Þjóðviljinn - 20.11.1973, Side 16
MÚÐVIUINN
Þriðjudagur 20. nóvember 1972.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gef-'
simsvara Læknafélags Eeykja
víkur, simi 18888.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturþjón-
usta lyfjabúða i Reykjavik vik-
una 16.-22. nóvember verður i
Vesturbæjarapóteki og Háleitis-
apóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
EFTIR ÁTÖK LÖGREGLU OG STÚDENTA í GRIKKLANDI
9 féllu — handtökum heldur áfram
AÞKNU 19/11 llerlög eru cnn i
gildi á Grikklandi eftir mikil
ólök milli stúdenta, verka-
manna og lögreglu i Aþenu um
hclgina. Vilað er um a.m.k.
niu manns scm biðu bana,
m.a. norsk slúlka. Itumlega
hundrað manns hafa verið
færðir ó sjúkrahús, en lalið er
að allmiklu flciri hafi særst.
Lögreglan handtók rúmlega niu
hundruð manns um helgina og
eru um 290 þeirra enn i fangelsi.
Ekki er vitað hvað margir hafa
verið handteknir i dag. Upplýst
var i dag, að margir vinstrisinnar
og liðsforingjar hafi verið hand-
teknir sem og rektor Tæknihá-
skólans, sem hafði sýnt stúdent-
um sinum samúð. Lögreglan
krafði hvern ungan mann sem
hún rakst á á götum úti um skil-
riki i dag, og hundruð stúdenta
voru handleknir.
Engir byggingaverkamenn
mættu til vinnu i dag og ylirvöldin
óttast að efnt verði til nýrra
kröfugangna. Ekki heyrðist skot-
hrið á götum i dag, sem hina
næstliðnu.
Atökin náðu hámarki á laugar-
dag, en kvöldið áður hafði lög-
reglan hrakið stúdenta út úr
Tækniháskólanum, sem þeir
höfðu haft á valdi sinu i þrjá daga
og kralist aukins frelsis. Um tiu
þúsund manns tóku undir hvatn-
ingu útvarps stúdenta um að taka
þátt i kröfugöngu til stjórnarráðs-
torgs. Tóku kröfugöngumenn lög-
reglustöð á sitt vald, veltu mörg-
um bilum, kveiktu i, börðu á lög-
reglunni. Var þá herinn kvaddur
út henni til aðstoðar og svo lýst
yfir neyðarástandi sem fyrr seg-
Siðari fréttir herma að fjórir
ungir verkamenn hafi verið
dæmdir i ljögurra ára fangelsi
hver fyrir jjátttöku i ólöglegum
lundi i Aþenu i gær. Þyrlur flugu
lágt yfir borginni og fylgdust með
öllum mannsöfnuði. Börn voru
send heim úr skólum, þvi margir
kennarar voru fjarverandi. Yfir-
völd tilkynntu i dag að herlög
myndu i gildi a.m.k. mánuð.
Brúðu-
heimili
Ibsens
A limmtudaginn frumsýnir
Þjóðleikhúsið leikritið Brúðu-
heimilið eftir Ibsen. Er þetta i
annað skipti sem verkið er fært
upp á fjölum Þjóðleikhússins en
alls hala verið gerðar fimm upp-
færslur á þvi hérlendis.
Leikritið helur nú verið endur-
þýtt og var Sveinn Einarsson þar
að verki. Leikstjóri er Briet
Héðinsdóttir og leikmyndir
gerðar af Sigurjóni Jóhannssyni.
Aðalhlutverkið, Nóra, er i
höndum Guðrúnar Asmunds-
dóttur en aðrir leikarar eru
Erlingur Gislason, Baldvin
Halldórsson, Þóra Friðriksdóttir,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Rúrik Haraldsson og Steinunn
Jóhannesdóttir sem jafnlramt er
aðstoðarmaður leikstjóra.
Brúðuheimilið er nú nær aldar-
gamall en þrátt fyrir háan aldur
er viðfangsefni þess á hvers
manns vörum i dag: frelsis-
barátta kvenna. Lillar breytingar
hafa verið gerðar á þvi tilað færa
það nær nútimanum en þó aðeins
losað um hefðir i uppfærslunni.
Akveðið hefur verið að fara
með verkið i leikför um landið á
vorikomanda. -Þll
Slita Finnar
sambandi við
S-Afriku?
STOKKHOLMUR 19/11 Sænska
blaðið Dagens Nyheter heldur þvi
fram i dag að Finnar a»tli að slita
st jórnmálatengsli við Suður-
Afriku og að Sviar ætli að fylgja
fordæmi þeir.ra. Er lorsendan
rakin til samþykktar sameinuðu
þjóðanna um ráðstafanir gegn
kynþáttakúgun.
Andersson, utanrikisráðherra
Sviþjóðar, sagði i dag, að þessi
frétt kæmi sér mjög á óvart.
Bríet lléðinsdóttir leikstjóri og Sigurjón Jóhannsson sem gerði leik-
niyndir (Ljósm. A.K.)
Danir stöðva sunnudagsakstur
Olíubannið
sverfur að
VÍNARBORG 19/11 A fundi i
Vinarhorg i gær ákváðu fulltrúar
19 arabiskra oliulanda að fresta
niðurskurði á oliuútflutningi til
V'estur-Evrópurikja sein átti að
gerast i desember. En 26. nóvem-
her koina utanrikisráðherrar
Arabalandanna saman til að
ákveða hvaða lönd verði fyrir
barðinu á niðurskurði sem von er
á i janúar.
Algjöru oliubanni á Bandarikin
og Holland verður haldið áfram.
Jamani, oliumálaráðherra Saudi-
Arabiu, sagði að á fundinum siðar
i mánuðinum vrði gerður listi yfir
þau lönd sem verða undanskilin
Leiðri'tling sainkvwmt launájafnaðarlögum, ekhi hjarasamningum
Reynt að skapa úlfúð
milli verklýðsfélaga
— segir forniaður Sóknar um skrif Morgunblaðsins
Frá og með iióvembermáiiuði
lá Sóknarkonur 2 1/2 % launa-
ha-kkun. þe. Iia kkun eftir 6 ár auk
hækkana eftir 2 og 1 ár i starfi.
Ilér er uni að ræða leiðréUingu
samkvæmt lögum um launajafn-
rétti kynjanna, en ekki hiua
almennu kjarasamninga, þar
sem sljóru Sóknar semur að sjálf-
sögðu við hlið annarra verklvðs-
lélaga i ASi, sagði formaður
félagsins, Guðinunda Helga-
dóttir. i viðtali við Þjóðviljann i
ga»r og fordæmdi rangfærslur
Morgunblaðsins i máliiiu á
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Árnesingar
Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Arnessýslu verður haldinn föstu-
daginn 23. nóv. kl. 20.30 i Selfossbiói.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa ræðir Garðar Sigurðsson alþingis-
maður um ástand og horfur i stjórnmálunum. — Stjórnin
Akranes
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur almennan fund um islenska iðn-
þróun og verkmenntun i félagsheimilinu Rein laugardaginn 24. nóv. kl.
2 e.h.
Framsögumaður verður Gunnar Guttormsson hagræöingarráðu-
nautur.
Mætir vel og stundvislega. — Stjórnin
íslensk verkalýðshreyfing og sósialismi
Fyrsti fundur námshóps um islenska verkalýðshreyfingu og sósial-
isma verður miðvikudaginn 21. nóvember kl. 20.30 á Grettisgötu 3,
Reykjavik.
Leiðbeinandi hópsins verður Einar Olgeirsson.
Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig á skrifstofu ABR, Grettisgötu
3, simi 18081.
Vegna skorts á samfelldri sögu islenskrar -/erkalýðshreyfingar hefur
Einar tekið saman lista um helstu heimildarrit. Liggja þeir frammi á
skrifstofu ABR.
sunuudag sem tilraun til að skapa
óeiningu milli verklýðsfélaganna.
Guðmunda sagði, að sam-
kvæmt lögunum um launajafn-
rétti hefðu Sóknarkonur verjð
launajafnaðar við karlmenn, sem
vinna á oliustöðvunum; byrjað á
þvi 1961 og verið jafnar árlegar
hækkanir 1. janúar, þar til jöfnuði
var náð 1967.
— En við samningagerð 1970
hefur þetta einhvernveginn farið
úr skorðum, sagði Guðmunda.
Við rannrókn á, hvernig i þvi gæti
legið, að Sókn hefur undanfarin
ár verið komin niðurfyrir nær öll
félög i kaupi, fundum við út, að
ástæðan liggur i, að hætt hefur
verið við þennan jöfnuð. Sneri
stjórnin sér þá til formanns
launajafnaðarnefndar, Hjálmars
Vilhjálmssonar, og á forsendum
laganna um launajöfnuð taldi
hann sjálfsagt að taka málið upp
að nýju tii leiðréttingar.
Það sem við erum að gera nú er
semsagt að reyna að vinna upp
aftur það sem áður var búið að
úrskurða okkur með lögunum.
Við höfum rælt málið við alla
stærstu vinnuveitendur Sóknar.
sem yfirleitt tóku vel i það,
mundu eftir framkvæmd laganna
og höfðu sumir tekið eftir þvi
sjálfir, að hún hafði gengið úr
skorðum.
lfafa rikisspitalarnir og Landa-
kot þegar samþvkkt leiðrétt-
inguna, sagði Guðmunda, en eftir
er að semja við borgina. Hjá
borgarráði var hinsvegar sam-
þykkt að biða eftir ákvörðun
rikisspitalanna, svo ætla verður.
að borgin muni samþykkja þessa
lagfæringu lika.
Samkvæmt breytingunni
verður taxti Sóknar algerlega sá
sami og 2. taxti Dagsbrúnar, sem
þýðir að kaupið i hverjum flokki
hækkar um 2 1/2% og aldurs-
hækkanir verða eftir 2 ár, 4 ár og
6 ár i starfi, en voru áður aðeins
eftir 2 og 4 ár. Samsvara
breytingarnar þvi að kaupið
hækku til jafnaðar um 3%.
Guðmunda lagði áherslu á, að
þessi lagfæring kæmi almennu
kjarasamningunum ekkert við,
hún væri fyllilega með vitund ASf
og Sókn væri með i ramma
almennu samninganna og ætti
enn ósamið við viðsemjendur sina
eins og öll önnur verklýðsfélög.
Fvrstu sérsamningar Sóknar við
atvinnurekendur verða nú i vik-
unni og þá á grundvelli lagfær-
ingarinnar, þe, reiknað með að
nóvemberkaupið sé hið rétta
kaup Sóknarkvenna nú. Ofaná
nýju taxtana bætist að sjálfsögðu
einnig visitöluhækkunin, sem
kemur á öll laun um næstu mán-
aðamót.
1 baksiðugrein i Morgunblaðinu
sl. sunnudag voru mjög rang-
færðar fréttir af þessari
leiðréttingu og órökstuddar og
mjög ósvifnar ásakanir á
aðstoðarheilbrigðisráðherra og
starfsmann Sóknar, sem hefur
sent svar til birtingar i öllum dag-
blöðum og er það á 9. siðu Þjóð-
viljans i dag. Auk þess reynir
Morgunblaðið að blanda öðrum
verklýðsfélögum i málið. segir
tam. fyrirsjáanlegt, að Framsókn
og Dagsbrún muni krefjast hins
sama.
niðurskurði i janúar, og má búast
við að Spánn, Frakkland og Bret-
land sleppi. Jamani gaf til kynna
að Belgia og Vestur-Þýskaland
mættu hinsvegar búast við nýjum
niðurskurði. Tyrkland, Indland
og Malasia munu hinsvegar
sleppa við refsiaðgerðir.
Bann við sunnudagsakstri
einkabila tekur gildi i Danmörku
næsta sunnudag. Lækn'ar, ljós-
mæður og nokkrir fleiri aðilar
munu fá undanþágur til að aka á
sunnudögum, og allir fá að aka
sem stýri geta valdið á Þorláks-
messu. Átti i dag að leggja fram
frumvarp um oliusparnað á
danska þinginu.
Belgar tóku upp bann við
sunnudagsakstri i gær og Vestur-
Þjóðverjar feta i fótspor þeirra og
Hollendinga á sunnudaginn kem-
ur.
Rúmenia hefur fyrst Austur-
Evrópulanda tekið upp skömmt-
un á bensini, og fá eigendur
einkabila aðeins 40 litra á mánuði
nú um skeið. Rúmenia framleiðir
sjálf oliu, en flytur inn um 8
miljónir lesta á ári. Þykir ljóst,
að Rúmenum hefur ekki tekist að
verða sér út um oliu frá Sovét-
rikjunum. Af opinberri hálfu er
þvi haldið fram, að bensin-
skömmtunin standi ekki i sam-
bandi við ástandið i Austurlönd-
um nær.
t Japan hefur iðnaðurinn þegar
dregið úr orkunotkun sinni um
10%. Til óláta hefur komið i búð-
um þegar húsmæður hafa þyrpst
að þeim til að hamstra ýmsar
vörur, en orðrómur er um vöru-
skort og verðhækkanir vegna
þess ástands sem nú rikir.
I-------------------—-
Blaðberar
óskast
nú þegar i eftir talin
hverfi:
Laugavegur
Seltjarnarnes
Sogaveg
Nökkvavog
Þingholtsstræti
Hverfisgötu
Hjarðarhaga
Hafið samband við af-
greiðslu Þjóðviljans i
simuin
17500 eða 17512.