Þjóðviljinn - 24.11.1973, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.11.1973, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember I!)73. MODVIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Ótgefandi: tJtgófufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverð kr. 360.00 á mánuði Lausasöluverð kr. 22.00 Prentun: Blaðaprent h.f. ÞJÓÐNf TING OLÍUDREIFINGAR ER DAGSKRÁRMÁL Á undanförnum áratugum hafa alltaf af og til sprottið upp ofstækisfyllstu stuðningsmenn ihaldsins og krafist þess að Islendingar létu af öllum viðskiptum við Sovétrikin. Þegar Bjarni Benediktsson beitti sér fyrir auknum viðskiptum við Sovétrikin i framhaldi af verslunarbanni Breta 1952 vakti sú ákvörðun óánægju meðal margra ihaldsmanna, ekki sist þeirra sem hallastir voru undir Atlans- hafsbandalagið og McCarthyisman en eins og rakið var hér i blaðinu fyrir nokkr- um misserum var starfandi sérstök nefnd til þess að koma i veg fyrir viðskipti við Sovétrikin, á þessum árum. En núorðið hafa þessar raddir hljóðnað, enda hafa is- lenskir peningamenn vit á þvi, sumir hverjir að minnsta kosti, að láta sig pólitik engu varða þegar peningavon er annars vegar. Þessum viðskiptum við Sovétrikin er það að þakka að við höfum nú i dag ein- ir Vestur-Evrópuþjóða nægilega oliu i bili til okkar þarfa, en ekki þó svo mikla að ástæða sé til þess að bruðla með þennan verðmæta hitagjafa. 1 ljósi þeirra vandamála, sem komið hafa upp i orkumálum heimsins, hefur iðnaðarráðuneytið ákveðið að láta fram fara sérstaka athugun á þvi hvernig inn- lendir orkugjafar geti komið i stað inn fluttra. Virðist liggja beint við að gera sérstakar ráðstafanir til þess að hraða þvi að innlendir hitagjafar verði notaðir til húsahitunar alveg sérstaklega. íslending- ar eru svo heppnir að eiga einstakar auð- lindir sem eru i sifelldri endurnýjun og mega menn nú minnast þess með létti, að viðreisnarstjórninni tókst ekki að selja orkulindir okkar á spottprisum meðan veldi hennar stóð i þessu landi. En vegna oliuvandamálanna i heimin- um hljóta íslendingar einnig að veita þvi HVER TEKUR VÖLDIN í ÚTVARPINU? Ofsalegar árásir afturhaldsins á ein- staka flytjendur efnis i Rikisútvarpinu hafa nú náð hámarki. Árásirnar beinast ekki eingöngu efnislega að þvi sem flutt er sérstaklega heldur að flytjendunum sjálf- um. 1 þvi efni er beitt einskæru persónu- niði sem á sér engan sinn lika i siðari tima blaðamennsku á Islandi. Og nú er það spurningin: Tekur ihaldið enn völdin i út- varpinu? Verður afstöðu réttkjörinnar forustu útvarpsins ýtt til hliðar fyrir afturhaldssjónarmið þeirra sem skipa valdastöður i útvarpinu? Verður látið undan þrýstingnum? íhladið hefur á undanförnum árum vikið hverjum manninum á fætur öðrum frá útvarpinu. Má i þvi sambandi nefna — af handa- hófi — Jónas Árnason, Magnús Torfa Ólafsson, Ólaf Ragnar Grimsson, Olgu Guðrúnu Árnadóttur og ótal marga fleiri. Ef útvarpsráð vill halda virðingu sinni verður það nú að spyrna við fótum. Það er til marks um ósvifni ihaldsins i útvarpsmálum að launaður starfsmaður NATO á íslandi er annar fulltrúi þess i út- varpsráði, hinn er starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður. Sá sérstaka og aukna athygli, að hér er bein- linis bruðlað með innfluttan orkugjafa, oliuna. Hér eru starfandi þrjú oliufélög sem dreifa sömu oliunni um lands- byggðina. Vitt um land má sjá fáránlega samkeppni þessara félaga og jafnframt auðhringa- og einokunaraðferðir þeirra við verðlagningu. Talsmenn oliufélaganna hafa sjálfir viðurkennt að forsenda þess, að hér séu þrjú oliufélög, sé sú, að þau geti haft samkeppni um mismunandi þjónustu; að hlutverk þeirra sé það eitt að keppa hvert við annað að koma oliunni út. Nú er það augljósara en nokkru sinni fyrr að þetta siðasta vigi oliuauðvaldsins islenska er fallið. Þar með liggur beint við að nú taki rikið við allri oliusölu og oliu- dreifingu innanlands, enda er það rikið sem tryggir landinu oliu með samningun- um við Sovétrikin. Þjóðnýting oliu- dreifingarinnar á Islandi er dagskrármál nú fremur en nokkru sinni fyrr. fyrrnefndi hefur þá iðju að skrifa lesenda- bréf undir aðskiljanlegum dulnefnum i lesendadálka Morgunblaðsins. Með viga- ferlum úr launsátri hefur honum orðið furðumikið ágengt enda þótt hann sé jafnan i minnihluta i útvarpsráði sjálfu. 1 sögu þeirri sem Olga Guðrún Árna- dóttir les i útvarpinu um þessar mundir er frá þvi sagt er börn tóku völdin á barna- heimili. Spurning dagsins er sú: Hver tek ur völdin i útvarpinu-verður það ihaldið og handlangarar þess,-eða réttkjörnir yfirmenn útvarps? Umrœður um bónus í Þjóöviljanum á sunnudaginn var birtist viðtal við forstöðu- menn ráðgjafarfyrirtækisins Rekstarstækni s.f. um störf þeirra að undirbúningi og gerð bónuskerfis i frystihúsum. Einnig ritaði einn blaðamanna hugleið- ingarum bónusmái almennt. Þær vill hagræðingarráðunautur Vinnuveitendasambandsins, Agúst II. Eliasson, leiðrétta, og er' það velkomið. Agúst er forstöðu- maður tæknideiidar Vinnuveit- endasambandsins. Grein Agústs fer hcr á eftir, cn fyrirsögn henn- ar er: Bónusleiðrétting t greinarkorni Hjalta Krist- geirssonar i Þjóðviljanum þann 18. nóvember segir hann m.a.:,J staðli Alþjóða Vinnumálasam- bandsins um ákvæðisvinnu eru 100% sett við þau afköst, sem menn ná án hvata launakerfis, þ.e. sambærilegt 67% hér". Þar sem i þessu felst nokkur misskilningur þótti undirrituðum réttaðskýra frá staðreyndunum i málinu. Til þess að hægt sé að bera saman afkastakröfur, sem ILO (Alþjóða Vinnumálasambandið) mælir með og þær afkastakröfur, sem bónuskerfið i fiskiðnaðinum byggist á verður fyrst að gera sér grein fyrir hverjar þessar kröfur eru. Afkastakröfur eru almennt skilgreindar með samanburði við afköst manns, sem gengur án byrði á sléttum vegi á ákveðnum hraða. Að vísu eru skiptar skoðanir um, hvaða afkastakröfur liggi að baki bónusvinnu i frystihúsum, en að áliti undirritaðs samsvara þær um það bil 5,4 km. gangs á klst. Það skal tekið fram, að starfs- bróðir minn hjá ASt, Bolli Thor- oddsen, mun álita, að þessar kröfur séu nær þvi að samsvara 5,0 km á klst. 1 dæmi okkar skul- um við fara milliveginn og ganga út frá að 5,2 km/klst. sé hin rétta tala. Þessi afköst eru þá það, sem kallað er 100% afköst. En nú skulum við lita á, hvernig ILO skilgreinir afköst: „Stöðug, ákveðin, ekki hröð vinnubrögð, eins og hjá starfs- manni, sem ekki er i ákvæðis- vinnu, en undir eðlilegri verk- stjórn, virðist hæg, en tima er ekki visvitandi sóað meðan á at- hugun stendur’’ og er það talið samsvara 4,8 km göngu á klst. ■En 4,8 km á klst. samsvara 92% af 5,2 km/klst, sem eru afkasta- kröfur bónusvinnunnar. Og fyrir þessiafköst (92%) fær starfsfólk i frystihúsum samkvæmt núgild- andi samningum 19% kaupauka, þegar eingöngu er greitt fyrir af- köst. Þegar um störf, þar sem einnig er greitt fyrir nýtingu er að ræða fær starfsfólk, sem skilar meðalnýtingu (miðað við starfs- félaga sina, sem vinna eftir kerf- inu á sama tima) 32% kaupauka. Þar að auki getur fólkið notað um það bil 5% af vinnutimanum til þess að sinna eigin þörfum, önnur 5% til þess að hvila sig og þá eru óreiknaðar óhjákvæmilegar tafir, sem eru u.þ.b. 10% af timanum. Kaffitimar eru auðvitað ótaldir i þessu dæmi. Og þetta eru þau afköst, sem ILO skilgreinir sem timavinnuaf- köst. Eins og sjá má er alrangt að segja að 67% afköst i fiskvinnu samsvari þvi, sem ILO kallar timavinnuafköst, en á þvi byggir H.K. hugleiðingar sinar um bón- usinn. Hirði ég þvi ekki að ræða þær nánar. H.K. segir einnig i greininni, að timamæld ákvæðisvinna sé á undanhaldi i nágrannalöndunum. Það er rétt að ákvæðisvinna er á undanhaldi i Sviþjóð, þ.e.a.s. það, sem hér er kölluð hrein ákvæðis- vinna (greitt fyrir hvert stykki — ekki kauptrygging). Hins vegar færist það i aukana i Sviþjóð, að tekin séu upp launakerfi þar sem fólki eru tryggð timalaun og þar að auki greiddur kaupauki, sem reiknaður er út eftir afköstum svipað og i bónusvinnunni hjá okkur. 20/11 1973 Agúst II. Eliasson Athugasemd: Það er ákaflega slæmt að sjálf- ur grundvöllurinn undir tima- mældri ákvæðisvinnu i frystihús- um skuli ekki vera fastur og óum- deildur. En það er gott að starfs- maður Vinnuveitendasambands- ins skuli staðfesta það að málum er svona háttað. Það er einnig mjög þarflegt að hann dregur fram skilgreiningu Alþjóða vinnumálasambandsins — ILO — á grundvallarafköstum, en þau byggjast á vinnubrögðum hjá manni sem ekkier i ákvæðis- vinnu. Þetta tvennt er mergurinn málsins, og væri vel ef umræða gæti tekist um bónusmálin út frá þessum staðreyndum. 1 almenna rammasamningnum um bónusvinnu, „Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd vinnurannsókna” frá 29. janúar 1972, er i lið 3.3.2.2. eftirfarandi skilgreining á 100% afköstum: „Málsafköst eru þau afköst, er æfður verkmaður skilar, sem gagnkunnugur er vinnuaðferð, verkfærum og vélum og vinnur með hraða, sem unnt er að halda, án þess að það skaði heilsu hans”. Hvílikur höfuðmunur á þessari skilgreiningu og þeirri frá ILO! Agúst tilfærir hana hér að fram- an, og eru lesendur hvattir til að bera þær saman. Islenska skilgreiningin er svo losaraleg, að hagræðingarráðu- nautar geta ekki visað til hennar sem hins fasta mælistokks. (Eitt- hvað áþekkt væri það að semja um timavinnu án þess að hægt væri að visa til einnar rétt gang- andi klukku. Okkar klukkur geta ruglast, en það vill svo vel til að himintunglin ganga alltaf rétt!). Það segir hvergi berum orðum i islensku skilgreiningunni, hvort málsafköstin séu miðuð við tima- vinnu eða hvata launakerfis. En við nánari athugun hlýtur maður að komast að þeirri niðurstöðu, að þau miðist við hvata launa- kerfis. Það er nefnilega ekki hægt að ætlast til þess að tímavinnu- maður vinni við efri mörk þess „hraða sem unnt er að halda, án þess að það skaði heilsu hans”. A þessu byggist sú fullyrðing min, að afköst i grennd við 67% samsvari timavinnunni, eins og þessar stærðir eru fram settar hér á landi. Hygg ég að ég eigi mér skoðanabræður i þessu efni meðal hagræðingarmenntaðra manna hér á landi. 1 bónussamningi frystihúsanna (samningi um timamælda á- kvæðisvinnu i frystihúsum frá 12. febrúar 1972) er ekki að finna neina skilgreiningu- á þvi, hver grundvöllur bónusvinnunnar er, þ.e. hvert vinnuálagið er við 100% afköst. I þeim efnum er visað til ofangreinds rammasamnings, og kemur þá m.a. til álita ákvæðið um málsafköst sem prentað er hér að framan. Grundvöllurinn liggur sem sé i lausu lofti. En hvernig er þá byggt ofan á þennan óljósa grundvöll? Hvern- ig er farið að þvi að mæla vaxandi afköst? Ef grundvöllurinn væri skilgreindur á óyggjandi hátt, væri auðvelt að leiða afkastamat- ' ið út frá honum á rökfræðilegan hátt. En þar sem undirstöðuna vantar, er afkastamatið haft svona: „Afkastamat skal vera i samræmi við það afkastamat sem fyrri staðlar sölusamtak- anna hafa verið byggðir á” (bón- ussamningur 6. grein). Það er þakkarvert að Vinnu- veitendasambandið skuli hafa tekið undir þau sjónarmið Þjóð- viljans að rétt sé að efna til um- ræðu um bónusmál. Gaman væri ef starfsmenn Vinnúveitenda- sambandsins gerðu i næsta til- skrifi grein fyrir þvi, hvernig þeir telja vinnuálag og skerðingu starfsþreks aukast — i hvaða hlutfalli — með aukningu þeirra afkasta „sem staðlar sölusam- takanna byggjast á”. 21/11 1973 Hjalti Kristgeirsson Auglýsinga- síminn er 17500

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.