Þjóðviljinn - 17.03.1974, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 17.03.1974, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. marz 1974. í TILEFNI AF DÓMI YFIR HEIMDALLI Ilörður Einarsson Eyjólfur Konráð Jónsson SA KA MA MA BEKKURINNi Styrmir Gunnarsson Tveir ritstjórar Morgun- blaðsins og vonbiðill Yísis Hér á eftir eru leiddir fram 3 menn af saka- mannabekk SíA-málaferl- anna. Þeir voru allir til kvaddir af lögmanni sækj- anda til að bera vitni um aðild sína að hinum ólög- mætu athöfnum í sam- bandi við SÍA-málið, þjófn- aði, hylmingu og ritstuldi. Lesendur eru beðnir að veita því athygli, að þeir eru allir í forystusveit Sjálfstæðisf lokksins, rit- stjórar, tilvonandi rit- stjóri, þingmaður, ábyrgðarmenn flokksfé- laga. Öllum er þeim sam- eiginlegt að vera lögfræð- ingar, tveir þeirra eru málf lutningsmenn að auka- eða aðalstarfi, og þeir sömu eru af þeirri manntegund sem kallar sig ,,athafnamenn". Þetta eru Watergate-mennirnir í ís- lensku stjórnmála- lifi. i Styrmir Gunnarsson lögfræðingur, áður formaður Heimdallar, nú ritstjóri Morgunhlaðsins Styrmir Gunnarsson, rit- stjóri og lögfræðingur, hefur gefið skýrslu hér fyrir dómi. Hann sagðist vera félagi i Heim- dalli FUS, hafa verið það i árs- byrjun 1962 og þá verið varafor- maður i stjórn félagsins. Hann sagðist hafa orðið fastur starfs- maður Morgunblaðsins 2. júni 1965, en fyrir þann tima hafi hann m.a. um skeið verið ritstjóri siðu Sambands ungra sjálfstæðis- manna, sem birst hafi i Morgun- blaðinu. Þegar hann hafi átt sæti i stjórn Heimdallar, hafi Eyjólfur Konráð Jónsson, þáverandi og núverandi ritstjóri Morgunblaðs- ins, komið að máli við hann og boðið honum f.h. Heimdallar, að félagið gæfi út svonefndar leyni- skýrslur SIA, sem birst hefðu i Morgunblaðinu fyrir borgar- stjórnarkosningarnar 1962. Hann hafi borið þetta boð undir stjórn Heimdallar, sem hafi samþykkt það. Hann sagðist hafa haft nokkra forystu um það, að „Rauðu bókinni” yrði dreift, en ekki sagðist hann minnast ann- arra afskipta sinna af útgáfu þessari. Hann sagðist halda, að handritið að bókinni hafi verið sent beint i prentsmiðjuna, vænt- anlega af þeim aðila, sem bjó hana undir prentun, en það muni hafa verið Hörður Einarsson, lög- maður hér i Reykjavik. Hafi Hörður annast útgáfuna i sam- ráði við stjórn Heimdallar. Ekki sagðist Styrmi kunnugt um, á hvern hátt gögn þau, sem um- rædd bók er byggð á, hafi komist i hendur Morgunblaðsins eða út- gáfufélags þess. Hann hafi ekki haft nein afskipti af birtingu um- ræddra gagna i Morgunblaðinu árið 1962. Styrmir sagði, að um það hafi verið samið milli hans og Eyjólfs Konráðs Jónssonar, að Heimdall- ur myndi ekki bera neinar fjár- hagslegar byrðar vegna útgáfu bókarinnar, og þvi hafi Heimdall- ur ekki borið neinn kostnað, sem umfram varð, þegar frá væri tek- ið það, sem inn hafi komið vegna sölu á bókinni. Ekki sagðist hann nú eftir um 12 ár geta um það sagt, hver útgáfufjölcji bókarinn- ar hafi verið, en á sinum tima hafi hann haft um það fulla vitneskju. Ekki sagðist hann hafa þessa tölu neins staðar hjá sér i gögnum. Þá sagði Styrmir, að ekki heföi verið rætt um höfundarrétt að gögnum þeim, sem birtust i „Rauðu bókinni”, þegar hann hafi tekið við boði áðurnefnds Eyjólfs Konráðs um útgáfu stefnda á þeim. Ekki sagðist hann heldur minnast þess, að af hans hálfu hafi, áður en nefnd bók var gefin út, verið rætt við höfunda þeirra skýrslna, sem i bókinni birtust. Loks sagði Styrmir, að hann hefði löngum staðið i þeirri mein- ingu, að umsjónarmaður handrits bókarinnar, Hörður Einarsson, lögmaður, hefði verið höfundur þess efnis i bókinni, sem ekki væri byggt á bréfum og skýrslum svo- nefndra SIA-manna. SÍ^Tiálm O » o Hvað er það? Fyrir meira en áratug kom upp það einkennilega mál, að tekið var að skreyta siður Morgunblaðsins með efni úr einkabréfum sem farið höfðu milli einstaklinga innan ákveðins hóps námsmanna. Hafði Morgunblaðið komist yfir bréfin á óheiðarlegan hátt, þar sem þeim haföi verið stolið úr geymslu að Viði- hvammi 25 I Kópavogi. Voru það frumrit og afrit bréfa I eigu Skúla Magnússonar, þá sýsiuskrifara á Patreksfirði, sem komist höfðu I hendur Morgunblaðsins eftir óupp- lýstum leiðum. Efni bréfanna var notað i pólitisku áróðurs- skyni f Morgunblaðinu, og sið- ar gerð af bók á vegum ungra ihaldsmanna i Heimdalli, „Rauða bókin”. Af þessu spruttu langvinn málaferli, þar sem eigendur og rétthafar bréfanna vildu ekki una mcðferð ihalds- manna á þeim. Hafa málaferl- in verið kennd við félagsskap- inn SÍA, en það voru samtök námsmanna i ýmsum löndum Austur-Evrópu og viðar á árunum 1958—62. Fyrir skömmu var loks i borgar- dómi i Reykjavik kveöinn upp efnislcgur dómur I einu þessara mála, og reyndist það áfellisdómur yfir fhaldsmönn- um. Námsmennirnir sem bund- ust samtökunum SÍA voru all- ir við nám eða höfðu numið i hinuin svokölluðu sósialisku löndum. Þeir töldu sig allir sósialista, en þeir höfðu opin augun og voru gagnrýnir á það sem þeir sáu. Um það vildu þeir skiptast á skoðunum i eigin hópi og komast þannig af eigin rammleik til nokkurs þroska. Þroskasaga hvcrs ein- staklings er heillandi fyrir liann sjálfan, en það er óskráð regla að hún sé að jafnaði cinkamál hans og hans nánustu. Þessa siðmenningar- reglu braut Morgunblaðið, og það var e.t.v. meira brot en þau bcinu lögbrot sem framin voru og hér er gerð grein fyrir. Hörður Einarsson___________________ lögfrœðingur og „athafnamaður”, áður formaður Fulltrúaráðs sjálfstœðisfélaganna í Reykjavik, keppir að ritstjóratign á Vísi Hörður Einarsson, hæsta- réttarlögmaður, hefur komið fyr- ir dóm og gefið skýrslu. Hann sagðist hafa verið félagi i Heim- dalli á árinu 1962 og siðar. Hann hafi starfað sem blaðamaður við Morgunblaðið á vissum timabil- um á árunum 1960—1964. Hann sagði, að þegar þessar skýrslur voru birtar i Morgunblaðinu árið 1962, hafi hann m.a. unnið við úr- vinnslu þeirra gagna. Hann sagð- ist ekki muna lengur, hvaða skjöl hann hefði haft undir höndum eða haft aðgang að, þegar umræddar skýrslur voru birtar, en sagðist minnast, að um einhvers konar afrit hafi verið að ræða. Hörður sagðist hafa séð um út- gáfu „Rauðu bókarinnar” undir- búið handritið til prentunar, flokkað efnið og skrifað inngangs- kafla. Bókin hafi verið gefin út á vegum Heimdallar og hafi hann litið svo á, að þetta verk hafi verið unnið fyrir það félag. Ekki sagð- ist hann nákvæmlega muna með hvaða hætti þau gögn, sem bókin byggist á, hafi komist i hans hendur, en sagðist þó halda, að þau hafi komið frá Eyjólfi Konráð Jónssyni, sem þá hafi verið ritstjóri Morgunblaðsins. Ekki sagðist hann vita, hvernig Eyjólfur Konráð Jónsson eöa Morgunblaðið hefðu fengið þessi gögn I hendur, en sagðist alltaf hafa staðið i þeirri meiningu, að gögnunum hefði verið komið til blaðsins af einhverjum vonsvikn- um fyrrverandi eða þáverandi fé- lagsmanni i SIA, án þess að hann gæti nefnt nokkur nöfn. Hörður sagði, að þegar hann hafi fengið umrædd gögn i hend- ur, hafi ekki verið rætt um höf- undarrétt að þeim. Hann hafi ekki haft samband við höfunda hinna ýmsu þátta i bókinni um höf- undarrétt að þvi efni og ekki hefði það heldur borist i tal milli hans og forsvarsmanna Heimdallar. Loks sagði Hörður, að hann héldi, að upplag bókarinnar hefði ekki verið stórt, en um eintaka- fjölda treysti hann sér ekki til að segja. Eyjólfur Konráð Jónsson lögfrœðingur og „athafnamaður”, ritstjóri Morgunblaðsins og þingmaður Sjálfstœðisflokksins Eyjólfur Konráð Jónsson rit- stjóri og hæstaréttarlögmaður, hefur komið fyrir dóm og gefið skýrslu. Hann sagðist hafa verið ritstjóri Morgunbl. á árunum 1962 og 1963 og hafa haft afskipti af birtingu efnis, sem siðar hafi komið út i „Rauðu bókinni”. Hann sagði, að gögn þau, sem umrædd birting i Morgublaðinu byggðist á, hefðu verið send blað- inu, en sagðist ekki vita, hver hefði sent þau. Sagðist hann halda, að þau hafi verið boðsend frekar en komið i pósti Gögn þessi hefðu verið send inn til af- greiðslu blaðsins. Skjöl þessihefðu verið i pakka, sem hafi verið jafn óhrjálegur og skjölin sjálf. Ein- hver af blaðamönnum Morgun- blaðsins muni hafa opnað pakk- ann, sem siðan hafi borist inn til hans opinn. Ekki sagðist honum kunnugt um, að sá, sem flutti skjölin, hafi átt viðræður við neinn af starfsmönnum Morgun- blaðsins. Skjölin i pakkanum hafi aðallega verið afrit, en sumt þó i frumriti. Pakkinn hafi lengi legið hjá honum, en þegar hann hafi farið að blaða i honum, hafi kom- ið á daginn, að þarna hefði verið ýmislegt, sem hafi verið þess virði að birta það. Hann sagðist halda, að undirritanir og athuga- semdirhafi verið á sumum skjöl- unum, en ekki þó nærri þvi öllum. Eyjólfur sagðist ætið hafa staðið i þeirri meiningu, að einhver af höfundum þessara skjala hefði sent þau til blaðsins til birtingar. Ekki sagöist hann vita, hvar skjölin væru niðurkomin núna. Eyjólfur sagðist hafa afhent einhverjum félagsmanna i Heim- dalli umrædd gögn. Ekki sagðist hann muna hverjum, en þó halda, að annað hvort hafi verið um að

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.