Þjóðviljinn - 23.03.1974, Page 13
Laugadagur 23 marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
hrakaði stórum þessa dagana og
ég varð að laumast á vertshús til
að sefa hungur mitt.
Mér leið engan veginn vel eins
og gefur að skilja. Ég fór að skilja
hugtakið „forgaður Vitis”. En
loks rann hinn stóri dagur upp.
Það var einn af þessum alltof
heiðskiru dögum i sumarbyrjun,
þegar sólskinið er svo hart og
nistandi að það sviptir næstum
allt lit sinum.
Hið eina,sem ekkki var grátt og
flatneskjulegt, var hún móðir
min. Hún liktist Salote drottningu
af Tonga, aðeins i hvitri útgáfu.
Ég játa fúslega að égvarhreyk-
inn af henni. Hún var geysilega
uppdubbuð en án þess að virðast
ofhlaðin á nokkurn hátt. Einkum
var ég feginn þvi að hún skyldi
ekki hafa gert neina tilraun til að
sýnast yngri en hún var. Virðu-
legt fas hennar minnti á ekkju-
drottningu, og þá á ég ekki við
ytra skartið heldur hina mann-
legu tign sem virðist segja án
orða í — Ég er frá öðrum tima og
harma það ekki.
begar við komum á hótelið, var
eins og við stigum inn i martröð.
Sjálft brúðkaupið var auðvitað
um garð gengið — það hafði trú-
lega tekið svo sem fimm minútur
— og Myra og Ned höfðu nú tekið
sér stöðu i miðjum stóra salnum
og tóku i hendur allra sem inn
komu. Form veislunnar var i
venjubundna skrúðstilnum,stórog
feitur þjónn spurði mann að nafni
sem hann galaði siðan inn i salinn
og siðan staðfestu Myra og Ned
með handabandi að aðgöngumið-
inn væri giidur. betta minnti
mest á það þegar maður fer gegn-
um tollinn.
Þegar við vorum komin gegn-
um mylluna, teymdi ég móður
mina að einum langveggnum, til
að hún gæti virt fyrir sér vigvöll-
inn. Ég náði i eitthvað handa
henni að drekka og tók mér stöðu
við hliðina á henni. Mig langaði til
að hlusta á kuldalegar athuga-
semdir hennar um hina gestina.
En ég uppgötvaði fljótlega að hún
hafði ekki augu af Myru.
— Jæja, svona litur hún þá út,
tautaði hún. Hún hélt áfram að
góna á hana. Ég reyndi að ýta
undir hana:
— í gamla daga,þegar Ned
kom heim til okkar eftir skóla, þá
hefðum við ekki átt von á þvi að
sjá hann i þessum kringumstæð-
um — og þá átti ég auðvitað við
með stúlku af þessu tagi. En ég
var ekki fyrr búinn að sleppa orð-
inu en mér varð ljóst, að ég hafði
auðvitað verið meiri glópur en
móðir min. Hún hristi höfuðið.
— Það er aldrei að vita með
stráka, sagði hún. — Þeir geta
aldrei komið manni á óvart, þvi
að það er engin leið að sjá fyrir
hvað verður úr þeim. Það gegnir
allt öðru máli um stúlkur — það
er næstum alltaf hægt að giska á
hvernig þær verða, og þess vegna
geta þær komið manni á óvart
með þvi að verða öðru visi en bú-
ast mátti við. En það kemur ekki
oft fyrir. Ef ég hefði séð hana —
hún kinkaði kolli i áttina til Myru
— þegar hún var tiu ára, þá hefði
ég sennilega getað séð fyrir, að
hún yrði einmitt þannig—
Þegar hún sagði „þannig”
hreyfði hún báðar hendur, eins og
hún tæki veislusalinn og allar að-
stæður inn i dæmið. Hún átti við
að hún hefði getað séð fyrir
hvernig Ned stóð þarna i lýta-
lausu sjakketinu sinu og þjóninn
sem hrópaði upp nöfn gestanna og
Róbert sem var að gera guð mátti
vita hvað á einhverjum öörum
stað, og Randall sem farinn var
að hella rösklega i sig úti i horni
og Stocker sem gerði hosur sinar
grænar fyrir snoturri konu, sem
hefði getað verið gift löggiltum
endurskoðanda. Með þvi að lita i
svip á Myru sem tiu ára hefði
móðir min getað séð allt þetta
fyrir, vegna þess að hún hefði
skilið sjálfan raunveruleikann
sem allt þetta tilstand var aðeins
brot af.
Andlitið á mér hlýtur að hafa
endurspeglað þennan dapurlega
hugsanagang, þvi að móðir min
sagði fastmælt: — Þú ættir að
fara og blanda geði við fólk i stað
þess að hanga hér og vera eins og
Raspútin á svipinn.
Ég rölti burt. Klukkan var tiu
m'inútur yfir tólf, ég giskaði á að
við yrðum kölluö i mat klukkan
eitt. Það hefði veriö ágætt að
komast i smágöngu til að örva
matarlystina i stað þess að ösla
hér um hnausþykk teppin og
horfa á þetta ömurlega samsafn.
Haningjan sanna, hugsaði ég, það
leynir sér ekki að ég er alveg mið-
ur min. Undir venjulegum kring-
umstæðum hefði ekki þurft annað
en minnast á gönguferð undir
beru lofti, þá hefði ég strax farið
að hugsa um hversu notalegra
væri innanhúss á mjúkum tepp-
um með þægilega stóla innan
seilingar. Ég gæti ælt yfir þessu
öllu saman, hugsaði ég allt i einu.
Þetta er rétt að byrja, og ég er að
gefast upp. Hvers vegna i
fjandanum hafði ég ekki mann-
dóm til að vera heima?
. Þegar hér var komiö náði
Stocker auðvitað i mig. Hann
greip i handlegginn á mér, svo að
flótti kom ekki til greina.
— Jæja, hvaö segirðu nú, Jói?
sagði hann skælbrosandi.
— Um hvað?
— bað var ekki alveg fjarri
sanni sem ég var að segja þarna
um kvöldið i ihaldsklúbbnum, ha?
Og við töluðum stundarkorn um
það en hvorugur nennti að tala i
alvöru og eftir andartak var
Stocker kominn aö eina umræðu-
efninu sem gagntók hann.
— Sástu þessa sem ég var að
tala við? spurði hann og enn kom
sultarsvipurinn á hann.
— Var þaö sú sem hefði getaö
verið gift endurskoðanda?
— Já, annars verslar hann með
korn og fóður, sagði Stocker sem
hafði alltaf raunhæfar upplýsing-
ar á takteinum. — Hún hefur ekki
verið gift nema þrjú ár, og svo
kemur hún mannlaus i svona
veislu. Finnst þér það ekki loía
góðu?
— Af hverju er maöurinn ekki
með henni?
— Hann er að vinna. sagði
Stocker með uppgerðar samúð.
— Stritar eins og fjandinn sjálfur
til að geta hladið i hana. Kjóllinn
sem hún er i hefur kostað
skildinginn. Það er svo sem auð-
séð að kroppurinn er i lagi. Og
hún biður bókstaflega eftir þvi að
einhver dáist að henni.
Ég reyndi að laumast burt, en
hann sleppti mér ekki.
— Veistu hvar hún er núna? hélt
hann áfram. Frammi á snyrti-
herberginu. Þú getur bölvað þér
upp á, að hún er að endurnýja
striðsmálninguna á andlitinu.
Það er alltaf góös viti. Ég sló
henni svo ofsalega gullhamra, að
hún varð að fara fram og lita i
spegil til að gan'gá úr skugga um
að ég hefði sagt satt.
— Hvernig veistu að hún er ekki
með niðurgang? spurði ög og
greip whiskýglas ai' bakka sem
sigldi framhjá. Þetta var
ósmekklegt hjá mér, en Stocker
varð áhyggjuíullur á svipinn.
Þegar hann var i ham, var hann
ónæmur fyrir spaugi.
— Hamingjan góða, það vona
ég ekki. sagði hann alvarlegur. —
Það myndi eyðileggja allt.
Skilurðu það, ég hef hugsað mér
að hamra meðan járnið er heitt.
Þetta er kjörið tækifæri. Áfengið
er ókeypis og það er fyrsta flokks.
Ég get hellt i hana án þess það
kosti mig eyri og svo get ég náð
henni út i bíl. Já, kannski þarf ég
þess ekki einu sinni. Hér er fullt
af smáskonsum eða baðherbergj-
um, sem við getum skotist inn i.
Það væri stórkostlegt að þurfa
alls ekki að fara úf fyrir hótelið.
Hann þagnaði allt i einu og leit
hvasst á mig. — Og hættu þessu
bulli um niðurgang, Jói. Ef hún
Laugardagur
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7,00, 8.13 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20
Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Gisli J. Astþórsson
heldur áfram lestri sögu
sinnar „Isafold fer i sild”
(2). Morgunleikfiniikl. 9.20.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli atr. Morgun-
kaffiðkl. 10.25: Páll Heiðar
Jónsson og gestir hans ræöa
um útvarpsdagskrána. Auk
þess sagt frá veðri og
vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 iþróttir. Umsjónar-
maður: Jón Asgeirsson.
15.00 íslenskt mál. Ásgeir
Blöndal Magnússon
cand.mag. talar
15.20 Framhaldsleikrit barna
ogunglinga: „í sporunum,
þar sem grasið grær” eftir
Guðmund L. Friðlinnsson.
Fimmti og siðasti þáttur.
Leikstjóri og sögumaður:
Steindór Hjörleifsson.
Persónur og leikendur:
Jónsi, Einar Sveinn bórðar-
son. Stella, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir. Þorleifur,
Sigurður Karlsson. Hús-
freyja, Margrét ólafsdóttir.
Guðriður, Þórunn
Sveinsdóttir. Sigurjón, Jón
Hjartarson. Thompson,
Guðmundur Pálsson.
15.45 Barnalög,
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tiu á
toppnum. örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 Kramburðarkennsla i
þýsku.
17.30 íslandsmótið i körfu-
knattleik. Magnús Þ.
Þóröarson lýsir.
17.50 Krá Sviþjóð. Sigmar B.
Hauksson talar.
18.10 Tónleikar. Til-
kynningar.
19.00 Kréttir. Tilkynningar.
19.25 Kréttaspegill.
19.40 „Vis a H a d r i a n s
keisara”, smásaga eftir
Guðmund I)anielsson.Iðunn
Guðmundsdóttir les.
20.05 llljómsveit Georges
Martins leikur létta tónlist.
20.35 Kramhaldsleikritið:
„Ilans hágöfgi” eftir Sigurð
Róbertsson. Annar þáttur:
Sigriður/Ingunn Jensdóttir,
Skáldið/Jón Júliusson, 1.
vatnsberi/Valdemar Helga-
son. 2. vatnsberi/Karl
Guðmundsson, Borgari/-
Sigurður Skúlason, Gunna/
Nina Sveinsdóttir, Hlaupa-
strákur/Július Brjánsson,
Trample/Gisli Rúnar Jóns-
son. 1. kaupmaður/Árni
Tryggvason, 2. kaup-
maður/Hákon Waage.
Ritarinn/Þorgrimur
Einarsson, Jörundur/-
Erlingur Gislason,
Savignac/Jón Sigurbjörns-
son, Phelps/Rúrik Ilaralds-
son, Lifverðir/Þórir Stein-
grimsson. Bessi Bjarnason.
Ilandver Þórláksson og
Sigurður Karlsson.
21.1521.15 Hljómplöturabb.
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (36).
22.25 Útvarpsdans undir
góulok.
21,30 Reguskóguriim
Fræðslumynd frá Time-Life
um vistfræðirannsóknir i
hitabeltisskógum M ið-
Amerikurikisins Panam.a.
Þýðandi og þulur Gisli Sig-
urkarlsson.
22.00 Ast við fvrstu sýn (The
Picnici
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1955, byggð á leikriti
eftir William Inge.
Leikstjóri Joshua I.ogan.
Aðalhlutverk Wi 11 ia m
Holden. Kim Novak. Rosa-
lind Itussel og Cliff Ro-
bertson.
Þýðandi lleba Júliusdóttir.
Aðalpersóna myndarinnar
er piltur, sem kemur i stutta
heimsókn til smábæjar og
vekurstrax athygli og aödá-
un bæjarmanna - og
kvenna.
23.40 Dagskrárlok
AUGLÝSING
Lög um skattkerfisbreytingu verða birt
24. mars 1974. Frá og með 25. mars 1974
ber þvi að innheimta 17% sölugjald, sbr.
16. gr. laganna.
Fjármálaráðuneytið, 21 mars 1974.
Tilboð óskast
i nokkrar iólksbifreiðar, er verða sýndar
að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 26. marz
kl. 12-3.
Tiiboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5
Sala Varnarliðseigna.
16.(50 Jóga til heilsubótar
Þáttur með kennslu i jóga-
æfingum.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
17.00 Þiugvikan
Þáttur um störf Alþingis.
Umsjónarmenn Björn Teits-
son og Björn Þorsteinsson.
17.30 iþróttir
Meðal .efnis verða innlendar
og erlendar íþróttafréttir og
mynd úr ensku knattspyrn-
unni.
I!msjónarmaður óm ar
Ragnarsson.
Illé
20.00 Kréttir
20.20 Vcður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyldan
Bandariskur söngva- og
ga m an m y tid a I'lokk ur.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
,20.50 Vaka
Dagskrá um bókm.enntir og
listir.