Þjóðviljinn - 23.03.1974, Page 3
Laugadagur 23 marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3
LOÐNAN:
Veður að
skána og
veiði að
glæðast
Veður var heldur fariö að lag-
ast á loðnumiðunum i gærdag og
þá lét veiðin heldur ekki á sér
standa. Eftir hádegið i gær til-
kynntu 12 skip um samtals 2500
tonn fram tilkl. 17, ennóttinaáður
var iítil sem engin veiði. Mestur
hluti aflans fór til Reykjavikur og
Ilafnarfjarfear, en nokkurt þróar-
rými hafði losnað á þessum stöð-
um. —S.dór
Bretar þæfa
LONDON 22/3 — Málflytjandi
bresku rikisst jórnarinnar,
Sainuel Silkin, mun leggja
fram sjónarmið Breta i land-
helgisdeilunni viö tslendinga
fyrir alþjóðadómstólinn i
Ilaag á mánudag. Er þetta
haft eftir einum af talsmönn-
um-breskajitanrikisráðunevt-
isins.
f frétt frá NTB um þetta efni
segir. að þegar Bretar og ís-
lendingar náðu samkomulagi
um takmörkun á veiðum
breskra togara við island i
nóvember i fyrra, þá hafi þá-
verandi forsætisráðherra
Bretlands, Edward Heath.
tekið fram, að samkomulagiö
væri ekki bindandi fyrir lög-
fræðilegt mat á réttindum
landanna beggja. Þaö eru
þessi lögfræöilegu atriði sem
dómstóllinn á nú að fjalla um
— en tsland hefur neitaö að
viðurkenna umboð Haagdóm-
stólsins i slikum málum.
í blaðinu 14. SEPTEMBER
rekumst við á frétt um að komin
sé út á færeysku þýdd bók eftir
Einar Schroll um Ilallgrim Pét-
ursson.
Ekki kunnum við nánari skil á
höfundi, en bókinni er lýst á svo-
felldan hátt: „Bókin segir frá
bernsku- og unglingsárum Hall-
grims. Hann missir föður sinn 12
ára, og Guðbrandur biskup á Hól-
um tekur hann að sér og sendir
hann til Vestmannaeyja i skóla —
og þar gerist afar spennandi
saga. Við lesum um neyðartima,
fátækt, sjóræningja og pestir, en
einnig um guðrækni og það,
hverju hún fær til leiðar komiö.
örlög Hallgrims eru sjaldgæf, en
einmitt þau gerðu hann að einum
af mætustu sonum Islands”.
Bókin heitir á færeysku „Eitt
satt bragd”.
á 33 sýningar
Sveinn Einarsson Þjóðleik-
hússtjóri sagði aðspurður á
blaðamannafundi i gær, að
mjög góð aðsókn hefði verið að
sýningum Þjóöleikhússins það
sem af er þessu ári. i janúar
og febrúar voru sýningar
Þjóðleikhússins 33 og sóttu
nær 30 þúsund gestir þessar
sýningar.
Best aðsókn hefur verið aö
Leðurblökunni og má segja að
uppselt hafi verið á hverja
einustu sýningu. Sigurður
Björnsson óperusöngvari, sem
söng aðalhlutverkið i Leður-
blökunni á fyrstu sýningunum,
er væntanlegur til landsins i
april og mun hann þá syngja á
nokkrum sýningum, en ekki er
ákveðiðhvað þær verða marg-
ar.
Rétthyltingar sýna Mann og konu
Þessi glaðlegi hópur eru nemend-
ur Réttarholtsskólans, en þeir
sctja leikritiö Mann og konu eftir
Jón Thoroddsen á árshátið sinni. 1
tilefni þjóðháliðarárs vcrður
þetta hin vcglegasta hátið og
stendur hún i fjóra daga, 26—29.
mars, mcð fjölþættum dagskrár-
atriðum. M.a. verður smásagan
„Fugl á garðstaurnum” eftir
Halldór Laxness sýnd i leikformi.
Nú eru liðin 40 ár siðan Leikfél.
Reykjavikur sýndi hið þjóölega
leikrit „Mann og konu” i fyrsta
skipti. Leikstjóri þessarar sýn-
ingar ncmenda Réttarholtsskól-
ans cr Ingibjörg Jóhannsdóttir,
og cr hún önnur frá hægri i mið-
röö á inyndinni.
(Ljósm. A.K.)
Kristilegur
reyfari um
Hallgrím
Pétursson
KÓR MH:
Syngur fyrir
Norðlendinga
t gærmorgun lagði kór
Menntaskólans við Hamrahlið
upp i söngferð til Norðurlands
og er meiningin að halda fimm
tónleika á þremur dögum. t
gær átti kórinn að syngja fyrir
nemendur MA og Gagnfræða-
skólans á Akureyri, en I kvöld
heldur hann almenna tónleika
I Bæjarbiói. Á morgun klukk-
an 15, syngur kórinn I Húsa-
vikurkirkju og annað kvöld i
Skjólbrekku.
Kór Menntaskólans við
Hamrahlið hóf starfsemi sina
haustið 1967. I kórstarfinu
hefur verið lögð rik áhersla á
að kynna tónverk frá ýmsum
timabilum, og á efnisskrá
kórsins er jöfnum höndum
innlend og erlend sönglist allt
frá 16. og 17. öld til dagsins i
dag.
Ráðning framkvœmdastjóra BÚR í borgarstjórn:
Tveir framsóknarmenn
30 þús gestir
á móti -
Greinilegt er að i liði
Framsóknarflokksins ríkir
litill fögnuður yfir því
samkrulli borgarstjórnar-
er Ásgeir Magnússon,
framkvæmdarstjóri Sam-
vinnutrygginga, var ráðinn
framkvæmdastjóri Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur án
þess að staðan væri auglýst
laus til umsóknar.
Á fundi í borgarstjórn 21. mars
sl. bar svo.til að tveir borgarfull-
trúa framsóknarmanna, Guð-
mundur G. Þórarinsson og
Alfreð Þorsteinsson, greiddu at- —
kvæði með tillögu þess efnis aö
borgarstjórn frestaði að taka af-
stöðu til málsins, en staðan væri
auglýst laus til umsóknar. Þriðji
framsóknarmaðurinn, Kristján
Benediktsson, sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Tillöguna bar fram borgarfull-
trúi Samtaka frjálslyndra og
einn sat hjá
vinstrimanna, Steinunn Finn-
bogadóttir. Taldi hún meðferð
málsins af hálfu borgarstjóra
hafa veriö vitaverða og spurði
hvort fyrir lægi nokkur vitneskja
um reynslu Asgeirs Magnússonar
af útgerðarmálum. Borgarstjóri
varð fyrir svörum og kvað BÚR
standa i harðri samkeppni um
hæfa menn og þvi talið vissara að
gripa gás meðan gafst, er hann
frétti að Asgeir væri á lausum
kili. Þar að auki hefði aldrei verið
venja að auglýsa til umsóknar
stöðu framkvæmdastjóra BÚR.
Sigurjón Pétursson, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, kvað
meðferð málsins óhæfu og benti á
að með skyndiráðningu Asgeirs
hefði verið komið i veg fyrir að
reyndum mönnum um útgerðar-
mál gæfist færi á að sækja um
stööuna. Björgvin Guðmundsson,
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins,
kvað Asgeir að visu hæfan mann,
en ekki hefði nú samt sakað að
láta borgarráð að minnsta kosti
vita áður en hann var ráðinn, i
stað þess að ákveða ráðninguna
bakvið tjöldin.
Tillaga Steinunnar Finnboga-
dóttur var felld með átta atkvæð-
um sjálfstæðismanna gegn sex
atkvæðum fulltrúa minnihlutans,
það er að segja annarra en Krist-
jáns Benediktssonar. dþ
Nemendur MT sýna:
Afmœlisveisluna
eftir Harold Pinter
Á sunnudagskvöldið kl. 20.30
vcrðnr leikritið Afmælisveislan
cftir Harold Pinter frumsýnt i
Lindarbæ. Þeir sem að sýning-
unni standa eru nemendur
Mcnntaskólans við Tjörnina, og
leikstjóri cr Bjarni Steingrims-
son.
Afmælisveislan er eitt af
fyrstu verkum Pinters i fullri
lengd. Eru persónur sex, og
fjallar leikritið um átök sem
verða á heimili gamalla hjóna
sem hafa einn fastagest er tveir
ókunnugir menn koma þeirra
erinda að hafa gestinn á brott
með sér.
Leikendur eru þau Arnar
Hauksson, Þuriður Kristjáns-
dóttir, Gylfi Dýrmundsson,
Rúnar Guðbrandsson, Sigurður
Bergsteinsson og Agústa Hall-
dórsdóttir.