Þjóðviljinn - 19.05.1974, Side 16
DIÚÐVIUINN
Sunnudagur 19. mal 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Helgar-, kvöld- og næturvarsla
lyfjabúða i Reykjavik 17.-23. mai
er i Reykjavikur- og Borgar-
apóteki.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Kef lavíkur-s j ónvarpið
Æila Bandarikjamenn að þverskallast og svikja gefin loforð?
Þjóðviljinn hafði í gær
tal af Einari Ágústssyni
utanríkisráðherra og innti
hann eftir efndum á þess-
um loforðum. Það er hlut-
verk utanríkisráðuneytis-
ins að sjá um að Banda-
ríkjamenn hlýði ákvörðun-
um og efni sin eigin loforð.
Einar sagði:
— Ég hef nú ekki alveg nýjustu
fréttir, en siðast þegar ég talaði
við sendiráðið, var þetta i fullum
gangi.
— Eru þeir þá byrjaðir á fram-
kvæmdum?
— Þeir eru byrjaðir að útvega
sér það sem á að koma i staðinn
sem er minni stöð.
— Er nokkuð vitað um það
hvenær þessu verður lokið?
— Nei, ég get ekkert sagt um
það.
Véfrétt hersins
Þá simaði Þjóðviljinn til
Marchall Thyer, blaðafulltrúa
herliðsins á Keflavikurflugvelli
og spurði hann um framkvæmdir
i málinu. Hann visaði á yfirmann
sinn, Mead höfuðsmann, sem er
yfirmaður i upplýsingastofnun
hersins. Mead bauðst til þess að
kanna málið. Hann hringdi til
okkar eftir nokkrar klukkustund-
ir og las okkur eftirfarandi upp-
lýsingar:
— Þegar tækin sem nú eru i
pöntun i Bandarikjunum eru
komin hingað og framkvæmdum
við nauðsynlegar tæknilegar ráð-
stafanir lokið, verður sjónvarps-
sendingum varnarliðsins bægt frá
Reykjavikursvæðinu.
EkkikvaðstMead höfuðsmaður
geta sagt i hverju hinar tæknilegu
ráðstafanir væru fólgnar, né
heldur vissi hann hvenær tækin
kæmu úr pöntun frá Bandarikjun-
um.
Svik í tafli?
Af þessum svörum má augljóst
vera að full ástæða er til að gruna
Bandarikjamenn um að ætla að
svikja gefin loforð og þverskall-
ast við að framkvæma fyrirmæli
islenskra stjórnvalda i þessu
máli.
Þjóðviljinn krefst þess að utan-
rikisráðherra tryggi tafarlausa
takmörkun hersjónvarpsins eða
að öðrum kosti verði þvi lokað al-
gjörlega þegar i stað.
99
Grœna byltingin — hvað er það?
T>T>
Björn Guðnason, bilstjóri, Kefla-
vik: ,,Ég er varla farinn að velta
kosningaúrslitunum fyrir mér
— en ég er hræddur um að ihaldið
sigri, þótt ég kjósi það ekki. 1
Keflavik er ihaldið sterkt, það
gerir t.d. vera herliðsins. Við
bilstjórar fáum td. mikið að gera
kringum herliðið”.
Georg Helgason, sjómaður: „Ég
kýs ekki i borgarstjórnar-
kosningum. Það er. orðið alveg
sama hvernig þetta fer — langt
siðan ég sá að það munar ekki um
mig. Alþingiskosningar eru
meira spennandi — þá vakir
maður eftir úrslitunum”.
Halldór Þorsteinsson,
verkamaður: „Sjálfstæðismenn
hafa setið allt of lengi i borgar-
stjórn — það verður að binda endi
á svivirðuna. Ég veit ekki hve
mörgum þeir tapa úr
borgarstjórninni, en ég geri mér
amk. vonir um að þeim fækki um
einn”.
[rabbað við fólk á förnum vegi
Bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningar fara fram eftir rétta
viku.
Kannski hverfa þessar
kosningar nokkuð i skugga
væntaniegra Alþingiskosninga,
sem háðar verða siðast I júni — en
hvernig sem þvi er varið, þá er þó
Ijóst, að mikil eftirvænting verður
samfara b or g a r s t j ór n a r-
kosningunum I Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haldið borgarstjórnarmeirihluta I
Reykjavik um hálfrar aldar
skeið.
Og þótt stundum hafi veriö
mjótt á mununum, þá eru nú
augljósar likur á að vinstri flokk-
unum muni takast að binda endi á
næstum ótrúlega langa setu hægri
manns I borgarstjórastóli.
Þjóðviljamenn brugðu sér i
langa gönguferð um borgina fyrir
helgina og reyndu að fá sem
til að spá'um úrslit kosninganna.
Margir voru reyndar svart-
sýnir á að Sjálfstæðisflokkurinn
myndi tapa fleiri en einum manni
úr borgarstjórninni núna — en þó
er aldrei að vita hve langt borgar-
stjórnarihaldið rennur á rassinn
vegna grænbyltingarvindhöggs-
ins.
„Þeir hafa stjórnað svo lengi,
að allar stofnanir borgarinnar
eru löngu setnar sjálfstæðis-
mönnum. Það tekur mörg ár að
hreinsa þá út”, sagði verkamaður
einn, sem við hittum við höfnina.
„Ég veit satt að segja ekkihvað
skal segja um þessar
borgarStjórnarkosningar. Þetta
verður alla tið eins — ein silkihúfa
upp af annarri”, sagði Halldór
Þorsteinsson verkamaður, „og
listarnir sem manni er boðið upp
á að kjósa, maður guðs og
lifandj!”
Þeir trúa á guð
„Við kjósum aldrei
kommúnista”, sögðu tveir ungir
menn, s'em við hittum I Tryggva-
götu, „við kjósum þá ekki vegna
þess að þeir trúa ekki á guð”.
Þeir sögðust ekki vilja láta
nafna sinna getið, „við ætlum
nefnilega ekki að kjósa. Við
kjósum aldrei i borgarstjórnar-
kosningum”.
Stafar það af guðsótta — eða
haldið þið að Birgir Isleifur trúi
ekki heldur á guð?
„Við vitum það ekki”, sögðu
þeir þá — og vildu ekki fara meira
út i trúmál.
Björn Hjálmarsson,
verkamaður taldi fullvist að
sjálfstæðismenn töpuðu tveimur
borgarfulltrúum i kosningunum.
Hvers vegna tveimur?
„Nú er nóg komið af ihalds-
stjórn. Borgin er fyrir löngu orðin
ein allsherjar ihaldsborg. Þeir
eiga borgina. Það er ekki hægt að
láta þetta viðgangast lengur”.
Græna byltingin,
hvað er það?
Við gengum Tjarnargötuna og
tókum tali stuttklædda frú: Held-
urðu að sjálfstæðismenn fái mörg
atkvæði út á grænu byltinguna?
„Grænu byltinguna, hvað er
það? ”
A Grandagarði biðu tveir kefl-
viskir vörubilstjórar eftir að fá
hlass á bila sina úr Selfossi.
Þeir voru að keyra fyrir setu-
liðið og héldu að sjálfstæðismenn
Kosníngasj ónv arp
klukkan 2 í dag
Þjóðviljinn vill minna lesendur
sina á kosningasjónvarpið fyrir
Reykjavik og Kópavog, sem hefst
klukkan 2e.h. i dag, sunnudag. Af
hálfu Alþýðubandalagsins I
Reykjavik koma fram Þorbjörn
Broddason, Guðrún Helgadóttir,
Guðmunda Helgadóttir, Guðrún
Ágústsdóttir_og Adda Bára Sig-
fúsdóttir. Af hálfu Alþýðubanda-
lagsins i Kópavogi flytja ávörp
Helga Sigurjónsdóttir, Björn
Ólafsson og Guðrún Stephensen,
og i hringborðsumræðum taka
þátt ólafur Jónsson og Sigurður
Grétar Guðmundsson.
Tobias Tryggvason, bilstjóri,
Keflavik: Ekki kýs ég ihaldið, en
mér list samt ekki á úrslitin i
Keflavik. Það er sterkt þar”.
Lúðvik Magnússon, verkamaður:
„Mér heyrist það á mönnum að
nú sé að verða lokið áralangri
setu sjálfstæðismanna i mejri-
hluta borgarstjórnar. Græna
byltingin? Já, ætli þeir falli ekki á
þeirri vitleysu”.
i Keflavik myndu vinna á i bæjar-
stjórnarkosningunum.
Ætlið þið að kjósa ihaldið?
„Nei, nei — en ég er hræddur
um að ihaldið haldi sinum styrk i
Keflavik. Völlurinn hefur svo
mikið að segja”, sagði annar
þeirra, „við vörubilstjórar
keyrum mikið fyrir herinn”.
En þeim kom ekki til hugar að
kannski myndu þeir einhvern
tima keyra fyrir aðra.
i minnihluta
í fjörutíu ár
Karlarnir i Slippnum létu tals-
vert af þvi, hve heitt þeir rifust i
kaffitimanum um pólitik — ,,þú
ættir bara að hlusta”, sagði einn
Björn Hjálmarsson,
verkamaður: „Við verðum að
hrinda ihaldinu úr valdastóium
núna. Ég er þess fullviss að það
tapar tveimur bæjarfulltrúum
núna”.
Ilallmundur Eiinmundarson,
verkamaður: „Oft hefur verið
þörf á að klekkja á ihaldinu, en nú
er það nauðsyn. Ég hef nú tilheyrt
minnihlutanum i fjörutiu ár, og
tel þvi i fyllsta máta mál til komið
að fara að skipta”.
vasklegur járnaklippari, „þá
fengirðu nægilega mikið efni i
mörg blöð.”
Eru vinstri menn i sókn?
„Þaö held ég sé alveg augljóst
— þú ættir annars að tala við hann
Erling”, og járnaklipparinn hló
hátt — „þá fyndist þér sjálfsagt
skritið að sjá ekki ailt ihaldsiiðið
teymt á eyrunum út úr borgar-
skrifstofnum daginn eftir kosn-
ingarnar!” Og járnamaðurinn
hló enn hærra.
„Það er mál til komið að við
förum að klekkja ærlega á
ihaldinu”, sagði Hallbjörn Elin-
mundarson, „og ég held það geti
verið, að þab takist að þessu
sinni”.
—GG
l