Þjóðviljinn - 07.02.1974, Side 3
Fimmtudagur 7. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
íslenska umboðssalan er að verða:
Jafningi
SH og SÍS
í útflutningi á frystri loðnu —
útvegaði nokkrum frystihúsum lán
til að auka frystigetu þeirra
í viðtali vð Þjóðviljann, sem
birtist i blaðinu i gær sagði Guð-
jón B. Ólafsson framkvæmda-
stjóri sjávarafurðadeildar SÍS, að
SÍS hefði rnisst 4 frystihús til
Bjarna Magnússonar fyrrum
starfsmanns SÍS, sem nú fæst við
loðnuútflutning, en hann stjórnar
fyrirtækinu islenska umboðssai-
an. Guðjón sagði að þessum
frystihúsum hefði verið veitt á-
kveðin fyrirgreiðsla frá ÍU með
fjármagn og þess vegna hefðu
þau farið frá SÍS.
Við höfðum i gær samband við
Bjarna Magnússon og spurðum
hann hvernig þessi fyrirgreiðsla
hefði verið og hvaðan fjármagnið
væri komið.
— Þannig er málið vaxið, að ég
hef fengist við loðnusölu til Jap-
ans frá þvi árið 1971, og höfum við
alltaf skipt við samá aðilann. Þá
var það fullyrt af sölusamtökun-
um (SH og S1S> að ekki væri hægt
að selja nema 1000 tonn af frystri
loðnu til Japans, markaðurinn
væri ekki meiri. Samt gerðum
við samning það ár uppá 2300 tonn
og hærra verð en þeir og nýja
flokkaskiptingu og það þá flokka-
skiptingu sem i dag gildir fyrir
alla aðila hér, sem selja loðnu til
Japans.
Arið eftir eru svo sölusamtökin
komin upp i 3000 tonn og við með
mikið magn einnig. En þá
sögðu Japanir að fyrst við gæt-
um ekki selt þeim nægjanlegt
magn yrðu þeir að fara til Norð-
manna og kaupa loðnu þar. Það
ár hófust svo loðnukaup frá Nor-
egi.
1 fyrra gerðum við svo samning
um sölu á 10.000 tonnum, sem við
gátum auðvitað ekki uppfyllt, en
var þó visbending um, hvað við-
skiptavinurinn vildi kaupa. Við
gátum útvegað 1500 tonn, og þá
sagði kaupandi okkar i Japan að
þetta væri alltof litið og hvernig
standi á þvi að við getum ekki selt
meira magn. Við sögðum honum
þá að ef hann gæti greitt okkur
fyrirfram eða útvegað okkur lán
til þess að byggja upp frystigetu
þeirra húsa sem við skiptum við
og auka hana, gæti hann fengið
meira magn.
Hann féllst á að gera þetta og
siðan skipulögðum við bara hvað
þyrfti að gera fyrir þau hús sem
við höfðum haft fram að þessu og
fyrir nýja aðila sem vildu koma
inn i þetta.
Nú kaupum við af 10 aðilum
sem frysta loðnu og getum selt til
Japans 5000 tonn i ár, allt vegna
þessarar fyrirgreiðslu sem við
fengum hjá kaupanda okkar i
Japan.
— Hvað heldur þú að hægt væri
að selja mikið magn af frystri
loðnu til Japans?
— Islendingar selja nú nærri 40
þúsund tonn af frystri loðnu til
Japans, en markaðurinn allur þar
er um 100 þús. tonn. Þvi er það
bara spurningin hversu duglegir
sölumenn við erum, þvi við verð-
um að keppa við Norðmenn og
Rússa á þessum markaði.
— S.dór
26% hækkiin
bilastyrkja
borgarinnar
Bifreiðastyrkir borgarstarfs-
manna hækka um 26% fyrir
fyrstu sex mánuði þessa árs.
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu þessa efnis frá forstöðu-
manni Vélamiðstöðvar borgar-
innar, sem byggist á hækkun
rekstrarkostnaðar bifreiða á sl.
ári.
Akvörðunin um hækkun er að-
eins látin ná til hálfs ársins 1974,
þar sem bilastyrkjakerfi borgar-
innar er nú i endurskoðun, og er
niðurstaðna vænst fyrir mitt ár.
—vh
Meinleg villa
Meinleg vilia var i upphafi
stutts viðtals við Guðjón B.
Ólafsson framkvæmdastjóra
sjávarafurðardcildar SÍS i
gær. Þar stendur að Guðjón
hafi sagt það sölúmálum okk-
ar á loðnu til góðs að fjölga út-
flytjendum, cn eins og segir i
fyrirsögn og raunar siðar. i
viðtaiinu sagði Guðjón að það
væri EKKI til góðs, sem sagt
orðið EKKI féll niður.
Alþýðubandalagið:
Ráðstefna um sveitar-
stjómarmál 2.-3. mars
Alþýðubandalagið boðar
til ráðstefnu um sveitar-
Aukaaðal-
fundur
Yerðandi
Verðandi, félag róttækra
stúdenta i Háskóla Islands, held-
ur i kvöld aukaaðalfund vegna
stefnuskrárgerðar félagsins.
Þá er einnig á dagskrá fundar-
ins greinargerð og ályktun i her-
stöðvamálinu, og ennfremur
verður fjallað um skipulagsmál
og starfið framundan.
Fundur Verðandi verður i
Stúdentaheimilinu við Hring:
braut i kvöld, fimmtudag, og
hefst kl. 20.
Framkvæmdastjórnin
stjórnarmál dagana 2. og 3.
mars nk. Ráðstefnan hefst
kl. 14 laugardaginn 2. mars
og stendur til kl. 18. Sunnu-
daginn 3. mars hefst fund-
ur kl. 14 og lýkur væntan-
lega um kvöldið.
A ráðstefnunni verða tekin fyrir
fjölmörg sameiginleg vandamál
sveitarfélaganna, skipulag lands-
hlutasamtakanna, starfsaðstaða
sveitarstjórnarmanna og vaxandi
áhrif embættismanna og sérfræð-
inga á alla stjórnarhætti. For-
maður fjárveitinganefndar Geir
Gunnarsson, ræðir um fjármál og
framkvæmdir sveitarfélaga.
Þess er eindregið vænst að
sveitarstjórnarmenn á vegum Al-
þýðubandalagsins sæki ráðstefn-
una. Fulltrúar sveitarstjórnar-
manna á Norður- og Austurlandi
eru væntanlegir á fundinn.
Dagskrá ráðstefnunnar verður
nánar auglýst siðar.
Um 20 loðnuskip biðu iöndunar I Reykjavikurhöfn I gærmorgun. Hér sjást tveir bátanna drekkhlaðnir
við bryggju. Það eru Þórður Jónasson EA og Venus GK (Ljósm. S.dór).
Sitthvað úr sanm-
ingunum við Isal
í fréttabréfi um kaup og kjör
hjá ísal, sem samninganefnd
verkalýðsfélaganna, er þar áttu
aðild að samningum hefur sent
frá sér, segir m.a. um nýgerða
kjarasaminga:
Fyrstu tónleikar á siðara miss-
eri verða haldnir i kvöld 7. febrú-
ar. Stjórnandi verður Jussi Jalas
frá Finnlandi og einleikari Arve
Tellefsen frá Noregi. A efnis-
skránni verða þessi verk: Hary
Janos svita eftir Kodály, fiðlu-
konsert eftir Max Bruch og Sin-
fónia nr. 2 eftir Sibelius.
Norski fiðluleikarinn ARVE
TELLEFSEN er i fremstu röð
fiðluleikara á Noðurlöndum.
Hann er fastráðinn konsertmeist-
ari hjá Sænsku útvarpshljóm-
sveitinni en hefur jafnframt kom-
ið fram sem einleikari i mörgum
helstu borgum Evrópu. Arve
Tellefsen var einleikari hjá
Sænsku útvarpshljómsveitinni á
Listahátiðinni i Reykjavik 1972.
JUSSI JALAS er islenskum tón-
leikagestum einnig að góðu kunn-
ur frá fyrri heimsóknum, 1950,
1954 og 1967 og á Listahátiðinni
1972 þar sem hann stjórnaði Sögu-
sinfóniunni eftir Jón Leifs. Hann
er nú aðalhljómsveitarstjóri
finnsku óperunnar, en hefur einn-
ig stjórnað ýmsum fremstu
hljómsveitum Evrópu, Banda-
rikjanna og Japans.
A siðara misseri verða fluttir 8
Samkvæmt þeim verður lægsta
útborgað mánaðarkaup yfir
40.000,- krónur. Eftirvinna er felld
niður á föstudögum (ekki öll
vinna á föstudögum, eins og
Morgunblaðið sagði i gær).
reglúlegir tónleikar hálfsmán-
aðarlega, og verða hljómsveitar-
stjórar, auk Jussi Jalas, Karsten
Andersen, PáU P. Pálsson og
Bohdan Wodiczko. Einleikarar
verða Björn Ólafsson fiðluleikari,
Lazslo Simon pianóleikari, Gunn-
ar Kvaran cellóleikari, Leon
Goossens óbóleikari, Gisli
Magnússon pianóleikari, Ann
Schein pianóleikari, og franska
óperusöngkonan Mady Mesplé
syngur með hljómsveitinni á
lokatónleikunum 23. mai.
Tryggð er 8 klukkustunda sam-
felld lágmarkshvild á sólarhring.
Vaktaálag hækkar og verður
36,2% á þriskiptum vöktum. Laun
hækka um 13% frá 1. jan. sl. og
siðan um 4% 1. sept. nk. og enn
um 4% 1. april 1975. Hlutfall milli
launaflokka verður óbreytt, þótt
samið verði um breytingar á visi-
tölu. Lausráðnir starfsmenn, sem
unnið hafa 600 klukkustundir eða
meira skulu njóta sömu réttinda
og fastráðnir starfsmenn i veik-
inda- og slysatilfellum. í slysa- og
atvinnusjúkdómstilfellum greið-
ast fyrstu 2 mánuðirnir á fullum
launum og næstu 10 mánuðir á
80% af launum. Kona sem unnið
hefur hjá tsal i eitt ár, heldur
launum i 6 vikur, er hún er fjar-
verandi vegna barnsburðar.
Slysatrygging hækkar úr kr.
1.250.000,- i kr. 1.625.000,-. Fyrsti
mánudagur i ágúst verði fridagur
án frádráttar i launum. 85 starfs-
menn hækka um einn flokk, þann-
ig að enginn verður i 1. launa-
flokki. Sérstök hækkun kemur á
laun iðnnema. Ef starfsmenn
veikjast i orlofi og geta af þeim
sökum ekki notið orlofs fá þeir
viðbótarorlof, jafnlangt og veik-
indatimanum nemur, en skilyrði
þess er þó, að slik veikindi séu
strax i upphafi tilkynnt til starfs-
mannadeildar.
Um ýmis fleiri atriði var samið
i þessum samningum.
Petrosjan
með tvo
vinninga
Petrosjan hefur nú fengið ann-
an vinning gegn Portisch i undan-
keppni HM i skák og þykir nú
nokkuð sýnt að það verði Petro-
sjan og Kortsnoj sem tefli i und-
anúrslitunum, en Kortsnoj hefur
unnið tvær skákir gefn Mecking.
Spasski og Karpof hafa sigrað
sina andstæðinga og þeir lenda
saman i undanúrslitunum og tefla
einhvern tima i april. sennilega i
Moskvu.
DAS:
Hæstu vinningar
Hæsti vinningur i DAS kom á
miða nr. 26127, ibúð eftir vali
kr. 750 þús. Dregið var um
átta bifreiðir eftir vali og
komu þær á miða nr. 11600
(350 þús.), 21834 (300 þús.),
14965, 22954, 23162, 33576. 42775
Og 47474 (250 þús.)
Utanferð kr. 50 þús. kom á
miða nr. 31952 og 63219
Húsbúnaður eftir vali, kr. 25
þús, kom á miða nr. 2004, 18704
og 57292.
Húsbúnaður eftir vali kr. 15
þús kom á miða nr. 8654, 31522,
36948, 52549 og 64010. Þá voru
dregnir út fjörutiu 10 þús. kr.
vinningarog 341 vinningur á 5
þús. kr. V
Fyrsti visir lahdsbyggðasafns
Gömul hús frá Vopna
firði flutt í Árbæ
Borgarráð samþykkti á fundi
sinum í fyrradag að heimila Þjóð-
minjasafninu að setja niður tvö
gömul verslunarhús frá Vopna-
firði á safnsvæði Arbæjar. Er það
væntanlega fyrsti visir að alhliða
byggingasafni eða landsbyggða-
safni á þessum stað, en þetta
verða fyrstu gömiu luisin I Arbæ,
fyrir utan kirkjuna, scm ekki eru
úr Reykjavik.
Húsin tvö frá Vopnafirði eru frá
fyrri hluta siðustu aldar og
standa miðsvæðis i gamla þorp-
inu i Vopnafirði, á þeim stað, sem
Kaupfélagið þar hyggur nú á
mikil umsvif, ætlar að reisa
verslunarhús, frystihús og fleira.
Stóð jafnvel til að rifa húsin, en
Þjóðminjasafnið hefur komið i
veg fyrir það.
Húsin eru fremur illa farin, en
verða tekin sundur og gert. við
þau um leið og þau verða reist á
nýja staðnum. Þjóðminjasafnið
mun sjá um flutning samkv. sam-
komulagi við borgina. Mun safnið
ætla að nota þau að einhverju
leyti fyrir geymsluhúsnæði og
jafnvel til sýninga. _vh
Jalas stjórnar
Sinfóníunni
Tellefsen einleikari í kvöld