Þjóðviljinn - 15.12.1973, Blaðsíða 1
UÚDVUHNN
Laugardagur 15. desember 1973. — 38. árg. 289. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
APDTEX
OPIÐ OLL KVOLD TIL KL. 7.
| NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2.
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SÍMI 40102
Versnandi ástand
á Höfni Hornafirði
Ibúar
Viðlaga-
sjóðshús-
anna
fluttir
burt
Miðstöðvarkerfi
húsa farin
að springa
Ástand mála á Hornafirði
fer nú versnandi með hverjum
deginum. I gær veittu flug-
freyjur undanþágu fyrir Flug-
félagsvél að fljúga til Hafnar
að sækja Vestmannaeyinga
sem búa i Viðlagasjóðshúsun-
um á Höfn, en allt vatn til
þeirra húsa mun vera frosið
nema i einu húsanna, en þessi
hús eru hituð upp með raf-
magni og því næsta óibúöar-
hæf núna vegna kuldanna og
rafmagnsleysisins.
Veitukerfi Smyrlárbjarga-
virkjunar er þriskipt yfir dag-
inn og skammtað rafmagn i
einn tima i senn á hvert svæði,
en rafmagnslaust i tvo tima á
timanum frá klukkan 8 á
morgnana til miðnættis.
Svæðinu er siðan skipt i tvennt
frá miðnætti til klukkan 8 á
morgnana, og er veitt raf-
magni á hvorn helming 4 tima
i einu yfir nóttina.
Miðstöðvakerfi eru nú farin
að frostsprjnga i mörgum
húsum, sérstaklega gömlum
húsum, og eins og áður segir
er aðrennslisvatn i öllum Við-
lagasjóðshúsunum frosið
nema i einu.
Atvinnulif staðarins er að
langmestu leyti lamað.
Stöðvar þær sem herinn
hugðist lána Hornfirðingum til
rafmagnsgerðar reyndust ó-
nýtar þegar til átti að taka og
auk þess er rafkerfi Hornfirð-
inga gert fyrir annars konar
riðstraum en þann sem vél-
arnar máttu brúkast til.
Til stendur að Hornfiröingar
fái túrbinustöð, sem nú er
staösett á Seyðisfirði. Hins
vegar er sá hængurinn á, að
þar er disilstööin biluð, og
meðan verið er að gera við
hana mega Seyðfirðingar ekki
missa túrbinustöðina, þvi þar
með yrðu þeir komnir i sama
vanda og Hornfirðingar eru nú
i.
Hins vegar standa vonir til
að viðgerð á disilstöð Seyö-
firðinga ljúki nú um helgina og
hægt veröi að senda túrbinu-
stöðina þaðan á mánudaginn,
og ætti hún þá að verða kom-
inn til Hafnar á þriðjudag.
Þaðmuntaka um sólarhring
að koma stöðinnifyrirog ef allt
kemur heim og saman ættu
Hornfirðingar að fá rafmagn
frá henni á miövikudag.
—úþ
Kosnin<gásÍ£ur þjóðveldisíiokksins í Færevjiun
Erlendur kjörinn
á danska þjóðþingið
„Við vorkennum Dönum” segir Erlendur
í fyrradag fóru fram I Færeyj-
um kosningar tvcggja þingmanna
til danska þjóðþingsins og voru
Erlendur Fatursson frá Þjóðveld-
isflokknuin og Johan Nielsen frá
flokki socialdcmókrata. Sam-
bandsflokkurinn missti sæti sitt.
Þetta var i fyrsta skipti, sem
Þjóðveldisflokkurinn býður fram
i kosningum til danska þjóðþings-
ins og cr kjör Erlendar stórsigur
fyrir flokkinn. Allt til þessa hafa
Þjóðveldismcnn haft þá afstöðu,
að láta kosningar til danska þjóð-
þingsins algerlega afskiptalaus-
ar, en þeir berjast scm kunnugt
er fyrir algerum aðskilnaði Fær-
eyja og Danmerkur.
Við náöum tali af sigurvegar-
anum Erlendi Patursson og
spurðum hann fyrst hverjar væru
meginástæðurnar fyrir þvi að
flokkur hans breytti nú til og byði
fram i fyrsta skipti við kosningar
til danska þingsins?
Erlendur sagði:
— Það er erfitt til lengdar fyrir
svona stóran flokk eins og Þjóð-
veldisflokkurinn er orðinn, að
leiða slikar kosningar algerlega
hjá sér. Núerulögþingskosningar i
Færeyjum eftir eitt ár og við töld-
um eftir atvikum rétt aö nota
þetta tækifæri til að styrkja
tengslin við okkar kjósendur og
sýna fram á hversu stuðnings-
flokkar færeysku landsstjórnar-
innar standa nú höllum fæti með-
al færeyskra kjósenda. Þetta
breytir auðvitað engu um
skilnaðarstefnu okkar gagnvart
Danmörku og við munum áfram
að standa alveg utan við alla
danska pólitik.
Þvi er samt ekki að leyna, að
býsna margir af okkar kjósend-
um sátu heima nú af princip-
ástæðum, telja það sem sagt
rangt að skipta sér nokkuð af
kosningum til þings Dana.
— En samt er útkoman góð,
Erlendur Patursson
hvernig voru eiginlega tölurnar,
Erlendur?
— Socialdemókratar fengu 8763
atkvæði eða 28,6%, þeir lækkuðu
um 3,13% frá siðustu þjóðþ.kosn-
ingum, Þjóðveldisflokkurinn fékk
3292 atkvæði eða 25,1%), sem er
meira en 3% hækkun frá siðustu
lögþingskosningum og mun ver.a
hæsta hlutfallstala, sem við höf-
Stjórnarfrumvarp eftir áramótin:
Sjúkrasamlög greiði
tannviðger ðakostn að
M agnús Kjartansson, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
skýrði frá þvi I gær að samiö hefði
verið frumvarp um að sjúkra-
samlögin taki þátt i tannviö-
gerðakostnaði. Er gert ráð fyrir
þvi aö þátttaka sjúkrasamlag-
anna i tannviögeröakostnaöi
komi til framkvæmda i áföngum.
Kvaðst ráðhcrrann liafa kynnt
frumvarp þetta i rikisstjórninni
og sagðist vænta þess að frum-
varpið yrði lagt fram á alþingi að
loknu jólaleyfi.
um nokkru sinni fengiö, Sam-
bandsflokkurinn fékk 2526 at-
kvæði eða 19,2%), lækkuðu um
2,5%) og Fólkaflokkurinn fékk 2674
atkvæði eða 20,4%, — svo fengu
tveir aðrir flokkar miklu minna.
Þeir þrir flokkar, sem standa að
landsstjórninni þ.e. Sócialdemó-
kratar, Sambandsflokkurinn og
Sjálvstýriflokkurinn töpuðu til
Framhald á 14. siðu
Það er athyglisvcrt I sam-
bandi við yfirslandandi
kjarasamninga að forráða-
menn ASI og BSHB hafa haft
nánara sainráð nú en áður i
kjarabaráttunni. I gærmorg-
un komu nefndir frá þessum
aðilum saman til stutts fund-
ar i húsakynnum BSKB að
l.augavegi 172, og var rætt
þar uin stöðuna i samninga-
inálum beggja. Myndin var
tekin þá. Um fimmleytið hóf-
ust samningaviðræður full-
trúa BSKB og rikissljórnar-
innar og var búist við að
fundurinn stæði i alla nótl,
þar sem vilji cr hjá báðum
aðilum að ná samningum,
svo að málið þurfi ekki að
fara fyrir Kjaradóm. Náist
ekki samningar á þessum
fundi ger málið sjálfkrafa
fyrir Kjaradóm.
Nýrlundur
í dag hjá
flugfreyjum
Það er ekkert að frétta
af okkar málum, sagði Jó-
friður Björnsdóttir, ein úr
samninganefnd flug-
freyjufélagsins um 7-leytið
i gærkvöldi.
Við vitum ekki um nein verk-
fallsbrot til þessa. Okkar fólk
fylgist vel með allri framvindu
mála hjá flugfélögunum og i flug-
stöðvunum. Að þvi er best er vit-
að, eru allar millilandavélar
stóru flugfélaganna tveggja i út-
löndum.
Verkfall skall á aðfaranótt
föstudags, en fundur stóð alla þá
nótt og framundir kl. 6 um morg-
uninn. Nýr samningafundur er
boðaður i dag kl. 2. Við teljum að
ekkert hafi miðað i kaupgjalds-
málum, en varðandi sérkröfur
hefur gengið nokkuð vel i viöræö-
unum. hj—
Happdrsetti Þjóðviljans:
SKILADAGUR. Skrifstofan Grettisgötu 3
og afgreiðsla Þjóðviljans opnar til kl. sex i kvöld.