Þjóðviljinn - 23.11.1973, Síða 11
Köstudagur 2:i. nóvember 197:1. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 11
Islenskur sigur
Axel og Björgvin fóru í gang og
færðu Fram sigur yfir Pancevo
ÞaO var vissulega ekki gæfulegt
útlitiö í Laugardalshöllinni i gær-
kvöld , þegar leikur Fram gegn
júgóslavneska liöinu Dynamo
Pancevo var hálfnaöur. Staöan i
leikhléi var 7-6 fyrir Júgóslava,
og liö Fram haföi valdiö von-
brigöum. En i siöari hálfleik tókst
þeim betur upp, Axel og Björgvin
náöu aö bæta skotanýtinguna og
fyrir bragðiö sigraöi Fram i
leiknum, en naumlega þó. Loka-
tölurnar urðu 17-16, eftir aö Fram
hafði náð 4 marka forskoti rétt
fyrir leikhlé. Júgóslavneska liöiö
náöi ekki aö sýna sérstaka getu,
leikmenn þess voru taugaóstyrkir
en sigur Fram var þó aldrei
öruggur.
Axel tók forystu fyrir Fram á 6.
min. með marki úr vitakasti, en
áður höfðu Framarar farið illa
með mörg ágæt tækifæri, t.d. átti
Björgvin 3 mjög góö marktæki-
færistrax i byrjun. Júgóslavarnir
komust siðan i þriggja marka
forskot, 6-3 á 20. min. fyrri hálf-
leiks, en i leikhléi var staðan 7-6
fyrir Pancevo.
Útlitið var óneitanlega fremur
dökkt, e.t.v. ekki vegna þess að
Fram var undir i markatölu,
heldur vegna þess að liðið hafði
misnotað illilega ágæt tækifæri og
þar af leiðandi valdið von-
brigðum. Sérstaklega höfðu þeir
Axel og Björgvin átt slakan leik,
þ.e. skotanýting var léleg.
En i siðari hálfleik mætti
Framliðið ákveðið til leiks og tók
strax afgerandi forystu, t.d. 15 —
10 er 7 minútur voru eftir. En þá
sigu Júgóslavar aftur á, og er
tæplega 2 min. voru eftir var
aðeins 1 marks munur og Fram i
vörninni. Staðan var 16 — 15, en
Björgvin skoraði 17 — 15 og
islenskur sigur var i höfn. Rétt
fyrir leikslok skoraði Pancevo
liðið siðasta mark leiksins: loka-
tölurnar urðu 17-16.
Einn maður var öðrum
áberandi betri i Framliðinu. Það
var Guðjón Erlendsson, sem
varði oft stórkostlega i siðari
hálfleik, m.a. 2 vitaköst i röð.
Honum er öðrum fremur að
þakka sigur Fram i þessum leik.
Hjá Júgóslavneska liðinu var
aðeins einn maður áberandi. Það
var fyrirliðinn Kristic Milan, sem
bar uppi allan leik liðsins og
skoraði sjálfur 3 mörk.
-gsp
Valur tarsaði fyrir FH ííolandstnsistaranótinu
í handknattleik suöur í Hafnarfiröi i gœrkbeldi
meö 23 mörkum á sig fengnum gegn aöeins 16 skoruö-
um,
Jafntefli varð hjá Haukum og pór frá Akuroyri,
P.2.122.
Trimm-ljósmyndasamkeppni framlengd
A s.l. vori efndi Trimm-nefnd
ÍSÍ til ljósmyndasamkeppni, i
samstarfi við Ljósmyndarafélag
Islands, sem einn liö i þvi að auka
skilning og glæða áhuga meðal al-
mennings á nauösyn þess að
trimma, sjálfum sér til likam-
legrar og andlegrar uppbygging-
ar. Myndirnar máttu vera frá
hvers kyns útilifi og iþróttum og
öllum heimil þátttaka, en vitað er
að stór hópur fólks hefur þaö sem
tómstundaiðju að fást við mynda-
tökur og tilheyrandi starfsemi.
Fyrir nokkru rann út skilafrest-
ur, en þátttaka varð ekki eins
mikil og vænta mátti.
Hefur þvi veriö ákveðiö aö
framlengja ljós m y nd as am -
keppna, og er skilafrestur til 15.
febrúar 1974.
Hverjum einstakiingi er heimilt
að senda 5 svart/hvitar myndir,
og mega þær vera i stærðunum
frá 13x18 cm upp i 30x40 cm og
skulu upplimdar á pappaspjald.
Einnig má hver einstaklingur
senda 5 litskuggamyndir, og
verða þær að vera innrammaðar i
5x5 cm eða 7x7 cm ramma.
Allar myndir skulu merktar
dulnefni, og i umslagi merktu
sama dulnefni skai vera nafn,
heimilisfang og simi viðkomandi
aðila. Myndirnar á að senda til
skrifstofu fSÍ i Laugardal, merkt-
ar „Ljósmyndasamkeppni”.
Landskeppni við
Finna næsta ár
Arsþing Golfsambands is-
lands var haldiö um siöustu
heigi, þar sem mættir voru 30
fulltrúar frá flestum golfklúbb-
uni landsins. A þinginu var rætt
um Noröurlandamótiö í golfi
sem fram fer hér á landi næsta
sumar eins og Þjóöviljinn hefur
eitt blaða skýrt frá.
i sambandi viö þetta Norður-
landamót er fyrirhugað aö
heyja landskeppni i golfi viö
Finna hér á landi og þá senni-
lcga áður en NM hefst.
Einnig hefur veriö reynt aö fá
landskeppni i golfi við Tékka,
Austurrikismenn og Lúxem-
búrgarmenn. Eru þau mál enn
til athugunar.
A þinginu kom fram aö fjár-
hagur GSÍ er all-góöur endaþótt
meira væri um að vera hjá golf-
mönnum sl. ár en nokkru sinni
fyrr. 'A þinginu var rætt um
kaup á dýrum vélum til viðhalds
vallanna i landinu, og yröu þessi
tæki þá sameign klúbbanna.
A þinginu var ákvcöiö aö
skipa nokkrar nefndir til að
létta störf stjórnarmanna, og
einnig til aö veita aöstoö meö
ýmislegt til golfklúbbanna. Búið
cr að skipa i þessar nefndir, og
eiga þar sæti eftirtaldir menn:
Landsliösnefnd GSL..Jóhann
Eyjólfsson, Jón Thorlacius,
Haukur V. Guömundsson.
únglinganefnd GSt....Þor-
björn Kjæbo, Kjartan L. Páls-
son, Konráö Bjarnason.
Kennslunefnd GSt.... Haf-
steinn Þorgcirsson, Viðar
Þorsteinsson, Sigurður Alberts-
s.
Kappleikjanefnd GSÍ...Þor-
geir Þorsteinsson, Einar
Guðnason, Július R. Júliusson.
SSS og Forgjafancfnd GSl..
Halldór Sigmundsson, ólafur
Tryggvason, Ólafur Bjarki
Ragnarsson.
t stjórn Golfsambands islands
til næsta árs voru kosnir: Páll
Asgeir Tryggvason, ólafur
Tómasson, Konráö Bjarnason,
Kristján Einarsson, Sigurfinnur
Sigurösson. t varastjórn voru
kosnir: Jóil Július Sigurösson,
Björgvin Þorsteinsson og Þor-
steinn Þorvaldsson.
Axel skorar hér eitt af sfnum 6 mörkum.
Reykjavíkurmóti
í körfu er lokið
Reykjavikurmótinu i körfu-
knattleik er nú cndanlcga lokiö.
Fóru slðustu lcikirnir fram i vik-
unni scm leið. 27 lið tóku þátt i
mótinu frá 6 félögum, og fara úr-
slitin hér á eftir. Úrslit leikja I
mfl. karla hafa þegar verið birt,
en þar sigraði K.R. með yfirburð-
um og tapaði engum leik.
t mfl. kvenna og 2. fl kvenna voru
aöeins 2 lið og voru leikirnir þvi
hreinir úrslitateikir: <
mfl. t.R. — K.R. 24 — 15 sigurv.
t.R.
2. f 1. K.R. — Fram 17 — 10
sigurv. K.R. Karlafiokkar: .2? o
1. fl. U't, — <n -j) - —
Valur 3 0 6 94 _ 75
Armann 2 1 4 144 - 112
K.R 1 1 1 72 — 75
t.R. 0 3 0 127 — 165
2. fl. Armann 3 1 6 206 — 191
Vatur 3 1 6 172 — 150
t.R. 2 2 4 89 _ 88
Framhald á 14. siðu
Unglingasundmót
Ægis háð 2. des.
Hiö árlega unglingamót Ægis verður haldið i sundhöllinni sunnudag-
ínn 2. des. kl. 3. Keppt veröur i eftirtöldum greinum og i þeirri röð sem
hér segir:
100 m flugsund sveina fæddra 1959 og síðar
50. m skriösund telpna fæddra 1961 og siöar
50. m skriösund sveina fæddra 1961 og siöar
200 m. bringusund drengja fæddra 1957 og slöar
50 m flugsund telpna fæddra 1959 og siöar
100 m baksund sveina fæddra 1959 og siöar
50 m bringusund telpna fæddra 1961 og siöar
50 m flugsund sveina fæddra 1961 og slöar
9. 4x50 m bringusund telpna fæddra 1959 og sföar
10.4x100 m skriðsund sveina fæddra 1959 og síöar
Þátttökutilkynningar berist i siðasta lagi föstudaginn 30. nóvember á
þar til geröum timavarðarkortum, ásamt skráningargjaldi 25 kr fyrir
hverja skráningu. Halldór Kolbeinsson Granaskjóli 17 eöa Irmy Toft
Baldursgötu 39 simi 19456.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON