Þjóðviljinn - 31.10.1973, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 31. október 1973. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 11
Getraunaspá
GSP
Fyrsti leikurinn á þessum
getraunaseöli, seðli númer 11,
býður svo sannarlega upp á
nokkra spennu. Liverpool leikur
þá gegn Arsenal á útivelli og
þótt liðunum liafi ekki gengið
vel i vetur hafa leikir þeirra á-
vallt verið fjörugir og spenn-
andi.
Að venju eru úrslit leikja lið-
anna (> siðustu árin birt fyrir aft-
an hverja spá.
Arsenal—
Liverpool 2
Arangur Arsenal fram að
þessu hefur verið fádæma léleg-
ur. Liðið er fyrir neðan miðja
deild, með 12 stig eftir 13 leiki.
Ekki verður Liverpool heldur
hrósað fyrir sinn árangur, liðið
hefur valdið aðdáendum sinum
sárum vonbrigðum með slakri
útkomu. Ég hef þó meiri trú á
Liverpool, sem er nú i 6. sæti
með 15 stig. Liverpool hefur þó
ekki unnið Arsenal á þessum
velli siðustu 6 árin, en þrisvar
náð þar jafntefli.
Úrslit: 2-0, 1-1, 2-1, 2-0, 0-0, 0-0
Coventry City —
Ipswich X
Arangur beggja liða er þokka-
legur, þau eru bæði ofarlega
með 15 stig. Leikurinn ætti að
verða jafn ef miðað er við fyrri
getu, og erfitt er að spá öðru en
jafntefli.
Úrslit: -, 0-2, 3-1, 1-0, 1-1, 2-1
Derby — Q.P.R. 1
Nýliðarnir i 1. deild hafa stað-
ið fyrir sinu fram að þessu, en
erfitt er þó að spá þeim sigri
gegn Derby, sem átt hefur
marga góða leiki og er nú i 4.
sæti með 18 stig, ásamt Burnley
og Everton. Heimavöllurinn
ætti að tryggja sigurinn.
Úrslit: 4-0, -, -, -, -
Everton —
Tottenham 1
Það er furðulegt hve hinum
ágætu leikmönnum Tottenham
hefur gengið illa, ekki aðeins nú
i ár, heldur einnig undanfarin.
Einhverra hluta vegna ná leik-
mennirnir ekki saman og þrátt
fyrir miklar tilraunir skila þeir
ekki þeim árangri sem ætlast er
til. Everton hefur gengið vel
fram að þessu, liðið er með 18
stig og er i 2. sæti.
Úrslit: 01,0-2, 3-2, 0-0, 1-1, 3-1
Leeds — West Ham 1
Hér ætti ekki að vera nokkur
vafi á úrslitunum. Leeds trónar
með 5 stiga forystu á toppnum
meðan West Ham situr i fallsæt-
inu með aðeins 7 stig.
Úrslit: 2-1, 2-0, 4-1, 3-0, 0-0, 1-0
Manch. United —
Chelsea 1
United er nú i 16.sæti meðan
Chelsea er i 17. og má af þvi sjá,
að munurinn á liðunum er ekki
mikill. Það er athyglisvert að
United hefur ekki, þrátt fyrir
heimavöllinn, náð að sigra
Chelsea á þeim velli i 6 ár. Ég
hef trú á að nú loksins takist
þeim það, liðið hefur átt marga
I)enis I.aw
góða leiki á heimavellinum nú i
vetur.
1-3, 0-4, 0-2, 0-0, 0-0, 0-1
Newcastle — Stoke 1
Heimasigur ætti að vera ör-
uggur. Newcastle er i 5. sæti
meðan Stoke er mjög neðarlega,
og hefur enga getu sýnl i vetur.
Úrslit: 1-1, 5-0, 3-1, 0-2, 0-0, 1-0
Norwich —
Leicester X
Þrátt fyrir greinilega knatt-
spyrnulega yfirburði Leicester
yfir Norwich, hef ég trú á að
heimavöllurinn færi lakara lið-
inu annað stigið. Leicester er nú
i miðri deildinni með 13 stig,
Norwich er nálægt botninum
með 8.
Úrslit: -, -, 3-0, 2-2, -, 1-1
Sheff. Utd. —
Birmingham 1
Stigasöfnun Birmingham
gengur ekki sem skyldi, iiðið er i
neðsta sæti 1. deildar með að-
eins 5 stig eftir 13 leiki. Þótt
Sheffield hafi ekki sýnt neina
sérstaka getu ætti liðið að vinna
þennan leik nokkuð örugglega.
Úrslit: -, 2-0, 6-0, 3-0, -, 0-1
Southampton —
Burnley 2
Southampton er mjög vaxandi
lið um þessar mundir og hefur
náð að sýna vaxandi getu und-
anfarið. Burnley hefur hins veg-
ar sýnt afar mikla getu i allan
vetur og ætti að sigra i þessum
leik nokkuð örugglega.
Úrslit: 2-2, 5-1, 1-1, 2-0, -, -
Wolves —
Manch. City 1
Oheppnin eltir Úlfana leik eft-
ir leik. Liðið hefur marga frá-
bæra leikmenn á sinum vegum
og það hlýtur að koma að þvi, að
heilladisin snúist i lið með Úlf-
unum. Sigur gegn City væri
mikilvægt spor i rétla átt.
Úrslit: 0-0, 3-1, 1-3, 3-0, 2-1, 5-1
C. Palace —
Nott’m Eorest 1
C. Palace er lið i miklum upp-
gangi um þessar mundir og náði
mikilvægu stigi af núverandi
bikarmeisturum, Sunderland, i
siðasta leik. Liklegt er að sigur-
viljinn sé þvi i hámarki núna og
heimavöllurinn ætli að tryggja
sigurinn.
„Ég kann ekkert
annaö en að raöa
saman múrsteinum”
Þess vegna neitar Tony Book,
aldursforseti 1. deildar,
aö hætta í knattspyrnunni
Tony Book, elsti leikmaður 1.
deildar, fékk aðeins tveggja
vikna sumarfrf i ár. Það hlýtur þó
að hafa orðið honum kærkomin
tilbreyting frá dagsins önn, þvi
sennilega hafa fáir meira að gera
en einmitt hann.
Auk þess sem Tony Book æfir
mjög mikið og reglulega, stundar
hann nú nám i stjórnunarfræði,
sem er töluvert viðamikið náms-
efni.
A meðan félagar hans sleiktu
sólskinið i sólarlöndunum i sumar
sat Book því með sveittan skall-
ann yfir námsbókunum.
Hann gefur eftirfarandi skýr-
ingu: Sumir leikmenn, eins og
Steve Highway og Brina Hall,
sem leika með Liverpool, hafa
lokið háskólaprófum og þurfa þvi
ekki að kviða framtiðinni. Þeir
hafa örugga atvinnu um leið og
knattspyrnuferlinum lýkur.
Málinu er öðruvisi farið hjá
mér. Ég hef ekki gert neitt annað
allt mitt lif en að raða saman
múrsteinum og byggja þannig
hús. Ég er alls ekki að óvirða þá
atvinnugrein en samt get ég ekki
hugsað mér aö fara i það starf
aftur, er knattspyrnuævintýri
minu lýkur. Ég vil geta gert eitt-
hvað annað en að vinna við hús-
byggingar, mest langar mig til að
starfa áfram i knattspyrnunni,
t.d. sem framkvæmdastjóri. En
ég hef enga sérmenntun, ekki á
neinu sviði, og þess vegna er ég
nú sestur á skólabekk.
Ég reyni að leika knattspyrnu
eins lengi og ég mögulega get þvi
ég á ennþá ekki i nein önnur hús
að venda. Knattspyrnutiminn er
mérdýrmætur.ég hef miklar tekj-
ur og ætla að ljúka námi meðan
ég er ennþá að leika fótbolta.
Ég kom mjög seint inn i knatt-
spyrnuna fyrir alvöru. Ég vann
lengi i byggingavinnu, sem var
illa launuð, og á kvöldin æfði ég
með litlu 5. deildarfélagi. Það var
oft mikið álag á mér á þeim tima,
mun meira en nú. Þá vaknaði ég
daglega klukkan 5.30 til að fara i
vinnuna og vann stanslaust til
klukkan 8 á kvöldin. A hverju
kvöldi æfði ég siðan frá klukkan
hálfniu til 11.
Þá var ég
uppgötvaður
Ég var þvi orðinn töluvert gam-
all þegar Malcolm Allison, fram-
kvæmdastjóri Manchester City,
kom auga á mig og keypti mig til
sins félags. Byrjunin hjá City var
erfiö, ég var óvanur að leika með
svo sterku félagi og gegn svo
sterkum andstæðingum. Smám
saman fann ég mig þó með strák-
unum og fékk sjálfstraustið að
nýju”.
Allison framkvæmdastjóri seg-
ist sennilega aldrei hafa gert
betri kaup en þegar hann keypti
Book. Fnginn hreyfir mótbárum
gegn þeirri fullyrðingu. Allir vita
hve miklum hæfileikum Book er
búinn, jafnt utan vallar sem inn-
an. Tony hefur stjórnað City af
mikum dug og leitt það til fjöl-
margra sigra.
Hann er nú 38 ára gamall og
enn einn alsterkasti varnarleik-
maður Englands. Hann gerir sér
þó grein fyrir að hann er að renna
sitt skeið á enda og nú er aðeins
timaspursmál hvenær ferli hans
lýkur.
Tony segir: Ég mun reyna að
tengjast knattspyrnunni á ein-
hvern hátt áfram, eftir að ég
hætti að leika hana sjálfur. Það
væri vissulega gaman að geta
orðið framkvæmdastjóri einhvers
knattspyrnuliðs, — slikt freistar
min ákaflega.
Sennilega verður honum að ósk
sinni. Ensk knattspyrna hefur
ekki efni á að missa menn eins og
Tony Book.
—gsp
Tony Book — situr nú á skólabekk
um leið og hann æfir knattspyrn-
una af fullum krafti og vel það.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson