Þjóðviljinn - 15.12.1973, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 15.12.1973, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. desember 1973. Dragnótabátar eiga engan tilverurétt — ef þeir geta ekki stundað segir Steindór Arnason um t tilefni þeirra umræðna sem áttu sér nýlega staö í borgar- stjórn um veiöiheimildir fyrir dragnótabáta I Faxaflóa sneri blaóió sér til Steindórs Arnason- ar, fyrrverandi skipstjóra, og spurði hann álits á þcssum veið- um. Steindór er gamall bátaskip- stjóri og gjörþekkir þessi mál. Steindór sagði að dragnótin væri að þvi leyti háskalegt veiö- arfæri að meö henni mættu bátar veiða upp i fjörusteina. Mikill munur væri á að leyfa t.d. troll- veiöar, þvi með það veiðarfæri mega bátar ekki koma nær landi en fjórar milur. í Faxaflóa horfir málið þannig viö að á svokölluöu Bollasviði, sem er miðja vegu milli Reykja- vikur og Keflavikur, eru tvö stór hraun sem runnið hafa einhvern tima i eldgosi sem oröiö hefur undir is i miðjum Faxaflóa. Eru þarna miklar grynningar sem ó- hætt er aö veiöa á, ef menn treysta sér til þess, þvl þar eru engar uppeldisstöövar. Hins vegar er læna eöa leir sem liggur frá Bollasviöi inn undir Gróttu, þaöan norður fyrir Akra- nes á móts við Þormóðssker og Þormóössker og svo alla leiö út f Jökuldjúp. Inn á þetta svæði má aldrei hleypa dragnótinni, þvi á þvi eru miklar uppeldisstöðvar einkum ýsu, einnig annarra tegunda, svo sem þorsks og ufsa. Það má veita veiðiheimildir I utanveröum Faxaflóanum og Jökuldjúpi, en undir engum kringumstæöum á uppeldisstöðvunum á leirnum. Þaö eru nokkrir bátar hér i Reykjavik sem hafa haft af Stúdentafundur um lánamálin Vitir framkomu „vinstri stjórnar I fyrradag efndu Stúdentaráð III og SINE tii stúdentafundar i tilefni þcss aö nú er veriö aö af- greiöa fjárlög á alþingi, en eins og kunnugt er af fréttum er allt útlit fyrir að kröfur námsmanna um að námslán nemi 100% um- framfjárþarfar nái ekki fram aö ganga og að einungis S3% verði veitt. Fundurinn var fremur fámenn- ur sem eflaust á sina skýringu i þvi, aö jólafri er yfirvofandi og margir stúdentar þegar farnir að hala inn aukapening með jóla- vinnu. Urðu nokkrar umræður um ályktun sem fundarboðendur lögðu fyrir fundinn en ákveðið að fresta frekari aðgeröum. Alyktun fundarins er svohljóð- andi: „Stúdentafundur haldinn i Stúdentaheimilinu við Hring- braut fimmtudaginn 13. des. 1973 mótmælir harðlega þeirri með- ferö, sem Alþingi og rikisstjórn hafa veitt brýnustu hagsmuna- málum u.þ.b. 4000 námsmanna. Hefur raungildi fjárveitinga Al- þingis til Lánasjóös islenskra námsmanna staðið i stað frá 1971/1972. Er nú i þokkabót ein- ungis fyrirhugað að veita 1/4 þeirrar lánaaukningar sem námsmenn krefjast á fjárhagsár- inu 1974. Sú meðferð, sem núver- andi rikisstjórn hefur veitt náms- mönnum, er óþolandi af hálfu rikisstjórnar, sem kveður sig berjast fyrir félagslegu jafnrétti. En námslán eru ekkí einungis hagur námsmanna. Þau eru hag- ur alls hins islenska þjóðfélags. Þau eiga að tryggja jafnrétti til náms, sem er einhver veigamesta hlið menntunarlýðræðis. Þau eiga einnig að koma i veg fyrir að langskólamenntun verði „arf- geng forréttindi”, og hindra allt það félagslega misrétti og þá spiilingu sem slikum forréttind- um fylgja. Jafnframt ættu námslán, eða öllu heldur námslaun, að koma til lækkunar á launum mennta- manna og stuðla þannig að launajöfnuði i landinu. I ljósi alls þessa krefjast námsmenn 100% Samtök h'erstöðva- andstœðinga: Almennur stuðnings- manna- fundur # í dag Samtök herstöðvaand- stæðinga halda almennan stuðningsmannaf und -\ Atthagasal Hótel Sögu. Fundurinn hefst klukkan 2 eftir hádegi. Undirbúningsnefnd/ sem kjörin var fyrir nokkru til að leggja á ráðin um starf samtakanna, mun gera grein fyrir hugmyndum sinum, og rætt verður um verkefnin framundan. Pólsk mynd Stjörnubiói dag 1 # 1 sýnd Pólska sendiráöið og Pólsk-íslenska félagið gangast fyrir kvikmynda- sýningu í Stjörnubíói klukkan tvö i dag, laugar- dag, og er aðgangur ókeyp- is. Myndin sem sýnd verður er að sjálfsögðu pólsk, en meö enskum texta. Heitir hún Fiðrildi, og fjall- ar um börn og unglinga, sem reyndar sjá um leikinn i mynd- inni. Mynd þessi er talin mjög listræn og eiga sérstakt erindi til kennara og annarra uppalenda. Kvikmyndastjórinn er einn hinna þekktustu meöal ungra kvikmyndagerðarmanna i Pól- landi, Nafster að nafni. —úþ Raforkan Framhald af bls. 4 komast i gagnið 1978 og það kom i ljós strax 1970, að gerð hennar væri afar hæpin og þá hefði átt að taka I taumana. Það var gerð röng orkuspá fyrir Norðurland, en forráðamenn orkumála á Noröurlandi heföu átt aö sjá vandann fyrr Þegar heimamenn vöruðu við áætlunum um Gljdfurversvirkjun bentu þeir á að nota Kröflu, en þá mátti ekki heyrast á slikt minnst. Vlkingaskák verður kynnt i félagsheimili Taflfélags Reykjavikur við Grensásveg sunnudaginn 16. des. n.k. kl. 2 til 5 e.h. öllum frjáls aðgangur. Upplýsingar i sima 84976. Magnús ólafsson. námslána, og vita þeir framkomu hinnar svonefndu „vinstristjórn- ar” i lánamálunum og munu und- ir engum kringumstæðum við jna”. Þess má geta að sú gagnrýni kom fram að oröalag ályktunar- innar væri ekki nógu mikið i anda stéttabaráttunnar og tillaga um aö Kommúnistaávarpið yrði látið fylgja henni sem greinargerð var felld með naumum meirihluta. —ÞH Tilboð Þjóðviljinn hefur undanfarið verið að basla við tilraun til að skrifa part sögu minnar undan- farin tvö ár. Ekki er mér þó, að fullu ljóst hvort hér er um að ræða skáld- sögu eða heimildarrit (höfundur- inn er falleraður skáldsagnahöf- undur). Ef Þjóðviljinn hefur áhuga fyrir heimildarriti, er ég reiðubú- inn til að eiga viðtal við blaða- mann hans, hvern sem er að Ú.Þ. ekki undanskildum. öruggast þykir mér þó að vott- ar séu viðstaddir viðtalið, og handritið sé lesið af þeim og mér, áður en það birtist. Virðingarfyllst, Eriendur Viihjálinsson. Frá blaðinu Þegar skýrslan um starfsemi Tryggingastofnunarinnar kom út fyrir nokkrum mánuðum beind- ust augu allmargra að höfundi undanfarandi athugasemdar. M.a. var athygli vakin á þætti hans i skýrslu Tryggingastofnun- arinnar hér i Þjóðviljanum. Þjóð- viljinn vill i tilefni afhugasemd- arinnar hér á undan benda á, að engum efnisatriðum framkom- innar gagnrýni er þar svarað, sem hefur raunar aldrei verið gert og er býsna fróðlegt. Af þvi má ef til vill draga ályktanir. Telji blaðið ástæðu til þess að óska eftir viðtali um þessi efni veröur eftir þvi leitað og viðtalið tekið samkvæmt þeim starfsregl- um sem tiökast meðal blaða- Á móti fé til ÆSÍ Ellert B. Schram, fyrrverandi form. SUS, kraföist þess á alþingi i gær aö sérstaklega gengju at- kvæði um 400 þús. kr. fjárframlag til Æskulýðssambands tslands, sem var ein af sameiginlegum til- lögum fjárveitinganefndar. At- kvæði féllu þannig, að 35 þing- menn greiddu atkvæði með fjár- veitingunni en 8 þingmenn Sjálf- stæðisflokksins voru á móti fram- lagi til ÆSt. ■ Taliö er, að borgarstjórnin i Buenos Aires hafi slegið hæðar- met jólatrjáa þegar hún lét reisa 72 metra hátt jólatré á að- altorginu. annan veiðiskap, veiðar i Faxaflóa þvi atvinnu aö drepa smá- fiskinn á leirnum. Ef þess- ir bátar geta ekki stundaö annan veiðiskap en dragnótaveiö- ar á uppeldisstöðvunum,eiga þeir engan tilverurétt. —ÞH Flug Framhald af bls. 16. Ólafur Smith, fulltrúi hjá BEA, sagði aö samkvæmt fastri áætlun kæmi hingað vél á sunnudag kl. 14.20 og færi héðan aftur klukku- stundu siðar. Fullbókað er i vél- ina hingað og héðan, auk þess sem fólk er búiö að bóka sig á bið- lista. Vélin, sem er af geröinni Trident 2 tekur 99 farþega. Að jafnaöi eru með þessum vélum 40 — 50 farþegar til og frá landinu. Flug til Glasgow? Ingvi Grétarsson hjá Flug- stöðinni h.i. sagöi að mikiö væri um pantanir hjá þeim, en félagið annast ei fastar áætlunarferðir. Vegna veðurs var ekki hægt að fljúga nema eina ferð til Vest- mannaeyja og eina ferð til Vest- fjarða, en mikil eftirspurn er eftir flugi til Hafnar i Hornafirði og Egilsstaða svo dæmi sé tekið. Flugstöðin á þrjár tveggja hreyfla vélar, sem taka fimm far- þega, eina fimm sæta eins hreyf- ils vél og þriggja sæta eins hreyfils vél. Ingvi sagði að tals- vert hefði verið spurt um far til Glasgow og London og gæti svo farið að flogið yrði til Glasgow i nótt. Ferðin tekur um þrjá og hálfan tima miðað við vindstöðu sem var i gær eftirmiðdag. Vængir fljúga mikið Elis Kristjánsson hjá Vængj- um sagði, að það væri óskaplega mikið að gera og hefðu þeir flogið viða, þar á meðal nokkrar ferðir til Vestmannaeyja og til fastra í- ætlunarstaða. Þá var hugmyndin að fara eina eða tvær leiguferðir til Akureyrar með kvöldinu. Vængir hafa til umráða 19 far- þega vél og tvær 9 farþega vélar. Stærsta vélin átti að fara á fimm mismunandi staði i gær, en þó var ekki nærri þvi hægt að anna eftir- spurninni. „Við reynum að sinna okkar áætlunarferðum en þar er mikill aukning(og leigja siðan vél- ar á kvöldin til annarra staða þar sem ijós er á völlum,” sagði Elis. Jakobina Framhald af bls. 6. rædda fyrirtæki, Kisiliðjuna. Ef þú vissir um einhvern, sem gæti útvegað ákveðna tegund efnis, þá veit ég um menn, sem kunna að fara meö það og eru fúsir til að nota það. Að visu fyrirfinnst hér enn i nokkrum gjótum eitthvað smávegis, en þar fyrir utan hefir þess verið vandlega gætt af viss- um aðilum, að þetta efni yrði sem allra fyrirferðarminnst i fórum Mývetninga. Svo ef einhver vildi liðsinna manni um svolitla hungurlús til viðbótar, er aldrei að vita,— En það er áhætta, mikil áhætta. Og svo þarf kannski að nota þetta syðra, þar er nú bæði Straumsvik og Hvalfjörður. Mér finnst að við ættum að byrja hér, en ég ætla ekkert að metasta um það. Hvað finnst þér? Erlendur Framhald af bls. 1 samans yfir 6% frá siðustu þjóð- þingskosningum. Kosningarnar má telja straumhvörf i færeysk- um stjórnmálum. Þjóðveldis- flokkurinn er i mikilli sókn en stjórnarflokkarnir komnir á undanhald. — Hverju þakkar þú kosninga- sigurinn fyrst og fremst? — Viö vinnum þennan sigur út á okkar pólitik almennt, en alveg sérstaklega eigum við hann aö þakka skýrri stefnu flokksins um einhliða útfærslu landhelginnar við Færeyjar og harðri andstöðu okkar gegn innlimun Færeyja i Efnahagsbandalagiö og NATO. Það má reikna meö, að við höfum fengiö góðan stuöning frá unga fólkinu i Færeyjum. — Og nú heldur þú brátt til Kaupmannahafnar á þingið? — Já, ég mun gera það, en ætl- un min er ekki að gerast danskur stjórnmálamaður. Ég mun lita á störf min á danska þinginu svip- uðum augum og þátttöku mina áður i störfum Norðurlandaráös, en mér kæmi ekki á óvart, þó ég ætti eftir að sakna þar þeirrar samvinnu, sem ég hef átt við Is- lendinga á vettvangi Noröur- landaráðs. — Hvaö segir þú um stjórnar- myndun i Danmörku, Erlendur? — Ég býst nú ekki viö að koma þar mikið við sögu, en það er hörmulegt að vita, hvernig komið er fyrir Dönum, og ég hef sagt við danska fréttamenn, að Færeying- ar kenni nú i brjósti um Dani. Þjóðviljinn óskar Erlendi og flokki hans til hamingju með kosningasigurinn, en eins og flestum hérer kunnugt er Erlend- ur Patursson islenskur að hálfu, og flutti hann snjalla ræðu á 1. mai fundi verkalýðsfélaganna i Reykjavik s.l. vor. Varamaður Erlendar var kjör- inn Finnbogi Isaksen. Húsnæðismál Framhald af bls. 9.' á, og er nauðsynlegt að hafa til- búin timanlega byggingasvæði og ek’.i seinna vænna en að borgin fari að úthluta lóðum undir næsta áfanga verkamannabústaða. Auðvitað kosta framkvæmdir eins og tillagan gerir ráð fyrir æfrið fé, sagði hann,og er fjár- mögnun að sjálfsögðu alltaf nokkurt vandamál. Með hliðsjón af þvi átaki, sem hér er lagt til,á borgarstjórn að skora á alþingi að breyta lögum þannig, að aðstöðu- gjöld verði miðuð við 65% af þvi sem var 1971. Ranglátt er að miða aðstöðugjöld um langa framtið við þaö hvernig sá tekju- stofn var notaöur eitt tillekið ár og skapa þannig misræmi milli sveitarfélaga um álagninguna. Breyting eins og hér er lögö til gæfi Reykjavik á 2. hundrað milj. kr. i tekjur á ári og er ýmis- legt hægt að gera við þá peninga bæði á sviði húsnæðismála og annarra. Eykur misskiptinguna Sigurjón lagði að lokum áherslu á, aö húsnæðisskortur væri félagslegt vandamál, sem yki misskiptingu i þjóðfélaginu og bitnaði harðast á þeim, sem minnst mættu sin. Borgin viðurkennir nú þegar skyldur sinar meö að eiga 650 leiguibúöir auk aðstoðar Félags- málastofnunarinnar með fé, tima og starfskröftum til að leysa úr húsnæðisvandræðum fólks, þótt misjafnlega gangi. Til að leysa þetta vandamál þarf stórátak, sagði hann, og raunar stærra en hér er lagt til. En verði tillagan samþykkt yrði þó vandi mikils fjölda leystur. _____________________ -vh Okkar innilegustu þakkir og jóla og nýársóskir til allra hinna fjölmörgu, sem sýndu okkur hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður BENEDIKTS S. BENEDIKTSSONAR frá Hellissándi. Sérstakar þakkir til Slysavarnafélags tslands, Slysa- varnadeildarinnar á Hellissandi og Sparisjóðs Hellis- sands. Unnur Benediktsdóttir Halldór Benediktsson Sveinbjörn Benediktsson Eggert Sigurmundsson Ólöf Jóhannsdóttir Astrós Friöbjarnardóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.