Þjóðviljinn - 26.10.1973, Blaðsíða 3
Föstudagur 2(i. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Eövarö Sigurösson form. Dagsbrúnar og Verkmannasambandsins
ræðir við forustumenn atvinnurekenda, þá Jón Bergs (t.h.) og Ólaf
Jónsson, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins, sem hefur
nýlega tekið við þvi starfi og er nú að byrja sfna fyrstu samningatörn.
Mœttir
til leiks
Benedikt Daviösson, form. Sambands byggingamanna, Magnús Geirsson, form. Fél. ísl. rafvirkja,
Guðjón Jónsson, form. Félags járniðnaðarmanna,og Þórólfur Danielsson, form. Hins isl. prentara-
félags.
Aðilar vinnu-
markaðarins komu
saman til fyrsta full-
skipaða fundarins i gær
til að ganga frá kjara-
samningunum sem nú
verða endurnýjaðir.
Þrjátiumanna nefnd
ASt og kjaranefnd (hún
gæti allt eins heitið það)
Vinnuveitendasam-
bandsins hittust í húsa-
kynnum vinnuveitenda
að Garðastræti 41 í
Reykjavík.
Blaðamaður og ljósmyndari
brugðu sér vestur i Garða-
stræti til að lita á söfnuðinn.
Fyrstur hafði mætt til leiksins
Hermann Guðmundsson, for-
maður Hlifar i Hafnarfirði, og
þar sem ætlunin var að heyra
ofan i menn um hvað þeim
fyndist um væntanlega
samningagerð, hvort þeir
væru bjartsýnir á að
samningar tækjust fljótt, og
hvort samningarnir yrðu hag-
stæðir, spurðum við Hermann
um hans álit. Það skal tekið
fram, að allir aðrir, sem
blaðamaður spurði sömu og
eða svipaðr spurninga,
svöruðu i sama dúr, þó svo
orðalagið hafi ef til vill ekki
endilega verið það sama. Her-
mann sagði: Ég er enginn
spámaður, og get þvi ekkert
um það sagt hvernig þetta fer.
Tilgangurinn með þessum
fundi var sá, að á honum
ætluðu atvinnurekendur að
leggja fram gagntillögur
sinar, en fyrir nokkru sendi
ASÍ vinnuveitendum þær
kröfur sem verkalýðs-
hreyfingin setur fram.
Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins sagðist ekki
búast við að fundurinn yrði
langur að þessu sinni. Liklega
yrði ekki skipst á nema ör-
fáum orðum, og liklega aðeins
um það hvernig að samninga-
gerðinni skyldi staðið, og
hvert yrði næsta skrefið i
málunum.
Það var þvi kannski eðlilegt
að menn vildu fátt segja og
engu spá um hvað framundan
væri i samningamálunum.
En þrátt fyrir óvissuna voru
menn hressir og kátir. Stéttar-
féndur heilsuðust jafn glað-
lega og þeir sem voru af sömu
stétt, og menn héldu þeim
ágæta og þjólega sið að koma
of seint. Þegar blaðamaður
yfirgaf samkunduna 40
minútum eftir að til var ætlast
að hún hæfist, var fulltrúi
verslunarmanna i landinu til
Tveir fulitrúar norðanmanna
ganga f salinn. Framar Helgi
Guðmundsson. (Myndir AK)
að mynda að storma inn á
fundinn. Fundurinn hófst með
stéttaskiptingu á þann veg að
fulltrúar verkafólks settust á
rökstóla i fundarsal á neðri
hæð hússins, en fulltrúar at-
vinnurekenda i öðrum sal á
efri hæðinni. Sjálfsagt er þetta
naupsynlegur liður i her-
brýningu.
Þegar stéttafundunum lauk
hófst svo sá sameiginlegi
fundursemtil var boðað.
Frá þeim drögum sem
vinnuveitendur lögðu fram til
samningsgerðar er sagt á
öðrum stað i blaðinu i dag, og
verða þau þvi ekki tiunduð
hér. En það virðist þó ljóst af
þeim að litill vilji sé fyrir þvi i
þeirra röðum, að verkafólk
nái fram þeim kröfum ó-
breyttum sem Alþýðusam-
bandið hefur lagt fram fyrir
þess hönd.
-úþ
Frá Hafnasambcuidi sveitarfélaga
Stórfelld
aukning fiski-
skipaflotans
Bœta þarf hafnaskilyrði í samrœmi við það
A siðastliðnu ári voru skráð
75 ný skip og bátar hér á landi,
og um siðustu áramót voru 60
skip og bátar i smiðum innan-
lands og 33 erlendis, samtals
yfir 20 þús. brúttólestir að
stærð. Jafngildir það yfir 30%
aukningu á fiskiskipaflota
landsmanna, og þar á ofan
bætast notuð skip sem keypt
eru til landsins og eldri skip
sem voru stækkuð.
A þessu ári hafa verið flutt
til landsins fiskiskip fyrir
meira en tvo miljarða króna
til ágústloka.
Þessar upplýsingar komu
fram i ræðu Gunnars B. Guð-
mundssonar formanns
Hafnasambands sveitarfélaga
á aðalfundi þess nýlega. Jafn-
framt gat Gunnar þess að
nauðsynlegt væri að hafna-
bætur héldust i hendur við
þessa miklu aukningu skipa-
stjólsins, en fjárveitingar til
þeirra hluta hafi verið allt of
litlar til að veita hinum ört
vaxandi fiskiskipaflota við-
hlitandi hafnaaðstöðu.
Nánar verður skýrt frá
fundi Hafnasambandsins og á-
lyktunum hans i blaðinu á
morgun.
Tillögur vinnuveitenda
vegna kjarasamninganna
hamio verði
til þriggja ára
Vinnuveitenda-
samband islands lagði i
gær fyrir 30 manna
samninganefnd ASÍ til-
lögur vegna kjara-
samninganna, sem nú
fara i hönd. Tillögur
vinnuveitenda eru i 21
lið, en meðal þeirra má
nefna þessar:
Samið verði til 3ja ára, og verði
um kaupbreytingar að ræða,
komi þær til framkvæmda i
áföngum.
Breytingar verði gerðar á verð-
lagsuppbótum á laun.
Atvinnurekendum sé heimilt að
taka upp vaktavinnufyrirkomu-
lag á vinnustöðum þar sem það
þykir henta.
Ekki verði greitt kaup fyrir 2-3
fyrstu daga i veikindatilfellum
sem standa skemur en 2 vikur.
Vinnuveitendur fái jafnmarga
fulltrúa i stjórn Atvinnujöfnunar-
sjóðs og launþegar.
Heimilað verði að greiða laun
út i ávisunum.
Aukahelgidögum verði fækkað.
Hér á siðunni er sagt frá komu
samninganefndarmanna ASt og
Vinnuveitendasambandsins til
fundar i húskynnum vinnu-
veitenda i gær —úþ
Sýning
Asmundar
Góö aðsókn hefur verið að
yfirlitssýningunni á verkum
Asmundar Sveinssonar i lista-
safni lians við Sigtún. Rúm-
lega 3(1(10 manns hafa komið á
sýninguna þær tvær vikur sem
hún hefur staöið. Sýning As-
mundar er opin daglega kl. 2-
10 s.d., en henni lýkur um
miðjan næsta mánuð.
Prófkosning um
rektorskandidat
A mánudaginn kemur
veröur prófkjör i Háskóla
islands þar sem kosiö
verður um hverjum beri aö
stilla upp til rektorskjörs,
en eins og kunnugt er sagöi
Magnús Már, núverandi
rektor skólans, af sér
störfum fyrir stuttu.
Prófkjörið fer fram i þrennu
lagi. Stúdentaráð gengst fyrir
prófkjöri meðal stúdenta, og hefst
það klukkan 10 á mánudags-
morgni og stendur kjörfundur til
klukkan 5 siðdegis.
Háskólaráð gengst fyrir próf-
kjöri meðal þeirra sem hafa at-
kvæðisrétt i sjálfu rektorskjörinu,
en það eru prófessorar og fastir
kennarar við skólann, auk 11 full-
trúa stúdenta.
1 þriðja lagi fer fram sams-
konar prófkjör i Félagi háskóla-
kennara, en i þvi eru lausráðnir
kennarar við skólann og starfs-
menn á rannsóknarstofum.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær sjálft rektorskjörið fer
fram.
Fyrirhuguð er lagabreyting i þá
veru, að i stað 11 fulltrúa
frá stúdentum, sem fá að kjósa
rektor, verðiþeir 20 talsins.
-úþ
Hjólsög
10 til 12 tommu óskast
keypt,eða i skiptum
fyrir bútsög, sem er
til sölu.
Simi 99-4195 eða
99-4326.