Þjóðviljinn - 24.11.1973, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 197:i.
RAFLAGNIR
SAMYIRKI
annast allar almennar raflagnir. Ný-
lagnir, viðgerðir, dyrasima og kall-
kerfauppsetningar.
Teikniþjónusta.
Skiptið við samtök sveinanna.
Verkstæði Barmahlíð 4
SÍMI 15460 milli 5 og 7.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-Up bifreiðar
og sendiferðabifreiðar er verða sýndar að
Grensásvegi9, þriðjudaginn27. nóvember
kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sala Varnarliðseigna.
UNDRALAND
ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst, skoppar, tistir og
brunar.
Fjölbreytt úrval.
Komið, sjáið, undrist i
UNDRALANDI
Atvinna
Lögreglumannsstaða
Laus er til umsóknar staða lögreglu-
manns i Kópavogi. Umsóknir skulu
ritaðar á þar til gerð eyðublöð, sem fást i
lögreglustöðinni, Digranesvegi 4, Kópa-
vogi.
Umsóknarfrestur er til 15. desember
1973.
Upplýsingar um starfið veita yfirlög-
regluþjónn og aðstoðaryfirlögregluþjónn,
Digranesvegi 4, Kópavogi.
Bæjarfógetinn I Kópavogi
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Staða AÐSTOÐARMANNS v. upp
eldislega meðferð vistmanna við
UPPTÖKUHEIMILl RÍKISINS,
Kópavogi, er laus til umsóknar nú
þegar. Upplýsingar veitir forstöðu-
maðurinn, simi 41725.
Einnig óskast til starfa STARFS-
STÚLKA i eldhús Upptöku-
heimilisins. Upplýsingar veittar á
sama stað.
Reykjavik 22. nóvember 1973.
SKRIFSTOFA
RlKISSPtTALANNA
EIRlKSGÖTU 5,SlM111765
Júgóslavneska liöiö Dynamo Pancevo leikur gegn
Valsliðinu ídag,
en FHámorgun
- síöasti leikurinn gegn úrvali HSÍ á mánudag
Júgóslavneska liðiö Dynamo
Pancevo sem tapaði 16:17 fyrir
Fram i fyrra kvöld leikur annan
leik sinn i ferðinni til tslands i
dag, og verða það íslands-
meistarar Vals sem mæta Júgó-
slövunum. Hefst leikurinn kl. 16.
Valsmenn fengu heldur betur
skell gegn FH i fyrrakvöld og
hafa sjálfsagt hug á að bjarga
andlitinu með góðri frammi-
stöðu i leiknum i dag.
A morgun mæta Júgó-
slavarnir svo toppliði 1. deildar i
dag, FH, og hefst sá leikur
einnig kl. 16. FH-ingar hafa
sýnt það i siðustu leikjum sinum
að þeir eru liklegastir til að
vinna fslandsmeistaratitilinn i
ár, þótt kannski sé of fljótt að
spá nokkru þar um eftir aðeins 3
leiki. En P'H er þekkt fyrir að
veita erlendum liðum harða
keppni, og verður svo eflaust
nú.
Loks er það svo leikur Júgó-
slavanna gegn úrvali HSÍ,
(landsliðinu),á mánudagskvöld.
Vitað er að nokkrar breytingar
verða gerðar á islenska liðinu
frá landsleiknum við Svia sl.
þriðjudag. Hvort sú breyting
verður til batnaðar eigum við
eftir að sjá, og verður bara að
biða mánudagskvöldsins til að
fá úr þvi skorið.
—S.dór
Frá ársþingi FRÍ:
Landskeppni við Ira
í frjálsíþróttum hér
á landi næsta sumar
Erfiður fjárhagur aöalvandamál sambandsins. —
Örn Eiðsson var endurkjörinn formaöur FRÍ
Ársþing Fr jálsíþrótta-
sambands íslands var
háð um síðustu helgi. Á
þinginu komu fram
margar merkar tillögur,
og var ekki annað að sjá
en að frjálsíþróttamenn
séu stórhuga þótt fjár-
hagur sambandsins sé af-
ar bágborinn sem stendur
og standi sambandinu að
vissu leyti fyrir þrifum.
Meðal þess sem kom fram i
skýrslu stjórnar var, aö næsta
sumar er fyrirhuguð lands-
keppni i frjálsiþróttum hér á
landi við tra, en sem stendur
eru trar áþekkastir okkur að
styrkleika, þannig að um jafna
og skemmtilega keppni veröur
að ræða.
Þá er og ákveðið að efna aftur
til Reykjavikurleika og bjóða til
þeirra nokkrum heimsþekktum
iþróttamönnum eins og gert var
sl. sumar. Þessi þáttur er nýr i
starfi sambandsins og mjög til
fyrirmyndar.
Eins og áður segir er fjárhag-
ur sambandsins slæmur. Eru
skuldir sambandsins nú rúmar
800 þús. kr. og benti formaður
FRl, örn Eiðsson,réttilega á að
nauðsynlegt væri að hefja mikla
fjársöfnunarherferð til styrktar
sambandinu ef þessi baggi á
ekki að draga verulega úr starf-
semi sambandsins sem myndi
þýða stöðnun eða afturför hjá
okkur á sviði frjálsiþrótta.
örn Eiðsson sem verið hefur
formaður FRl undanfarin ár
var endurkjörinn formaður
sambandsins.
Opiö mót í júdó
í Grindavík
á morgun
A morgun, sunnudag, verður haldiö opið júdómót I Grindavik fyrir
unglinga yngri en 16 ára. Grindvikingar æfa júdó af kappi, og veröa
inargir þátttakendur frá Ungmennafélagi Grindavikur, en einnig
frá Reykjavikurfélögunum.
Keppt verður i þremur aldursflokkum, þ.e. 14—15 ára, 12—14 ára
og 11 ára og yngri. Unglingar á þessum aldri eru fjölmennir á æfing-
um júdófélaganna, og er þetta mót kærkomið tækifæri fyrir þá,
enda er þátttaka mikil.
Astæða er til aö minnast sérstaklega á júdóstarf Jóhannesar Har-
aldssonar 1. kyu fyrir unglingana i Grindavik. I nokkur ár hefur
Jóhannes kennt þarna endurgjaldslaust, og strákarnir úr Grindavik
vekja sérstaka athygli fyrir góöan árangur hvar sem þeir koma
fram i júdó.
Unglingamótiö i Grindavik er ekki fyrsta júdókeppnin sem háö er
þar. Fyrir réttu ári var tékkneskur úrvalsflokkur júdómanna þar á-
samt íslenskum júdómönnum og Japananum Yamamoto og tóku
þátt i sérstakiega skemmtilegu móti.
Unglingamótið i Grindavík verður í félagsheimilinu Festi og hefst
kl. 2 siðdegis.
Knatt-
spyrnu-
dagur
1 dag kl. 13.30 hefst i Kópa-
vogsbiói hinn árlegi Knattspyrnu-
dagur Breiðabliks, en þá eru
ýmsir knattspyrnumenn ungir og
gamlir heiðraðir fyrir vasklega
framgöngu á liðinu keppnistima-
bili.
A fundinum i dag verður flutt
ávarp. siðan verða knattspyrnu-
menn ársins i hverjum aldurs-
flokki tilkynntir, og 5. flokki
félagsins, sem var Islands-
meistari sl. haust, verður veitt
sérstök viðurkenning. Loks
verður kvikmyndasýning.
Aöaí-
fundur
Fylkis
Aðalfundur íþróttafélagsins
Fylkis i Arbæjarhverfi verður
haldinn laugardaginn 1.
desember nk. i hátiðarsal Ar-
bæjarskóla og hefst kl. 16.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Fylkis.