Þjóðviljinn - 22.11.1973, Síða 5
Fimmtudagur 22. nóvember 1973.ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
Hagræðing í
málmiðnaði
Nýlega er lokið námskeiði í
hagræðingu, fyrir framleiðslu-
fyrirtæki i málmiðnaöi. Leiðbein-
endur á námskeiðinu voru tveir
Danir frá Tæknistofnun Jótlands,
Morsö Andersen og Kaj Toft.
Þátttakendur voru um tuttugu frá
niu fyrirtækjum i málmiðnaði.
Fyrirtækin eru Blikksmiðjan
Vogur, Blikk og stál, Blikksmiðj
an Glófaxi, Blikksmiðja J.B.
Péturssonar, Garða-Héðinn,
Vélaverkstæði Sigurðar Svein-
björnssonar, Vélsmiðjan Klettur,
Virnet hf. i Borgarnesi og Stál-
umbúðir.
Námskeiðið var haldið á vegum
Félags islenskra iðnrekenda.
Fjöldi þátttakenda takmarkaðist
af starfsaðferðum leiðbeinenda.
Fengu þeir i byrjun sendar til
Danmerkur margvislegar upp-
lýsingar um þátttökufyrirtækin
og unnu að undirbúningi i
mánaðartima, áður en þeir komu
til tslands. Eftir þessum upp-
lýsingum bjuggu þeir til hugsað
fyrirtæki, sem starfaði að fram-
leiðslu i málmiðnaði. Voru þátt-
takendur látnir leysa Ur margvis-
legum verkefnum varðandi fyrir-
tækið, reikna Ut hagkvæmni
framleiðsluvara, gera starfs-
lýsingar og lýsa starfsþáttum,
koma upp pappirsgangi innan
fyrirtækisins, gera nákvæma
fjárhagsáætlun tvö ár fram i
tlmann og finna aðferðir til að
tryggja að hægt sé að hafa ná-
kvæmt eftirlit með framkvæmd
fjárhagsáætlana.
Yaldamesta kona
í USA
Býr með tveimur
hundum í bifreið
„hér og þar í
nágrenni
Washington,’>
Dixie Lee Ray, forstjóri Kjarn-
orkustofnunar Bandarikjanna,
kemur til tslands á morgun í boði
fslensk-ameríska félagsins. Flyt-
ur hún fyrirlestur I Norræna
húsinu laugardaginn 24. nóvem-
ber um ástandið i orkumálum.
Ollum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
Þá mun hún undirrita sam-
vinnusamning um upplýsinga-
skipti og aðra samvinnu við
Orkustofnun, á meðan hún dvelst
hér á landi.
Dr. Ray var skipuð forstjóri
Kjarnorkustofnunarmnar i febrú-
ar 1973, en sú stofnun hefur um-
sjón með allri notkun kjarnorku I
Bandarikjunum, bæði til friðsam-
legra nota og hernaðarlegra. Er
hún talin valdamesta kona i
stjórn Bandarikjanna. Dixie Lee
Ray er doktor i liffræði sjávar.
Dixie Lee Ray er litrik kona,
sem hefur óvenjulega lifnaðar-
hætti. Þegar hún flutti til
Washington fékk hún sér inn-
réttaðan bil. Býr hún i honum hér
og þar i hágrenni Washington,
ásamt tveimur hundum, sem hún
skilur sjaldan við sig. Annar er 50
kilóa skoskur veiðihundur og hinn
lítill kjölturakki.
'Nýjung í hljómleikahaldi
Sinfóníuhljómsveitarinnar
T ónleikar
unga
fólksins
t dag, 22. nóv. ;( messudegi
heilagrar Ceciliu, verndar-
dýrlings tónlistarinnar, heldur
Sinfóniuhljómsveit tslands auka-
tónleika fyrir almenning með
nýju sniöi undir heitinu „Með
ungu tónlistarfólki", og er
ætlunin að halda tvenna slíka
tónleika á y firstandandi
Yiðbótarrit-
launanefnd
Hinn 8. þ.m. skipaði mennta-
málaráðuneytið úthlutunarnefnd
i samræmi við reglur nr. 307/1973,
um viðbótarritlaun.
1 nefndinni eiga sæti: Rannveig
ÁgUstsdóttir, B.A., samkvæmt
tilnefningu Rithöfundafélags
Islands, Bergur Guðnason,
lögfræðingur, samkvæmt
tilnefningu Félags islenskra
rithöfunda, og Þorleifur
Hauksson, lektor, samkvæmt
tilnefningu kennara i islenskum
bókmenntum við Háskóla
íslands, og er hann jafnframt
formaður nefndarinnar.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
starfsári, — hina slöari i mars
1974.
Fyrirmynd er sótt til
samsvarandi tónleika viða um
lönd, sem tengdir eru samtökum,
er „jeunesses musicales”
nefnast, þ.e. alþjóðlegt bandalag
tónlistaræskunnar. Koma jafnan
fram á slikum tónleikum
efnilegustu listamenn úr hópi
æskufólks, einleikarar,
einsöngvarar og stjórnendur,
sem litt hafa haft sig i frammi
sakir æsku sinnar en eiga
framtiðina fyrir sér. Jafnframt
kynna hinir ungu listamenn oft
tónsmiðar samtiðarinnar eða
verk frá eldri timum, sem sjaldan
heyrast, þótt annað ættu skilið.
Hugsunin, sem að baki sliks
tónleikahalds býr, er sem sé sú,
aö endurnýja listina, yngja hana
upp með þvi að láta unga leiða
hina ungu til skilnings og mats á
góðri tónlist.
Þeir, sem koma fram á þessum
fyrstu tónleikum með Sinfóniu-
hljómsveit Islands, eru
einleikararnir úrsúla Ingólfsson
þianóleikari og Sigurður Ingvi
Snorrason klarinettuleikari, en
auk þeirra Jónas Tómasson
þjóðavettvang og eins heima
fyrir i Sviþjóð. Honum eru
umhverfismál mjög i huga og
einnig dreifing valds, og i
myndum sinum kemur hann
jafnan fram sem forsvari litla
einstaklingsins. Teikningar
hans á ritstjórnarsiðunni i
Aftonbladet eru ætið hans eig-
in skýringar á atburðunum,
túlkaðar á sérstakan og
áhrifamikinn hátt.
Ewert Karlsson hefur einnig
myndskreytt hinar þekktu
barnabækur um Vicke Viking
eftir Runer Jonsson, en
bækurnarhafa verið þýddar á
fjölda tungumála. NU i ár
kemur Ut Sviþjóðarkrónika,
hin 17. I röðinni, þar sem hann
ásamt rithöfundinum Gunnar
Ericsson Utskýrir og skrifar
um sænska stjórnmálaatburði
Teikningar EWK
í Norrœna húsinu
A morgun hcfst i anddyri
Norræna hússins sýning á
teikningum eftir sænska
teiknarann Ewert Karlsson,
en hann er kunnastur fyrir
pólitiskar teikningar.
Ewert Karlsson, þekktari
sem Ewk af undirskriftinni, er
sænskur teiknari, vfðfrægur
fyrir teikningar sinar Ur heimi
stjórnmálanna. Meðal stór-
blaða, sem hafa birt teikning-
ar hans, má nefna Observer,
Suddeutsche Zeitung og sér-
staklega New York Times,
sem hefur birt teikningar hans
reglulega nokkur siðustu ár.
Ewert Karlsson er fæddur
1918 i östergötland. Þar
dvaldist hann fram til 1951, en
fluttist þá til Stokkhólms, þar
sem hann hefur siðan ein-
göngu fengist við teikningar.
Menntun sina hlaut EWK i
búnaðarskóla og á teikninám-
skeiði i bréfaskóla NKl, en
strangt sjálfsnám hans, sem
hann aflaði sér með vinnu,
lestri og ferðalögum, hefur
fært honum alþjóðlega viður-
kenningu.
EWK hlaut fyrstu verðlaun
við teiknihátiöarnar i
Montreal 1964 og 1967, og á
sömu hátið 1969 hlotnuðust
honum „Grand prix” —
verðlaunin fyrir teikningu af
Maó, sem nú má heita orðin
sigild. 1 ár hlaut hann verð-
laun fyrir mynd af Kissinger
sem friðarengli.
EWK er venjulega talinn
„pólitiskur" teiknari, þar sem
hann sækir efni sitt úr heimi
stjórnmálanna, bæði á al-
á sinn hátt. Arið 1969 stóð hann
ásamt blaðamanninum Dieter
Strand að fréttabók frá
Bandarikjunum, Ett ar með
Nixon, og teikningar hans
hafa komið út i mörgum bind-
um: Nunor och nyllen (1953),
Fallfrukt (1955), En samling
EWK (1962) og Bilder (1970).
Um 50 bestu teikninga
EWKs verða til sýnis i and
dyri Norræna hússins dagana
23. nóvcmbcr til 3. desember.
Hann mun sjálfur verða við og
spjalla um og skýra Ut
teikningar sinar laugardag og
sunnudag 24. og 25. nóvember
kl. 17:00. Að þvi loknu verður
sýnd kvikmynd, sem hefur
verið gerð af sænska sjón-
varpinu um EWK og starf
hans.
Tónlistarfólkiö sem fram kemur á sinfóniutónleikum unga fólksins. Frá vinstri: Páll P. Pálsson, (Jrsúla
Ingólfsson og Sigurður Ingvi Snorrason.
(Ljósm, A.K.)
yngri, tónskáld, sem á nýlegt
tónverk á efnisskránni, sem
kallast „ Leik-leikur”, öðru nafni
„Play-play” og hefir ekki heyrst
fyrr á opinberum tónleikum.
Úrsúla mun leika tvö
pianótónverk með
hljómsveitinni: Konsert-Rondo i
A-dúr, K.386 eftir Mozart, og
Capriccio, bráðskemmtilegt
tónaspil eftir Stravinsky.og hefir
hvorugt verkiö heyrst hér fyrr á
tónleikum. Hið sama má segja
um tónverkið, sem Sigurður Ingvi
leikur á sitt hljóðfæri, apsódiu
fyrir klarinettu eftir Debussy, —
það verk er allsendis óþekkt hér á
landien mikiö sælgæti forvitnum
tóneyrum, þvi að Debussy var
allra tónskálda næmastur fyrir
litum og blæbrigðum tóna og
hljóðfæra. Að lokum verður flutt
af hljómsveitinni einni hið eld-
fjöruga tónaljóð Tsjaikovskys,
Capriccio Italien, einskonar
Italskur „leik-leikur”. Páll
Pampichler Pálsson stjórnar
þessum tónleikum og einnig þeim
siðari, sem haldnir verða á vori
komanda, en á þeim tónleikum
koma fram tveir aðrir nýir
einleikarar með hljómsveitinni,
þau Anna Aslaug Ragnarsdóttir
pianóleikari — hún leikur konsert
eftir Prokofieff — og Jón
Sigurbjörnsson, sóló-flautuleikari
hljómsveitarinnar, sem flytur
flautukonsert eftir Mozart. A
þessum tónleikum mun einnig
verða flutt nýtt eða áður óþekkt
verk eftir Skúla Halldórsson.
Þúsnnd hluthafar í
Saiiivi n nu ban ka
Nýlokið er hlutafjárútboði
Samvinnubankans, er hófst hinn
17. nóv. i fyrra, á 10 ára afmæli
bankans, þcgar ákveðið var að
auka hlutafé hans úr 16 i 100 milj.
kr.
Sala hlutabréfanna gekk vel og
höfðu þegar um sl. áramót selst
bréf fyrir 65 milj. eða 3/4 hlutar
hlutafjáraukans. 1 vor var sýnt að
hlutabréfin myndu seljast upp, en
þá lágu fyrir pantanir fyrir allri
hlutafjáraukningunni. Hlutafjár-
útboðinu var þó haldið opnu fyrir
einstaklinga fram til 17. nóv. sl.,
er rétt ár var liðið frá upphafi
þess.
Hlutabréf hafa nú verið gefin Ut
og hefst afhending þeirra innan
skamms.
Hluthafar bankans eru um 1000
talsins og nemur innborgað
hlutafé nú 81 miij. kr.