Þjóðviljinn - 31.10.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 31.10.1973, Blaðsíða 16
Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Kvöld- , nætur- , og helgar- þjónusta lyfjabúöanna i Reykja- vik vikuna 26. október til 1. nóvember verður i Holts apóteki og Laugavegs apóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Miövikudagur 31. október 1973. ERIJ FANGAMÁLIN LEYST? Aðila greinir á Dayan segir svo vera, en Egyptar neita Kaíró. Jerúsalem. Washington 30/10 — Moshe Dayan lýsti því yfir í ísra- elska þinginu i dag að tsra- Semjon Kúdjonni, slöasta heljan úr rússnesku borgarastyrjöid- SIÐASTA HETJAN FALLIN Moskvu 30/10 — Semjon Búd- jonní marskálkur sem varð hálf- gerð þjóðsagnapersóna i borg- arastyrjöldinni 1918—20 i Rúss- landi fyrir forystu sina fyrir Rauða riddarahernum lést sið- astliðinn laugardag niræöur að aldri og var hann grafinn við há- ttölega athöfn á Rauða torginu i dag. Búdjonni var siðasta hetjan úr borgarastriðinu sem eftir lifði. Var hann lagður til hinstu hvildar I Kremlarmúrnum þar sem hetj- ur Sovétrikjanna hvila. Meöal þeirra sem báru kistu hans sið- asta spölinn voru þeir Brésjnéf, Kosigin og Gretsko varnarmála- ráðherra. Athöfninni var sjón- varpað beint um öll Sovétrikin. elar og Egyptar hefðu náð samkomulagi um að skipt- ast á særðum stríðsföngum og að fyrsti israelinn hafi verið sendur til síns heima í dag. Talsmaður egypsku stjórnar- innar sagði aftur á móti i Kairó að Egyptar hefðu sent lista yfir fanga til eftirlitssveita Sþ en að fyrstu fangarnir yrðu ekki sendir heim fyrr en tsraelar hefðu hörf- að til þeirra vigstöðva sem þeir voru á þann 22. október þegar fyrra vopnahléið tók gildi. Yfirlýsing Dayans kom mjög á óvart i Israel en hann og rikis- stjórnin hafa sætt harðri gagn- rýni fyrir framferði sitt i fanga- málunum. Hann sagði að þetta væri aðeins fyrsti liöurinn i sam- komulagi milli landanna um fangaskipti. Væri það tillaga Israels aö næsta skref yrði að senda fullkomna lista yfir alla striösfanga til Sþ. þá yrði fulltrú- um Rauða krossins leyft að heim- sækja fangabúöirnar og að lokum alger fangaskipti. Ensio Siilasvuo, hershöfðingi og yfirmaöur gæslusveita Sþ. var i dag i Jerúsalem, annan daginn i röð. Atli hann fund með Moshe Dayan og telja menn að fundur- HUNGUR- DAUÐI A1)I)IS ABEBA 28/10 — Slöan I aprll hafa eitthvaö 50.000—100.000 manns látiö lifiö af völdum hung- ursneyöar, seni stafar af lang- varandi þurrkum i noröur- og iniöhcruöum Kþiópiu. Eru þessar tölur samkvæmt frétt frá Barna- hjálp Sameinuöu þjóöanna. l>aö fylgir sögunni aö hungurdauöinn vofi yfir tveimur miljónum manna I viöbót, ef hjálp aö verö- mæli tuttugu og sjö miljónir doll- ara berist ckki næsta áriö eöa ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ Frá fyrsta fundi umræöuhópsins Alþýðubandalagið I Kjósarsýslu Alþýðubandalagið i Kjósarsýslu heldur aðalfund i Hlégaröi i kvöld miövikudag, klukkan 20:30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á flokksráösfund. 3. önnur mál. Gils Guðmundsson alþingismaður kemur á fundinn. — Stjórnin Viðtalstimi borgarfulltrúa Viðtalstimi borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins i dag, miövikudagjkl. 5—6 að Grettisgötu 3, simi 18081. Sigurjón Pétursson verður til viðtals. Lýðræði og stjórnkerfi borgarinnar Umræöuhópurinn um lýðræði og stjórnkerfi borgarinnar heldur fund aö Grettisgötu 3 I kvöldkl. hálf niu. Fundurinn er opinn öllum stuön- ingsmönnum Alþýðubandalagsins. Borgarmálaráö — Alþýöubandalagiö I Reykjavik inn hafi snúist um birgðaflutn- inga til þriöja hers Egypta sem umkringdur er i Sinai-eyðimörk- inni og tilraunir til að fá ísraela til að hörfa til þeirra stöðva sem þeir voru á þegar vopnahléið gekk i gildi. Tilkynnt var i Washington og Tel Aviv i dag að Golda Meir myndi á fimmtudag fara i heim- sókn til Bandarikjanna þar sem hún hyggst ræöa við Nixon og Kissinger. Ismail Fahmi, utan- rikisráðherra Egypta á i dag við- ræður við Kissinger og á morgun mun hanr.ræða við NixonAð sögn var lögð á það aöaláhe.-sla af hálfu Bandarikjanna að leysa þyrfti vandamáliö með striðs- fangana hið snarasta. Egyptar hins vegar leggja mesta áherslu á að herirnir hörfi til fyrri vopnahléslinunnar. Þannig hugsar teiknari breska blaðsins Morning Star sér aö rikis- stjórnarfundir I Chile liti út um þessar mundir. Holland að gefast upp fyrir aðgerðum Araba Einkabílaakstur bannaður Haag 30/10 — Hollenska stjórnin hefur bannað allan einkabilaakstur i landinu á sunnudag vegna þess að nú hafa sjö Arabariki stöðvað oliusölu til landsins. Gengur bannið i gildi næsta sunnudag. Efnahagsmálaráðherra lands- ins sagði á blaðamannafundi i Gamall draumur Haag að auk þessa banns hefði verið undirrituð konungleg til- skipun þar sem stjórninni er veitt heimild til að koma á bensin- skömmtun en henni verður ekki beitt»i bili. Libýa bættist i dag i hóp þeirra rikja er stöðvað hafa oliusölu til Hollands. Hin löndin eru Alsir, Kúvæt, Sádi-Arabia. Sameinuðu furstadæmin við Persaflóa, Qatar og Óman. Max van der Stoel, utanrikis- ráðherra Hollands, sagði i dag að hann grunaði að oliusölubann Arabarikjanna væri liður i þaul- skipulagðri áætlun sem beindist að þvi að veita Evrópu þung póli- tisk högg. Hann hélt þvi fram að markmið Araba væri að þvinga Evrópu til að veita Israel vissan þrýsting i væntanlegum samn- ingaviðræðum um frið i Mið- Austurlöndum. Einnig kvað hann aögerðir Araba á misskilningi byggðar, þar sem Holland styddi ályktun Sþ frá þvi i nóvember 1967 þar sem segir að Israel skuli hörfa frá öllum hernumdu svæð- unum úr sexdagastriðinu. rætist Istambul 30/10 — Brúin yfir Bosporussundið sem skilur að Evrópu og Asiu var vigð við há- tiðlega athöfn i dag á 50 ára lýð- veldisafmæli Tyrklands. Forseti Tyrklands, Fahri Koru- turk,vigði brúna og þar með var uppfylltur 2500 ára gamall draumur um að tengja álfurnar saman með brú, en eins og menn vita reyndi Daríus Persakóngur fyrstur manna að brúa sundið með lélegum árangri. Indónesía hækkar olíuna Djakarta 30/10 — Tilkynnt var i Djakarta i dag að Indónesia myndi innan tiðar hækka verð á hráoliu um 20%. Er hækkunin sögð vera alls óviðkomandi að- gerðum Arabalandanna i oliu- málum og stafa eingöngu af efna- hagslegum ástæðum. Fyrir mánuði hækkaði Indó- nesia hráoliuverðið um 25%. Tekjur landsins af oliusölu námu i fyrra um 80 miljörðum isl. kr. og var það um 40% af gjaldeyris- tekjum landsins. 70% af oliusölu landsins fer til Japans. Watergate: ÞYÆLT UM SPÓLURNAR Washington 30/10 — Lögfræöing- ar Nixons skýrðu alríkisdómstól I Washington frá þvi i dag að tryggt væri aö spólur þær sem innihalda samtöl forsetans og nánustu samstarfsmanna hans yröu eftir örfáa daga afhentar Sirica dómara og myndi fylgja þeim skriflegur útdráttur á inni- haldi þeirra. Aður en afhendingin verður timasett mun Sirica hlýða á rök- semdir fyrir þvi að Nixon telur sig hafa rétt til að halda eftir hluta af spólunum. Var þetta ákveðið á fundi með Sirica, lög- fræðingum Nixons og fulltrúum rannsóknarnefndarinnar sem Cox veitti forstöðu þar til Nixon rak hann. Þá samþykkti Vatnsgatsnefnd öldungadeildarinnar einróma að halda áfram tilraunum til að fá aðgang að spólunum og skjölum sem snerta málið. Sirica hefur áður visað á bug beiðni nefndar- innar um að fá að hlýða á spól- urnar með þeim rökum að hann hefði ekki vald til að blanda sér i baráttu þingsins og Hvita húss- ins. 1 frávisun hans sagði að laga- breytingu þyrfti til að veita dóm- stólnum slikt vald. Vatnsgats- nefndin stefnir nú að þvi að fá þingið til að samþykkja slika lagabreytingu. Að óbreyttu ástandi mun Sirica dómari fá afhentar niu spólur sem að mati forsetans skaða ekki öryggi rikisins eða samskipti Bandarikjanna við önnur lönd. Sé Sirica ekki viss um að spólurnar sem undan eru dregnar falli undir þann flokk á hann heimtingu á að fá að hlusta á þær i einrúmi. Hlutverk hans er svo að úr- skurða hvort rannsóknarréttur- inn fái að hlýða á allar spólurnar eba einungis útdrátt úr þeim ell- egar þá hvort hann sjálfur skuli semja skriflega greinargerð um innihald þeirra fyrir réttinn. Danir bera þyngsta skatta Paris 30/10 — Samkvæmt nýút- kominni skýrslu frá OECD báru Danir þyngsta skatta af þeim þjóðum sem aðild eiga að stofn- uninni. Meðalskattabyrði þeirra er 43,99%. Næstir eru Hollend- ingar með 42,20%, Sviar með 41,80% og Norðmenn með 41,53%. Lægstu skattarnir eru i Japan 20,08% og á Spáni 20,06%. Tölurn- ar eru frá árinu 1971.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.