Þjóðviljinn - 05.12.1973, Blaðsíða 4
4 StÖA — ÞJÓÐVILJINN Miövíkudagur 5. desember 1973.
Aukin sam-
staða SSSR og
Indlands
NVJU DEHLl—‘Fyrir helgi lauk
fjögurra daga opinberri heim-
sókn L. Brézjnéfs, aðalritara
sovéska kommúnistaflokksins,til
Indlands. Gefin var út sameigin-
leg yfirlýsing hans og Indiru
Gandhi um viftræður þeirra þar
sem lögð var sérstök áhersla á
áframhaldandi eflingu samvinnu
rikjanna, nauðsyn afvopnunar og
samstarf rikja i Asiu, bæði um ör-
yggismál og bætt lifskjör i þess-
um þéttbýlasta hluta heims.
Jólabækurnar
BIBLÍAN
VASAÚTGÁFA
NÝPRENTUN
Þunnur biblíupappír
Balacron-band Fjórir litir
Sálmabókin
nýja
Fást í bókaverslunum og
hjá kristilegu félögunum.
HIÐÍSL. BIBLÍUFÉLAG
(fniöbranbsstofu
Hallgrimskirkja Reykjavík
simi 17805 opiö 3-5 e.h.
Sovétrikin hafa aöstoðað Ind-
verja við að koma upp stálfram-
leiðslu og oliuvinnslu og verður
efnahagsaðstoð á þeim sviðum og
öörum haldið áfram (kopar-
vinnsla, neðanjarðarbraut til
Kalkúttá ofl.l.Gert er ráð fyrir aö
vöruskipti milli landanna aukist
um helming á næstu sex árum.
Leiðtogarnir lögðu áherslu á
svipuð viðhorf til friðarmála, til
friðargerðar i Indókina og Aust-
urlöndum nær og fleiri málum.
Þeir töldu að aðild Bangladesh aö
SÞ og viðurkenning Pakistans á
hinu nýja riki mundi auðvelda
lausn á vandamálum Hindústans.
Brézjnéf bauð Indiru Gandhi i
heimsókn til Sovétrikjanna (skv.
apn).
Þjóðhátíðar-
dagur Finna
A morgun, fimmtudaginn 6.
desember, er þjóðhátiðardagur
Kinna. Þá efnir Kinnlandsvina-
félagið Suomi til fagnaðar i
Norræna húsinu. Samkoman
hel'st kl. 20.30 á þvi að Skóla-
hljómsveit Kópavogs leikur
undir stjórn Björns Guðjóns-
sonar: Kormaður félagsins,
Sveinn K. Sveinsson,flytur ávarp.
Ilátiðarræðu flytur Vilhjálmur Þ.
Gislason fyrrv. útvarpsstjóri.
Nokkrir Finnar sem starfa hér á
landi, syngja og leika á hljóðfæri
Siðan leikur Skólahljómsveit
Kópavogs þjóðsöng Kinna. Þá
verður lundargestum gefinn
kostur á að setjast að borðum og
njóta veitinga. Undir borðum
verða ýmis dagskráratriði þ.á.m.
spurningakeppni og almennur
söngur. Veislustjóri verður hinn
nýi sendikennari Finnlands,
Etelka Tamminen.
A undan hátiðardagskráni
verður haldinn aðalfundur félag-
sins, og hefst hann kl. 20.
UNDRALAND
ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst, skoppar, tistir og
brunari
Fjölbreytt úrval.
Komið, sjáið, undrist i
UNDRALANDI
IIMBííBmillSlSSI*
Gjöfina sem veitir varanlega
ánægju fáið þér i Jasmin Lauga-
vegi 133.
Ath. opið til kl. 22alla föstudaga til jóla.
ÍI'IÍIÍÉÍÍ^
SliiniiIE MŒIÍÍ:
þingsjá þjóðvíljans
Lánamál hús
byggjenda
Björn Júnsson félagsmálaráð-
herra svaraöi i gær á alþingi
fyrirspurn utan dagskrár frá
Sverri Ilermannssyni, vegna til-
kynningar, er birtist fyrir fáum
dögum frá Húsnæðismálastofnun
rikisins um útborgunartima á
lánum til ibúðabygginga.
Það kom fram i svari ráðherr-
ans, að samkvæmt lögum og
reglugerð frá 1970 geta þeir, sem
sækja um lán eftir 1. febrúar ár
hvert, ekki vænst lána fyrr en á
næsta ári. Ráöherrann sagði, aö
nú væri ráðgert, að þeir sem sóttu
um lán eftir 1. febrúar 1973 og
skiluðu vottorði um fokheldar
ibúðir fyrir 15. nóv. s.l. fengju
Svava Jakobsdúttir mælti i gær
fyrir fyrirspurn til utanrikisráð-
herra um það, hvort islenska
rikisstjórnin hafi viðurkennt her-
foringjastjórnina i Chile.
Þjóðviljinn mun næstu daga
birta þá ræðu, sem Svava hélt við
þetta tækifæri, en i máli hennar
kom fram, að hún teldi að rikis-
stjórnin ætti engin stjórnmála-
samskipti að hafa viö herfor-
Itlkisstjúrnin liefur lagt fram á
alþingi frumvarp til laga um um-
boðsmenn alþingis. Krumvarpið
er lagt fram i samræmi viö þings-
ályktunartillögu, er samþykkt
var á alþingi 10. mai 1972, þar
sem ríkisstjúrninni var falið að
láta undirbúa slikt frumvarp.
I greinargerð frumvarpsins
segir m.a.:
Hvað er „umboðsmaður"?
„Frumvarp það.sem hér liggur
íyrir, er nýmæli hérlendis. Ráð-
gert er með lagafrumvarpi þessu,
að til starfa taki umboðsmaður
Alþingis.
„Umboðsmaður” er embættis-
maður, sem tekur við kvörtunum
á hendur opinberum stjórnar-
völdum og sýslunarmönnum
landsstjórnarinnar frá fólki, sem
þykir misgert við sig.
Umboðsmaður rannsakar þessar
kvartanir, og ef þær skoðast á
rökum reistar, leggur hann til,
hvað sé til bóta þvi,sem áfátt er.
Jafnframt þvi að leysa þannig
vandræði manna, er hlutverk
umboðsmanns að stuðla almennt
að bættri stjórnsýslu. Þeirri skoð-
un vex fylgi. að umboðsmanns-
kerfið sé ómissandi i réttarrikj-
um. þ.e. þjóðfélögum. þar sem
jafnt yfirvöld sem þegnar veröa
að fara að lögum og grundvallar-
mannréttindi eru virt. Til þess að
tryggja sjálfstæði umboðsmanns
sem best gagnvart stjórnarvöld-
um er viða höfð sú skoðan á, að
umboðsmaður starfar á vegum
þjóðþingsins og sem trúnaðar-
maður þess.”
1. grein grumvarpsins er á
þessa leið:
,,Kjör umboðsmanns Alþingis
fer fram i sameinuðu þingi. Kosn-
ing gildir til fjögurra ára frá og
með 1. janúar eftir kjör.
Umboðsmaður Alþingis skal
vera þeim kostum búinn, er þarf
til að gegna embætti hæstaréttar-
dómara.
fyrri hluta lánsins greiddan i
febrúar n.k., og minnti á að oft
hefði dráttur i þessum efnum
verið miklu lengri, t.d. hafi
veiting frumlána verið ákveðin i
júli 1968 út á ibúðir, sem þá voru
fyrir löngu orönar lánshæfar, en
lánin ekki komið til greiðslu fyrr
en 10 mánuðum seinna.
Astæðan fyrir þvi, að ekki
væri unnt að greiða lán til allra
umsækjehda nú þegar fyrir
áramót, væri m.a. sú, að stjórn
húsnæðis/málastofnunarinnar
hefði reiknað með alveg fram-
undir þetta að lánshæfar ibúðir i
byggingu væru mun færri en kom
i ljós.
ingjastjórnina og slita þeim, sem
kynnu að vera fyrir.
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra sagði, að af tslands hálfu
hefði engin viðurkenning verið
gefin á núverandi herforingja-
stjórn i Chile. Fyrir 10 — 12 árum
hafi verið gerður samningur um
stjórnmálasamband milli land-
anna, en aldrei hafi verið skifst á
sendiherrum milli landanna.
Ef umboðsmaður Alþingis
andast eða verður af öðrum or-
sökum ófær um að gegna starfi
sinu framvegis, skal sameinað
þing kjósa af nýju umboðsmann
til fjögurra ára. Sama hátt skal á
hafa, ef umboðsmaður fær að eig-
in ósk lausn frá starfi eða
sameinað þing samþykkir með
tveimur þriðju hlutum greiddra
atkvæða að svipta hann starfan-
um.
Ef umboðsmaður Alþingis !
getur ekki um stundarsakir sinnt
starfi sinu sakir veikinda eða
annarra atvika, er sameinuðu
þingi rétt að kjósa staðgengil til
að leysa starf hans af hendi,
meðan hann er fjarri.”
Og 7. grein hljóðar svo:
„Umboðsmaður alþingis getur
tekið mál til meðferðar eftir
kvörtun eða að sjálfs sin frum-
kvæði.
Kvörtun getur hver sá borið
fram við umboðsmann, sem telur
stjónarvald hafa beitt sig rang-
indum. Sá, sem sviptur hefur ver-
ið frelsi, á rétt til að bera mál sitt
undir umboðsmann i lokuðu bréfi.
Kvartandi skal greina nafn sitt
og heimilisfang. öll tiltæk sönn-
unargögn skal hann láta fylgja
kvörtun.
Kvörtun skal bera fram innan I
árs, frá þvi að stjórnsýslugern- I
ingur var framinn eða til lykta
leiddur.
Ef stjórnsýslugerningi má
skjóta til æðra stjórnvalds, er
ekki unnt að kvarta unda honum,
fyrren æðra stjórnvald hefur fellt
úrskurð sinn i málinu. Þá hefst
ársfrestur samkvæmt 5. máls-
grein.
Umboðsmaður sker úr, hvort
framborin kvörtun veiti nægilegt
tilefni til máismeðferðar.”
Við gerð frumvarpsins hefur
mjög verið stuðst við löggjöf á
Norðurlöndum um þessi efni.
7 miljón
dollara lán
I gær var samþykkt frá
neðri deild alþingis eftir 3ju
umræðu frumvarp rikis
stjórnarinnar um lántöku-
heimild vegna framkvæmda-
og fjáröflunaráætlunar 1973 og
er hér um að ræða stað-
festingu á bráðabirgðalögum
frá 18. september i haust að
viðbættri frumvarpsgrein er
heimilar rikisstjórninni að
taka 7 miljón dolíara lán hjá
Alþjóðabankanum til hafnar-
framkvæmda i Grindavik,
Þorlákshöfn og Höfn i Horna-
firði, en sú tillaga var flutt af
Vilhjálmi Hjálmarssyni, for-
manni fjárhags- og viðskipta-
nefndar neðri deildar, að
beiðni fjármálaráðherra.
Frumvarpið var samþykkt
einróma i neðri deild, er felld
hafði verið breytingatillaga
frá Guðlaugi Gislasyni með 23
atkvæðum gegn 3. Fer málið
nú til efri deildar.
Nám í félags-
ráðgjöf
Magnús Torfi ólafsson
svaraði i gær fyrirspurn frá
Kagnhildi Helgadúttur um
það, hvort fyrirhugað væri að
taka upp kennslu i félagsráð-
gjöf við Háskóla tslands. Ráð-
herrann sagði að sumarið 1971
hafi verið skipuð nefnd til að
athuga um hugsanlega
kennslu i félagsráðgjöf hér á
landi. Nefndin hafi enn ekki
lokið störfum, en i bréfi
hennar til ráðuneytisins kæmi
fram, að hún teldi flest rök
hniga að þvi, að sem fyrst
verði stofnað til náms i þessari
grein, og geri nefndarmenn þá
ráð fyrir að nám i félagsráð-
gjöf verði byggt upp sem sér-
stök skor innan námsbrautar i
þjóðfélagsfræðum við Háskóla
íslands, en i vissum tengslum
við nokkrar aðrar háskóla-
deildir. Námið taki 3 og hálft
ár að meðtöldum 10 — 11
mánuðum til verklegs náms.
Kvaðst ráðherrann vera sam-
mála hugmyndum nefndar-
innar i meginatriðum og hafa
fullan hug á að fylgja málinu
fram.
Lög um
réttarstöðu
skrifstofu
Norður-
landaráðs
t fyrradag var samþykkt
einróma sem lög frá alþingi
frumvarp rikisstjórnarinnar
um heimild fyrir rikisstjórn-
ina til þess að fullgilda fyrir
Islands hönd samning milli Is-
lands, Danmerkur, Finnlands,
Noregs og Sviþjóðar um skrif-
stofur Ráðherranefndar Norð-
urlanda og réttarstöðu þeirra,
ásamt viðbótarbókun um
skrifstofu stjórnarnefndar
Norðurlandaráðs og réttar-
stöðu hennar.
Samningur sá, sem hér um
ræðir tekur til skrifstofu Ráð-
herranefndarinnar i Osló, sem
hóf starfsemi sina til bráða-
birgða hinn 1. júni 1972 og til
skrifstofunnar i Kaupmanna-
höfn fyrir norrænt menningar-
málasamstarf, sem áður hafði
verið komið á fót, og öðl-
astþessar skrifstofur báðar
þar með sömu réttarstöðu.
Svipar henni að mörgu leyti til
þeirrar réttarstöðu, sem al-
þjóðastofnanir njóta, segir i
greinargerð frumvarpsins.
Herf oringj astjórnin
í Chile viðurkennd?
Ný þingmál:
Umboðsmað
ur alþingis