Þjóðviljinn - 26.10.1973, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 26.10.1973, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓDVILJINN F»studagur 26- október 1073. Vatnsgat Framhald af bls. 9. auðvaldið hefur svindlað inn á hana með kosningabraski og aug- lýsingaskjalli. Bandariska stór- veldið er jötunn, sem byrjaður er að rotna lifandi. Risinn rotnandi Þegar svo er komið er gjarnan gripið til blóta til að sefa reiði guðanna i þjóðarsálinni. Agnew greyið hefur þegar verið lagður á þann stall, en hann var aldrei mikill bógur og útilokað að hann dugi kerfinu lengi til frið- þægingar. Sjálfur forseti Banda- rikjanna væri ólikt myndarlegri fórn, og ekki óhugsandi að fall hans gæti orðið til að endurvekja traust einhvers hluta Bandaríkja- manna á þjóðfélagskerfi sínu. Það er þó óvist. Gore Vidal, Norman Mailer og fleiri snjöll- ustu skribentar bandariskir stunda það mjög að likja banda- riska stórveldinu við Rómarveldi á hnignunarskeiði þess. En Rómarveldi hjarði furðu lengi hálfdautt og rotnandi og pestin af þvi er varla meira en svo horfin úr heimsstjórnarmálunum enn. Þetta er sögulegur lærdómur, sem núverandi bandamönnum Bandarikjanna væri hollt að hafa i huga. Tilstandið kringum Nixon nú, hvernig sem það endar fyrir hann og hans forsetadóm, gæti vel verið byrjunin á endaíokum bandariska heimsveldisins. dþ. Nöldur Framhald af 2 siðu ættu alltaf samleið með Sjálf- stæðisflokknum, guð almátt- ugur og forseti Bandarikj- anna? Og svo ég haldi áfram að tala út úr minu hjarta, sem senn fer til helvitis, þá langar mig til að vita eitt i viðbót. Af hverju er nú verið að hleypa svona hálfvitagangi i útvarpið sem andlegri næringu á sið- asta sunnud. sumarsins? Ég þykist sjálfur vera afskaplega hlynntur málfrelsi á öllum sviðum, en hafi þetta verið hugsað þannig af hinni sam- hentu forystu útvarpsins, þá mótmæli ég. Það er ekki nema sjálfsagt, að hann Bjarni Guðnason fái að tala i útvarpið um leið og hinir, — hann ætti meira að segja að fá að tala lengur en hinir, sem hann er skemmtilegri en þeir, — en það er ijótur andstyggðar- hrekkur við mig og allar góðar gamlar konur, sem vilja heyra eitthvað uppbyggilegt á sið- asta sunnudegi sumars, að hleypa óðum mönnum i hlust- irnar á okkur, sem ekkert er- indi virðast eiga þangað annað en það að sanna áþreifanlega, að þeir séu afkomendur apa i beinan karllegg, með þvi að segja okkur til helvitis og telja sig þess umkomna að biðja fyrir öðrum, þegar tveir striða. „Likna striðandi lýði”. Vegagerð Framhald af bls. 4 vegar með öllu ofviða að verða við þeim kröfum, nema til kæmi aðstoð af hálfu hins opinbera, — eins og gert er ráð fyrir i þessari tillögu. Ef ekki kæmi til þessi aðstoð af hálfu rikisins, ættu þessi sveitarfélög ekki annars kost — til að verða við þessum sjálfsögðu kröfum um varanlega gatnagerð og aukið hreinlæti, sem henni fylgir, aukiðhreinlæti sem ætti að miðast við það að þóknast ekki aðeins þeim útlendu aðilum sem kaupa framleiðsluna heldur einnig þvi fólki sem vinnur við hana — án aðstoðar ríkisins mundu þessi sveitarfélög ekki eiga annars kost til að koma sliku fram en að auka álögurnar á þetta fólk, en auknar álögur gætu svo valdið þvi að fólk hrektist burt úr þessum byggðarlögum, burt frá hinum þýðingarmiklu framleiðslustörfum, sem þar eru unnin, til annarra starfa sem flest hver mundu að likindum verða miklu þýðingarminni fyrir þjóðarbúið i heild. Þetta vildu þessir tveir sveitafetjórnarmenn á Snæfellsnesi að bentyrði á, svo að mönnum mætti verða ljósara hvað þessi sveitarfélög eru komin i slæma klemmu með þessi mál. Sigurvilji Framhald af bls. 11. minútu bætti Langan öðru marki við,3:2. Siðustu minúturnar voru æsi- spennandi, en þrátt fyrir þunga sókn tókst irunum ekki að jafna, en það hefði þýtt að þeir hefðu farið áfram með 3 stig þar eð þeir unnu fyrri leikinn 4:3. Glæsilegur og vel þeginn sigur islenska liðsins var i höfn og gleymum þvi ekki, að hann var fyllilega sanngjarn. —S.dór Iljónin Bent llolstein og Jithe Holstein eru hér á myndinni en þau hafa unnið við uppsetninguna. Mynd af mynd eftir Evu Sörensen. (Myndir AK) 7 ungir Danir sýna Bretland íhaldið tapaði London 25/10 — Breski verka- mannaflokkurinn hefur 6.5% meiri fylgi en ihaldsflokkurinn samkvæmt skoðanakönnun sem birt var i Lúndúnablaðinu Daily Telegraph i dag. Samkvæmt henni hefur Verkamanna- flokkurinn fylgi 39.5% kjósenda, thaldsflokkurinn 33% og Frjáls- lyndi flokkurinn 25.5%. Mikill munur hefur verið á úr- slitum að undanförnu en búist er við að jafnvægi komist á þau seinna i haust þegar kjósendur eru búnir að melta niðurstöður flokksþinganna sem haldin hafa verið undanfarið. Fjórar aukakosningar eigá áð fara fram 8. nóvember nk. og er taliðað úrslit þeirra gefi öruggari visbendingu um styrkleika flokk- anna. I Berwick og Hove eru frjálslyndir taldir hafa góða möguleika á að vinna þingsæti af ihaldsmönnum. f Norður-Edin- borg hafa bæði frjálslyndir og Verkamannaflokkurinn mögu- leika á að vinna sætið afihaldinu en Verkamannaflokkurinn er talinn öruggur með sæti sitt i Goven i Glasgow Súlur Út er gefið á Akureyri timarit sem heitir Súlur og er sérstaklega tekið fram i heiti þess að það sé „norðlenskt timarit”, Ritstjórar þess eru þeir Jóhannes Öli Sæmundsson og Erlingur Daviðsson á Akureyri. Annað hefti þessa árs er nýkomið út, og er það jafnframt sjötta hefti ritsins frá upphafi. Það flytur ýmislegt þjóðlegt efni sem kallað er og fróðleik af þvi tagi. Auk ritstjóranna eiga efni i ritinu þeir Kristján frá Djúpalæk, Eiður Guðmundsson frá Þúfna- völlum og Hólmsteinn Helgason á Raufarhöfn, svo að fáir einir séu taldir. Kvenfrelsið Karlmenn keppa Iika um titil- inn Herra Heimur, og ein slik keppni var haldin i Genf á dögunum. Til leiks mættu 72 þátttakendur frá 42 löndum og sigurvegari varð Lewis Ferr- ingo frá New York, 21 árs. Herra Evrópa varð Englend- ingur. Á morgun hefst i Norræna húsinu myndlistarsýning sjö ungra Dana. Fyrri sýningunni stendur nefnd á vegum danska menntamálaráðuneytisins, sem sinnir þvi hlutverki að gangast fyrir sýningum i Jóhannesarborg 25/10. — Dómari sá sem stjórnar rannsókninni vegn morða lögregl- unnar á 11 afrískum verkamönnum i gull- námu einni i nágrenni Jóhannesarborgar i fyrra mánuði kvað upp þann úrskurð i dag að ekki væri ástæða til að áfellast lögregluna fyrir að hafa skotið á verka- mennina. Hann visaði á bug þeirri stað- hæfingu að koma lögreglunnar á öðrum löndum, og ber hún að nokkru leyti kostnað af sýningunni. Listamennirnir sjö heita: Sören Hansen, Ole Heerup, Bent Holstein, Paul Janus Io- námusvæðið i þeim tilgangi að berja niður skærur sem urðu vegna launadeilna hefði orðið til að ástandið á staðnum versnaði. Hann kvað lögregluna hafa að- eins gert réttar og nauðsynlegar ráðstafanir til að vernda lif og sen, Kirsten Lockewitz, Jan Marcussen og Eva Sörensen. Þess er að vænta að marga fýsi að sjá þessa óvenjulegu kynningu danskrar nútima- listar. Sýningin verður opin til 6. nóvember. góð eignir (hverra?). Engin skothrið hefði átt sér stað fyrr en eftir að bæði fulltrúar námustjórnarinnar og lögregluforingi hefðu reynt að,,tala verkamennina til”. Þá kvaðst hann hafa fengið sannanir fyrir þvi að lögreglan hefði ekki hafið skothrið fyrr en verkamennirnir réðust á „öryggissveitirnar”. Finnskur málari sýnir á Akranesi Um þessa helgi verður 31 mál verk eftir finnsku listmálarana Kalervo Konster og Juhani Taivaljarvi til sýnis i Bók- hlöðunni á Akranesi. Sýningin verður opnuð á föstudaginn 26. október kl. 16. Hún verður opin á laugardag, sunnudag og mánudag frá kl. 14 til 22. Flest málverkin eru til sölu og er verð þeirra frá 3.000 upp i 18.000 krónur. Kalervo sýnir 12 oliumál- verk, en Juhani hefur sent 19 upp- hleyptar myndir á sýninguna. Sumar þeirra eru landslags- myndir frá íslandi. Báðir list- málararnir hafa oft áður sýnt hér á landi. Lögreglan er til síns brúks í Suður-Afríku BSRB Framhald af bls. 1 starf milli ASI og BSRB, en i mjög fámennri atkvæðagreiðlsu með aðeins eins atkvæðis mun, 18:17, svo vera kann, að viðhorf breytist er afstaða er tekin til um- leitana BSRB. 1 gær siðdegis hafði samninganefndin ekki tekið afstöðu til málsins. Engin endurbót segir BHM Að þvi er Jónas Bjarnason sagði i gær hefur samningum BHM litið þokað áfram. Setti rikið fram tilboð fyrir siðustu helgi, en samninganefnd BHM kom með gagntilboð á sáttafund- inum á miðvikudag. Sagði Jónas, að i heild væri tilboð rikisins að áliti samninganefndar BHM engin endurbót frá gömlu samn ingunum að þvi er varðaði flesta starfsmenn rikisins innan BHM. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.