Þjóðviljinn - 23.11.1973, Page 16

Þjóðviljinn - 23.11.1973, Page 16
DJOÐVIUINN Föstudagur 23. nóvember 1973. Álmennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefr-"- r simsvara Læknafélags Reykja vikur, sfmi 18888. Kvöldsími blaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. : Kvöld, - nætur, - og helga - þjónusta apótekanna 23. — 29. nóvember verður i Ingólfsapóteki og Laugarnesapóteki. Slysavarðstofa Borgarspítalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á Heiisuverndarstöðinni. Simi 21230. Deila þjóna og Óðalsbœnda Þjónar réttinn hafa sín megin — Það er i sjálfu sér ekkert nýtl aö óöalsbændur sýni vinnandi fólki yfirgang þegar það leitar réttar sins, en okkur er sama hvaö llaukur hamast, hann hefur ekkert uppúr þvi ncma crfiöið, við hleypum engum inn i húsið og við það situr, sögðu þjón- ar sem voru á vcrkfallsvakt við inngang veitingahússins élðals i hádeginu i gær. Rétturinn cr okkar mcginn, bættu þeir við. Það voru ekki mikil læti við húsið i hádeginu i gær þegar okk- ur bar að. Aðeins 4 höfðu sloppið inn áður en verkfallsverðir komu, en eftir það fór enginn inni húsið. Haukur óðalsbóndi kallaði á lög- regluna sem kom og brosti framan i hann, þar sem hann stóð i dyrunum fölur og titrandi og óskaði eftir þvi að lögreglan sæi til þess að gestum staðarins væri ekki meinuð innganga, en auð- vitað gerði lögreglan ekki neitt, rétturinn er þjónanna. — Þaö er rétt, sögðu þjónarnir sem við ræddum við, aö kröfur okkar eru um 40% en eru ekki öll verkalýösfélög með svipaðar kröfur nú'.' Það er sagt að kaup okkar sé hátt. Vissulega hafa ein- staka þjónar, einkum þeir sem vinna þar sem mikið er selt af mat, góð laun, en hver er vinnu- dagurinn og vinnutiminn? Við höfum ekki hærri laun en iðnaðarmenn i uppmælingu, en mundu þeir samþykkja að hafa Sjömannanefnd. in á fundi með fulltrúum stjórnvalda Sjömannanefnd ASl var á fundi i gær með fulltrúum rikisstjórnarinnar ásamt með formönnum starfsnefnda ASt um húsnæðis- og skattamál. A prjónunum er að fulltrúar atvinnurekenda tali við full- trúa rikisvaldsins i dag. Fundur verður i 30 manna nefnd ASt á mánudag klukkan tvö og aftur með 30 manna nefnd Vinnuveitendasam- bandsins klukkan 4 þann sama dag. -úþ þessi laun fyrir nær eintóma næturvinnu? Varla. Svo mega menn heldur ekki gleyma þvi að meirihluti þjóna vinnur i húsum sem nær eingöngu selja áfengi, litinn sem engan mat. Þeirra kaup þætti ekki hátt á almennum vinnumarkaði eftir að það hefur verið skert um 11%, eins og gert hefur verið, sögðu þjónarnir. En hver er þá réttur þjónanna i verkfallsvörslu sinni við Óðal?' Við lögðum þá spurningu fyrir Egil Sigurgeirsson lögfræðing ASt. — Egill sagði: t 18. grein vinnulöggjafarinnar er ákvæði sem segir að ekki megi afstýra eða reyna að afstýra verkfalli með aðstoð fólks, sem er i þvi sambandi sem viðkomandi verk- fallsfélag er i. Þess vegna er óheimilt að afstýra eöa aö reyna að afstýra verkfalli með þvi að fá aðstoð fólks sem er innan ASt. Auk þess er til dómur félagsdóms um aö félög innan ASt mega ekki yfirtaka vinnu manna sem eru i verkfalli. — Nú er um að ræða eigendur hússins, sem eru ófaglærðir þjónar. Mega þeir ganga um beina? — Þessir menn munu vera mat- reiðslumenn og það er ekki ætlast til að matreiðslumenn gangi um beina.— Hafa þá þjónarnir ekki lögin sin megin i þessu máli? — Við höfum alltaf litið þannig á að óheimilt sé að ganga inni störf þeirra sem i verkfalli eru. Hins- vegar eru lögin svo margbreyti- leg að ekki er hægt að segja að þau séu alveg skýr i svona tilfelli. Nú munu eigendur hússins hafa kært framkomu þjóna og benda á að þeir megi vinna af þvi að þeir séu eigendur. Verkalýðs- hreyfingin hefur aldrei léð máls á eða viðurkennt þetta sjónarmið og hefur aldrei fallist á að hægt sé að brjóta verkfall á bak aftur með ' vinnu annarra manna. Atvinnu- rekendur hafa oft reynt þetta áður en verkalýðshrey fingin hefur alltaf stöðvað það og oft hafa þau viðbrögð verkalýðs- hreyfingarinnar verið kærð og klöguð en það hefur aldrei verið dæmt i slikum málum, þau hafa verið látin niður falla og verk- fallsvarsla viðkomandi verka- lýðsfélaga verið látin óátalin. S.dór Breiðholtsleið: Komið * i veg fyrir umfe rðarhnúta Tillaga Sigurjóns Péturssonar í borgarráði Sigurjón Pétursson, borgar- ráðsmaður, lagði til f borgar- ráði að gerðar yrðu ráð- stafanir til þess að leysa úr þeim umferðarhnútum sem óneitanlega skapast á Breið- holtsleiðinni og oft á tiðum valda löngum töfum veg- farenda og eru um leið slysa- gildrur. Eins og fólki er kunnugt er aðeins um að ræða eina leið fyrir umferð i Breiðholtið sé að þvi komið úr borginni, þe. leiðin gegn um Blesugrófina. Inn á þessa aðveituleið liggja þrjár tengigötur, Bústaöavegur, Vatnsveitu- vegur og Smiðjuvegur úr Kópavogi. Reyndar mun vegurinn i gegn um Blesu- grófina og i Breiðholtið heita Reykjanesbraut. Ef bill er að koma ofan úr Breiðholti og ætlar að beygja inn á Bústaðaveg kemst hann ekki þvert yfir akbrautina, sé um einhverja umferð að ræða á leið i Breiðholtið, og um leið stöðvarhann alla umferð fyrir ofan sig. Það sama skeður ef bill er á leið upp i Breiðholt og ætlar að beygja inn á Vatns- veituveg, en þá stöðvar hann alla umferð fyrir neðan sig. Þannig myndast oft á tiðum talsverðir umferðarhnútar. Tillaga Sigurjóns til lausnar þessu er svohljóðandi: „Borgarráð samþykkir að fela gatnamálastjóra að géra svo fljótt sem aðstæður leyfa útskot á Reykjanesbraut á móts við Bústaðaveg. Þá samþykkir borgarráð einnig að fela gatnamálastjóra að athuga hvort þörf er að gera útskot á Reykjanesbraut á móts við Vatnsveituveg og við tengingu milli Reykjanes- brautar og Smiðjuvegs.” Tillaga Sigurjóns var ekki afgreidd þar sem hún var lögð fram á fundinum en ekki fyrir hann, en hlaut samt sem áður jákvæðar undirtektir, og þegar blaðið innti Sigurjón eftir þvi hvað hann héldi um framgang málsins, sagðist hann búast við að þetta yrði framkvæmt innan skamms tima. —úþ Krafist þjóðstjórnar Grikklandi í Hundruð manna sennilega drepin í tækniháskólanum AÞENU 22/11 — Skrið- drekar hurfu á brott úr Aþenu i dag, en her- menn gráir fyrir járnum standa ennþá vörð við opinberar byggingar. Herinn virðist stöðugt herða tökin i landinu, og herforingjar eru teknir að ritskoða blöðin. Eftir að skriðdrekarnir voru á brott tók griski kommúnista- flokkurinn, sem er bannaður, undir þá kröfu hægrisinnaðra og milliflokksstjórnmálamanna að mynduð verði þjóðstjórn á breið- um grundvelli. Kommúnista- flokkurinn krefst þess einnig er herlögin verði numin úr gildi og sleppt úr haldi öllum þeim, sem ennþá sitja i fangelsi eftir óeirðirnar. Að minnsta kosti tvö hundruð manns særðust er her og lögregla réðust gegn mótmælendum i verkfræðiháskólanum i Aþenu um siðustu helgi, og hundruð manna voru handtekin. Til- kynningar stjórnarinnar herma að þrettán manns hafi látið lifið, en talið er vist að þeir drepnu séu miklu fleiri, jafnvel að þeir skipti hundruðum. Ritskoðarar hersins bönnuðu i dag timaritið Politika Pemata, sem hafði gagnrýnt stjórnina talsvert. 1 siðasta tölublaði ritsins voru margar greinar, sem studdu kröfur stúdentanna. EBE-ráðið ræddi ástandiö i Grikklandi á fundi i dag, en ekki náöist neitt samkomulag um nýj- ar aðgerðir gegn grisku stjórninni i þeim tilgangi að knýja hana til að draga úr ógnunum. Feisal: BEITUM OLÍUNNI UNS MEGINKRÖFUM ER FULLNÆGT KAIRÓ 22/11 — Feisal konungur i Saúdi—Arabiu lýsti þvi yfir í dag að hann myndi ekki láta af þvi að beita oliuvopninu fyrr en Arabar hefðu fengið fullnægt ölluni meginkröfum sinum varðandi framtiðarskipan i Austurlöndum nær. Þær kröfur eru fyrst og fremst að ísraelsmenn skili hernumdu svæðunum frá i sexdagastriðinu, Palestinumenn fái sjálfsákvörðunarrétt og að Arabar endurheimti réttindi sin viðvikjandi Jerúsalem. Þangað til þessum kröfum hefur verið fullnægt, sagði Feisal við egypska blaðið A1 Gomhúria, munum við halda áfram fullu oliubanni á sum lönd en draga úr útflutningnum til annarra. Segist kóngur ekki hafa farið i neina Framhald á 14. siðu. Athugasemd Sigurður Magnússon, forstjóri Ferðaskrifstofu rikisins, bað okkur fyrir eftirfarandi athuga- semd við frétt um lokun hótelsins á Akranesi er birtist i Þjóðviljan- um á miðvikudag. 21. nóv. hefur Þjóðviljinn það eftir Óla Ólasyni, fyrrum hótel- stjóra á Akranesi, að ein af skýr- ingum tapreksturs hans sé að finna i þvi, eins og hann orðar það, „þar að auki taka sumar- hótelin af okkur mesta bissnes- inn.” Ef Óli á hér við Edduhótelin, þá hallar hann hér réttu máli, gegn betri vitund, þar sem ég skýrði honum, og öðrum ráðstefnugest- um á Egilsstöðum^rá þvi 29. sept. sl„ að undanfarin tvö ár hefðu Edduhótelin verið rekin með miklum halla, og sterkar likur bentu til, að reikningsskil yfir- standandi árs myndu leiöa i ljós að hallarekstur sl. sumars yrði meiri en árið 1972, en þá reyndist hann nema einni miljón króna. Vegna þessa er mér óskiljan- legt, að Óla Ólasyni,eða öðrum ágætum veitingamönnum, mundi verða það mikil búbót að þurfa einnig að standa undir halla- rekstri Edduhóteianna til ábætis öðrum þeim byrðum sem hafa nú, þvi miður, reynst Óla allt of þungar uppi á Akranesi. —úþ Viðræðum Þjóðverja er lokið í bili Viðræðum Islendinga og Vest- ur-Þjóðverja lauk i Reykjavik i gær. Embættismenn tóku þátt i þessum viðræðum af hálfu beggja aðila og var einkum fjallað um veiðihlólf og veiðitimabil ef til samninga kemur milli aðila um fiskveiðari islensku landhelginni. Gert er ráð fyrir að siðar fari fram viðræður milli ráðherra landanna og fari þær fram i Bonn. Blaðberar # óskast nú þegar i eftir talin hverfi: Laugaveg Seltjarnarnes NÖkkvavog Þingholtsstræti Hverfisgötu Hjarðarhaga Tjarnargötu Hafið samband við af- greiðslu Þióðviljans i simum 17500 eða 17512. L/j l U1 u

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.