Þjóðviljinn - 15.01.1974, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.01.1974, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. janúar 1974 í timaritinu islenskum iðnaði, sem gefið er út af Félagi islenskra iðnrekenda,birtust nýlega þættir úr fyrirlestri, sem Ola Skjak Bræk, iðnaðarráðherra Noregs flutti hér i Norræna húsinu fyrir nokkru, er hann kom hingað i heimsókn í boði Iðnaðarbanka íslands. Þjóðviljinn telur ástæðu til það fleiri en lesendur umrædds tímarits eigi þess kost að kynnast viðhorf- um norkska iðanaðarráðherrans, og þess vegna birtum við hér meginefni þess, sem eftir honum er haft i timaritinu tslenskum iðnaði. Ég er sérstaklega ánœgður með að við skulum ekki vera i Efnahags- bandalaginu, með tilliti til oliunnar Olluborturn I Norúursjó. Við viljum sjálfir geta rekið þjóðlega olíupólitík segir iðnaðarráðherra Noregs Iðnaður i Noregi Iðnaðurinn er mikilvægasti at- vinnuvegurinn i Noregi. Núna starfa i honum 400 þús. manns eða um 32% af starfandi fólki i landinu. Megin hluti af þessu fólki vinnur i litlum fyrirtækjum með 10 starfsmenn eða færri eða um 75% af vinnuaflinu. Efnahagsbandalag Evrópu Efnahagsbandalagið var i upphafi stofnað með pólitiska sameiningu i huga, en hefur yfir- leitt verið lagt fyrir, sem efna- hagslegt sameiningarafl. i Noregi var okkur sagt að við hefðum ekki efni á að standa á móti þvi að ganga inn i Efnahags- bandalagið vegna efnahagslegrar pressu. Við höfum náð samningum um tollalækkanir við bandalagið, sem ég tel fullnægj- andi. Samningurinn veitir okkur fullt pólitiskt frelsi og við getum verndað okkar heimamarkað. 1 öllum meginatriðum höfum við fengið sömu tollalækkanir og meðlimir Efnahagsbandalagsins. Vandamál okkar i Noregi eru ekki tollvernd i öðrum rikjum Evrópu eða annars staðar, heldur hvernig okkur tekst að ráða viö verðlagið heima fyrir, vinnulaun og annan kostnað. Ég er sérstak- lega ánægður með að við skulum ekki vera i Enahagsbandalaginu, með tilliti til oliunnar. Ef við værum i Efnahagsbandaiaginu vippu - bIiskOrshurðin Logerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm Aðrar starðir.onlðaðar eftir baiðni. QLUGQA8IHIDJAN sa.mJ* 12 - Sfai 38220 réði það okkar oliupólitik eins og gerst hefur i Bretlandi og Hol- landi. Viö viljum sjálfir geta rekið þjóðlega oliupólitik. A þann hátt einan getum við ráöið sjálfir hvernig olian nýtist okkur. Landbúnaður og sjávarútvegur eru nú ekki bundnir neinum þeim skilyrðum sem þeim hefðu verið sett, ef af aðild hefði orðið. 1 viðskiptasamningnum við EBE eru ákvæði til verndar stóriðju bandalagsins, sem koma sér illa fyrir norska framleiðendur á áli, pappirsvörum og fleiru. Komiö hefur i ljós að næg eftirspurn er eftir þessum vörum annars staðar i heiminum og Norðmenn hafa vart undan að framleiða þessar vörutegundir, fyrir aðra en Efnahagsbandalagið. Olía i Noröursjó Nú eru 10 ár liðin siöan byrjað var að athuga hvort hægt væri að nýta oliu úr Norðursjó. Við Norð- menn höfum verið svo gæfusamir að finna þarna nýja orkulind þegar vatnsorka okkar er nærri fullnýtt. Við höfum tekið þá stefnu að fara varlega i nýtingu oliunnar. Við viljum ekki selja oliuna óunna, sem ódýrt hráefni. Þess hefur verið krafist af mörgum að við borum meðfram allri strönd Noregs og reynum að ná sem mestri oliu á sem skemmstum tima. Við höfum neitað að gera þetta. Eins og allir vita er meira en helmingur af kunnum oliu- birgðum heims i Arabalöndum, sem nú gera vaxandi kröfur um hlutdeild i verði oliunnar. Við vonum að geta orðið sjálfum okkur nógir og að geta flutt eitt- hvað út, þó að við látum okkur ekki dreyma um að verða oliu- stórveldi á við sum Arabarikj- anna. Við vinnslu oliunnar myndast gullstraumur inn i landið sem getur ruglað hlutföll i efnahags- lifinu, ef ekki er vel að gáð. Olian má ekki verða svo yfirgnæfandi að hún myndi spennu, sem eyði- leggur aörar atvinnugreinar og myndi leiða af sér ósamkeppnis- fært atvinnulif. Við litum á oliuna sem þjóðarauðlind, sem verður að koma öllu samfélaginu til góða. Allt sem við kemur oliuvinnslu og olluleit eru stórbrotin viðskipti. Við höfum þvi frá byrjun tekið þá stefnu, að norskur Ola SkjSk Bræk, iðnaðarráðherra Noregs. iðnaður fái tækifæri til að tileinka sér þá tæknikunnáttu sem þar er á ferð. Vegna þessarar stefnu hefur þegar skapast álitlegur út- flutningur á margs konar tækjum til oliuleitar og oliuvinnslu. Má nefna sem dæmi að skipasmiöa- stöðvar á vesturströnd Noregs hafa þegar byggt mörg skip, sem sérstaklega eru ætluð til þjónustu við oliuleitarstöðvar á hafi úti. Hlutverk banka Það eru fyrst og fremst viðskiptabankarnir, sem hafa stutt að iðnþróun á Sunnmæri, en einnig hafa sparisjóðirnir gegnt miklu hlutverki i sínum byggða- lögum. Hafa þeir þannig farið - óvenju mikið inn i atvinnulifiö, sérstaklega i smærri fiskibæjum. Fyrr á árum voru margir viðskiptabankar á Sunnmæri, en árið 1952 sameinuðust fjórir þeirra og úr varð fyrsti héraðsbanki i Noregi, Sunnmöre Kreditbank. Þetta varð fyrir- mynd, sem opinber bankamála- stefna i Noregi var mótuð eftir, að stofna sterka banka i hverju héraði sem mótvægi gegn bönk- unum, sem ná til alls landsins. Það er min skoðun að þetta hafi haft mjög góð áhrif á þróun at- vinnulifs á Sunnmæri. Bankinn hefur ekki aðeins sinnt almennri lánastarfsemi banka, heldur hefur hann tekið virkan þátt i þróun atvinnulifsins, með for- göngu um margvislegar nýjungar. Bankinn hefur verið drifandi afl i mörgum af sam- gönguframkvæmdum héraösins, byggingu Vigraflugvallarins, sameiginlegs vöruhúss fyrir Sunnmæri i Osló, útflutnings- skrifstofu Suðurmæris, Industri- facktor stofnunarinnar og marga fleiri. Þá hefur bankinn sett á stofn bókhaldsskrifstofu, sem veitir rekstrarleiðbeiningar og færir bókhald fyrir bátaflotann og önnur atvinnufyrirtæki. Þar sem Suðurmæri hefur ekkert af mið- stöðvum fjármálalifsins i sinu héraði, að undanskildri deild úr útvegsbanka rikisins á seinni árum, hefur bankinn gegnt mikil- vægu hlutverki i þvi að ná lánsfé inn i atvinnulif héraðsins, frá öðrum lánastofnunum lands- manna. Þess má geta að þegar Exportfinance lánafyrirtækiö var stofnað var Sunnmöre Kredit- bank einn af stærstu hluthöfum, þar sem okkur þótti þegar ljóst, hvaöa þýðingu þessi stofnun gæti haft, til eflingar útflutnings á iðnaðarvörum. Fjármögnun iðnaöar Iðnaður á Sunnmæri þurfti i upphafi litið fjármagn, en fjár- magnsþörfin hefur aukist mjög mikið með þróun iðnaðarins, sér- staklega þörfin fyrir rekstrar- fjármagn. — Norsk skattalög og afskriftarreglur eru fremur hag- stæð, hvað viðkemur fjármagni til fjárfestingar, en vinna bein- linis gegn söfnun rekstrafjár- magns. Þörf fyrir lánsfé til rekstrar hefur þvi aukist meira en nemur vexti i iðnaðinum. Þá hefur aukin samkeppni haft i för með sér aukin lánsviðskipti á milli viðskiptaaöila. Til að bregða t við þessu stofnuðu húsgagnaframleiðendur og vefn- aðarvöruframleiðendur á Sunn- mæri fyrstu facktorfyrirtækin i Skandinaviu, sem siðar sameinuðust i eitt fyrirtæki, Industrifactor. Hliðstæð fyrirtæki hafa siðan verið stofnuö viðar i Noregi og annars staðar i Skandinaviu. Hlutverk facktor- fyrirtækja er að greiða framleið- endum fyrir útistandandi skuldir, þannig að þeir geta sett fjár- magnið aftur inn i framleiðsluna. Onnur fjármálastofnun sem hefur haft mikla þýðingu fyrir út- flutnings- og iðnaðarþróun á Suðurmæri er Exportfinance, er sett var á stofn i sameiningu af viðskiptabönkunum, til að veita meðallöng lán til útflutnings á fjarfestingarvörum, til að fjár- magna vörulagera erlendis, og sem siðan fékk það hlutverk að fjármagna framleiðslu á litlum samgöngutækjum, sem einnig fara á innanlandsmarkað. Þýðing þessarar stofnunar fyrir þróun skipasmiða á Suðurmæri verður seint ofmetin og stofnunin er mörgum kunn á tslandi. Erfiðar samgöngur Staðsetning iðnaðar á Suðr- mæri er sérstök. Iðnaðurinn er ekki samankominn á einum stað, heldur dreifður á marga staði á eyjunum og i fjörðunum, i litlum bæjum, sem hafa tvö til fimm þúsund ibúa. Samgöngumál hafa lengst af verið viðkvæmt mál á Suðurmæri og einkaaðilar hafa oft orðið að bæta upp það sem á vantaði hjá rikinu. Sem dæmi má nefna, að Vigraflugvöllurinn var i upphafi fjármagnaður að mestu leyti af einkaaðilum, fyrir for- göngu iðnaðar i héraðinu, banka og borgarstjórnar Alasunds. Sama má segja um margar fram- kvæmdir á sviði ferjubygginga, jarðgangna, vega og brúar- gerðar. Hér eru um að ræða upp- hæðir, sem nema yfir 100 milj. norskra króna, en forgangan um verkið hefur enn meira að segja en fjarmagnið. Samgöngurnar hafa ekki haft minna að segja i þvi, að koma á viötækum samskiptum milli iðn- rekenda og heppilegu andrúms- lofti fyrir atvinnurekstur á Suður- mæri. Þetta er mjög mikilvægt i Noregi, þar sem yfirvöld byggða- mála hafa átt mjög erfitt með að þróa iðnað i þeim héruðum, sem hann er litill, en þau eru stór i okkar langa landi. lönaöur tengdur sjávarútvegi Margt af iðnaði á Suðurmæri og raunar i Noregi öllum hefur orðið til sem þjónustuiðnaður við sjávarútveginn og hefur þróast þaðan i ýmsar áttir. Dæmi um þetta er það, þegar plast kom i stað korks, sem flotholt. Það var byrjun á plastiðnaði á Suðurmæri sem nú er orðinn verulegur út- flutningsiðnaður, sem auk þess selur framleiösluleyfi til margra landa um allan heim. Vélar til plastframleiðslu eru einnig orðnar að útflutningsvöru og oft er sala á framleiðsluleyfi tengd sölu vélanna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.