Þjóðviljinn - 24.11.1973, Qupperneq 5
Laugardagur 24. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
VERKALÝÐSHREYFING OG SÓSÍALISMI
Fræðslufundur á veg-
um Alþýðubandalagsins
Sýning
Jóhanns í
Keflavík
Góð aðsókn hefur verið að
málverkasýningu Jóhanns G.
Jóhannssonar i Iðnaðar-
mannahúsinu i Keflavik, en
sýningin var opnuð um siðustu
helgi. Um helmingur mynd-
anna á sýningunni hefur þegar
selst og um 700 manns hafa
komið á sýninguna.
Nú um helgina eru siðustu
forvöð að sjá sýningu Jó-
hanns. Hún verður opin kl.
4—10 s.d. i dag og á morgun og
lýkur annaö kvöld.
Athugasemd:
Gott bókasafn
á elliheimil-
inu Grund
Alfreð Gislason læknir hafði
samband við blaðið og bað það að
koma á framfæri athugasemd
vegna ummæla borgarstjóra i
Morgunblaðinu um bókasafns-
þjónustu við aldraða, öryrkja og
blinda. Alfreð sagði, að á elli-
heimilinu Grund væri um 5000
binda safn fyrir utan timarit, og
þar störfuðu að jafnaði þrir bóka-
verðir og einn maður, sem bindur
inn bækur, svo að það er langt frá
þvi að gamla fólkið á Grund sé af-
skipt á þessum vettvangi.
Wilma Keading og John Hawkins.
Aðrir tónleikar
með Wilmu,
Hawkins og 18
manna
hljómsveit FÍH
Söngkonan Wilma Reading,
hljóðfæraleikarinn og stjórnand-
inn John Hawkins og 18 manna
hljómsveit Félags islenskra
hljóðfæraleikara munu halda
aðra tónleika og að þessu sinni við
betri skilyrði en Austurbæjarbió
býður upp á. Nú munu þau leika i
Háskólabiói, annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, klukkan 23:30.
Tónleikar þessir verða teknir
upp af sjónvarpinu.
—úþ
Siðastliðið miðvikudagskvöld
var haldinn i risinu á Grettisgötu
3 fvrsti fundur náinshóps um sögu
islenskrar verkalýðshreyfingar
og sósialisma undir ieiðsögn
Kinars Olgeirssonar. Einar
Ijallaði um fyrstu ár verkalýðs-
hreyfingarinnar á islandi. arf
vinnandi stétta og þá hugsjóna-
strauma er bárust hingað frá
útlöndum i lok siðustu aldar.
Nú cr l’jóðhátiðarnefnd að
scnda út á markaðinn þrjá vegg-
skildi eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur
listakonu. Illaut Sigrún fyrstu og
einu verðlaunin i samkeppni um
gerð skjaldanna sem haldin var á
vegum nefndarinnar.
Veggskildirnir eru framleiddir
úr postulini hjá hinu þekkta
danska listmunafyrirtæki Bing og
Gröndahl. Eru þeir gerðir með
nýrri tækni sem fyrirtækið
hefur ekki reynt áður en tókst
mjög vel. Tveir skjaldanna eru
Um 20 manns voru á þessum
fyrsta fundi og vár mikill áhugi
rikjandi hjá fundarmönnum.
Rétt er að vekja athygli á þvi,
að námshópurinn er siður en svo
lokaður. beir, sem ekki gátu
komið þvi við að mæta á siöasta
fundi. eru velkomnir á næstu
fundi.
Um það bil tólf fundir verða
haldnir i vetur og verður saga
með áletruninni Island 874-1974 en
sá þriðji með Landnám 874-1974.
Sigrún fór út til Danmerkur
fyrir uþb. ári og vann alla undir-
búningsvinnu að gerð skjaldanna
isamráðivið verksmiðjuna. Urðu
stjórnendur hennar svo hrifnir af
handbragði listakonunnar á
skjöldunum aö þeir réðu hana til
að gera fyrirmyndir að þeirra
eigin söluframleiðslu.
Verð skjaldanna þriggja er kr.
7.205 en þeir verða ekki seldir
hver um sig heldur einungis i
islenskrar verkalýðshreyfingar
rakin i réttri timaröð. Fundir
verða alltaf i risinu á Grettisgötu
3, á miðvikudagskvöldum kl.
20.30.
A næsta fundi mun Einar fjalla
um timabilið 1901 — 1916, og e.t.v.
verða tekin til frekari athugunar
ýmis atriði i sögu verkalýðs-
hreyfingarinn.ar i lok siðustu
Framhald á 14. siðu
settum. Utan um þá er sérstakur
gjafakassi. Skjöldunum er dreift
af O. Johnson og Kaaber og Sam-
bandinu en bjóðhátiðarnefnd
hefur samið við þessa aöila um
dreifingu á öllum minjagripunum
sem hún lætur gera. -bH
Aukasýning á
Elliheimilinu
Vegna mikillar aösóknar verð-
ur höfð aukasýning á leikritinu
Elliheimilinu kl. 15 i Lindarbæ i
dag. Leikurinn hefur nú verið
sýndur 18 sinnum við ágæta að-
sókn.
öreigar, inynd Kinars Jónssonar.
Mannleg
náttúra
undir Jökli
Komin er út hjá Erni og örlygi
inannlifssaga bórðar llalddórs-
sonar frá Dagverðará.
Hefaskyttan, list málarinn,
skáldiðog sagnaþulurinn, bórður
frá Iíagverðará, er löngu lands-
kuniiur inaður, enda gnæfir hann
upp úr liópi siima saniferða-
nianna og sésl langt að eins og
sjálfur Jökullinn.
„Undir Jökli verður enginn
vændur um ósannsögli”, segir
bórður frá Dagverðará, ,,þvi að
þar getur enginn sagt frá neinu
svo óvcnjulegu eða ósennilegu, að
það hafi ekki gerst þar eða eigi
el'tir að gerast. bar segja þeir
einir ósatt, sem láta sér það um
munn lara, að Jökullinn sé eins og
hver annar jökuli og mannlif þar
eins og hvarvelna annars
staðar”. ()g hið sama gildir um
bórð. Um hann segir sá ósatt sem
lælur sémnLjnunn fara að hann
sé eins og hver annar venjulegur
maður.
l>að er Loftur Guðmundsson,
rithöl'undur, sem færir minningar
bórar i letur.
Ekki spillir bókinni að hinn
kunni listamaður, Ragnar
Kjartansson, myndskreytir hana,
en Ragnar er alinn upp undir
Jökli og nauðaþekkir sögusviðið.
bess má til gamans geta, að einn
þeirra sem kemur mikið við sögu
hjá bórði er einmitt faðir
Itagnars, séra Kjatan
Kjatansson, hugvitsmaður og
þúsundþjalasmiður.
Ríkisstofnan-
ir út á land?
éllafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra svaraði á alþingi á mið-
vikudag fyrirspurn frá Magnúsi
Jónssyni um staösetningu opin-
berra stofnana.
Forsætisráðherra las greinar-
gerð frá formanni nefndar þeirr-
ar, sem falið hefur verið að at-
huga möguleika á að flytja ein-
stakar opinberar stofnanir að ein-
hverju eða öllu leyti út á land.
Formaður nefndarinnar er dr.
Ólafur Ragnar Grimsson.
bað kom fram aö nefndin hefur
komið sér niöur á ákveðin atriði,
sem leggja verður til grundvallar
i þessu sambandi, og framkvæm-
ir nú umfangsmikla athugun á 150
rikisstofnunum, hvað staðsetn-
ingarmál varðar.
Nú þegar hefur verið rætt við
100 forstöðumenn stofnana og afl-
að gagna, og tekin hefur verið af-
staða af nefndarinnar hálfu varð-
andi 50 þessara stofnana.
Áformað er að nefndin skili tillög-
um sinum i febrúar n.k.
Rætt hefur verið um möguleika
á útibúum ýmissa opinberra
stofnana úti um land.
FURÐUSAGA ÚR BÓKAVERSLUN
600 kr. verðmunur
á sömu eldgosbók
Eins og menn vita er
margt kyndugt í verö-
lagningu bóka. En eitt
sérlega fátitt dæmi
blasir viö i bóka-
verslunum þessa daga:
ein og sama bókin
kostar ýmist 1582 kr. eða
995 kr.
Bókin er gefin út hérlendis:
Eldgosið I Vestmannaeyjum,
eftir Árna Gunnarsson frétta-
•mann, prýdd mörgun
myndum, flestum i lit. Eini
munurinn sem sjáanlegur er á
bókum, sem hafa svo misjafnt
verðlag, er að bók meö
enskum texta kostar 995
krónur, en bók með islenskum
texta 1582.
Nú skal þess að visu getið að
enska útgáfan kom nokkru
fyrr. En á hitt er að lita, aö
kostnaður vegna mynda sem
er mjög mikill i slíkri bók,
hlýtur að vera hinn sami fyrir
báðar útgáfur, og auk þess
fylgir þvi kostnaður að þýða
texta Árna yfir á ensku.
Nema að bókin hafi verið
þýdd úr ensku, eða hvað?
1 eina bókaverslun kom á
dögunum roskin kona, ættuð
úr Vestmannaeyjum, og
langaði i þessa bók. Hún velti
báðum útgáfum fyrir sér um
stund, en ákvaö svo að taka þá
ódýrari, enda þótt hún kynni
ekki ensku. Myndirnar eru
þær sömu, sagði hún.
Gjafakassinn meö veggskjöldunum þremur eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur.
Þjóðhátíðarnefnd:
Sendi frá sér þrjá
veggskildi