Þjóðviljinn - 31.10.1973, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 31.10.1973, Qupperneq 9
Miðvikudagur 31. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Hallmundur Kristinsson skrifar „Að vera listamaður, það er að vera blekkingameistari, töfra- maöur. Það er engin list i mál- verki, sem ekki er stæling. Það er hægt að mála listræna stælingu, ef mótivið er listrænt, en hún verður þó ekki listaverk. Það verður að vera einhver umsköp- un, allt annað er eftirliking. Segj- um að maður taki fyrir sólarlag. Til að ná þeim áhrifum og koma þeim áfram verður að umskapa og breyta, já, blekkja. Eða ég sé fjall og mig langar að sýna öðru fólki hvað þetta er stórt og hrika- legt fjall, þá kannski geri ég f jall- ið enn stærra og það sem er um- hverfis smærra. Það er þetta, sem ég á við með blekkingum”. Þetta eru orð Sverris Haralds- sonar listmálara i viðtali sem birtist i Þjóðviljanum 6. mai 1966, en hluti þess er einmitt birt i all- vandaðri sýningarskrá vegna yfirlitssýningar á verkum hans að Klambratúni, sem flestir munu hafa haft einhverjar spurn- ir af. En fleiri tala um blekkinguna. Starfsbróður Sverris, Tryggva Ólafssyni, farast svo orð i viðtali sem birtist i Þjóðviljanum 24.þ.m.: „Maður er alltaf að leitast við að leysa þetta myndrænt, búa til hina fullkomnu blekkingu. Blekk- ingin er svo óskaplega intressant, sko. Það sem skeður, þegar mað- ur býr til mynd, er bara það, að maður horfir á eitthvað, t.d. fjall, eins og ég gerði oft þegar ég var strákur fyrir austan, maður getur siðan málað fjallið og hengt það upp á nagla heima hjá sér á eftir. Það er allt og sumt sem gerist, en þaðer lika alveg nóg. Sú þekking, sem maður siðan aflar sér með timanum, gengur bara útá það að gera blekkinguna fullkomnari”. Nú er ég ekki fullkomlega sátt- ur við notkun orðsins blekking i þessu tilviki. Samkvæmt minum skilningi á þvi, sem orðabók menningarsjóðs staðfestir, merk- ir það svik, tál, ginningu. Og ég er ekki viss um að það sé meining þeirra starfsbræðra að tæla þá sem njóta mynda þeirra og hafa þá að ginningarfiflum. Heldur ætla ég þá reyna að gæða myndir sinar töfrum, vera dálitlir galdrakarlar og töfra fram úr myndunum áhrif hluta, sem raunverulega eru ekki til staðar, en búa þó i myndinni i huglægum skilningi. Einskonar sjónhverf- ing. Það er að visu hægt aö i- mynda sér að list sé blekking, tómt svindl og húmbúkk, en þá er stutt i að ýmsir aðrir hlutir enn mikilvægari séu lika blekking, og þá erum við likast til komin með dálitið neikvæða lifsskoðun. Að afhjúpa lifslygina hlýtur að vera fjarska ljótt. En nú fer ég ekki lengra úti þessa sálma heldur vendi minu kvæði i kross. í Norræna húsinu stendur nú yfir sýning frá frændum okkar baunverskum. Sjö ungir Danir gefa okkur kost á að njóta verka sinna og er það vel. Ekki gat ég séð er ég leit yfir salina að regin- djúp lægi á milli okkar frænd- anna. Verkin hefðu eins getað verið tslendinga, enda mörg bönd sem tengja tsland og Ðanmörku á vettvangi lista, einsog Maj-Britt segir i sýningarskrá. Ég er ekki frá þvi að islenskum myndlistar- Women's Lib, eftir Foul Jauus Ipseu. SÁLMAR mönnum sé alveg óhætt að lita á danska sem jafningja sina. En að hugsuðu máli; þeim er kannski ekki svo mjög tamt að lita á aðra sem jafningja, þótt fáist við skylda hluti. Eitt vakti mér spurningu á þessari sýningu. Nú kemur það að visu ekki fram i sýningarskrá og mér ekki fullkunnugt hvort Poul Janus Ipsen er einn þeirra sjö sjálfmenntaður i list sinni, en ég geng út frá þvi að svo sé á meðan ég ekki veit annað sannara. Mér þóttu myndir hans skera sig úr að þvi leyti að vera mest i takt við timann, þótt ekki væru nýstárleg- ar, ég mætti kannski orða þaö þannig að myndir hinna væru meira hafnar i „æðra” veldi, eða réttar sagt óháðari stað og stund. Og spurningin er hvort ekki sé þarna samhengi á milli. Hvort menntun iistamanna geti ekki að nokkru verið á þá afturhaldsafl, blindað að nokkru augu þeirra fyrir hinum raunverulega sam- tima sinum. Það gæti átt sér Myndlistar- þankar skiljanlegar orsakir. Menn læra oftast af sér eldri mönnum, eða öðrum sem þá hafa numið af full- trúum liðinna tima. Nám er raun- ar að miklu leyti fólgið i að með- taka arfinn frá fortiðinni, átta sig á þeim leiðum, sem fyrir- rennararnir ruddu sér. Slikt ætti vissulega að koma hverjum til góða, en stundum er eins og menn atti sig ekki á að i dag er gær- dagurinn að baki. Það er eins og maður kannist við unga lista- menn, sem dyggilega velja sér sess við hlið læfifeðra sinna og skapa i þeirri anda. Að minnsta kosti tekur marga langan tima að brjótast undan fullsterkum áhrifum kennara sinna og komast á lag með að nota þau aðeins sem áttavita en ekki leið að fara eftir. Það er að visu auðveldara að ganga troðna slóð, en áreiðanlega meira spennandí að freista þess að finna nýja. Skemmtilegra að brjóta nýjan akur en sá i þann gamla. Timinn lætur ekki að sér hæða og biður ekki eftir þeim sem kúra i bælum feðra sinna og leita mola sem kynnu að hafa fallið frá þeirra borðum Sjálfsmenntun krefst að visu á- rciðanlega sterkra nefja, en ég held að þeir, sem á annað borð hafa til hennar manndóm, séu að sumu leyti óbundnari og ekki ó- liklegir til að átta sig betur á kalli sins eigin tima. Enginn skilji þó orö min svo að ég telji sjálfsmenntun heppileg- ustu leiðina til framfara i listum, en hún gæti verið laus við ýmsa þá vankanta, sem gott væri ef auðnast mætti að sniða af hefð- bundnum menntabrautum. Fullt hús á fundinum um fyrirvinnuhugtakið sem Rauðsokkar vilja endurskoða, einsog nú er verið að gera annarsstaðar á Norðurlöndum Mikill fjöldi sótti fund Rauð- sokka i Norræna húsinu á laugar- daginn, þar seni rætt var um fyrirvinnuhugtakiö. Var sam- mála álit þeirra, sem þátt tóku i umræðuin, að einmitt i skjóli þeirrar hefðbundnu hugsunar að líta fyrst og fremst á karlmann- inn sem fyrirvinnu fjölskyldu þrifist inargvislegt óréttlæti á vinnumarkaðinum, heimilum og öðrum vettvangi þjóðlifsins. Ekki var litið svo á, að órétt- lætið bitnaði eingöngu á konum, þvi eins og td. örn Erlendsson trésmiður benti á, á karl- maðurinn yfirleitt ekki um það að velja, hvort hann vill vinna á heimilinu eða úti og þá hve mikið. — Við skúlum vinna fyrir konunni og börnunum, sagði hann, og jafnvel þegar konan vinnur úti er ekki litið á hana sem fyrirvinnu, heldur verður kaupið annaðhvort „hennar” peningar eða aukageta til viðbótar kaupi eiginmannsins og hann verður að halda áfram að treysta á sitt framlag til fram- færslu fjölskyldunni og þarmeð að halda áfram yfirvinnunni. Þótt konan vinni úti kemur þannig ekkert i stað hennar vinnu á heimilinu, hvorki framlag af hans hendi né opinber þjónusta, meðan haldið er áfram að lita á fyrir- vinnuna á hefðbundinn hátt. Framsöguræður á fundinum fluttu þær Auður Þorbergsdóttir borgardómari, sem gaf mjög ýtarlegt yfirlit yfir öll svið islenzkrar löggjafar, sem snerta fyrirvinnuhugtakið á einhvern hátt, svo sem skattalög, hjú- skaparlög, tryggingar, erföalög osfrv., og Svava Jakobsdóttir, sem sagði frá umræðum um þetta mál á vettvangi Norðurlandaráðs og breytingum, sem sérstök nefnd, kosin i þessu skyni, hefur lagt til aö gerð verði á löggjöf landanna i átt til jafnréttis kynj- anna varðandi framfærsluskyldu og réttindi. Það kom þó fram i erindum þeirra, að það er ekki eingöngu né fyrst og fremst lagabókstafurinn, sem i vegi stendur, heldur fram- kvæmd og hugsunarháttur. Var i umræðum bent á ýmis dæmi um aleiðingar og orsakir fyrirvinnu- hugtaksins og var sumt hvorttveggja i senn, eins og td. sú aðferð ákveöinna atvinnu- Illuti fundarmanna i Norræna húsinu. (Ljósm. A.K.) rekenda til að komast kringum lagabókstafinn um jafnrétti að raða konum i láglaunastörfin. Minnti Adda Bára Sigfúsdóttir i þvi samb. á þá nauðsyn að standa þétt að baki þeimkonum á vinnu- markaðnum, sem nú standa i samningum um kaup og kjör. 1 sambandi við kyngreiningu starfa var einnig minnst á aug- lýsingar i störf eftir kynjum og áleit Björg Einarsdóttir að slikt striddi ggn lögum um Jafniauna- ráð, þar sem kveðið er á um að óheimilt sé að mismuna þegnun- um i starfi eftir kynjum. Svava Jakobsdótlir sagði hinsvegar að þvi miður væri ákvæðið ekki svo skýrt orðað, að það tæki óve- fengjanlega til auglýsinga. Varðandi starfsauglýsingar og röðun i störf kom fram i umr., að nauðsynlegt kynni að reynast að koma upp nýjum starfsheitum i ýmsum greinum til að forðast fyrirfram kyngreiningu. Spurningin samsköttun eöa sér- sköttun hjóna kom einnig til umræðu og upplýsli fundarstjóri, Vilborg Sigurðardóttir, að sam- kvæmt könnun heföi komið i ljós, að fyrir hjón með meðaltekjur og meðalframfærslu kæmi það nokkurnveginn út á eitt fjárhags- lega, hvor leiðin væri farin. Elinu Pálmadóttur fannst skipta máli fyrir sjálfsvirðingu kvenna að greiða eiginn skatt og var hissa á, hve fáar giftar konur notfærðu sér lagalegan rétt til þess, en Auður Þorbergsdóttir benti á, að með núverandi lögum væri sér- sköttun ekki hagðstæð, hvað sem sjálfsvirðingunni liði. Kom fram i svari hennar við fyrirspurn um sérsköttun, að td. bæði eignir og skuldir teljast hjá eiginmanni, en skiptast ekki til helminga milli hjóna við sérsköttun. Valborg Bentsdóttir benti á, að núverandi ákvæði skattalagannna um helmingsfrádrátt á tekjum giftra kvenna hefði komið inn sem lausn til bráðabirgða eftir að fjöldi „hjóna” hætti við að láta gifta sig vegna þess, hve dýrt fyrirtæki Framhald á bls. 14

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.