Þjóðviljinn - 22.11.1973, Side 16
DJQÐVIUINN
Fimmtudagur 22. nóvember 1973.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefr”'- r
simsvara Læknafélags Reykja
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturþjón-
usta lyfjabúða i Reykjavik vik-
una 16.-22. nóvember verður i
Vesturbæjarapóteki og Háleitis-
apóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
GRIKKLAND:
Samtök stúdenta
upp
Melina Mercouri
lýsir ábyrgð á
ástandinu á
hendur USA
Aþenu 21/11 — Gríska
stjórnin setti’í gærkvöld
þrjá stjórnmálamenn sem
andvígir eru henni í stofu-
fangelsi. Eru það Kanello-
poulos/ fyrrum forsætis-
ráðherra, Mavros, leiðtogi
frjálslynda flokksins/ og
Zigdis, fyrrum ráðherra. I
dag leysti hún svo upp 29
samtök stúdenta og gerði
eigur þeirra upptækar.
Að sögn yfirvalda eru fórnar-
lömb árásar hersins á Tæknihá-
skólann á föstudag nú oröin 11
eftir að ungur verkamaöur lést af
sárum sem hann hlaut i óeiröun-
um. Aðrir segja að amk. 12 hafi
látist.
Allir háskólar i Aþenu verða
lokaðir til 10. desember og segja
kunnugir að það sé gert til að
koma i veg fyrir fundahöld stúd-
enta.
Skriðdrekar og hermenn gráir
fyrir járnum voru enn i dag,
fimmta daginn i röð, á verði á
mikilvægum stöðum i borginni.
Herlögin sem gengu i gildi á
föstudaginn fela i sér að ýmsar
greinar stjórnarskrárinnar sem
Verkfall
Paris 21/11. — Tvö stærstu verka-
lýðssamtök Frakklands, GGT
sem lýtur stjórn kommúnista og
CFDTtboðuöu i dag allsherjar-
verkfall frá og með 6. desember.
Verkfallið, ef af verður,mun lama
atvinnulifið um allt land.
tryggja eiga borgararéttindi og
prentfrelsi eru teknar úr sam-
bandi. útgöngubanni hefur verið
aflýst á landsbyggðinni en i
Aþenu er enn útigöngubann á
timanum milli kl. 22 og 5.
Melina Mercouri ásakar
USA
Griska lejkkonan Melina Mer-
couri sem veriö hefur i útlegð um
áraraðir lýsti i dag ábyrgð á
hendur Bandarikjastjórn fyrir
blóðsúthellingarnar i fyrri viku.
Segir hún i skeyti til Kissingers að
Bandarikjamenn hafi lagt grund-
völlinn að einræðinu i Grikklandi.
— Þér skulið fá að gjalda fyrir
blóðsúthellingarnar i Aþenu sem
kostað hafa 400 manns lifið. Þér
eruð fjandmenn grisku þjóðar-
innar. Einræðið i Grikklandi ber
vörumerkið Made in USA, segir i
skeytinu.
OLÍUMÁLIN:
Menn farnir
að mýkjast
í afstöðunni til Arabaríkjanna
Kaupmannahöfn, —
Tókió, Washington og
víðar 21/11 — I dag voru
mikil fundahöld í
Evrópu vegna olíu-
kreppunnar sem herjar
á Evrópu vegna sölu-
banns Arabaríkjanna.
Fátt var látið uppskátt
eftir fundina en þó virð-
ast þeir flestir hafa snú-
ist um að marka sam-
eiginlega stefnu
Evrópulanda í málun-
um.
Utanrikisráðherrar EBE-
rikjanna héldu fund i
Kaupmannahöfn en vildu ekk-
ert segjaumhann að honum
loknum. Þó kvisaðist út að
þeir hefðu komið sér niður á
sameiginlega stefnu sem lögð
verður fyrir viðkomandi
stjórnir.
1 Paris þingaði oliunefnd
OECD en engar ákvarðanir
um aðgerðir voru teknar þar.
Þá var fundur i þingamanna-
nefnd EBE-rikjanna á sama
stað og skoraði hann á st jórnir
landanna að samræma stefnu
sina i oliumálum.
Japanir lúffa
Oliusölubann Arabarikj-
anna gagnvart Japan virðist
vera að breyta stefnu stjórn-
valda þar i landi gagnvart
Israel. Eru Japanir á hraðri
leið með að verða hinir vin-
samlegustu i garð Araba sem
stafar af þvi aö 80% af oliunni
sem Japanir kaupa kemur frá
Arabarikjunum.
Þannig setti viðskipta-
ráðherra landsins Yasuhiro
Nakasone fram beina kröfu
þess efnis að Israelar dragi
allt sitt herliö frá þeim
svæðum sem þeir hernámu i
sexdagastriðinu og kvað þá
Evrópskir stjórnmálamenn reyna nú eftir megni að dansa linu-
dans á milli Araba og israela. Hér eru þeir Brandt kanslari
Vestur-Þýskalands og efnahagsmálaráðherra hans komnir í
arabiska kufla meö Dayan-lepp fyrir augun og segja: ,,Meira
hlutleysis er ekki hægt að krefjast.”
engan rétt hafa til að hafa þar
her. Utanrikisráðherrann
Mosoyoshi Ohiras kvað vænt-
anlega á morgun yfirlýsingu
frá rikisstjórninni þar sem
lýst verði yfir fullum stuðningi
við ályktun öryggisráðs Sþ frá
árinu 1967 sem kveður á um
brottflutning Israelshers frá
„hernumdum arabiskum
svæðum”.
SAS og Nixon
Flugfélagið SAS býst við að
þurfa að draga úr umferðinni
um Kastrup-flugvöll i
Kaupmannahöfn um 10% eftir
1. desember vegna oliuskorts.
Félagið mun reyna að halda
áætlanir sinar um jólin með
þvi að spara við sig eldsneyti i
fyrri hluta desembermánað-
ar.
Nixon sem lýs hefur sig
algerlega andvigan bensin-
skömmtun er nú farinn að lita
mildari augum á bann við
akstri einkabila á sunnu-
döugm. Talsmaður Hvita
hússins kvað ekki útilokað að
forsetinn kunngeri nú alveg á
næstunni bann við sunnudaga-
keyrslu bandariskra einka-
bila.
FUNDUR í TVEIM
KJÖRHVERFUM
f KVÖLD KL. 20,30
„EKKI FYRR
EN DEILAN
ER LEYST”
Þaö er í kvöld sem Al-
þýöubandalagiö í Reykja-
vík efnir til fyrri hverva
funda Alþýöubandalagsins
þar sem f jallað verður um
stjórnmálaviðhorfiö i Ijósi
siöustu atburöa og nánustu
framtiðar og fjallaö um
borgarstjórnar-
kosníngarnar og undir-
búninginn fyrir þær.
Tveir fundir verða i kvöld. 1 Ar-
bæjar-, Laugarnes- og Langholts-
hverfi kl. 20.30 i Lindarbæ. Þar
fjallar Adda Bára Sigfúsdóttir,
borgarlulltrúi, um undirbúning
borgarstjórakosninganna, og
Kjartan Ölafsson ritsjtóri er
Jrummælandi um stjórnmálavið-
horfið.
Umræðustjóri verður Óttar
Proppé starfsmaður Alþýðu-
bandalagsins, en hann mun fyrir
hönd stjórnar Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik einnig gera
grein fyrir helstu verkefnum sem
framundan eru.
A Grettisgötu 3 hefst fundur kl.
20.30 og er hann ætlaður Mið-
Sigurjón Adda Bára
Svava Kjartan
Jón Óttar
bæjar- og Melahverfi. Þar veröa
þau Sigurjón Pétursson. borgar-
ráðsmaður,og Svava Jakopsdóttir
alþingismaður frummælendur.
Jón Hannesson, menntaskóla-
kennari, kemur á fundinn fyrir
hönd félagsstjórnarinnar i Rvik.
Stjórn Alþýðubandalagsins i
Reykjavik heitir á félaga að
mæta vel og stundvislega á
fundina.
Briissel 20/11. — Að þvi er
áreiðanlcgar heimildir I
Briissel liermdu i gær eftir
fund fulltrúa lslands og EBE
munu bandalagslöndin ekki
vcra rciöubúin að láta þann
liluta viðskiptasam nings
tslands og bandalagsins sem
varðar fiskafurðir taka gildi.
EBE mun ekki veita
islenskum fiskafurðum toll-
friðindi fyrr en landhelgis-
deilan er að fullu leyst. Bendir
bandalagið á að enn sé ósamið
i deilu Islendinga og Vestur-
Þjóðverja um landhelgina. Þá
segir i fréttaskeytinu að
Belgar eigi i útistöðum við
mörlandann en ekki vitum við
hér á blaðinu betur en að
samið hafi verið við þá um
landhelgismálin fyrir rúmu
ári.
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Árnesingar
Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Arnessýslu verður haldinn föstu-
daginn 23. nóv. kl. 20.30 i Selfossbiói.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa ræðir Garðar Sigurðsson alþingis-
maður um ástand og horfur i stjórnmálunum. — Stjórnin
Akranes
Alþýöubandalagiö á Akranesi heldur almennan fund um islenska iðn-
þróun og verkmenntun i félagsheimilinu Rein laugardaginn 24. nóv. kl.
2 e.h.
Framsögumaður verður Gunnar Guttormsson hagræðingarráðu-
nautur.
Mætir vel og stundvislega. — Stjórnin
ísafjörður:
Skýrslutöku lokið
Bæjarfógetaembættið á tsafirði
hefur lokið skýrslutöku þeirri
sem þvi var falið að framkvæma
á vestfirskum togaraskipstjórum
vegna ummæla þeirra um veru
breskra togara að veiöum innan
50 milna markanna á sama tima
og landbelgisgæslan kvað upp úr
um aðhún vissi ekkert um málið.
Við skýrslutökuna kom fram
að skipstjórum ber saman um
framburð sinn; veiðar Breta
innan 24 milna marka að 14
milum frá landi.
Sá hængur var á að skipstjórar
skráðu ekki hjá sér nöfn og númer
skipanna sem þeir stóðu að
þessum ólöglegu veiðum svo þeir
gátu ekki gefið upp nöfn og númer
landhelgisbrjótanna.
Bæjarfógetinn á tsafirði hefur
sent skýrslu þessa til dómsmála-
ráðuneytisins. -úþ