Þjóðviljinn - 19.05.1974, Blaðsíða 13
Sunnudagur 19. mal 1974. ÞJÓDVILJINN — StÐA 13,
Viðtalið
Framhald af bls. 3.
(Viðtalið er tekið á miðvikudag-
inn var).
Það er ekki gott að spá um það,
hvernig þetta fer núna. En ég
held að ef fólk sem hefur áhuga á
þvi, að hér verði skipt um meiri-
hluta i hreppsnefnd, áttar sig á
þvi að eini möguleikinn til þess að
það sé hægt er sá að G-listinn fái 2
fulltrúa kjörna — þá muni vel
fara. En verði það ekki og
Alþýðubandalagið fái ekki
þennan styrk, eru miklar líkur á
þvi að Votmúlagreifarnir ráði hér
rikjum áfram, og þá er aldrei að
vita hvaö þeim dettur i hug
FELAGSLÍF
Sjálfsbjörg,
Reykjavík
Fariö verður i eins dags ferð
25. mai nk. Félagar, látið vita
um þátttöku i sima 25388 fyrir
21. mai.
Feröanefndin
SINNUM
LENGRI LÝSSNG
NEOEX
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Ðergstaðastr. 10A Sími 16995
——Ém
Tilraun
Framhald af bls. 4.
legt, auk garðs. Vegna sam-
eiginlega rýmisins er reiknað
með að 15—20 fermetrar
dragist frá hverri ibúðar-
einingu.
Hrafn sagði, að fólk i hópn-
um væri, amk. enn, fremur
hikandi við að ákveöa sam-
eiginlega matseld eða barna-
gæslu og annað slikt til að nýta
kosti sambýlisins, hvað sem
siðar yrði. — Við viljum fyrst
og fremst reyna að nýta
kosti fjölbýlis án þess að búa i
blokk,' sagði hann. Það má
kannski segja, að við
leggjum fjölbýlið á hliðina i
stað þess að vera uppi i hill-
um. Við ætlum ekki að gleypa
alltof stóra bita i senn, en vera
hægfara til að byrja meö. Við
höfum þegar rekistá að það er
erfiðara en við hugðum að
tengja saman kenninguna og
framkvæmdina i raun.
Siðan fréttir um þessa
væntanlegu tilraun kvisuðust
út, hefur hópurinn orðið þess
áskynja, að margir fleiri hafa
áhuga á einhverju viðlika, og
sagði Hrafn að lokum, að oft
velti smáþúfa þungu hlassi og
mætti vænta þess að fleiri
hópar gerðu tilraunir með ný
sambýlisform og gætu þá
miðlað hver öðrum af reynslu
sinni.
Aðalfundur
Framhald af bls 5.
Heildariðgjaldatekjur Lif-
tryggingafélagsins Andvöku
námu kr. 15,6 milj. og höfðu auk-
ist um kr. 3,9 milj. eða 32,8% frá
fyrra ári. Andvaka varð 25 ára 9.
þ.m. og i tilefni af þvi ákvað
stjórn félaganna að afhenda
Krabbameinsfélagi tslands og
Hjartavernd kr. 100.000,00 hvoru,
að gjöf.
Bókfærðar iðgjaldatekjur
Endurtryggingafélags Sam-
vinnutrygginga h.f. námu árið
1973 kr. 217,5 milj., en voru árið
1972 kr. 99,4 milj.,' og nemur
aukning þeirra kr. 118,1 milj. eða
118,9%.
Iðgjaldatekjur allra félaganna
námu þvi samtals á árinu 1973 kr.
894,9 milj. á móti kr. 714,2 milj.
árið 1972, og höfðu þvi aukist um
kr. 180,7 milj. eða rösk 25%.
Heildartjón Samvinnutrygg-
inga, greidd og áætluð ógreidd,
námu samtals kr. 506,5 milj., og
varð tjónaprósentan 76,54% á
móti 63,63% árið 1972. Verulegur
halli varð á bifreiðatryggingum
áttunda árið i röð og óvenjulega
slæm útkoma og tap varð á fiski-
skipatryggingum og slysatrygg-
ingum bátasjómanna vegna mik-
illa skipstapa og fjölda sjóslysa.
Þrátt fyrir aukin tjón i þessum
greinum og hækkandi reksturs-
Alþýöubandalagið
G-listinn Selfossi
Kosningaskrifstofa G-listans á Selfossi er opin frá kl. 17 til kl. 22 dag-
lega. Skrifstofan er i Þóristúni 1, niöri, simi (99)-1888.
G-listinn, Hafnarfirði
Kosningaskrifstofa Alþýöubandalagsins i Hafnarfirði er opin frá kl.
17—22 alla daga. Skrifstofan er að Suðurgötu 7, Góðtemplarahúsinu.
Siminn er 53640.
G-listinn Keflavík
Kosningaskrifstofan að Tjarnargötu 4 er opin alla daga frá kl. 13 til kl.
23. Simi 3060.
Grundfirðingar
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins I Grundarfirði er i gamla
sparisjóðshúsinu. Simi 8731.
Borgarnes
Kosningaskrifstofan á Borgarbraut 28 er opin virka daga kl. 20—22,
um helgar kl. 14—18 og 20—22. Siminn er 7269.
Jarðarför móöur okkar
Bjarneyjar Sólveigar Guðmundsdóttur
frá Hrafnf jarðareyri Grunnavikurhreppi
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. mai kl. 15.
Börn hinnar látnu.
kostnað varð hagnaður af rekstri
Samvinnutrygginga, sem að visu
nam ekki nema rúmu 1% af heild-
ariðgjaldatekjunum, og verður
endurgreiddur tekjuafgangur til
tryggingatakanna kr.
6.435.000,00.
Með þessari endurgreiðslu
tekjuafgangs hafa Samvinnu-
tryggingar samtals endurgreitt
þannig til tryggingatakanna kr.
97 miljónir, frá þvi fyrst var haf-
in endurgreiðsla tekjuafgangs
fyrir 25 árum siðan, en upphæðin
næmi tæpum 500 miljónum króna,
ef hún væri reiknuð út miðað við
raungildi peninganna á hverjum
tima.
1 stjórn félaganna voru endur-
kjörnir þeir Erlendur Einarsson,
forstjóri, Reykjavik, formaður,
Ingólfur Ólafsson, kaupfélags-
stjóri, Kópavogi og Ragnar Guð-
leifsson, kennari, Keflavik. Aðrir
i stjórn eru Jakob Frimannsson,
fyrrv. kaupfélagsstjóri, Akureyri
og Karvel ögmundsson, útgerð-
armaður, Ytri-Njarðvik. _vh
Mitterand
Framhald af bls. 9.
var: „kjósið meirihluta til aö
styðja Pompidou”, og nú segir
Giscard i rauninni: „kjósið for-
seta i samræmi við þingmeiri-
hlutann”. Þannig er hægt að
halda endalaust áfram. Þessi rök
höfða mjög til kjósenda, sem ótt-
ast mest af öllu stjórnmála-
kreppu og upplausn.
Eru stjórnarskipti
hugsanleg?
Þetta er i rauninni kjarni máls-
ins. öllum skoðanakönnunum og
fréttaskýrendum ber nú saman
um að gifurlegur breytingavilji
geri nú alls staðar vart við sig,
menn vilja alls staðar nýja
stjórnarhætti. Vegna stefnuskrár
sinnar og stuðningsmanna virðist
Mitterrand vera rétti maðurinn
til að koma til móts við þennan
breytingavilja og ekki verður um
það efast að hann hefur mikið bol-
magn til að leysa þau vandamál,
sem nú steðja að Frakklandi.
Skoðanakannanir benda lika til
þess að hann hafi hreinan meiri-
hluta verkamanna og ungs fólks:
hann nýtur fylgis 56% þeirra sem
eru milli 21 og 34 ára. Ef kosn-
ingaaldur væri nú miðaður við 18
ár — eins og Messmer lofaði 1973
en hefur ekki framkvæmt — er
litill vafi á þvi að Mitterrand næði
kosningu. Hins vegar nýtur hann
ekki fylgis nema 37% þeirra sem
eru yfir 65 ára aldur — þeir styðja
Giscard með yfirgnæfandi meiri-
hluta.
En með þvi að höfða kænlega til
dýpstu tilfinninga þeirra litt pólit-
isku kjósenda sem úrslitum ráða
— óttans við breytingar — gerir
stjórnmálakerfið raunhæfar
breytingar mjög torveldar. Það
er augljóst að ekki er unnt að
skipta um stjórn nema þvi fylgi
breyting — og einhver óvissa —
og nýir menn komist til valda.
Með þvi að búa svo um hnútana
að sigur vinstri flokkanna, hvort
sem er i forseta- eða þingkosning-
um, hljóti nánast að valda óleys-
anlegri stjórnarkreppu, og með
útskúfun kommúnistaflokksins,
sem gerir stóran hluta stjórnar-
andstöðunnar tortryggilegan,
magnar stjórnmálakerfið þá
erfiðleika sem stjórnarskiptum
fylgja. Giscard leggur þessi spil
haglega á borðið og gerir þau að
aðalatriðunum. Með þvi magnar
hann ótta hinna óákveðnu og
sleppur undan þvi að ræða aðal-
atriði málsins: ábyrgð hans sjálfs
á stjórn Frakklands undanfarin
ár og raunveruleik þeirra umbóta
sem hann boðar nú allt i einu.
Ekki má þó ætla að engar
breytingar verði i Frakklandi ef
Giscard nær kosningu. Þrátt fyrir
loforð sin er litill vafi á þvi að
hann er sjálfur fyrst og fremst
talsmaður nýkapitalismans og
umbótastefna hans nú er kvöð
sem hann leggur á sig vegna
kosningabaráttunnar. Hann getur
vitanlega ekki stungið henni und-
ir stól að kosningum loknum, en
nái hann kosningu er liklegast að
Frakkar haldi enn hraðar áfram
á þeirri braut nýkaþitalismans
sem de Gaulle og þó einkum
Pompidou höfðu markað. Hinn
takmarkaði umbótavilji gaull-
ismans gleymist, og hagsmunir
stóriðjunnar verða settir i önd-
vegið. I kosningunum 19. mai
geta Frakkar þvi valið um tvær ó-
likar þjóðfélagshugmyndir.e.m.j.
RÍKISSPÍTALARNIR
■ ■ • ■
VÍFILSSTAÐ ASPÍ TALI:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa i eins árs stöðu frá 1. júli n.k.
Umsóknarfrestur til 20. júni n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir, simi
42800.
AÐSTOÐARMAÐUR á sjúkra-
deildum óskast til starfa nú þegar.
Upplýsingar veitir forstöðukona
eða umsjónarmaður spitalans,
simi 42800.
ÞVOTTAHÚS
RÍKISSPÍTALANNA:
STARFSFÓLK, konur, ekki yngri
en tvitugt, og karlmaður, óskast til
starfa nú þegar til framtiðarstarfa
og til sumarafleysinga. Upplýsing-
ar veitir forstöðukonan, simi 81714.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA:
BóKARI, karl eða kona, óskast til
starfa við sjúklingabókhaldsdeild,
helst frá 1. júni n.k. Upplýsingar
veitir starfsmannastjóri, simi
11765._____________________
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa i blóðmeinafræði við RANN-
SÓKNADEILD frá 1. júni n.k. Nán-
ari upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar, simi 24160.
DEILDARMEINATÆKNIR óskast
til starfa i blóðmeinafræði við
RANNSÓKNADEILD frá 1. júni
n.k. Upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar, simi 24160.
Tveir AÐSTOÐARLÆKNAR ósk-
ast til starfa á LYFLÆKNINGA-
DEILD, annar frá 1. júli,en hinn
frá 1. ágúst n.k. Umsóknarfrestur
til 20. júni n.k. Nánari upplýsingar
veitir yfirlæknir deildarinnar, simi
24160.____________________
FóSTRA óskast til afleysinga á
BARNASPÍTALA HRINGSINS i
sumar. Upplýsingar veitir yfir-
læknir barnaspitalans, simi 24160.
Umsóknum, er greini aldur,
menntun og fyrri störf, ber að
senda skrifstofu rikisspitalanna.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi
á sama stað.
Reykjavik, 17. mai 1974,
SKRIFSTOFA
RÍKISSPiTALANNA
EIRiKSGÖTU 5.SIM111765
Sérfræðingur
Staða sérfræðings i orthopedi eða skurð-
lækningum við Slysadeild Borgarspital-
ans er laus til umsóknar. Staðan veitist til
eins árs.
Nánari upplýsingar gefur Haukur
Kristjánsson, yfirlæknir.
Reykjavik, 17. mai 1974.
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.