Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 14

Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 1973. Haukur — Þór Framhald af 11 siðu Hjá Haukum áttu aðeins tveir menn góðan leik, þeir Stefán Jónsson og Ómar Karlsson mark- vörður. Aðrir voru langt frá sinu besta. Mörk Þórs: Þorbjörn 7, Sig- tryggur 8, Ólafur 4, Aðalsteinn 2 og Arni 1. Mörk Hauka: Hörður 7, Stefán 4, Sigurður 3, Frosti 2, Ólafur 4 og Guðmundur 2. -S.dór. Jafnvel f’ramhald af bls. 3. teikningum hugsaður sem geymsluhúsnæði fyrir hvers kyns tól og tæki kennara. Salurinn er i kjallara Casa Nova, sem er ný- bygging Menntaskólans i Reykja- vik (byggð fyrir rúmum áratug). Hann er rúmlega 2 metrar á hæð, tekur 60 manns i sæti en þjónar þó allri þessari miklu starfsemi i 900 manna skóla. Það segir vissulega sitt um ástandið. A skólafundinum samþykktu nemendur ályktun, þar sem enn einu sinni er skorað á ráðamenn þjóðarinnar að hefja raunhæfar aðgerðir i húsnæðismálum skól- ans. ,,Nú er svo komið”, segja nemendur, ,,að okkur stafar stór- hætta af þvi, að vinna i ■fmktei’um kennslustofanna. Sumar eru hriplekar, aðrar gegnumfúnar, hvergi loftræsting þó þrengslin séu mikil, og annað eftir þvi. Höfuðverkur, bakverkir, augn- Jólabækurnar BIBLIAN VASAÚTGÁFA NÝ PRENTUN Þunnur biblíupappír Balacron-band * Fjórir litir ! Sálmabókin nýja Fást i bókaverslunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG (fjuöbraitbsstofu Hallgrímskirkja Reykjavik simi 17805 opið 3-5 e.h. Hraðkaup Fatnaöur i fjölbreyttu úrvali á alla fjölskylduna á lægsta fáanlegu verði. Opið: þriðjud.,. fimmtud. og föstud. til kl. 10, mánud., miövikud. og laugardaga til kl. 6 Hraðkaup Silfurtúni. Garðahreppi v/Hafnarfjarðarveg. verkur, eyrnaverkur og ýmsir fleiri verkir þjá okkur. Húsnæðis- málin valda okkur ýmsum kvill- um og óþægindum, við verðum að fá skjóta og raunhæfa lausn á þessu máli.*' Eðlilega eru MR-ingar ekki um of bjartsýnir á árangur áskorana sinna. Svo oft hafa þeir verið sviknir að það þykja næstum eðli- leg málalok i samskiptum þeirra viö hið opinbera. En nú ætla þeir sér ekki að sitja við orðin tóm. Ef undirtektirnar verða jafn dauflegar nú og siðustu árin, munu þeir gripa til róttækari að geröa: verkföll, kröfugöngur, mótmælasetur, skæruhernaður eða annað þess háttar vofir yfir, ef ekkert verður gert til úrbóta strax á þessu ári. Þjóðviljinn mun gera nánari grein fyrir kröfum nemenda i Menntaskólanum i Reykjavik i næstu viku. —gsp BHM Framhald af bls. 16. sem nemi 5—10 árum vegna starfsmenntunar þeirra. En hvaö segja tilvonandi félag- ar i Bandalagi háskólamanna? Það kemur fram i fréttatilkynn- ingu sem blaðinu hefur borist frá haustfundi Sambands isl. náms- manna erlendis. StNE segir: „Kaupkröfur þessar fela i sér yfirgengilega launahækkun há- skólamenntuðum til handa”. Sið- an er fjallað um þá skoðun BHM að hér riki tiltölulega mikið launajafnrétti miðað við „raun- ævitekjur tslendinga”. „Haust- fundurStNE lýsir megnustu and- úö sinni á gengdarlausum kaup- kröfum BHM. Kröfur þessar miða einvörðungu að þvi að auka launamisréttið i þjóðfélaginu og auka efnahagsleg forréttindi há- skólafólks við þau forréttindi sem það hefur öðlast með mennt- un”. Loks lýsir haustfundur SINE fyllsta stuðningi sinum við þá kröfu ASt, að laun hærri en 50 þús. kr. á mánuði hljóti ekki fulla visitöluuppbót. Svartolía Kramhald af bls. 1 geta notendur reiknað út frá þvi sem þeir vita um sina eyðslu. — Eru vélstjórar ekki smeykir við svartoliuna? Að hún skemmi vélarnar? — Það stafar þá af ókunnug- leika. En vitanlega þurfa menn vissa tilsögn og gera sér grein fyrir þvi sem ber að gæta við keyrslu vélarinnar við hinar nýju aðstæður, en þetta er enginn vandi. — Þetta hefur gefist vel á Narfa eða hvað? Afbragðsvel. Þar er ekkert að, en það má svona geta þess, að bilanir eru ekki óþekktar i þeim skipsvélum sem brenna gasoliu. En Narfi er eina skipið sem svartoliubrennsla er enn komin i, aðrir eru að hugsa sig um virðist vera. Ég geri ráð fyrir þvi að einn af japönsku skuttogurunum taki uppsvartoliu þegar frá liður. Þar ætti sparnaðurinn að geta numið 3-400 þúsund krónum á mánuði — og er þá miðað við gamla verðið. hj— Fræðslufundur F’ramhald af bls 5. aldar. Fundirnir eru með „seminarsniði”, þ.é. Einar heldur stutt inngangserindi, en siðan eru fyrirspurnir og umræður. Samfelld saga islenskrar verkalýðshreyfingar hefur ekki verið skráð nema fram til 1901. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Mannlif og samfélagshættir Umræðuhópurinn kemur saman á Grettisgötu 3, mánudag kl. 20.30. Frá bæjarmálaráði H-listans. Kópavogsbúar. Umræðuhópurinn um félagsmál kemur saman n.k. mánudagskvöld kl. 20.30, og tekur þá fyrir eftirfarandi málaflokka: Dagvistunarstofn- anir, vernd barna og unglinga og rétt íbúa bæjarfélagsins. Skipulagsmálin verða einnig rædd i skipulagsmálahópnum. Þar verða m.á. tekin fyrir skipulagning skólahverfa. Kveðja frá kven- félagi Hallgrímskirkju Menn verða þvi að afla sér þekkingar á þessu sviði með lestri greina og ýmissa bóka. Einar Olgeirsson hefir tekið saman heimildalista yfir einstök timabil þessarar sögu. Þeir eru afhentir á skrifstofu Alþýðubandalagsins á Grettisgötu 3. Það er æskulýðsnefnd Alþýðu- bandalagsins, sem stendur fyrir þessu fræðslustarfi, i náinni samvinnu við Einar Olgeirsson og Alþýðubandalagsfélagið i Reykjavik. 5. bindi af þrautgóðum Komið er út 5. bindið af ritinu „Þrautgóðir á raunastund”, en það er björgunar- og sjóslysasaga tslands. Þetta bindi nær yfir timabilið 1953—1958. Steinar Lúövíksson hefur skráð þennan annál en Bókaútgáfan Hraundrangi — Orn og örlygur gefa út. Leiðrétting t Fiskimálum Jóhanns J.E. Kúlds i Þjóðviljanum i gær var villa i 2. dálki, rétt fyrir neðan myndina. Þar er vitnað i gildandi fiskmatslög þar sem segir að ráð" herra skuli setja reglugerðir ogi erindisbréf um framkvæmd lag- anna, en við vélritun handrits hefur þaðbreyst i erindispróf. Þetta leiöréttist hér með og er beðið velvirðingar á mistökunum. Kæri lesandi,— Ég er með kveöju til þin frá heilu kvenfélagi. Þær biðja allar að heilsa þér, konurnar i kvenfé - lagi Hallgrimskirkju, með þökk fyrir gamla og góða viðkynningu. Þær vita af gamalli reynslu, að þú bregst vel við, þegar þær eiga er- indi við þig — þvi að smeykur er ég um, að eitthvað væri ógert enn, sem unnið hefur verið fyrir Hall- grimskirkju, ef almenningur i Reykjavik — og viðar — hefði ekki brugðist vel við, þegar kven- félagið hefir óskað aðstoðar. En hvað er nú um að vera? kannt bú að spyrja. Málið er ofur einfalt: Basar i félagsheimili kirkjunnar laugardaginn 24. nóv. og hefst klukkan tvö eftir hádegi, og held- ur áfram fram eftir deginum, og meira að segja eftir kvöldinu, ef þörf gerist. Fallegir hlutir verða á boðstólum, prjónles, leikföng og heimaunnir munir af ýmsu tagi, ýmiskonar jólavarningur, kerti o.fl. Allt fyrsta flokks, — konurn- ar telja sannarlega ekki eftir sér erfiðið, fremur en vant er. Til sölu verða einnig falleg kort og nokkr- ar bækur. Nú eru i aðsigi timamót í starfi Hallgrimskirkju. Aður en varir veröur þakið tekið ofan af þeim hluta kirkjunnar, þar sem nú er messað, og þá tilheyrir hún lið- inni sögu. En i hennar stað verður vigð kapella i suður-álmunni, út frá turninum. Og kvenfélagiö hef- ir sett sér það mark, að sjá um altari, ræðustól og skirnarfont i þennan nýja kirkjuhluta. Og ef að vanda lætur, verða þær ekki látn- ar einar um þessi verkefni. Þess vegna á ég að láta fylgja kveðj- unni frá kvenfélaginu kæra þökk fyrir alla hjálp undanfarinna ára, — og þar á meðal þá aðstoð, sem veitt hefir verið i sambandi við þennan basar, sem nú er verið að halda. Það skaðar kannske ekki að minna á, að eitt af guðspjöllum næstu helgar er sagan af hinni ör- látu konu, sem raunar hafði ekki miklu úr að spila, — en gaf samt riflega i guðskistu musterisins. Sú saga hefir margoft verið gerð að veruleika i sambandi við Hall- grimskirkju i Reykjavik, og á eft- ir að gerast aftur og aftur um alla framtið. Kæri lesari — kvenfélagið biður að heilsa með óskum um gæfu og guðs blessun i bráð og lengd. Jakob Jónsson. Israelar óráðnir Gvendarbrunna- veitingar á aðaifundi FEF um þátttöku í friðarráðstefnu Gvendarbrunnavatn var eina hressingin, sem félagsmenn I Fé- lagi einstæðrá foreldra gátu feng- iö á aðalfundi sinum að Hótel Borg I siöustu viku, en ekki settu fundargestir þaö fyrir sig, að þvi er segir I fréttatilkynningu. Að loknum skýrslum um störf stjórnar og reikninga og sam- þykkt um hækkað árgiald fór fram stjórnarkjör. Jóhannal Kristjónsdóttir var endurkjörinj formaður. 1 aðalstjórn voru kosin Hafsteinn Traustason, Þóra Stefánsdóttir, Ingibjörg Jónas- dóttir og Bergþóra Kristinsdóttir. Varastjórn skipa Páll Ingólfsson, Þórunn Friðriksdóttir og Margrét Ornólfsdóttir. Endurskoðendur eru Bogi Þórðarson og Guðbjörg Þórðardóttir. Þá var greint frá skipun i starfsnefndir og eru for- menn þeirra sem hér segir: for- maður f járöflunarnefndar Auð ur Haraldsdóttir, form. húsnefnd- ar, Hafsteinn Traustason, form. kaffinefndar Anna M. Guðjóns- dóttir, form. klúbbanefndar Jónas Þ. Jónsson og formaður fundanefndar Sigriður Friðriks- dóttir. Þá voru jólakort félagsins af- hent til dreifingar og sölu, og borgarstjóri Reykjavikur flutti á- varp og svaraði spurningum. Félagar i FEF eru nú um 2400 talsins. Enginn er- lendur togari fyrir suð- vestan landið Landhelgisgæslan lét fljúga gæsluflug yfir miðin fyrir suð- vestan landið í gær. Voru þá engir útlendir togarar á þeim slóöum, en þess má geta að þetta svæöi er lokað fyrir Breta til áramóta. Bretarnir munu vera fjöl- mennastir fyrir vestan, og Vestur-Þjóðverjar eru þar einnig, en mjög djúpt út af Halanum. A Vestfjarðarmiöum mun vera norð-austan strekkingur, 6 vindstig, og nokkur hætta á isingu. —úþ Arabar eignist atómvopn, ráðleggur Heykal KAIRÓ, TEL AVIV 23/11. — tsra- elsmenn lögðu í dag fram tillögu varðandi breytingu á núverandi vopnahléslinu, og var það gert á fundi israelskra og egypskra her- foringja við veginn milli Kairó og Súes. Bæði ísraelsmenn og Egyptar segja viðræðurnar ganga stirt, en Siilasvuo, yfir- maður friðargæsluliðs Sam- cinuðu þjóðanna, segir deilu- aðila hafa komist að samkomu- lagi um mörg mikilvæg auka- atriði. Hinn kunni egypski greina- höfundur Múhameð Heykal skrifaði i A1 Ahram í dag að Arabaríkin ættu að verða sér úti um kjarnorkuvopn, og lagði til að það mál yrði tekið fyrir á ráð- stefnu forustumanna i Alsirborg. Hann sagði að upplýsingar frá Bandarikjunum og Frakklandi bentu til að ísraelsmenn annaðhvort ættu kjarnorkuvopn eða gætu komið sér þeim upp með stuttum fyrirvara. Abba Eban, utanríkisráðherra tsraels, kom i dag heim frá viðræðum við Kissinger I Washington. Hann segir Banda- rlkin óska þess að friðarráð- stefnan um Austurlönd nær hefjist um miðjan desember, en ísraelsmenn vilja engu lofa um þátttöku sína i ráðstefnunni fyrr en að afstöðnum þingkosningum, sem eiga að fara fram I tsraeí þritugasta og fyrsta desember. Ráðkona óskast í sveit Með jólabókafóðinu árið 1972 skoiaði á land fyrstu bók ungrar skáldkonu, Snjólaugar Braga- dóttur frá Skáldalæk, en bók sina nefndi hún NÆTURSTAÐ- UR — brot úr lifi borgar- barna —. Hin unga skáldkona lét þess þá getið að hún skrifaði fyrir venjulegt fólk en ekki eftir pöntun sérlundaðra gagnrýnenda. Nú hefur Snjólaug sent frá sér aðra bók sína, RAÐSKONA ÓSKAST I SVEIT — má hafa með sér barn —. Þetta er saga um unga konu úr Reykjavik, sem ræðst á fámennt sveitaheimili norður i landi. Ýmsir erfiðleikar mæta Reykjavikurfólki i fyrsta sinn i sveit og þarna skiptast á skin og skúrir. A heimilinu eru tveir uppkomnir synir. Varla þarf að spyrja að þvi að ást kviknar, en á erfitt uppdráttar sökum margháttaðs misskilnings, en þó fer þetta allt eins og þvi var lik- lega ætlað að fara RAÐSKONA ÓSKAST 1 SVEIT er sett i prentstofu G. Benedikts- sonar, prentuð i Prentsmiðjunni Viðey og bundin i Arnarfelli. Káputeikningu gerði Hilmar Þ. Helgason. Otgefendur eru örn og örlygur. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför SIGURB JARGAR SIGURJÓNSDÓTTUR Egill Gislason Erna Egilsdóttir Sigurdís Egilsdóttir Asgeir Egilsson Einar Guðbrandsson Sigurgeir Bjarnason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.