Þjóðviljinn - 05.12.1973, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 05.12.1973, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 5. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 FREISTINGIN MIKLA SCANDYNA 2000 & CO. Nú er stund míkilla freistinga runnin, því hér kynnum við hljómtækjasamstæðu, sem segir jafnvel átta (við vonum, að þú hafir lesið síðustu sjónvarpstækja auglýsinguna okk- ar). SCANDYNA 2000 útvarpsmagnarinn er vandað og full- komið tæki. Viðtækið er með langbylgju, miðbylgju og fimm- skiptri FM-stereo-bylgju. Útgangsstyrkur magnarans er 2x40 músík-wött (2x25 sinus-wött). Bjögun hans er minni en 1% við hámarksútgangsstyrk, og tíðnissviðið er 20—20.000 rið. SCANDYNA 2000 fullnægir í öllu tilliti vel þeim kröfum, sem gerðar eru með gæðastaðlinum DIN 45.500, nema hvað verðið er fulllágt, eða kr. 32.590,00 (sambærilegur útvarps- magnari fæst almennt vart fyrir minna en 40—50.000,00). Plötuspilarinn, SCANDYNA 1400, er heldur ekki dónalegur. Hann hefur 2x16 póla mótor, og er það einhver fullkomnasti plötuspilaramótor, sem framleiddur hefur verið. Armurinn er heldur ekki af lakara tagi, því hann er af gerðinni ORTO- FON AS 212, og er SCANDYNA 1400 eini fjöldaframleiddi plötuspilarinn, sem hefur þennan frábæra og viðurkennda arm. SCANDYNA 1400 fullnægir ýmist þeim kröfum, sem gerðar eru með gæðastaðlinum DIN 45.507 eða DIN 45.539, og eru þeir plötuspilaraframleiðendur fáir, sem státað geta af slíkri tæknilegri fullkomnun. Þeir, sem kunna skil á plötu- spilurum vita, að spilari í þessum gæðaflokki kostar yfirleitt um 40—50.000,00, og enn komum við mönnum að óvörum, því SCANDYNA 1400 kostar ekki nema kr. 28.540,00 með ORTOFON F-15-0 „pick-up“i. Um SCANDYNA hátalarana þarf ekki að fjölyrða, því þeir eru nú mest seldu hátalararnir austan Atlantshafs ála. Kemur hér enn til tæknileg fullkomn- un og ótrúlega hagstætt verð. Með SCANDYNA 2000 má nota SCANDYNA A-30, sem flytja allt að 100 wöttum og kosta kr. 13.400,00 stykkið, A-20, sem flytja allt að 60 wött- um og kosta kr. 9.350,00 stykkið og M-5, sem flytur allt að 25 wöttum og kostar kr. 6.490,00 stykkið. — Þess vegna köllum við SCANDYNA 2000 & Co. freistinguna miklu! NESCOHF LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI SJÓNVARPS-, ÚTVARPS- OG HLJÓMTÆKJA. LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 19150 - 19192 NESCO

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.