Þjóðviljinn - 19.05.1974, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 19.05.1974, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. mal 1974. Aðeins 252 konur ráða húsum í Breiðholti III Skýrt frá niðurstöðum manntals Borgarhagfræðingur hefur sent frá sér sundurliðaða úttekt á manntali því sem gert var í Breiðholti III þann 3. mars síðast liðinn. Sam- kvæmt úttekt borgarhag- fræðings er f jölmennasti árgangurinn börn á fyrsta ári/ en þau eru 257, eins árs börn eru 255 og tveggja ára börn 234. Af þessum tölum er Ijóst að barnafjöldi í skólum Breiðholts, sem vonandi verða orðnir amk. tveir innan tíðar, mun vaxa til muna næstu árin frá því sem nú er. Aðeins einn árgangur barna, sem kominn er á skólaaldur, er fjölmennari en aldursflokkar, sem á næstu árum munu sækja skólana. Þetta eru sjö ára börn, sem eru 197 talsins. 6 ára börn eru 189, eða jafn mörg og þau sem eru fimm ára og bætast i skólann næsta vetur. Fjögurra ára börn eru 214 og þriggja ára börn eru 196. Af fullorðnu fólki eru aðeins tveir árgangar sem eru 200 eða fleiri, 23 ára eru 200 og 26 ára 208. Aðeins tveir Breiðholtsbúar eru yfir nirætt, karl 92 ára og kvenmaður 93 ára, en þetta eru elstu ibúar hverfisins. Samtals taidist embætti borgarhagfræðings til að þann 3. mars hefðu 6064 ibúar átt lög- heimili i Breiðholti. Konur eru þar i meirihluta eða 3098, en karlar 2966. Fjölmennasta gatan i Breið- holti er Vesturberg, en þar töldust búa 1313 manns. Við Unufell bjuggu 598 og við Yrsu- fell 465. Fjölmennasta hús I Breiðholti og sjáifsagt á landinu öllu er blokkin Æsufell — Asparfell. I Æsufelli bý 391 manneskja og við Asparfell 417 manns, sam- tals 808 manns. Fæstir eru ibúar við Norður- felljfimm talsins. Ef ibúum hverfisins er skipt niður I aldursflokka er aldurs- flokkurinn frá fæðingu að og með 6 ára aldri fjölmennastur, en þeir Breiðhyltingar eru 1534. Breiðhyltingar á aldrinum 7-12 ára eru 908, 13-15 ára 303, 16-19 ára 334, 20-44 ára 2603, 45-66 ára 320 og 67 ára og eldri eru 45. Fyrstu Ibúarnir fluttu i hverfið i nóvember 1970, en þann mánuð fluttu inn 18 manns og um ára- mót 1970-1971 voru 73 fluttir i hverfið. Þar sem embætti borgarhag- fræðings hefur ekki i sínum fórum neitt, sem greinir frá þvi hverjir voru fyrstu innflytj- endurnir,beinir Þjóðviljinn þvi til þeirra, sem það telja sig vera, að láta vita af sér hingað á r itstjórnarskrifstofurnar. I árslok 1971 voru ibúar Breið- holts III orðnir 901, i árslok 1972 voru þeir orðnir 2842, i árslok 1973 voru þeir 5446 og svo 6064 þann 3. mars i ár. Frá ára- mótum til 3. mars fæddust 42 Breiðhyltingar. Flestar ibúðir i hverfinu munu vera þriggja herbergja, en þær töldust vera 467 talsins. 428 ibúðir eru tveggja herbergja og 405 fjögurra herbergja. Fimm herbergja ibúðir eru 176, sex herbergja ibúðir eru 24, og stærstu ibúðirnar eru 7 her- bergja og ekki nema 14 talsins. Tvær ibúðir teljast eins her- bergis. Samtals eru ibúðir i hverfiiju 1540, sem þýðir að til jafnaðar búa 3,9 einstaklingar i hverri ibúð, en það mun láta nærri að vera stærð þeirrar frægu visi- tölufjölskyldu, svo allt tal um óeðlilega barnmargar fjöl- skyldur fellur dautt, og vand- ræðin sem af þvi eru talin hafa stafað, svo sem i skólamálum, af öðrum rótum runnin. 1235 ibúðir i Breiðholti III eru setnar af eigendum þeirra, en 305 ibúðir leigðar. Stærsta fjölskyldan i Breiðholti III er 12 manna fjöl- skylda og er þar aðeins ein slik, og einnig er ein 10 manna fjöl- skylda. Niu manna fjölskyldur eru 6 talsins, átta manna fjöl- skyldur eru 17, 7 manna fjöl- skyldur 50. Sex manna fjöl- skyldur eru 143 og fimm manna fjölskyldur 270. Algengasta fjöl- skyldustærðin er fjögurra manna fjölskyldur, en þær eru 425 talsins. 392 fjölskyldur eru þriggja manna og 184 tveggja manna. Einstaklingar teljast vera 51. Af 6064 ibúum hverfisins eru fjögur hundruð, sem eiga lög- heimili annars staðar en i Breiðholti III, 52 annars staðar i Reykjavik, 117 utan Reykja- vikur, Vestmannaeyingar eru 230 og um einn Ibúa er ekki vitað hvar lögfesti hefur. Siðast i úrtaki borgarhag- fræðings er litil tafla um hús- ráðendur. Af þeim 1540 ibúðum sem 3.mars voru byggðar telur embætti borgarhagfræðings sig vita um húsráðendur i öllum nema einni. Og það sem meira er: húsráðendur eru kyn- greindir, sem að sjálfsögðu þýðir að hjón geta ekki verið húsráðendur saman, heldur aðeins annað þeirra. Þess vegna eru 1287 karlmenn húsráðendur I hverfinu, en konur ráða hins vegar húsum I 252 ibúðum. —úþ Nýr umboðsmaður í Kópavogi Frá og með 17. mai byrjar nýr umboðs- maður i Kópavogi, Hólmfriður Jónsdóttir, Bræðratungu 7, Kópavogi. Simi 42073. Kvartanir út af blaðinu sem hafa borizt umboðsmanni fyrir klukkan 11 verða keyrðar út milli kl. 11 og 13, Berist kvartanir siðar verða þær keyrðar út eftir kl. 16. Guðrún Helgadóttir fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í Æskulýðsráði Rvíkur: ÍBÚÐIR FELLA- HELLIS ekki lausnin. Erfitt er að sjá hvernig þeir menn, sem með þessum unglingum eiga að starfa, geta stofnað til nokkurs sam- bands við þann skara, sem þarna mun koma, eða haft hemil á skynsamlegu starfi af nokkru tagi. Guðrún Helgadóttir. Þegar ég tók sæti I Æskulýðs- ráði fyrir 4 árum, var ástand i æskulýðsm. borgarinnar á þann veg, að einn var sá staður i bænum, sem ætlaður var til æsku- lýðsstarfsemi unglinga, Tónabær. Á þeim stað hefur litið annað farið fram en danssamkomur eins og þær nú tiðkast, og er ekkert við þvi að segja, en heldur verður það þó að teljast lágkúru- legt framlag til uppbyggingar óg þroska æskunnar i borginni. Annað húsnæði til æskulýðsstarfs hefur til skamms tima ekki verið til, og i lok kjörtimabils var ljóst að eitthvað yrði að drifa upp, og þar með var hafin þessi dæma- lausa innréttíng á loftvarnabyrgi Breiðholtsbúa, sem vafalitið mun kosta milli 30 og 40 miljóna króna. Löngu eftir að tugþúsundir manna, flest fjölskyldur með börn á öllum aldri, höfðu fiust I Breiðholtið, var fyrst fyrir alvöru farið að tala um húsnæði fyrir unglinga hverfanna. Fyrir 3 árum flutti ég tillögu um að kaupa skyldi 6-7 ibúðir I hinum ýmsu hverfum borgarinnar til tóm- stundastarfsemi fyrir unglinga undir leiðsögn sérfróðra manna, sem ég áætlaði þá að kosta myndu 16-18 miljónir króna,og skyldi byrjað i Breiðholti og Árbæjarhverfi. Þetta var kolfellt, aðallega á þeirri forsendu, að unglinga þyldi enginn nálægt sér og þá þyrfti að geyma á afviknum stöðum. Óþarft er að eyða orðum að siikri uppgjöf hinna fullorðnu gagnvart æskufólki. Þetta hefur viða verið reynt með ágætum árangri. En þegar leið að kosningum og farið var að bera verulega á erfiðleikum unglinga þar i hverfum, uppgötvaði Æsku- lýðsráð gluggalaust gimald undir Fellaskóia, sem Almannavarnir höfðu ráð yfir. Og til þess snjall- ræðis var gripið að innrétta þessa 1200 fermetra fyrir tugi miljóna, svo að ailir unglingar Breiðholts gætu safnast saman á einn stað þar sem enginn þyrfti að sjá þá eða heyra, nema ef svo ólíklega vildi til að foreldrar þeirra þyrftu að flýja þangað vegna eldgoss eða atómstyrjaldar. Ef — og um það vil ég ekkert fullyrða — við erum orðin svo djúpt sokkin I fáránlega auð- söfnun og græðgi i einskis verða hluti, að unglingarnir okkar eiga i erfiðleikum i mannlegum sam- skiptum, er Fellaskólakjallarinn En ef þessi æskulýðshöll skyldi verða opnuð að hluta fyrir kosningar er mönnum bent á að veita athygli öllum miljónunum, sem liggja i flisum, sem kosta eiga 2-3 miljónir, parketi fyrir miljón,og öðru þvi,sem Virðist orðið inntakið i lifi okkar allra. Lika mætti veita athygli loft- hæðinni, sem varla mundi stand- ast heilbrigðiseftirlit. Þá gæti verið skemmtilegt að hugsa sér staðinn, ef krakkarnir hefðu inn- réttað og málað hann sjálf. Það er sem sagt margt skrýtið og skemmtilegt að hugsa um þarna, en harla fátt sem talist getur áhugavert fyrir unglinga. Hinum ágæta manni, sem tekið hefur að sér stjórn staðarins, er ekki fisjað Þetta er inngangurinn að kjallara Fellaskóla, Feliahellir, sem borg- in hefur kostað tugum miljóna upp á. saman, ef á þessari starfsemi verðúr einhver mynd. Guðrún Helgadóttir. Félagsiundur Félag járniðnaöarmanna verður haldinn þriðjudaginn 21. maí 1974 kl. 8.30 e.h. i Lindarbæ, niðri. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. önnur mál 3. „Heyrnarmælingar iárniðnaðarmanna” Skuli Johnsen aðst.borgarlæknir og Gylfi Baldursson forstöðum. heyrnardeildar. 4. Erindi: „Mennt er máttur”. Stefán ögmundsson forstöðum. M.F.A. flytur. Fjölmennið stundvislega Stjórn Félags járniðnaðarmanna Auglýsingasiminn er woÐvnnNN Kópavogur: Kaffikvöld G-listans Alþýðubandalagið i Kópavogi efnir til kaffikvölds mánu- dag 20. mai kl. 8.30 i Þinghól. Þetta er jafnframt siðasti liðsfund- ur stuðningsmanna G-listans i Kópavogi til undirbúnings bæjar- stjórnarkosninganna. G-listinn hvetur allt stuðningsfólk til að koma þetta kvöld i Þinghól. í STAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.