTURGOTU11 • RVÍK • SÍMM9294
Akerrén-f erðastyrkurinn 1974
Dr, Bo Ákerrén, læknir i Sviþjóð, og kona hans tilkynntu
islenskum stjórnvöldum á sinum tima, að þau hefðu i
hyggju að bjóða árlega fram nokkra fjárhæð sem ferða-
styrk handa Islendingi, er óskaði að fara til náms á Norð-
urlöndum. Hefur styrkurinn verið veittur tólf sinnum, i
fyrsta skipti vorið 1962.
Akerrén-ferðastyrkurinn nemur að þessu sinni eitt þúsund
sænskum krónum. Þeir, sem kynnu að vilja sækja um
hann, skulu senda umsóknir til menntamálaráðuneytis-
ins, Hverfisgötu 56, Reykjavik, fyrir 1. desember n.k. 1
umsókn skal greina, hvaða nám umsækjandi hyggst
stunda og hvar á Norðurlöndum.
Upplýsingar um náms- og starfsferil fylgi, svo og staðfest
afrit prófskirteina og meðmæla. — Umsóknareyðublöð
fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
17. október 1973.
Barnagæsla
Get tekið börn i gæslu.
Upplýsingar i síma 25104.
Atvinna
Bakari
— og aðstoðarmenn óskast nú þegar. Upp-
lýsingar i
Björnsbakarii,
Vallarstræti 4,
simi 11530.
Trésmiðir óskast
Margvisleg verkefni. Stakir eða flokkar.
Skeljafell h/f, Bolholti 4,
simi 86411 og 20904.
Laus staða
Staða starfsmanns Verkalýðsfélags
Húsavikur og Lifeyrissjóðsins Bjargar,
Húsavik er laus til umsóknar nú þegar.
Umsóknir sendist skriflega til skrifstofu
Verkalýðsfélags Húsavikur við Ketils-
braut, Húsavik.
Mötuneyti í garðinum í Hábœ
i vctur verður starfrækt mötuneyti fyrir skólafólk, starfshópa og einstaklinga I garði veitingahússins
Hábæjar við Skólavörðustig. Þá mun veitingahúsið senda mat á vinnustaði ef óskað er. - Garðurinn
verður opinn alla daga i vetur frá kl. 11 á daginn tiill á kvöldin. Menn geta keypt vikukort og skólafólk
getur fengið vinnu i eidhúsinu 2-3 tima á dag ef það vill með þvl móti lækka fæðiskostnaðinn.
Karsten Andersen hl jómsveitarstjóri ásamt konu sinni.
Andersen stjórnar
Sinfóníusveitinni
2. tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar á þessu starfsári
verða haidnir i kvöid kl. 20.30.
Stjórnandi verður Karsten
Andersen og einleikari Kjell
Bækkelund.
Efnisskrá: Páll Isólfsson:
Passacaglia. Haydn: Sinfónia nr.
88. Gershwin: Pianókonsert.
Itavel: Daphne og Chloe, svita
nr. 2.
Karsten Andersen fæddist i
Frederiksstad i Noregi og stund-
aði fyrst nám i fiðluleik. Hann
kom fyrst fram á tónleikum árið
1939 i Aulaen i Osló með Fíl-
harmóniusveitinni þar, aðeins
nitján ára gamall, og var þá
þegar ráðinn starfsmaður henn-
ar. Hann lék svo með þessari
hljómsveit en byrjaði jafnframt
að fást við hljómsveitarstjórn og
var ráðinn sem hljómsveitar-
stjóri til Stavanger árið 1945. Þar
starfaði hann að hljómsveitar-
málum i niu ár, eða þar til hann
var ráðinn aðalhljómsveitarstjóri
og listrænn forstjóri tónlistar-
félagsins „Harmonien” i Bergen,
og hefur hann átt sinn þátt i að
móta listahátiðina þar. Karsten
Andersen hefur stjórnað mörgum
bestu hljómsveitum álfunnar,
m.a. í Sviþjóð, Danmörku, Eng-
landi, Þýskalandi og Sovét-
rikjunum. Islenskum hljómleika-
gestum er hann kunnur af stjórn
sinni á Sinfóniuhljómsveit Islands
á Listahátiðinni 1972 og á tónleik-
um á siðastl. starfsári. Hann er
ráðinn aðalhljómsveitarstjóri
hljómsveitarinnar á þessu
starfsári
Kjell Bækkelund er i fremstu
röð norrænna pianóleikara. Hann
er fæddur 1930 og nam pianóleik
hjá Nicolai Dirdal i Osló, Gott-
fried Been i Stokkhólmi og Seidl-
hefer i Vin. 8 ára gamall lék hann
með filharmónisku hljómsveit-
inni i Osló og var álitinn undra-
barn. En ótrauður hélt hann
áfram ströngu námi og öðlaðist
ekki aðeins mikla kunnáttu i
pianóleik, heldur einnig viðtæka,
almenna músikþekkingu.
1953 hlaut hann 1. verðlaun á
fyrstu hátið norrænna tónlistar-
manna i Þrándheimi og sama ár
hreppti hann i London „Harriet
Cohen” verðlaunapening sem
„besti pianisti ársins”. 1959 hlaut
hann verðlaun frá „Dansk Disco-
fil Forening” ásamt Erling
Blöndal Bengtsson.
Auk þess að vera vel séður
gestur hvarvetna á Norðurlönd-
um hefur Kjell Bækkelund fengið
mjög lofsamlega dóma fyrir
fágaðan leik sinn i mörgum öðr-
um stórborgum Evrópu, svo sem
i Berlín, Belgrad, Briissel,
Amsterdam, Paris, Salzburg og
viðar.
1. skólatónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar Islands fyrir
menntaskóla verða i Háskólabíói
á morgun, föstudag, kl. 10-15.
Stjórnandi verður Karsten
Andersen og einleikari Kjell
Bækkelund.
€lrakdiiiii lau<li<>
greyiiiiim fé
BUNAÐARBMKI
ÍSLANDS