Þjóðviljinn - 23.11.1973, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.11.1973, Síða 1
Rikisstjórnin: Fellst á hækkun — Enda verði féð til framkvœmda Þjóðviljanum barst i gær fréttatilkynning frá iðnaðar- ráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur að fengnu samþykki rikis- stjórnarinnar fallist á 12% hækkun gjaldskrár Hitaveitu Reykjavikur frá 1. des. að telja cnda verði féð sem fæst viö hækkun notað til framkvæmda varðandi hitaveitu i Kópavogi.. og Hafnarfirði. Þá kemur og fram í frétta- tilkynningunni að ráðuneytiö hefur ákveöið að láta fara fram könnun á þvi hvernig unnt sé með sem skjótustum hætti að nýta innlenda orkugjafa i stað oliu til húsa- hitunar og annarra þarfa. Frétta tilky nn ing ráðu- neytisins fer hér á eftir: Iðnaðarráðherra, Magnús Kjartansson.hefur i dag ritað borgarstjóranum i Reykjavik með afriti til bæjarstjórarina i Kópavogi og Hafnarfirði, svohljóðandi bréf: A rikisstjórnarfundi i dag var rætt um oliuskort, sihækkandi verð á oliu og vandamál sem hljótast kunna af þeirri þróun fyrir tslendinga. í samræmi við ákvarðanir, sem teknar voru á fundinum, heimilar iðnaðar- ráðuneytið Hitaveitu Reykjavikur 12% hækkun á gjaldskrá sinni frá og með 1. desember 1973. Þessari hækkun er ætlað að auka framkvæmdir Hitaveitu Reykjavikur, og er hún bundin þvi skilyrði að staðið verði að fullu við þau fyrirheit um framkvæmdahraða sem hita- veitan hefur gefið bæjar- stjórnum Kópavogs og Hafnarfjarðar. Verði misbrestur á efndum þeirra fyrirheita mun iðnaðarráðu- neytið endurskoða gjaldskrá hitaveitunnar á nýjan leik. Jafnframt hefur iðnaðar- ráðuneytið ákveðið að láta framkvæma könnun á þvi hvernig unnt sé með skjótustum hætti að nýta innlenda orkugjafa i stað oliu til húshitunar og annarra þarfa. Mun könnun þessi m.a. beinast að þvi hvort ekki sé unnt að flýta hitaveitufram- kvæmdum i nágranna- byggðum Reykjavikur umfram það sem nú er fyrirhugað. Væntir iðnaðar- ráðuneytið þess að Hitaveita Reykjavikur láti i té öll gögn sem að notum mega koma i þessari könnun, þegar eftir verður leitað.” í DAG Þjóðviljinn ræðir við Olgu Guðrúnu Árnadótt- ur, Silju Aðalsteinsdótt- ur og fjórar fóstrur — sjá 4. og 5. síðu. Leikdómur um Don Juan er á síðu 7. Sparar svartolía 200 milj. á togaraflotann? Gasolía á togara myndi kosta um 320 milj. kr. á næsta ári miðað við lítrann á 11,00 kr. Opinberir aðilar reiknuðu það út á miðju þessu ári að tniðaö við þáverandi oliuvcrð og þáverandi togaraeign landsmanna myndi gasolia á togarana kosta um 160—170 milj. kr. á ársgrundvelli. Verð á litra var þá og er raunar enn 5,80 kr. hver litri. Nú er hins vegar gert ráð fyrir þvi að gasoli- an hækki i 11,00 kr. hver litri. þannig að gera mcgi ráð fyrir að verja þurfi um 320 milj. kr. til gasoliunotkunar togaraflotans á næsta ári. Þessi alvarlega staðreynd hlýt- ur að fá útgerðarmenn til þess að staldra við og athuga sinn gang, og þá er það spurningin hvort þeir snúa sér ekki að þvi af alvöru að nota svartoliu i togarana sem hef- ur raunar þegar verið reynd hér með góðum árangri. Ef svartolia væri notuð i stað gasoliu mætti áreiðanlega lækka töluna fyrir næsta ár um tvo þriðju eða 200 miljónir króna. Hér er um ótrúlega upphæð að ræða, en Þjóðviljinn hefur borið hana undir kunnáttumenn, sem telja að upphæðin sé sist of há. 1.600 tonn á ári Við spurðum útgerðaraðila i gær, hvað þeir teldu oliunotkun- ina mikla á togara. Einar Sveins- son framkvæmdastjóri Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar dró fram reikning fyrir Mal á sl. ári. Þá .kostaði brennsluolian i hann 6,3 milj. kr. Mestallt árið var litrinn af gasoliu-undir 4 krónum, hækk- Framhald á 14. siðu Svona reiður var Haukur óðalsbóndi á svipinn, en lögregluþjóninn brosti bara. Verkfallsverðirnir stóöu sina vakt meö heimspekilegri ró. Sjá baksíöu Forsœtisráðherra um rannsóknarnefnd á landhelgisgœsluna! mun ekki taka það illa upp Ég vona að allsherjarnefnd komist að þeirri niöurstööu, að ckki sé ástæða til skipunar sérstakrar rannsóknarnefndar er hún hefur kynnt sér alla málavexti. En ef allsherjarnefnd telur sig ekki geta gengið úr skugga um, hvað rétt er,og telur þörf á skipan sérstakrar rann- sóknarnefndar, þá er sjálfsagt aö hún geri tillögu um það, sem alþingi verður að meta. Ég mun ckki taka það illa upp, og min vegna má rannsóknin taka til ársins alls og miðanna hvar sem er allt i kringum landið. Ég tel að starfsmenn landhelgisgæslunnar geti gengiö kinnroðalaust undir hvaða rannsókn sem er. — Á þessa leið mælti ólafur Jóhannesson forsætisráðherra á alþingi i gær, er tillagan um skipun sérstakrar rannsóknar- nefndar vegna starfa landhelgis- gæslunnar á Vestfjarðamiðum á timabilinu frá 15. okt. s.l. kom til umræðu. Flutningsmenn tillög- unnar eru þeir Karvel Pálmason og Hannibal Valdimarsson. Karvel mælti fyrir tillögunni. Hann kvaöst vilja taka fram, aö hann teldi ekki ástæðu til að ætla, aö forsætisráðhráðherra hefði farið með rangt mál, er hann lýsti þvi yfir 22. okt. s.l., að fyrirmæli sin til landhelgisgæslunnar hefðu ekki breyst. En þar sem mjög mikið bæri á milli ásakana vest- firskra sjómanna um aðgerðar- leysi gæslunnar annars vegar og yfirlýsinga talsmanna land- helgisgæslunnar hins vegar væri skipun rannsóknarnefndar nauð- synleg til að leiða hið sanna i ljós. Jónas Arnason var meðal þeirra, sem til máls tóku. Hann lýsti stuðningi við tillöguna, en taldi að rannsóknin ætti að miðast við allan timann frá þvi fiskveiði- landhelgin var færð út og ekki vera einskorðuð við Vestfjarða- mið eingöngu. Jónas sagði, að óánægjan með landhelgisgæsluna hefði oft bitnað á áhöfnum og yfirmönnum varðskipanna, sem væri al- gerlega ómaklegt. Þeir ættu vissulega allt annað skilið en liggja undir ámæli um dugleysi og þess vegna þyrfti sann- leikurinn að koma i ljós. Það sem miður hefur farið hjá landhelgisgæslunni hefur að minni hyggju ekki heldur fyrst og fremst verið sök ráöherra, sagði Jónas, heldur annarra yfirvalda gæslunnar. En það er dreng- skapur forsætisráðherra, sem þvi veldur, að hann vill i engu skjóta sér á bak við undirmenn sina. Jónas kvaðst vilja óska for- sætisráðherra sérstaklega til landhelgisbrjóturinn verið strikaður út af skrá, og það einn allra versti þrjóturinn, Northern Sky. JSátiar frá umrœðunum á síðu 4. MOSKVU 22/11 — Helsti leiðtogi frelsishreyfingar Palestinu - manna, Jasser Arafat, er kominn til Moskvu ásamt með palestlnskri sendinefnd til við- ræðna viö sovéska leiötoga, upp- lýsti talsmaöur sovéskra yfir- valda i dag. hamingju með, að nú háfi fyrsti Enn leitað sátta Meiðyrðamál það sem dætur próf. Árna Pálssonar höfðuðu á hendur Sverri Kristjánssyni sagnfræðingi vegna ummæla i út- varpsviðtali i sumar kom ekki fyrir rétt i gær, eins og gert var ráð fyrir. Komu lögmenn beggja aðila sér saman um að biða með þing- festinguna og reyna til þrautar að ná sáttum. -vh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.