Þjóðviljinn - 05.12.1973, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 5. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN ' SÍÐA 15
Æ UR |
EINU I
ANNAÐ f
Maria Callas varð fimmtug 2.
desember. Hún hefur nýlega
haldið tvo konsetra i London við
góðar viðtökur áheyrenda, en
slæma hjá gagnrýnendum, sem
segja að rödd hennar sé veik pg
litlaus.
Callas segir að enginn geti búist
við að hún sé jafn góð og hún var
fyrir 20 árum. Hún bjóst við að
rödd sin batnaði með hverjum
nýjum konsert en Callas hefur
ekki komið fram sem einsöngvari
i átta ár.
Sovéska blaðið Trud skýrði
nýlega frá þvi að kona i Ukraniu
hafi vaknað um daginn eftir 21
árs svefn. Svefninn byrjaði að
sækja á konuna árið 1952 þegar
hún var nýstigin uppúr inflúensu,
hún fékk ákafan höfuðverk og
missti málið. f þessu ástandi gat
hún ekki hreyft legg né lið, hafði
enga sársaukatilfinningu, en
innri liffærin störfuðu með eðli-
legum hætti. Næringu fékk konan
i gegnum æð. Blaðið skýrði ekki
frá aldri konunnar né gaf neina
skýringu á af hverju hún vaknaði.
Nú getur konan talað og er að
læra að ganga á ný.
Willy Brandt, sem verður
sextugur 18. desember hefur
beiðið flokksmenn sina og vel-
unnara að hætta við fyrirhugaða
veislu honum til. heiðurs vegna
ástandsins i orkumálum þjóðar-
innar. Ráðgert hafði verið að
SÍÐAN
UMSJÓN: SJ
bjóða 12 þúsund manns i veisluna.
()g vestur i Bandarikjunum
klifraði 82ja ára gömul kona upp
á stól til að setja 60 watta ljósa-
peru i stað 100 watta peru sem var
i ljósastæðinu. Þetta gerði konan
fyrir orð Nixons forseta, sem
hafði bent almenningi á þessa
sparnaðarleið. Gamla konan datt
af stólnum og lærbrotnaði. Hún
krafðist þess fyrst að forsetinn
greiddi sjúkrakostnaðinn, en
féllst svo siðar á að hlifa forset-
anum við þeim útgjöldum og láta
sér nægja samúðarkveðjur frá
honum.
Ilenrique Mecking, brasiliski
stórmeistarinn i skák, hefur beðið
sænska stórmeistarann Ulf
Anderson að vera sér til aðstoðar
er hann mætir Kortsnoj frá Sovét-
rikjunum i undirbúningskeppni
fyrir HM i skák. Þéssir ungu
skákmenn eru góðir kunningjar
og Ufl hefur náð góðum árangri
gegn Kortsnoj. Ulf hefur þekkst
boðið og fer til Bandarikjanna þar
sem keppnin verður haldin eftir
að skákkeppni, sem nú stendur
yfir i Madrid,er lokið. Þar keppa
auk hans Panno, Garcia,
Uhlmann.Calvo, Karpoff, Pomar,
Ljubojevik, Túkmakoff
Furmann, Planinc, Kaplan
Portisch, Browne og Hort.
ri n
H ■PPlLvFcTB '
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
o
o
KAUPFÉLAG
SKAFT-
FELLINGA, VÍK
Verslunar-
eigandinn
séra
Lárus
Benediktsson
Við leituðum ráða hjá
lesendum blaðsins varð-
andi verslunina sem sést
hér á myndinni fyrir ofan.
Við fengum eftirfarandi
upplýsingar frá ónafn-
greindum manni: „Þessa
húseign og verslun á
Laugavegi 10 í Reykjavík
átti, þótt ótrúlegt virðist,
séra Lárus Benediktsson,
fasteignasali og veðlánari
frá Selárdal árið 1908."
Séra Láus var faðir
Ólafs Lárussonar lög-
fræðiprófessors og var
talinn mjög efnaður maður
á sinni tíð.
Lengst af átti Jens
Lange og Þuríður Lange
þetta hús og siðan Thyra
Loftsson og Pálmi Lofts-
son.
Þú kaupir ekki
Volvo vegna
útlitsins
Volvo selst f.yrst og fremst vegna traustra eiginleika, jafnt í byggingu
sem í akstri. Enda tala sölutölur í Volvo veröflokki sínu máli:
BÍLAR í VOLVO VERÐFLOKKI 1972 SELDIR :
1. VOLVO 140 381
2. TOYOTA CORONA 161
3. FORD MERCURY 124
4. SAAB 99 79
5. OPEL REKORD 68
6. CITROEN DS 66
7. CITROEN GS 57
8. PEUGEOT 504 505 52
9. TOYOTA CROWN 47
10. CHEVROLET NOVA 35
Volvo öryggi er meðal annars:
Innbyggður öryggisbiti í öll-
um hurðum til varnar í
hliðarárekstrum.
Öryggispúði í miðju
stýrinu. I árekstri gefur
stýrisbúnaðurinn eftir
á tveim stöðum, auk
þess sem púðinn ver
ökumanninn fyrir
meiðslum.
Stillanleg stólbök búin sérstökum
öryggislokum, sem gefa eftir við
mikinn þrýsting, t.d. ef ekið er
aftan á bifreiðina.
y
Hemlakerfi, löngu heims-
þekkt sem eitt hið örugg-
asta, sem til er.
Þrihyrningsvirkni tvöfalda
kerfisins i Volvo heldur 80%
hemlunargetu, þó að annað
kerfið bili skyndilega.
Farþegarými, sem er hannað innan í níðsterka öryggisgrind,
til verndar ökumanni og farþegum.
SUÐURLANDSBRAUT 16. SÍMI 35200
Við tökum notaða bíla upp i greiðslu á nýjum. Athugið lánakerfi Veltis h.f.