Þjóðviljinn - 23.11.1973, Page 3

Þjóðviljinn - 23.11.1973, Page 3
Föstudagur 23. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Hvar voru nú sjálf- skipaðir menningar- frömuðir tónlistar? Hvar voru allir borgararnir ^ sinfóniutónleika hvert sinn sem sem gefa sig upp sem listunnend- þeir eru haldnir i borginni? ur á miðvikudagskvöldiö var, og Qg vegna þeirrar spurningar þjónaverkfall I borginni? Vaknar hin: hvers vegna kemur Fáir þeirra sáust i það minnsta á stórkostlegum tónleikum i Austurbæjarbiói þar sem tón- listarmaðurinn og hljóðfæra- leikarinn John Hawkins og söng- konan Wilma Reading komu list sinni á framfæri við allt of fáa Is- lendinga, en húsið var ekki nema rúmlega hálffullt. Hvað er það sem gerir það aö verkum að allt að þvi eitt þúsund af þjóðflokknum islenska kemur ekki þetta fólk á tónlistarviðburð þar sem slikir ótviræðir lista- menn koma til leiks? Gæti svarið legið i skilgreiningu hégómans um æðra og óæðra? Af þessum stórmerka listavið- burði mun Andrea Jónsdóttir segja nánar i Þjóðviljanum á þriðjudag. A myndinni að ofan er Wilma Reading að ráðfæra sig við njót- endur listar sinnar. -úþ Vefnaðarvörustríð: Hver má selja hverjum? Upp er komið í Breiðholti eins konar vefnaðarvörustrið. Er þvi þann veg farið að kaupmaður einn telur sig hafa einkarétt á að seija Breiðhyltingum vcfnaðar- vöru, en um nokkurt skeið hefur kaupkona úr Vestmannaeyjum selt Breiðhyltingum þann varning. Þannig er að i Arnarbakka 2 i Breiðholti I eru margar verslanir i einu og sama húsnæðinu. Þegar skipulag að hverfinu var gert og samþykkt var ákveðið að hús- næðið yrði hólfað niður til ákveð- innar jjjónustustarfsemi sem þar ætti að fara fram. Var til að mynda úthlutað ákveðnu rúmi fyrir ákveðnar tegundir verslun- ar, svo sem nýlenduvöruverslun, annað undir skósmiðaverkstæði, næsta fyrir hárgreiðslustofu, siðan m jólkurbúð og aftur og einn koll af kolli. Þetta hefur þó riðlast töluvert. Sá sem til dæmis ætíaði að byggja skóbúð eða skóverkstæði seldi Verslunarbankanum húsnæði sitt og fleira mætti til nefna af svipuðu tagi. Eigi að siður mun lóða- samningur vera bundinn þannig að úthlutunin sé einskorðuð viö ákveðna þjónustu. Hins vegar hafa breytingar á lóðasamningn- um, eða réttara sagt brot á hon- um, til dæmis með tilkomu bankans, verið látin óátalin, enda kvartanir ekki borist. Næst gerist sá kapituli i þessari samvinnusögu frjálsra viðskipta að upp er sett hannyrðaverslun kaupkonu úr Vestmannaeyjum, Guðrúnar Loftsdóttur, en þar átti samkvæmt lóðarsamningi að vera rakarastofa. Annar við- skiptaaðili hafði hins vegar leyfi samkvæmt lóðarsamþykkt fyrir að versla með vefnaðarvöru á þessum stað, og hefur hann nú gert kröfu um að þessum verslunarrekstri verði hætt, þar eð hann telur sig hafa einkaleyfi á að versla með slikan varning við Breiðhyltinga. óljóst mun vera hvaða áhrif það hefði þó svo borgin félli ein- hliða frá öllum kvöðum varðandi lóðasamningana, en megingalli þeirra er sá, að þegar kaupmaður tryggir sér þau einkaleyfi til verslunarrekstrar á þessum stað sem fengist hafa fylgja þeim eng- ar skyldur jafnframt, þannig td., aö sá sem hefur rétt til að versla með matvöru gæti eíngöngu verið með eina tegund af matvöru, td. bjúgu eingöngu, og enginn gæti hreyft hönd né fót, þvi skyldur kaupmannsins samkvæmt lóðar- samningnum eru ekki finnanleg- ar. Nú hefur borgarráði borist undirskriftarlisti liðlega eitt þúsund manna og kvenna úr Breiðholtinu, sem fara fram á að Guðrún Loftsdóttir fá leyfi til að halda áfram kaupskap sinum þar efra, og er málið enn i athugun hjá ráðinu. -úþ Breiðholt h,f. með nýja byggingartœkni: Husið tilbúið undir tréverk á 3 vikum 25 hús byggð með þessari aðferð — höfum áhuga á stórframkvœmdum í Eyjum, segir framkvœmdastjórinn — Jú, það er rétt að við erum að ljúka við smiði steypumóta, sem við segjum að sé bylting i húsbyggingum hér á iandi, sagði Sigurður Jónsson framkvæmda- stjóri Breiðholts h/f er við rædd- um við hann i gær. — Mót þessi munu gera það mögulegt að steypa hús upp á 3 dögum og aö húsið verði tiibúiö undir tréverk á 3vikum, nema hvað þá er eftir að leggja hitalögnina. 1 byrjun næsta mánaðar munum við byrja að nota þcssi mót við byggingu 25 húsa i Mosfellssveit á vegum Við- lagasjóðs. Grunnar eru tilbúnir undir 10 hús en fram að þessu hef- ur staðið á gatnageröinni, annars værum viö byrjaðir, sagði Sigurö- — Nú stendur til að reisa 250 hús með miklum hraða i Vest- Auglýsinga síminn er17500 m f/oMirn mannaeyjum. Hefur ekki verið leitað til ykkar um að annast það verk? — Ja, það hefur ekki verið leitað til okkar formlega með þetta mál, en hinsvegar hefur það aðeins verið rætt við okkur en ég get ekki sagt að það sé komið á neitt um- ræðustig ennþá. Aftur á móti höf- um við áhuga á þessu verkefni, sem myndi henta okkur vel þar sem um raðsmiði yrði að ræða en þaö er einmitt forsendan fyrir þessari nýju tækni okkar, sagði Sigurður að lokum. Þjóðviljinn hefur frétt það eftir öðrum leiðum að Eyjamenn biði spenntir eftir þvi að sjá út- komuna á húsunum 25 i Mosfells- sveit og reynist hún góð mun ef- laust verða leitað til Breiðholts h/f með byggingu húsanna 250 i Vestmannaeyjum, enda vart annar aðili islenskur sem getur boðið uppá sama byggingarhraða og Breiðholt h/f með þessari nýju tækni. -S.dór Minni afli Súgfirðinga í ár en var í fyrra Gísli Guömundsson á Súganda gaf okkur eftir- farandi aflaskýrslu sem miðuð er við 17. nóvember, en þá voru bátarnir búnir að fara svipaðan róðra- fjölda og i fyrra. ,,Guðrún Guðleifsdóttir, 39,8 tonn i 10 róðrum, en i fyrra* 52,8 tonn i 8 róðrum. Ólafur Friðbertsson 52,1 tonn i 10 róðrum, i fyrra 75,2 i 10 róðr- um. Sigurvon 41,2 tonn i 9 róðrum, en i fyrra 74,8 tonn i 10 róðrum. Kristján Guðmundsson 57 tonn i 10 róðrum, i fyrra 77,3 tonn i 10 róðrum. Björgvin hefur bara landað hér einu sinni, 7,3 tonnum. Hann ligg- ur ennþá bilaður. Svo kom hérna nýtt tæpiega 300 lonna skip, skv. gamla málinu, i gærmorgun, Sverdrupson, þriggja og hálfs árs að aldri, norskur. Freyja á bátinn, en á hvaða veiðiskap hann fer veit ég ekki.” -úþ NORDMENDE kemur með nýja vídd í ferðasjónvarps- tœkjum „SPECTRA- DIMENSION 5" „Spectra - dimension 5". Nýja víddin í tœkni og gœðum Nóatúni sími 23800 Klapparstíg sími 19800 Akureyri sími 21630 Hœgt að setja i tvenns konar stöðu til þœginda fyrir óhorfendur Þœgilegt stjórnborð Elektróniskar sleðamótstöður tryggja betri stjórn ú mynd og hljóði „Spectra - dimension 5" er fóanlegt í fimm mismunandi litum: orange, hvítu, rauðu, grœnu og kolsvörtu I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.