Þjóðviljinn - 08.12.1973, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 08.12.1973, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardafiur 8. desember 197:i, sameiginiegt simanúmer sameiginlegrar farskrárdeildar fyrir millilandaflug islensku flugfélaganna er sj r,- t:-' fwcfélac LOFTIÍIDIR Þau styrktu lamaða og fatlaða Þann 4. desember s.l. komu þessi þrjú ungmenni I skrifstofu Styrkatar- félags lamaöra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13 i Reykjavik og afhentu félaginu að gjöf kr. 21.150,-, sem þau höfðu aflað með basarsölu. Börnin eru á aldrinum 9-12 ára og heita Jön Þór Gunnarsson, Arnþrúður Baldursdóttir og Bogi Baldursson. A myhdina vantar Baldur öxndal. Bótagreiðshir almannatrygginga í Reykjavik Bótagreiðslur i desember hefjast sem hér segir: Ellilifeyrir mánudaginn 10. desember. Aðrar bætur nema fjölskyldubætur miðvikudaginn 12. desember. Fjölskyldubætur greiðast þannig: Mánudaginn 17. desember hefjast greiðslur með 3 börnum og fleiri i fjölskyldu. Þann dag opið til kl. 17. Miðvikudaginn 19. desember hef jast greiðslur með 1 og 2 börnum i fjölskyldu. Þann dag opið til kl. 17. Bótagreiðslum lýkur á þessu ári á hádegi aðfangadag og hefjast ekki aftur fyrr en á venjulegum greiðslutima bóta i janúar. Tryggingastofnun rikisins Jólaglaðningur Happ hrættis Háskólans Næstkomandi mánudag, þann 10. desember, verður dregið i 12. flokki liappdrættis Háskóla tslands. Að þessu sinni verður dregið um tæpar 102 miljónir króna, semskiptast i 13.500 vinn- inga. Hæsti vinningurinn verður fjórir tveggja miljón króna vinningar. Og þar sem Happdrættið hefur fjóra sam- stæða miða af hverju númeri, auðkennda með bókstöfunum E, F, G og H, gæti einhver, sem ætti fjóra samstæða miða, unnið átta miljónir króna. Þá koma fjórir 200.000 króna vinningar og átta aukavinningar á 100.000 krónur. Fylgja þeir hæsta vinningnum þannig, að þeir koma á næsta númer fyrir ofan og næsta nómer fyrir neðan tvær miljónirnar. Er þetta ein ástæðan fyrir þvi, að stöðugt fjölgar þeim, sem spila á raðir af miðum. Mestur fjöldi vinninganna eru hinir svokölluðu jólaglaðningar Happdrættisins. Eru það 4.968 vinningar á 10.000 krónur og 8.516 vinningar á 5.000 krónur. Það er mjög mikil vinna að draga út öll þessi 13.500 vinnings- nómer, raða þeim siðan upp i handrit að vinningaskrá og siðan að lesa prófarkir og bera allt saman. Við þetta verk vinna um 50manns. Mun sjálfur drátturinn standa yfir i um sjö klukkutima. Siðan hefst samanburður og próf- arkalestur. Mun þvi verða lokið seinni hluta þriðjudags, svo vinningaskráin ætti að geta komið ót á þriðjudagskvöld eða miðvikudagsmorgun. Útborgun vinninga hefst svo þriðjudaginn 18. desember. Verður borgað ót daglega frá kl. 10 til kl. 16 (einnig i hádeginu) á Aðalskrifstofunni i Tjarnargötu 4. (Frá (HHÍ) FÁKARÁFERÐ Jólabók hestamanna og hestaunnenda Fákar á ferð er eftir Þórarin Helgason, Þykkvabæ, gefin út af Búnaðarfélagi íslands. Fákar á ferðer um ættir og afrek skaftfellskra hesta-, sumir stofn- ar þeirra hafa borist i fjarlæg héruð og koma þar við sögu hrossa- ræktar. Fákar á ferð er bók, sem á erindi til hestamanna, hvar sem þeir eiga heima á landinu. Bókin mun einnig gleðja þá, er unna þjóð- legum fróðleik. Verð bókarinnar hjá bóksölum er kr. 735,- en hjá Búnaðarfélagi Islands fæst hún á forlagsverði. BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS Sj ófe rðamin n ing- ar Cœsars Mars Siglt um næturheitir bók eftir Cæsar Mar sem Leiftur hefur gefið ót. Eru þetta m inningaþættir höfundar, og hefjast árið 1917 þegar mikil harka er að færast i kafbátahernað Þjóðverja. ,,Um þetta leyti, segir i bókar- kynningu, var höfundur þessara endurminninga staddur i Eng- landi. Þar er allt i öngþveiti — sjómannaheimili full af atvinnu- lausum sjómönnum, en uggur svo mikilll i mönnum að fáir vildu fara á sjóinn." Það gerði höf- undur samt — og hófust þar með viðburðarrikir timar i æfi hans. Cæsar Mar hefur áður gefið ót tvær bækur um sjómennsku, úr djópi timans og Vitinn. Útgefandi er Leiftur. Cæsar Mar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.