Þjóðviljinn - 17.03.1974, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 17.03.1974, Blaðsíða 11
Sunnudagur 17. marz 1974. ÞJóÐVILJINN — StÐA 11 ARMULA 7 - SIAAI 84450 Trúboðsformálinn í barnastundinni: Ummælin refsiverð Um siðustu helgi var flutt í sjónvarpinu /,upp- byggjandi" saga frá stöðvum íslenska trú- boðsins í Konsó í Eþiópíu. Með sögunni var formáli sem barnatímaráð sjón- varpsins taldi óhæft efni fyri ríslensk börn, en við- komandi dagskrárstjóri fékk ráðið þvi fyrir tilstyrk minnihluta útvarpsráðs að hann skyldi fluttur. Það hefur nú komið í Ijós, að flytjandinn, Katrín Guð- laugsdóttir, dagskrárstjór- inn, Jón Þórarinsson, og 3ja manna íhaldið í út- varpsráði, Magnús Þórðarson, Tómas Karlsson og Valdimar Kristinsson, hafa með þessu brotið islensk lög og gerst sek um refsivert athæfi. „Hver sem háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, kyn- þáttar eða trúarbragða sæti sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.” Þessi viðbót við hegningarlögin var samþykkt i einu hljóði á alþingi 10. desember sl. Það er alveg augljóst að um- mæli trúboðans i barnastund sjónvarpsins um „heiðingjana” i Afriku og það hvað þeir ættu bágt vegna trúarbragða sinna fellur Nýkomin indversk nMTl bómullarefni og mussur i miklu 1^.11 J úrvali. Jasmin Laugavegi 133 flft® (BMSlllMWR undir ákvæðið um smánun og eru þvi refsiverð. Sú viðbót við hegningarlögin sem lögfest var i vetur var undir- búin af hegningarlaganefnd er i áttu þá sæti þeir Ármann Snævarr hæstaréttardómari, Jónatan Þórmundsson prófessor, Þórður Björnsson yfirsaka- dómari og Valdimar Stefánsson saksóknari rikisins. 1 greinargerð fyrir þvi frum- varpi er þeir sömdu og alþingi siðar lögfesti rekja þeir forsendur málsins. Segja þeir að lengi hafi vantað slik ákvæði i islensk lög, m.a. til-að tslendingar stæðu við skuldbindingar gagnvart Sam- einuðu þjóðunum og öðrum al- þjóðastofnunum. En sérstaklega hafi ýtt á eftir málinu samningur á vegum SÞ sem beinist gegn misrétti vegna trúarbragða, litarháttar og þjóðernis. Hann var gerður i desember 1965, undirritaður af Islands hálfu i nóvember 1966 og fullgiltur 4 mánuðum siðar. Samningur þessi gekk i gildi 4. janúar 1969, 30 dögum eftir að 27 riki höfðu stað- fest hann, og hefur hann verið auglýstur i Stjórnartiðindunum. Hegningarlaganefndin segir m.a. i greinargerðinni: „Ljóster, að i islensk refsilög skortir almenn refsiákvæði um atlögur að hópi manna vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis o.fl., og svo varðandi útbreiðslu þess konar ummæla. Er réttmætt og nauðsynlegt að fullnægja skil- yrðum samningsins með þvi að lögfesta hér slik ákvæði, en til þeirra liggja auk þess veigamikil rök i riki, sem vill halda i heiðri og treysta almenn mannrétt- indi.” Undir þessi orð vill Þjóðviljinn taka. hj__ Varadekk í hanskahólfi! Puncture Pilot skyndiviðgerð ef springur á bilnum - án þess aö þurfa að skipta um hjól. Krani fyrir kraftblokkina Hiab-Foco býöur útgeröarmönnum sérstakan krana fyrir kraftblakkir. Hiab-Foco kraninn gjörbreytir vinnuaóstööu og möguleikum um borö. Einföld stjórnun og ótrúleg lyftigeta. Leitiö tæknilegra upplýsinga hjá sölumönnum Veltis h. f. SUÐURLANDSBRAUT 16. SIMI 35200 HlflB-FOCO sprautið Puncture Pilot, sem er fljótandi gúmmíupplausn, í hjól- barðann. Brúsinn er með slöngu og tengingu til að tengja við ventil hjólbarð- ans. Efnið lokar fyrir lekann og þér akið áfram. Tvær brúsastærðir og 2ja brúsa sett fyrir vörubíla. — islenskar notkunarreglur fáanlegar með hverjum brúsa. Þér Atvinna Afgreiðslumaður vanur kjötafgreiðslu, óskast nú þegar i verziun okkar i Garðahreppi. Upplýsingar hjá verzlunarstjóranum, simi 42-4-24 og i skrifstofu kaupfélagsins, Strandgötu 28 i Hafnarfirði, simi 50-200. Kaupfélag Hafnfirðinga. F ramkvæmdast jóri Starf framkvæmdastjóra við iþróttahús Garðahrepps er laust til umsóknar. Umsóknir berist undirrituðum, sem veitir upplýsingar um starfið, fyrir 30. mars n.k. Sveitarstjórinn i Garðahreppi. Skrifstofustarf Karlmaður eða kona óskast til skrifstofu- starfa. Upplýsingar i skrifstofunni, Strandgötu 28, simi 50-200. Kaupfélag Hafnfirðinga Ibúar i efra Breiðholti Samkvæmt ákvörðun Borgarráðs frá 1. mars 1974 verður tekið manntal i Breið- holti II. Manntalið fer fram dagana 18., 19. og 20. mars frá kl. 19:00 til 22:30. Félagar í Hjálparsveit skáta annast talninguna. Könnunin er gerð til þess að fá staðfestar hugmyndir um framkvæmdaþröf i hverfinu. A mánudagskvöld hefst talning i Fellahverfi. Siðan verður talið við Vesturberg,en talningu lýkur i Hólahverfi. Borgarstjórinn i Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.