Þjóðviljinn - 19.05.1974, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.05.1974, Qupperneq 5
Sunnudagur 19. mal 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 Minningarorð Ingvar Magnússon, vélstjóri f. 26.6 1912 - d. 10.4. 1974 Hvað getum við sagt þegar vin- ir okkar eru kvaddir burt svo skyndilega að okkur setur hljóða? Við getum sagt svo fátt, og þó svo óendanlega margt. Minningarnar þyrpast fram hver af annarri eins og bárur sem risa og falla i faðm öldunnar, eins og sólglit sem um- vefur okkur á hlýjum vordegi. Þannig getur andvari vináttu og góðrar kynningar varað lengi og yljað hug okkar. Kynni okkar Ingvars Magnús- sonar hófust fyrir rúmum 20 ár- um, er hann ásamt konu sinni og 4 litlum börnum kom á heimili okk- ar og dvaldi hér tvö sumur. Að visu kom hann aðeins um helgar og i sumarleyfum sinum, þvi hann stundaði fasta vinnu i Reykjavik, en kona hans Kristin Kristinsdóttir sá oft um bæði heimilin i fjarveru konu minnar. Þannig lögðu þau hjónin mikið á sig til að komast með börnin af malbikinu og úr umferðarhætt- um. Það var skemmtilegt að kynn- ast þessum ungu, greindu og lifs- glöðu hjónum. Bjartsýni þeirra, samheldni og óvenjulegt starls- þrek, ásamt glettni og heillandi persónuleika, gerði þau að au- fúsugestum hverjum manni. Seinna sumarið er þau dvöldu hér hafði verið langvarandi ó- þurrkar þegar Ingvar fékk sum- arleyfið sitt, en þá brá við og sól og sumar fyllti dag hvern. Tæki til heyskapar voru ekki slik og nú, og varð að moka öllu heyi með handverkfærum upp i vagnana. Ingvar var i heyskap allt sumar- leyfið sitt. Dag eftir dag hjálpaði hann okkur að hirða ilmandi töð- una i hlöðu, og þegar leyfið hans var á enda var langt komið að hirða. Starfsgleði hans og glað- værð var smitandi og skapaði honum vinsældir og traust meðal samferðamanna sinna. Ingvar Magnússon var Skag- firðingur að ætt og uppruna, fæddur á Sauðárkróki 26/6 1912. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson og Helga Magnúsdóttir. Hann var elstur þriggja systkina sinna, en ólst að mestu upp hjá ömmu sinni Málfriði Friðgeirs- dóttur og manni hennar Þorkatli Jónssyni. Hann stundaði alla al- genga vinnu og var eftirsóttur til starfa, þvi eins og áður segir var hann verkglaður og hlifði sér hvergi, og vann hann við margs- konar störf næstu ár. Leið hans lá á brattann, og 1938 flyst hann suð- ur, aflar sér menntunar sem vél- stjóri og verður fljótlega starfs- maður Fiskiðjuvers rikisins sem vélstjóri og gegndi þvi starfi i nærri aldarfjórðung. Starf hans var vaktavinna, og gat hann þess vegna ekki eins og hugur hans stefndi að helgað sig félagsmálum, en til þess var hann að ég hygg mjög vel fallinn. Greind hans, skýr hugsun og per- sónutöfrar hefðu auðveldað hon- um árangursrika baráttu i félags- málum. Hann var fulltrúi stéttar sinnar á Alþýðusambandsþingum og stóð fast á rétti þeirra sem lit- ils máttu sin og voru skuggameg- in i lifinu. Vélagnýr og óregluleg- ur vinnutimi þreyttu Ingvar, og þó hann væri ekki kvartsár, held ég að oft hafi hann langað að geta notið meir landsins, fegurðar fjallanna, dyns fossanna, hjal- andi lækjanna, ilms bjarkanna og mýktar moldarinnar. Stórbrotið og tigulegt útsýni i æsku hefur átt sinn þátt i að gera fegurð landsins að fjöreggi i sál hans, enda reyndu þau Ingvar og Kristin að njóta þess öllum stund- um sem gafst frá hinni daglegu . önn. Þau leituðu á vit landsins. Þar nutu þau samvista þess og Aðalfundur Samvinnu- trygginga Aðalfundir Sam vinnutry gg- inga, Liftryggingafélagsins And- vöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f. voru haldnir að Hótel Sögu 10. þ.m. Fundina sátu 23 fulltrúar viðs vegar að af landinu, auk stjórnar félaganna, framkvæmdastjóra og nokkurra starfsmanna. Fundarstjóri varkjörinn Ólafur Jensson, verkfr., Kópavogi og fundarritarar þeir Sverrir Þór, Reykjavik, Jóhann Björnsson, Vestmannaeyjum og Grétar Björnsson, Hvolsvelli. Erlendur Einarsson, forstjóri, flutti skýrslu stjórnarinnar og As- geir Magnússon, framkvæmda- stjóri, skýrði reikniriga félag- anna. Þar kom m.a. fram, að heildariðgjaldatekjur Samvinnu- trygginga námu kr. 661,8 milj. á árinu 1973, en það var 27, reikn- ingsár félagsins. Höfðu iðgjalda- tekjurnar aukist um kr. 58,7 milj. eða tæp 10% frá fyrra ári, en þá ber þess að gæta, að vegna breyttra gjalddaga ábyrgðar- trygginga bifreiða, voru bókfærð iðgjöld þessara trygginga á árinu 1973 aðeins fyrir 10 mánuði á móti 16 mánaða iðgjöldum, sem bók- færð voru árið 1972. Iðgjaldstaxt- ar fyrir brunatryggingar fast- eigna voru lækkaðir um 25% við endurnýjun þeirra i október 1973. hinnar hljóðu og tignarlegu feg- urðar tslands. Af sama toga reistu þau sér litið sumarhús upp við Rauðavatn, prýddu það gróðri og fegurð sem var þeim i blóð borin, og voru þar öllum tómstundum er sumarið gaf þeim. Og nú er hann allur.þessi glaði, karlmannlegi og góði drengur. Geislandi tilsvör, glitrandi glettni, brosandi viðmót, sem verður mér og fjölskyldu minni kærkomin eign. Hver maður er eins og sólar- geislinn sem lýsir dálitið svæði. Eg held nú, að við leiðarlok Ingv- ars Magnússonar finnum við, sem kynntumst honum, að þessi birta og ylur er frá honum stafaði verði okkur huggun harmi gegn. Ég færi konu hans, Kristinu Kristinsdóttur og börnunum þeirra elskulegu, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. liermann Guðmundsson Klesastöðum. upp a vasann Allir hyggja á hringferð um landið, og gefst þeim nú kostur^á að tryggja sér vegabréf, en sala á nyjum flokki stendur nú yfir. Það verður að vísu ekki vegabréfs- skoðun á hringveginum, en það fylgir því ákveðin öryggiskennd að eiga slík bréf. Þau eru í fyrsta lagi forsenda þess, að hringvegurinn verði að veruleika, í öðru lagi eru þau verðtryggð og í þriðja lagi fylgir þeim vonin um að hljóta einhvern þeirra árlegu vinninga, sem hér fara á eftir: Vinningar í hvert sinn eru sem hér segir: 6 vinningar á kr. 1.000.000 = kr. 6.000.000 4 vinningar á kr. 500.000 = kr. 2.000.000 55 vinningar á kr. 100.000 = kr. 5.500.000 900 vinningar á kr. 10.000 = kr. 9.000.000 965 vinningar samtals kr. 22.500.000 W) SEÐLABANKI ISLANDS Framhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.