Þjóðviljinn - 19.05.1974, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.05.1974, Blaðsíða 3
Surmudagur 19. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA Else Mia Sigurðsson Anna Sigurðardóttir koma upp kvennasögusafni við Háskólann i Xbo. — Hvað um tsland? — Jú, við Anna Sigurðardóttir erum að vinna að aðdraganda þess núna. Hún er að kanna, hvernig slfkt verði mögulegt eftir islenskum aðstæðum. — Er eitthvað til af sliku efni hér. — Það er ekki mikið til • af heilum bókum, en Anna hefur safnað saman ótrúlega miklu af sliku efni áratugum saman, bæði greinum i blöðum og timaritum og köflum eða atriðum i bókum. Fornsögurnar eru td. mikill fjár- sjóður. Það er hún sem vinnur þannig aðalverkið, en ég get aftur hjálpað henni við það bókfræði- lega. — Má þá kannski búast við islensku kvennasögusafni áður en langt um liður? — Það vonum við sannarlega. Það var lika á ráðstefnunni rætt Opinber lina kvennasamtak- anna er að konur öðlist frelsi sjálfkrafa um leið og þær byrja að vinna úti. Sem er ekki mikil speki og hefur oft verið afsönnuð. Ég hlakka til að fylgjast með kvennaþingi, sem haldið verður hér i liaust. Kannski kemur þá eitthvað nýtt fram. En nú dettur mér i hug bar- þjónn, sem við hjón ræddum við um fjölskyldulögin fyrir skömmu. Hann sagðist ekki leyfa sinni konu að vinna úti. Hversvegna? Jú, það endar alltaf með ósköpum. Hann þekkti strætóbilstjóra, sem hafði verið kvæntur i 20 ár og allt i þessu fina lagi. Svo vildi konan endilega fara að vinna úti og gerði það. Eftir 4 mánuði voru þau skilin. Af hverju? Jú, sjáiði til, um leið og hún fór að vinna úti fór hún að ganga i stuttum pilsum og svo eignaðist hún nýjar vin- konur, sem tróðu allskonar vitleysu inni hausinn á henni, og svo vann hún með karl- mönnum og ekki voru þeir betri. Semsagt: Það þarf að læsa kerlingarnar inni, annars fara þær burt! í svona þjóðfélagi er það vissulega bylting að fá konur úti atvinnulifið. En á heims- mælikvarða eru þetta gömul sannindi. Frelsi konunnar kemur áreiðanlega ekki úr neinu vanþróuðu þjóðfélagi. Það þarf meira til en kú- bönsku byltinguna. Rauð- sokkur i kapitalismanum eru áreiðanlega nær markinu, enda þótt mikið vanti á hjá þeim lika. Áreiðaniega á þetta bréf Ingibjargar eftir að vekja marga til umhugsunar og kannski valda vonbrigðum sumra. En herðum upp hug- ann. Það dugir ekki annað en að konur berjist saman fyrir breyttum lögum og reglum og ekki siður breyttum við- horfum og hugarfari. örlitið lóð á vogarskálina tií að vekja menn til umhugsunar getið þið lagt með þvi að haldá áfram að leggja orð i belg og benda á hluti, sem snerta jafnréttis- málin, ánægjulega jafnt sem gremjulega. um samvinnu kvennasögusafna á Norðurlöndum og við munum taka þátt i henni. Akveðið var að - beita sér fyrir, að komið verði upp kvennasögusöfnum á öllum Norðurlöndum.og koma upp sam- skrá kvennasöguefnis þaðan. Þá var ákveðið i tilefni Alþjóðlega kvennaársins 1975 að beina þeim tilmælum til Sameinuðu þjóð- anna, að þau hlutist til um útgáfu á bókaskrá er fjalli um sögu kvenna. —vh 1 Arnlin óladóttir formaður SHl Kona formaður SHÍÍ fyrsta sinn Um miðjan mars var kjörið i Stúdentaráð Háskóla islands og eins og þá var greint frá hér i blaðinu unnu vinstri menn góðan sigur og héldu meirihluta sinum i ráðinu. En áður en að þvi kom að formaður yrði valinn skali á prentaraverkfall og þvi ekki hægt að greina frá þvi. Vökustaurar ætluðu að notfæra sér þá staðreynd að færri konur voru á lista vinstri manna en hjá þeim. En þegar úrslit kosning- anna lágu fyrir leit dæmið öðru- visi út: af lista vinstri manna náðu þrjár konur kjöri en aðeins ein af lista Vöku. Þær voru semsé aðeins til skrauts á listanum þeim. Af þessum þrem konum var svo ein, Arnlin Öladóttir, læknanemi, gerð að formanni ráðsins,og önn- ur, Lára Júliusdóttir, laganemi var kjörin gjaldkeri. Er þetta i fyrsta sinn i sögu ráðsins að kon- ur gegn þessum embættum. Úr þvi ofangreindur áróður hægri manna hafði ekki tilætluð áhrif komu þeir á kreik þeirri sögu að eina ástæðan fyrir vali Arnlinar i formannsstöðuna hefði verið sú að hún var kvenkyns en hins vegar myndu aðrir og valda- meiri aðilar standa að baki og toga i spottana. Þessu er til að svara að þar sem það hefur verið hefð að fela formannsstöðuna ein- hverjum sem verið hefur eitt ár i ráðinu var leitað til tveggja eða þriggja eldri ráðsliða en enginn þeirra gaf kost á sér og þvi var leitað til Arnlinar. —ÞH Rætt viö frambjóðendur í hita kosningabaráttunna ERU BJARTSÝN Á FYLGISAUKNINGU Bæjarstjórnarkosningarnar nú á Seltjarnarnesi verða þær fyrstu eftir að sá hreppur fckk kaup- staðarréttindi. Þar eru nú boðnir fram þrir listar, af hálfu sjálf- stæðismanna, framsóknarmanna og sá þriðji, F-listinn, af hálfu Al- þýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins I sameiningu og með stuðningi fylgismanna Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna. Fjögur cfstu sæti listans skipa Njáli Ingjaldsson, skrifstofu- stjóri, Auður Sigurðardóttir, hús- móðir, Indriði Sigurðsson, sjó- maður og Gunnlaugur Arnason verkstjóri. Hér fer á eftir viðtal, sem Þjóðviljinn átti við Auði Sig- urðardóttur um kosningahorfur i hinu nýja bæjarfélagi. — Hversu margir verða I bæj- arstjórninni hjá ykkur? — Þeir verða sjö, en eru nú fimm I hreppsnefndinni. Ihaldið hefur þar meirihluta, er með þrjá, og er þriðji maður þeirra sveitarstjórinn. Okkur finnst það aldrei fara saman að fram- kvæmdastjóri hreppsins sé með oddaatkvæði um alla gagnrýni á framkvæmdir og reikningshald hreppsins. Vegna þess bárum við i minnihlutanum fram þá tillögu að fjölgað yrði upp i sjö, þótt svo að Seltjarnarnes fengi ekki kaup- staðarréttindi, til þess að dreifa þessu valdi sveitarstjóra. — H- listinn, sem allir ihaldsandstæð- ingar i hreppnum saméinuðust um siðast, hefur tvo fulltrúa i hreppsnefndinni. — Það hefur þá ekki orðið framhald á þeirri samstöðu ihaldsandstæðinga ? — Nei, úr þvi varð ekki. Sam- starf þeirra, sem stóðu að H-list- anum, var að visu gott lengst af kjörtimabilsins, en versnaði held- ur þegar á leið, þegar fulltrúi Framsóknar setti á stofn sveitar- ráð með meirihlutanum, sem samkvæmt umsögn skrifstofu- stjóra félagsmálaráðuneytisins var ólögmætt. Niðurstaðan varð sú að framsóknarmenn ákváðu að kanna fylgi sitt og bjóða fram sér. — Ihaldið stendur föstum fót- um á nesinu, er .ekki svo? — Þvi verður ekki neitað að hingað hefur mjög sótt fólk af hægri kanti stjórnmálanna, og liggja til þess eðlilegar ástæður. Lóðir eru hér dýrar, svo að fólk ræður varla við að kaupa þær nema það hafi þeim mun rýmri fjárráð. Hingað hefur flutt margt fólk, sem ekki hefur getað náð sér i einbýlishúsalóðir i Reykjavik. Þetta, hve dýrt er að koma sér fyrir hér, gerir að verkum að hér helst illa við ungt fólk og gamalt. Það er þvi sagt með sanni um Sel- tjarnarnesið að það sé bæjarfélag miðaldra fólks. — Eru útsvörin hjá ykkur ekki tiltölulega lág? — Nei. En hér er ekki höfn og ekki atvinnurekstur svo heitið geti. Af þvi leiðir að bæjarfélagið er laust við marga þá útgjalda- liði, sem hvila þyngst á öðrum bæjarfélögum. Þar sem fjárhag- ur bæjarfélagsins ætti þannig að vera rúmur, ætti bygging barna- heimilis og elli- og hjúkrunar- heimilis að verða næstu stór- framkvæmdir og ganga til dæmis fyrir byggingu sundlaugar, sem er efst á baugi af hálfu meirihlut- ans. — Hvert er helsta fyrirliggj- andi stórverkefnið? — Það er bygging hins nýja gagnfræðaskóla, sem hófst á sið- astliðnu ári, en tafðist þvi miður um næstum heilt ár vegna sleifar- lags á framkvæmdum málsins, þótt við nytum frá upphafi mjög góðrar fyrirgreiðslu af hálfu f jár- veitinganefndar Alþingis. Auður Sigurðardóttir. — Hvernig hafa nýju tekju- stofnalögin komið niður i Sel- tjarnarnesi? — Þau hafa komið mjög vel út, rekstrarafgangur til eignabreyt- inga nam fjórtán prósentum af tekjum hreppsins siðasta árið áð- ur en þau komu til framkvæmda. en var 1973 um 33%, eftir árs- reikningunum. Þetta sýnir að óþarft var að notfæra sér 50% álagið á fasteignagjöldin, eins og við höfðum reyndar oft bent á. — Hve margir eru á kjörskrá? — 1377, en voru um lOOOsiðast. Sjálfstæðismenn fengu þá um 65% atkvæða. — Eruð þið bjartsýn? — Já, við höfum fyllstu ástæðu til þess að ætla að vinstri menn á Seltjarnarnesi muni fylkja sér um F-listann. Við stefnum ákveð- ið að þvi að fá tvo fulltrúa kjörna. dþ. Sigurjón Erlingsson. Framsókn sleit þessari sam- vinnu i vetur á þeirri forsendu að þeir þyrftu að fara að telja atkv sin hér. 1970 töpuðu samvinnu menn meirihluta sinum i hendur Sjálfstæðisflokks og óháðra sem þá var nýtt framboð. Sjálfstæðis- maðurinn Guðmundur Daniels- son komst inn á hlutkesti sem annar fulltrui „óháðra” á móti fjórða manni á samvinnulist- anum. Alþýðuflokkur bauð þá fram.en hlaut engan kjörinn. Við höfðum ýmsir áhuga á þvi i vetur að myndað yrði sameigin legt framboð Alþýðuflokks, Framsóknar og Alþýðubanda- lags, þvi að við höfðum trú á að með þvi ynnist meirihluti. Þetta varð þvi miður ekki, en i staðinn urðu 4 flokkaframboð og þeii „óháðu” sem fimmti listi. — Hvernig leggjast kosningarn- ar i þig? — Við sem skipum G-listann höfum starfað af fullum krafti að undirbúningi kosninganna siðan i byrjun april. Við höfum haft nokkra fundi þar sem helstu mál- efnaflokkar sem sveitarfélagið varða hafa verið ræddir. Þá höldum við almennan fund núna i vikunni með stuðningsmönnum. Framhald á bls. 13 Selfoss: Alþýðubandalagið þar£ að fá tvo fulltrúa Segir Sigurjón Erlingsson sem skipar efsta sœti G-listans Selfoss er einn af stærrí þétt- býlisstöðunum utan Reykjavikur- svæðisins með hátt á 3ja þúsund ibúa. Þau tiðindi af Selfyssingum sem fréttnæmust hafa þótt á undangengnum misserum er vafalaust Votm úlaæf intýrið, þegar hreppsbúar sameinuðust um að hnekkja þeirri ákvörðun ihaldsmeirihlutans I hreppsnefnd að festa kaup á kostarýrri jörð, Votmúia, fyrir 30 miljónir króna. Mcirihlutinn stóð uppi með aðeins 19% fylgis að lokinni almennri at- kvæðagreiðslu. En kvað skyldi vera að frétta almennt af málum á Selfossi nú rétt fyrir sveitarstjórnarkosn- ingar? Þjóðviljinn sneri sér til Sigurjóns Erlingssonar, múrara, sem skipar efsta sætið á fram- boðslista Alþýðubandalagsins á Selfossi. — Það er rétt að vikja aðeins að atvinnumálunum, sagði Sigurjón. Selfossbúar hafa verið vel settir með atvinnu siðustu árin, það er munur eða á kreppu- timunum á ofanverðum dögum „viðreisnar”. Það má segja að það sé skortur á vinnuafli i ýmsum greinum. Það er t.d. sagt að Kaupfélag Arnesinga vanti menn tugum saman til starfa i smiðjum sinum, en nú er verið að flytja inn i nýjar og miklar verk- stæðisbyggingar. — Er ekki mikið byggt? — Það eru miklar íbúðarhúsa- byggingar i gangi, eins og sjá má af þvi,að á þessu ári hefur verið úthlutað yfir 50 einbýlishúsa- lóðum, auk nokkurra raðhúsalóða og lóð undir fjölbýlishús, en bygging blokka er nýmæli hér, hófst fyrst i fyrra. — Opinberar framkvæmdir? — Hafin er vinna við sjúkrahús Suðurlands sem lengi hefur verið beðið eftir. Verið er að gera grunn undir næsta áfanga i gagn- fræðaskóla, og er þar i all-stórt iþróttahús. I fyrra dag var tekin fyrsta skóflustunga að félags- heimili og gistihúsi, en ekki liggur mikið fyrir um fjármögnun þess. Verklegar framkvæmdir á vegum Selfosshrepps á sl. 4 árum hafa helst verið i fullnaðarfrá- gangi gatna og lagningu oliu- malar. Gangstéttir hafa að mestu gleymst. Hins vegar hefur ekkert verið byggt á hans vegum fyrr en á þessu ári. A sviöi sveitarstjórnarmála höfum við Alþýðubandalags- menn lagt á það áherslu á und- anförnu kjörtimabili að fá lagt fram af hálfu hreppsins fé til byggingar verkamanna- bústaða samkvæmt lögum þar um, en það hefur ekki fengist, þótt þetta sé gert viða á landinu og hafði verið hér áður i stjórnar- tið Samvinnumanna. Núverandi meirihluti felldi greiðslu niður, en við höfðum hugsað okkur að fá afstöðunni breytt ef við fáum bol- magn til. — Þú nefndir Samvinnu- menn.... — Undir þvi heiti báru Alþýðu- bandalagið og Framsókn hér fram sameiginlega lista um langt skeið, og svo var einnig siðast.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.